Morgunblaðið - 14.04.1999, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
N etavið-
Islendingur tekinn með 50 kg af kannabis á landamærum Spánar og Frakklands
KEA Nettó ekki
á leið í Kaupás
gerðir í
nepjunni
FÁIR bátar voru á sjó í gær
vegna brælu. Þessi vel dúðaði
maður var við netaviðgerðir í
Reykjavíkurhöfn og stoppaði í
aflagaða möskva. Það líður að
lokum vetrarvertíðar, sem lýkur
11. maí. Skipta þá margir úr
netaveiðum yfir í annan veiði-
skap.
ekkert á móti því að sameina fleiri
aðila en því væri ekki að heilsa.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hafa farið fram óformlegar
viðræður um að KEA Nettó komi til
liðs við Kaupás og að það sé eitt af
mörgum atriðum sem séu til skoðun-
ar varðandi breytingar og endur-
skipulagningu í smásöluverslun
næstu vikur og mánuði.
Verið er að undirbúa breytingar
og stækkun á húsnæði Umferðar-
miðstöðvarinnai- í Reykjavík en þar
er ætlunin að bæta við 10 til 15 þús-
und fermetra byggingu ef leyfí fást
og að KEA Nettó opni þar verslun.
Jafnframt verður þar áfram til húsa
afgreiðsla fyrir hópferðabfla og er
hugmyndin að Kynnisferðir-Flug-
rútan flytji afgreiðslu sína þangað.
Kristján Jónsson, sem situr í stjórn
Umferðarmiðstöðvarinnar ásamt
fulltrúum KEA, segir að starfsemi
alhliða verslunar, sem leggi einnig
áherslu á vörur fyrir ferðamenn, fari
mjög vel saman við starfsemi Um-
ferðarmiðstöðvarinnai-. Hann segir
að nú standi yfir hönnun á viðbygg-
ingu og samningar við Reykjavíkur-
borg. Hugmyndin er að reisa eins
stórt hús og leyfilegt er. Núverandi
húsnæði Umferðarmiðstöðvarinnar
er um 1.200 fermetrar. Býst Kristján
við að framtíðaráætlanir um Um-
ferðarmiðstöð og stórmarkað muni
því skýrast mjög á næstu vikum.
-----------------
Þyrla sækir slas-
aðan sjómann
SLASAÐUR skipverji af Sjóla HF
1 var fluttur með þyrlu Landhelgis-
gæslunnar á Borgarspítalann um
miðjan dag í gær. Skipverjinn var
ristarbrotinn eftir að hafa klemmst
undir toghlera um borð. Skipið var
statt um 100 sjómílur vestsuðvestur
af Reykjanesi og voru veðurskilyrði
til flugs góð.
Bíður réttarhalda í fangelsi
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
„ÞAÐ er enginn fótur fyrir því að
eitthvað sé að gerast milli okkar,“
sagði Þorsteinn Pálsson hjá Kaupási,
sem er sameiginlegt fyrirtæki Kaup-
félags Árnesinga, Nóatúnsbúðanna
og 11—11 verslananna, er hann var
spurður hvort KEA Nettó væri á
leið inn í félagið.
Þorsteinn Pálsson sagði að unnið
væri að því að undirbúa formlega
stofnsetningu Kaupáss ehf. sem ráð-
gerð er 1. maí og hann sagði svo sem
Leikskdlakennarar í Kópavogi ákveða uppsagnir vegna óánægju með kjör
Talið að nær allir segi upp
störfum á næstu dögum
LEIKSKÓLAKENNARAR á leik-
skólum Kópavogs eru mjög óánægð-
ir með kjör sín og er reiknað með að
flestir þeirra segi upp störfum á
næstu dögum. Að sögn Ásdísar
Ólafsdóttur, leikskólakennara í
Stubbaseli, var samþykkt einróma á
fundi leikskólakennara sl. mánudag
að leikskólakennarar sendu inn upp-
sagnarbréf hver fyrir sig og leituðu
að vinnu annars staðar. Fjöldi upp-
sagnarbréfa var lagður inn strax í
gær. Bæjarstjórn Kópavogs sam-
þykkti í gær að skipa nefnd til við-
ræðna við leikskólakennara.
Allar líkur eru taldar á að flestallii-
leikskólakennarar á 12 leikskólum
Kópavogsbæjar sendi inn tilkynning-
ar á næstu dögum um uppsagnir frá
og með 1. maí nk. en leikskólakennar-
ar í Kópavogi eru um 100 talsins, skv.
upplýsingum sem Morgunblaðið fékk
í samtölum við leikskólakennara í
gær. Um 1.500 böm eru á leikskólum
Kópavogs. Uppsagnarfrestur er þrír
mánuðir og hafa bæjaryfirvöld heim-
ild til að framlengja frestinn um þrjá
mánuði til viðbótar.
Vilja sérsamninga líkt og
í nágrannasveitarfélögum
Gildandi kjarasamningur Félags
íslenskra leikskólakennara rennur
út í lok ársins 2000 en að sögn Ás-
dísar hafa leikskólakennarar í
Kópavogi verið mjög óánægðir með
kjör sín og benda í því sambandi á
að ýmis sveitarfélög hafi hlúð að
sínu starfsfólki með sérsamningum
við leikskólakennara um kjarabæt-
ur, s.s. á Seltjarnarnesi og í Hafnar-
firði. Bæjaryfirvöld í Kópavogi hafi
hins vegar ekki léð máls á viðræð-
um um neitt slíkt á undanförnum
mánuðum.
„Við byrjuðum bréfaskriftir í nóv-
ember í fyrra og höfum aðeins fengið
eitt svar, sem var í rauninni ekkert
svar. Okkur var sagt að það væri
verið að skoða málið og þegar við
vildum fá að vita hvað væri verið að
skoða fengum við engin svör við því.
Við ætlum ekki að bíða lengur eftir
svari,“ sagði hún.
Leikskólastjórar í Kópavogi komu
saman í gær og sendu frá sér yfirlýs-
ingu þar sem lýst er áhyggjum af því
ástandi sem yfirvofandi er í leikskól-
um bæjarins.
„Leikskólastjórar í Kópavogi
harma þá stöðu sem upp er komin og
telja að hægt hefði verið að koma í
veg fyrir uppsagnir með gagnkvæm-
um viðræðum milli leikskólakennara
og bæjaryfírvalda. Leikskólastjórar
lýsa yfir þungum áhyggjum vegna
viðvarandi skorts á leikskólakennur-
um. Nú þegar er erfitt að manna
stöður innan leikskólanna. I ljósi
þessara staðreynda ríkir óvissa um
starfsemi leikskóla Kópavogsbæjar
og inntöku nýrra barna fyrir næsta
skólaár,“ segir í fréttatilkynningu
leikskólastjóra.
Morgunblaðið fékk þær upplýs-
ingar hjá Félagi íslenskra leikskóla-
kennara í gær að aðgerðir leikskóla-
kennaranna í Kópavogi væru ekki á
vegum félagsins og félagið hefði eng-
in afskipti af þessu máli.
Skipa viðræðunefnd
Bæjarstjóm Kópavogs ákvað í
gær, að frumkvæði meirihlutaflokk-
anna, að fela bæjarráði að skipa
nefnd embættismanna til að ræða við
leikskólakennara, með sama hætti og
rætt var við grunnskólakennara.
Halla Halldórsdóttir, forseti bæjar-
stjórnar, sagði í gærkvöldi að áður
hefði legið fyrir sá vilji bæjarstjómar
að taka upp viðræður við leikskóla-
kennara, í framhaldi af samningum
við grannskólakennai-a. Sagðist hún
sannfærð um að samningar tækjust
við leikskólakennara á næstunni.
verða þama í haldi þar til mál hans
verður tekið fyrir. Ég býst ekki við að
málið komi fyiir dóm fyrr en hugsan-
lega á haustmánuðum,“ sagði hann.
Ekki vitað hvort maðurinn var
einn að verki
Sigurgeir Sigmundsson, lögreglu-
fulltrúi á landsskrifstofu Interpol hjá
ríkislögreglustjóraembættinu, segir í
samtali við Morgunblaðið að frönsk
yfirvöld hafi leitað til skrifstofunnar
og óskað eftir upplýsingum um Is-
lendinginn vegna rannsóknar máls-
ins eins og venja er þegar Islending-
ar era handteknir erlendis.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins á maðurinn ekki sakaferil að
baki hér á landi en hann hefur lengi
búið á Norðurlöndum. Ekki hafa
fengist upplýsingar um hvort hann
var einn að verki eða hvort fleiri
tengjast rannsókn málsins.
ÍSLENSKUR karlmaður hefur setið í fangelsi í bænum Perpignan í
Suður-Frakklandi frá 4. mars sl. en maðurinn var þá handtekinn á
landamærum Frakklands og Spánar með mikið magn fíkniefna. Fundu
franskir landamæravei’ðir 50 kíló af kannabisefnum við leit í bíl manns-
ins. Sendiráð íslands í París hefur fylgst með gangi málsins hjá frönsk-
um lögregluyfírvöldum og að sögn Guðmundar Helgasonar, sendiráðu-
nautar í París, er ósennilegt að réttað verði í máli mannsins fyrr en í
haust og að allar líkur séu á að maðurinn verði í haldi þangað til.
Fundu efnin falin í farangurs-
geymslu bflsins
Islendingurinn, sem er fæddur ár-
ið 1960 og hefur verið búsettur í
Danmörku undanfarin ár, var einn í
bíl á leið frá Spáni yfir landamærin
til Frakklands. Landamæraverðii’
Frakklandsmegin í bænum le Pert-
hus stöðvuðu bifreiðina og gerðu leit
í bílnum með aðstoð leitarhunds.
Fundu þeir fíkniefnin í litlum pökk-
um sem faldir voru undir plötu í far-
angursgeymslu bflsins. Var maður-
inn handtekinn og yfirheyrðui’ fyrfr
tilraun til að smygla kannabisefnum
inn í Frakkland.
Að sögn Guðmundar hefur sendi-
ráðið haft samband við lögfræðing
mannsins og fylgst með réttargæslu
mannsins. „Við munum fylgjast með
málinu eftir því sem það mun þróast
en maðurinn má gera ráð fyrir að
HÁLFUR MÁNUÐUR AF
DAGSKRÁ FRÁ MIÐVIKUDEGI
TIL ÞRIÐJUDAGS.
4l3fe)Uíi
Njarðvíkingar byrja vel í
einvíginu við Keflavík / C2
Kahn markvörður Bayern
fótbrotinn? / C3
► VERIÐ fjallar um stofnaðild íslands að
Suðaustur-Átlantshafsfiskveiðistofnuninni,
arði’án túnfisks í Suðurskautshafi, við-
brögð kaupenda við gremju grásleppu-
veiðimanna vegna lækkaðs verðs og þróun-
arvinnu hjá Islensku-frönsku eldhúsi hf.
Úrslit - Loftkastalinn -
Myndasögur Moggans