Morgunblaðið - 21.03.1999, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 21. MARZ 1999 53
FRETTIR
Fyrirlestur um
átta greindarsvið -
átta leiðir í kennslu
BANDARÍSKI sálfræðingurinn dr.
Thomas Armstrong flytur fyrirlest-
ur á vegum Rannsóknastofu Kenn-
araháskóla íslands og félagsvísinda-
deildar Háskóla íslands mánudag-
inn 22. mars kl. 16.15. Fyrirlestur-
inn nefnist: Átta greindarsvið - átta
leiðii- í kennslu.
I fréttatilkynningu segir: „í fyrir-
lestrinum mun dr. Armstrong fjalla
um fjölgreindarkenninguna en
kjarni þeirra kenningar er að
greind sé mun flóknara fyrirbæri en
hefðbundin greindarpróf mæla og í
raun sé ekki um eins konar greind
að ræða heldur 7-8 mismunandi.
Þessi kenning hefur fallið í góðan
jarðveg hjá kennurum og öðrum
skólamönnum víða um heim þar
sem hún styður fræðilega það sem
kennarar hafa „alltaf vitað“ þ.e. að
hæfileikar mannsins eru fjölbreyti-
legar og ekki allir mælanlegir á
sama hátt.
Dr. Armstrong er þekktur fræði-
maður og eftirsóttur fyrirlesari bæði
í heimalandi sínu og öðrum löndum.
Hann hefiir 25 ára kennslureynslu
að baki sam spannar allt frá yngstu
nemendum grunnskóla til doktor-
snemenda í háskóla. Dr. Armstrong
hefur skrifað átta bækur sem hafa
hlotið mikla viðurkeningu og verið
þýddar á þrettán tungumál. Tvær
bóká hans, Multiple Intelligence in
the Classroom og Seven Kinds of
Smart fjalla um fjölgreindarkenn-
ingu Howards Gardner, prófessors
við Harvard-háskóla, og tengsl
hennar við skólastarf.“
Fyrirlesturinn verður fluttur á
ensku í stofu M-201 í Kennarahá-
skóla íslands við Stakkahlíð. Öllum
er heimill aðgangur.
Nýtt húsnæði
Hef flutt stofu mína í Álfabakka 12 í Mjódd.
Meðvirkninámskeiö hefjast 6. apríl á þriðjudögum
og helgarnámskeið 10. apríl.
Upplýsingar í nýju símanúmeri: 587 7228 og 897 7225
ragnh@mmedia.is
Ríignlieidur Okuwttir
Námskeíð, stuðningsllópar, traiðsla,
GO30 IIÍYNA
-BETM S¥EFN
3 dýnugerðir; Ambassador, Royal og Comfort
Lífstíðarábyrgð á fjaðrakjarna
Fást sem: mjúkar, millistífar, stífar eða mjög stífar Bómullaráklæði, teygjanlegt í báðar áttir. Þolir 60° þvott Þrjár mismunandi gorma- uppbyggingar
Vandaður myndalisti fdanlegur
OPIÐ:
TM - HÚSGÖGN
Mán.-fös. 10:00 - 18:00m 3000 m^sýnmgarsalur . o
Fimmtud. 10:00 - 20:00 SiSumúla 30 'S!m'568 6822
Laugard. 11:00- 16:00
Sunnud. 13:00 - 16:00
Kæru vesturbæingar
og aðrir viðskiptavinir
Hagabúðarinnar,
Hjarðarhaga 47
Um Ieið og verslunin hættir, þökkum við innilega
fyrir mikií og ánægjuleg viðskipti og einstakt
trygglyndi á undanfórnum árum og áratugum.
Við kveðjum með trega. Guð blessi ykkur öll.
fíreinn BJarnason, Anna Agnarsdóttir,
Lfíja fíreinsdótiir, Björk ffreinsdótiir.
Kynning á
stuðningi Evrópusambandsins við
rannsókna- og þróunarstarf
lítilla og meðalstórra fyrirtækja
Fundurinn er sérstaklega ætlaður fyrirtækjum á sviði fiskveiða,
fiskvinnslu, fiskeldis, matvælavinnslu og í tengdum greinum.
Fundurinn verður haldinn
þriðjudaginn 23. mars 1999 , kl. 8:15-10:00
í Gullhömrum (í kjallara) í Húsi iðnaðarins Hallveigarstíg 1
mspron
U SPAftlSJÖtHUt HeVKlAVÍKUR Dú NÁDRENNiS
AÐALFUNDUR
Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis verður
haldinn á Hótel Loftleiðum, Þingsölum I-4,
kl. 16:30, föstudaginn 26. mars 1999.
Dagskrá:
1. Skýrsla stjórnar um starfsemi sparisjóðsins á árinu 1998
2. Lagður fram til staðfestingar endurskoðaður ársreikningur
sparisjóðsins fyrir árið 1998, ásamt tillögu um ráðstöfun tekjuaf
gangs fyrir liðið starfsár
3. Kosning stjórnar
4. Kosning endurskoðanda
5. Tillaga um ársarð af stofnfé
6. Tillaga um þóknun stjórnar
7. Tillaga um breytingar á 4. og 5. gr. samþykkta sparisjóðsins
8. Önnur mál
Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar verða afhentir á fundarstað í
fundarbyrjun.
Sparisjóðsstjórnin.
DAGSKRÁ
• Árangur íslenskra fyrirtækja í 4. rammaáætlun Evrópusambandsins
Hörður Jónsson, forstöðumaður Tæknisjóðs
• Möguleikar íslenskra fyrirtækja í rannsókna-og þróunarverkefnum
Björn Ævar Steinarsson, sérfræðingur hjá Framkvæmdastjórnar ESB DG XII
• Kynning á verkefninu „Tölvuvætt skynmat (QIMIT)" .
Þátttökufyrirtæki: Kerfi hf., Haraldur Böðvarsson hf., Hólmardrangur hf.,
Fiskmarkaður Suðurnesja hf.
Emilía Martinsdóttir, Rannsóknastofnun Fiskiðnaðarins
• Fyrirspurnir og almennar umræður
Fundarstjóri: Ragnheiður Héðinsdóttir,
matvælafræðingur, Samtökum iðnaðarins
Fundurinn er ókeypis og öllum opinn . Hægt er að panta viðtal við Björn Ævar
eftirfundinn. Þeir sem vilja panta viðtal eru beðnir um að hafa samband við
Ragnheiði Héðinsdóttur í síma 511 5555 eða með tölvupósti: ragnheidur@si.is
Kynningarmiðstöð Evrópurannsókna
---Samstarfsvettvangur___
SJÁVARÚTVEGS & IÐNAÐAR
<§>
■ ■■
Samtök iönaðarins
RAIUMÍS
Rannsóknarráð íslands
HNOTSKÓGUR RÍ 139-99