Morgunblaðið - 14.04.1999, Síða 36

Morgunblaðið - 14.04.1999, Síða 36
36 MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 1999 MORGUNBLAÐIÐ JNtfgnttMiifeife STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI FRAMKVÆMDASTJÓRI RITSTJÓRAR Árvakur hf., Reykjavík. Hallgrímur B. Geirsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. ÞRÓUN í BANKAÞJÓNUSTU BANKAÞJÓNUSTA hefur breytzt hraðfara á undan- förnum árum með tilkomu tölvutækninnar. Breyting- arnar hafa fyrst og fremst miðað að hraðari og einfaldari afgreiðslu fyrir viðskiptavinina og draga úr kostnaði og út- þenslu bankakerfisins. Með heimabönkunum svonefndu geta þeir, sem hafa aðgang að tölvum tengdum símakerf- inu, annast sjálfir ýmsa þjónustu, sem áður var í höndum bankastarfsmanna. I hraðbönkum er hægt að taka út pen- inga allan sólarhringinn alla daga ársins. Bankar og sparisjóðir hafa verið opnir fyrir þessum tækninýjungum og á vegum sparisjóðanna var í samvinnu við Einar J. Skúlason hf. þróað nýtt rafrænt afgreiðslu- kerfi, þar sem viðskiptavinir geta gengið beint til gjald- kera án þess að fylla út eyðublöð og staðfest síðan af- greiðsluna á rafrænni skrifplötu. Þetta afgreiðslukerfi var fyrst notað hjá SPRON og Sparisjóði Hafnarfjarðar og það reyndist svo vel, að Landsbankinn keypti það til notk- unar í sínum afgreiðslum. Sparisjóðirnir hafa nú enn stigið nýtt framfaraspor, því í fyrradag kynntu Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis og Sparisjóður Hafnarfjarðar nýtt sjálfsafgreiðslutæki, svonefndan „snertibanka“. Þar geta viðskiptavinir fengið ýmsa þjónustu án þess að fara til gjaldkera, með því að snerta viðeigandi reiti á skjá. I snertibankanum er m.a hægt að greiða gíróseðla og aðra greiðsluseðla, millifæra, sjá stöðu reikninga og yfirlit, fá upplýsingar um gengi, verðbréfaviðskipti og úr þjóðskrá. Loks er hægt að fá samband við þjónustufulltrúa. Er búist við að afgreiðsla snertibanka geti stytt verulega biðtíma við afgreiðslu í bönkum og sparisjóðum, sem getur verið verulegur um mánaðamót. Ætla má að þessar og aðrar tækninýjungar, sem eru að ryðja sér til rúms í fjármálaþjónustu séu undanfari bylt- ingar á þessu sviði. Augljóst er að í þessari tækni felst stórkostleg hagræðing í bankastarfsemi. Smátt og smátt mun starfsfólki fækka og fjármálastofnanir munu ekki þurfa jafn mikið húsnæði undir sína starfsemi og nú. A næstu árum má jafnvel búast við að mikill meirihluti við- skipta fólks og fyrirtækja við fjármálafyrirtæki fari fram með þessum hætti, annað hvort með tölvu eða í sjálfsaf- greiðslum, þar sem ekki þarf á mörgum starfsmönnum að halda. Það er ánægjulegt hvað íslenzkar fjármálastofnanir eru nýjungagjarnar að þessu leyti. Sennilega er banka- starfsemi orðin tæknivæddari hér en í flestum nálægum löndum. FÆÐUPAKKAR FYRIR FLÓTTAFÓLK RAUÐI kross íslands hefur á morgun sölu á matar- pökkum til handa flóttafólki frá Kósóvó, en hundruð þúsunda flóttamanna búa nú í flóttamannabúðum í ná- grannaríkjum Kósóvó, í Albaníu, Makedóníu og víðar. Söfnunin er í samvinnu við nokkur fyrirtæki, Hagkaup, út- varpsstöðina Létt 96,7, Samskip og Islandspóst. Verða matarpakkar til sölu í Hagkaupi í Skeifunni og kostar hver 600 krónur. Hver pakki inniheldur 20.000 hitaeiningar, sem eiga að nægja einstaklingi í tvær vikur. Óöldin á Balkanskaga hefur leitt til gífurlegs flótta- mannastraums frá Kósóvó, þar sem serbneski herinn hrekur fólk af albönskum uppruna burt frá heimahögum sínum. Grimmdin er ógurleg og eira hermennirnir engu og eyða eignum fólksins, sem býr við ömurlegar aðstæður í flóttamannabúðum í nágrannaríkjunum. Nágrannarnir gera sitt bezta, og víða t.d. í Albaníu hafa þarlendir tekið flóttafólk inn á heimili sín. En við slíkan fjölda, sem raun ber vitni, ráða ekki fátækir nágrannar. Því ber öðrum Evrópuþjóðum að rétta hjálparhönd þessu nauðstadda fólki. Með aðeins 600 krónum má fæða einstakling í hálfan mánuð. Það er von Rauða kross íslands, að hérlendis seljist a.m.k. 5.000 slíkir matarpakkar. Islendingar eiga áreiðan- lega eftir að bregðast vel við málaleitan RKÍ. Niðurstaða fékkst í Smugudeilunni eftir Tæplega tveggja ára samninga- lotu lokið ✓ Islendingar fá að veiða 8.900 tonn af þorski í Barentshafi samkvæmt samkomulagi sem samninganefndir Islands, Rússlands og Nor- egs náðu í gær. Skiptar skoðanir eru um samninginn hérlendis en almennt ríkir ánægja með að fyrir ligffl samkomulag milli þjóðanna í þessum málum og er það talið liðka mjög fyrir ýmiskonar viðskiptum, eink- um við Rússa. Helgi Mar Arnason skoðaði samninginn og spurði menn álits á honum. SAMKOMULAG náðist í gær milli samninganefnda íslands, Noregs og Rússlands um þorskveiðar íslendinga í Barentshafí. í viðræðum embættis- manna landanna var gengið frá efni tvíhliða bókana milli Islands og Nor- egs annars vegar og íslands og Rúss- lands hinsvegar. Bókanirnar eru gerðar á grundvelli þríhliða ramma- samnings landanna sem þau urðu ásátt um í síðasta mánuði. I samkomulaginu felst að Islending- ar fá árið 1999 8.900 lesta þorskkvóta sem skiptist til helminga milli lögsögu Noregs og Rússlands. Rvótinn sam- svarar 1,86% af leyfilegum heildarafla á þorski í Barentshafi og helst það hlutfall út samningstímann. Auk þess er gert ráð fyrir 30% aukaafla. Rammasamningurinn og bókanimar gilda í 4 ár í senn sé samningnum ekki sagt upp að hálfu einhvers aðilanna. I bókun íslands og Noregs er gert ráð fyrir að íslensk skip veiði 4.450 lestir af þorski á þessu ári í norskri lögsögu. Norsk skip fá á þessu ári að veiða 500 lestir af löngu, keilu og blá- löngu á línu í íslenskri lögsögu utan 12 mílna og sunnan 64°N og 17 þúsund lestir af loðnu í íslenskri lögsögu norðan 64°30’N á tímabilinu frá 20. júní til 15. febrúar. í bókun íslands og Rússlands felst að íslensk skip geti veitt 4.450 lestir af þorski í íslenskri lögsögu á þessu ári. Þar af munu Rússar bjóða íslenskum útgerðum 37,5% eða 1.669 lestir til kaups á markaðsverði. I báðum bókunum er miðað við að fari leyfilegur heildarafli á þorski í Barentshafi niður fyi'ir 350.000 lestir falli veiðar íslendinga úr stofninum niður sem og veiðar norskra fiski- skipa í íslenskri lögsögu. Hinsvegar er í samkomu- laginu kveðið á um að fari leyfilegur heildarafli undir viðmiðunarmörk tvö ár í röð sé heimilt að óska eftir viðræðum um endurskoðun á samn- ingnum. Stefnt er að því að ráðherrar landanna þriggja undirriti samning- inn á tvíhliða bókanir á næstunni. Ekki verður hægt að staðfesta samn- inginn fyrr en Aiþingi kemur saman en íslensk skip mega engu að síður hefja veiðar á grundvelli samningsins strax í sumar. Veiðiheimildum verður skipt milli íslenskra útgerða á grund- velli úthafsveiðilaga en í þeim er eink- um tekið mið af veiðireynslu. Þegar verður hafist handa við úthlutun heimildanna. Erfíðar viðræður Islenska samninganefndin kom frá Moskvu í gærkvöldi. í henni voru þeir Arnór Halldórsson, lögfræðingur í sjávarútvegsráðuneytinu, og Tómas H. Heiðar, frá utanríkisráðuneytinu, en formaður nefndarinn er Jóhann Sigurjónsson. Ennfremur hafa Albert Jónsson, forsætisráðuneyti, Snorri Rúnar Pálmason, sjávarútvegsráðu- neyti, og Þorsteinn Geirsson, ráðu- neytisstjóri í sjávarútvegsráðuneyt- inu, komið að samningsgerðinni, auk Eiðs Guðnasonar, sendiherra í Nor- egi, og starfsfólki sendiráðanna í Moskvu og í Osló. Jóhann Sigurjóns- son segist mjög ánægður með að mál- ið sé nú loks til lykta leitt. Samnings- gerðin hafi nú staðið yfir í eitt og hálft ár og verið mjög erfið. „Menn hafa verið að takast á um réttarstöðu okk- ar til fiskveiða á þessu svæði. Það var snúið að koma málum þannig fyrir að allir gætu orðið sammála um niður- stöðuna. Hinsvegar höfum við rætt fiskveiðimöguleika okkar á svæðinu og hvernig þeim væri sanngjarnast fyrir komið. Þannig hefur þessi kvóta- skiptasamningur verið þróaður. Sú hugsun hefur verið lengi í mótun og menn hafa á meðan tekist á um fiski- magn.“ Berum ekki skarðan hlut frá borði Jóhann segir mikilvægt að samn- ingurinn tryggi frið um þorskveiðar á svæðinu og telur samninginn vera for- sendu fyrir ábyrgri fiskveiðistjórnun. Það hljóti að vera Islendingum mikið keppikefli. Hann segir Islendinga síð- ur en svo bera skarðan hlut frá borði. „Samningurinn skapar forsendur fyr- ir víðtækt samstarf á sjávarútvegs- sviði. En menn mega alls ekki gera lít- ið úr veiðiþætti samningsins. Hann gefur Islendingum verulega mögu- leika til að sækja fisk í Barentshaf með hag- kvæmari og tryggari hætti heldur en áður. Möguleik- ar okkar vaxa eftir því sem þorskstofninn í Barentshafi stækkar. Stofninn er nú í nokkurri lægð en ef tekið er mið af leyfilegum heildarafla þar á síðasta ári hefði aflamark okkar, miðað við samninginn nú, ásamt umsömdum meðafla, numið tæplega 16 þúsund tonnum af fiski, þar af rúmum 12 þús- und tonnum af þorski. Það hlýtur að teljast umtalsvert magn.“ Jóhann segir að í kvótaskiptisamn- ingum sem þessum hljóti ætíð að koma til gagngjald af einhverju tagi. Gagngjald það sem nú sé greitt fyrir veiðiheimildirnar í Barentshafí sé Is- lendingum í raun afar hagstætt. Með því að greiða Rússum fyrir veiðiheim- ildirnar skapist ákveðið frelsi sem sé 1,86% af leyfilegum heildarafla HALLDÓR Ásgrímsson, utanríkisrá um fisk' MYND sem þessi af norsku strand fortíðinni til eftir að samni mjög af hinu góða. Þá hækki ekki línuveiðiheimildir Norðmanna innan íslensku lögsögunnar en loðnukvóti þeirra hækki samhliða aukinni þorsk- veiði Islendinga í Barentshafi. Jóhann segir að varðandi friðunarmörkin, eða hið svokallaða gólf, þá hafi þau vitan- lega áhrif í slæmu árferði. „í slæmu árferði eru aflabrögð ekki góð og því væntanlega minna eftirsóknavert að vera þar á veiðum. Ennfremur tel mikinn sóma felast í því fyrir Islend- inga að stuðla að fiskvemd þegar illa árar. Það er í takt við okkar almennu fiskveiðistjórnun." Jóhann segist þess fullviss að sam- komulagið sé varanlegt. Þjóðirnar hafi gengið heilar til verks og viljað ljúka málinu. ,Auðvitað er engin al- veg sáttur því allir hafa þurft að gefa eitthvað eftir. En samkomulagið hins- vegar bindur enda á sex ára deilu þessara þjóða og það hlýtur að vera fagnaðarefni," segir Jóhann. Er í raun aðeins 5 þúsund tonn Kristján Ragnarsson, formaður Landssambands íslenskra útvegs- manna, segist telja hlut íslendinga í samningnum mjög rýran. I samn- ingnum felist að veiðiheimild íslend- inga sé í raun aðeins 5.000 tonn. ís- lendingar þurfi að endurgjalda Norð- mönnum helming þess sem þeir láti Islendingum í té. „Þar með tel ég að við fáum ekki nema 2.200 tonn af Norðmönnum. Þegar kemur að Rúss- unum fáum við ekki nema 2.800 tonn en er boðið að kaupa um 1.700 tonn á einhverju sem kallast markaðsvirði en enginn getur upplýst hvað er. Þá eru líkurnar á því að veiðiheimildir Is- lendinga verði að engu talsvert miklar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.