Morgunblaðið - 14.04.1999, Blaðsíða 30
30 MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Merkingakerfi
samfélagsins
MYJVPLIST
Kjarvalstaðir
LJÓSMYNDIR AF
BENSÍNSTÖÐVUM A ÍSLANDI
SPESSI
Opið alia daga frá 10-18. Til 24. maí.
Aðgangur 400 krónur í alit húsið.
BENSÍNTANKAR og bensín-
stöðvar eru heimur út af fyrir sig í
öllum þjóðfélögum, og þótt gerð
þeirra sé ekki svo ýkja frábrugðin
frá einu landi til annars bera fyi’ir-
bærin yfir sér viss þjóðareinkenni.
Skjalfesta kannski betur en nokkuð
annað, að ekki er mögulegt að
steypa manninn og mannlífið full-
komlega í sama horfið um veröld
alla, slík stöðlun þýddi líka endalok
lífsins.
I þá góðu gömlu daga er skrifari
var ungur og sumar hvert í vega-
fyrirhleðslu og loks brúarvinnu sem
báru hann um víðan völl, kynntist
hann mörgum útgáfum af andrúm-
inu í kringum bensíntanka úti í
landsbyggðinni.
Þá voru seinni tíma bensínstöðv-
ar langt undan, en tankarnir stað-
settir hér og hvar við viðkomustaði
bifreiða eða þar sem þurfa þótti, og
fjarri því eingöngu kaupfélögin.
Kom jafnvel íyrir að þeir væru við
bóndabæi og að í heyskapartíð á
hásumri yrði fólk að hlaupa af engj-
um til að sinna tilfallandi viðskipta-
vinum. Ur bamæsku er honum ein-
hvern veginn sérstaklega í ljósu
minni rauður Esso-tankur í Borg-
arnesi, lítið virkur en trónaði afsíðis
við vegarkantinn ofan til í nágrenni
hafnarinnar, líkast einmana skúlp-
túr. Mynd hans hefur greypst í
minnið sem eitt helsta kennileiti og
hluti þessa litla og vinalega pláss,
þar sem bjó frændfólk sem fyrir
kom að hinkrað var hjá einhvern
hluta úr sumri.
Saga bensíntankanna á landi hér
er að sjálfsögðu hérumbil jafn löng
og bílsins, en síður getur maður
búist við að t.d. Magnús Sigurðs-
son, bóndi á Grund á Eyjafirði,
sem fyrstur eignaðist bíl norðan
heiða, hafi jafnframt flutt inn einn
slíkan til að hafa á bæjarhlaðinu, til
viðbótar því að hann þurfti að
standa í vegagerð til að geta yfir-
höfuð ekið bflnum! Ætli hann hafi
ekki látið bensínbrúsana nægja
sem voru undanfari tankanna og
ekki man ég betur en að elstu tank-
arnir hafi verið handknúnir líkt og
vatnsdælur.
Þetta innskot í framhjáhlaupi á
að bregða skýru Ijósi á umskipti á
tímaskeiði sem er ekki lengra en
ein sæmilega löng mannsævi er svo
er komið, framþróun sem hefur
verið sýnu hröðust undangengna
áratugi.
Bíllinn er það hörg nútímans sem
stöðugt gerir meiri og óvægari
kröfur til mannfólksins, hinn
grimmi guð sem heimtar sem full-
komnast aðgengi að eldsneyti og
annarri virkt sem knýr hann áfram.
Framar öðru þeim blendna vökva
úr neðra sem bensín nefnist. Svo
mjög hefur honum verið blótað, að
tankurinn og bensínstöðvarnar eru
orðnar að merkingarkerfi og sér-
stöku kennileiti samtímans, blá-
kaldri og hrárri íslenzkri sagn-
fræði. Það er svo engan veginn að
fara í annarra skó að bregða upp
mynd af slíkum í íslenzku umhverfi,
því andrúmið í kringum fyrirbærin
er allt annað, hvað þá umhverfið.
Tilbúinn heimur bensínstöðvanna á
líka sitthvað sameiginlegt við guðs-
hús til sjávar og sveita, sem eru
hvergi eins þótt þau þjóni sama
geistlega tilganginum. Og sjaldnast
fellur veraldlegur eldsneytisgjafinn
jafn fagurlega að landinu og gömlu
kirkjurnar sumar hverjar, sem á
stundum eru líkt og vaxnar upp úr
jörðinni allífinu til dýrðar, líkt og
grósprotar moldarinnar. Uppruna-
lega og lengi vel takmörkuðust
bensínstöðvarnar við sölu á elds-
neyti og smurolíum, en í dag fer
þar fram margvísleg önnur þjón-
usta sem samrýmist skyndiþörfum
neysluþjóðfélagsins, jafnvel ýmis
hliðarstarfsemi eins og reiðhjóla-
leiga. Þá er hér um að ræða merki-
lega þróun í útlitshönnun, sem má
vera einhverjum drjúgur lærdómur
hér á útskerinu, þótt flestir taki
helst eftir aukinni sjálfvirkni og
þægindum líkt og þetta komi fyrir-
hafnarlaust frá útlöndum. En að
baki liggur þó gífurleg vinna há-
menntaðs liðs hönnuða og lista-
manna víða um heim.
Fyrir utan þyrpingu af ýmiss
heldur fund í þínu kjördæmi
Vesturland
Borgarafundur í Fjölbrautaskólanum, Akranesi
miðvikudaginn 14. apríl kl. 20:30
Þingmenn og frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins
á Vesturlandi taka þátt í umræðum.
Allir velkomnir
ÁR ANGUR/i n/ALLA
BENSÍNSTÖÐIN að Arnarstapa er gott dæmi
um hönnun er fellur að umhverfinu.
BENSÍNSTÖÐVARNAR geta verið rómantískar
að næturlagi eins og þessi að Vegamótum.
konar bensíntönkum lengst í gangi
vestursalar, er sýning ljósmyndar-
ans Spessa ekki sagnfræði, öllu
frekar er brugðið upp mynd af
merkingarkerfi sem lýtur að sjálf-
um kjarnanum í samfélagi okkar og
menningu, eins og segir í vel skrif-
aðri og fróðlegri ritgerð Jóns
Proppé í sýningarskrá. Spessi hef-
ur ljósmyndað bensínstöðvar í bak
og fyrir vfðs vegar um landið og á
öllum tímum sólarhrings, en þó er
þetta ekki venjuleg skýrsla, hug-
myndafræði né markviss skrásetn-
ing þar sem heimildargildið er í fyr-
iiTÚmi. Sýnist mér þetta öllu frekar
vera stemmningamyndir, sem þó
bera í sér ákveðið heimildagildi
einkum þegar frá líður, hér þakka
ég guði fyrir að ekki skuli vera
brugðið upp þeim steindauða
hvunndegi sem er in í núlistum frá
Tókýó til Toronto og maður rekur
sig á hvarvetna í galtómum sýning-
arsölum. Þvert á móti búa ljós-
myndirnar yfir þeim þokka við
hvunndaginn sem er að verða fá-
gæti á sýningum og marka þeim lif-
andi innihald. Þær eru eitthvað
meira en þær vel gerðu raunsæis-
myndir aulýsingaiðnaðarins sem
maður sér víða, og hafa allt til að
bera nema lífsneistann. Myndirnar
höfða til skoðandans eins og litríkt
en mannlaust landslag svipað og í
málverkum, en þó saknar maður
nokkurra mynda í svart-hvítu sem
hefðu aukið á listræna breidd fram-
kvæmdarinnar.
Þetta er sérstæð sýning sem
hrærir í hugarfluginu, vekur upp
spurningar, vel er að staðið í upp-
setningu, og hin stóra og mikla sýn-
ingarskrá saga út af fyrir sig á ís-
lenzkum listamarkaði miðað við
ekki viðameiri framkvæmd. Auk
ritgerðar Jóns Proppé skrifar Ei-
ríkur Þorláksson inngang og Dom-
inique Nahas, sjálfstætt starfandi
sýningarstjóri sem býr í New York,
les í ljósmyndir listamannsins og
gerir það af stakri djúphygli. Þá
prýðir skrána fjöldi ljósmynda í lit
og allt samanlagt gerir þetta hana
að mjög eigulegum grip. Skýring-
una á hinni veglegu umgerð er vís-
ast að finna í styrktaraðilunum,
sem eru Olíufélagið, Olíuverslun Is-
lands, Skeljungur hf. og Gott fólk.
Bragi Ásgeirsson
fjfc' MARIA
#LÖVISA
FATAHÖNNUN
SKÓIAVÖRÐUSTÍG 3A • S 5S2 6999
Sýningum
lýkur
Gallerí Hornið
SÝNINGIN Grænar grundir,
olíumálverk Guggu, Guð-
bjargar Hákonardóttur, lýkur
í dag.
Sýningin er opin frá kl.
11-24.