Morgunblaðið - 14.04.1999, Side 13

Morgunblaðið - 14.04.1999, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVTKUDAGUR 14. APRÍL 1999 13 FRETTIR Morgu nblaðið/Þorkell UM 60 manns tóku þátt í mótmælastöðu, sem Islandsdeild Amnesty International efndi til laugardaginn til að mótmæla dauðarefsingum í Bandaríkjunum, en 31 maður hefur verið tekinn af Iifi þar það sem af er ár- Dauðarefsing’um í Banda- ríkjunum mótmælt UM 60 manns tóku þátt í mótmæla- stöðu íslandsdeildar Amnesty International á Lækjartorgi á laug- ardaginn, en verið var að mótmæla dauðarefsingum í Bandaríkjunum. „Það má kannski segja að þetta hafi verið sorgarstaða frekar en mótmælastaða," sagði Jóhanna K. Eyjólfsdóttir, framkvæmdastjóri Islandsdeiidarinnar. Hún sagðist ánægð með hvernig til tókst, en sagði að hafa yrði í huga að lítil hefð væri fyrir svona aðgerðum á ís- landi. Hún sagði að fólk hefði staðið með spjöid, sem á voru rituð nöfn allra þeirra manna sem teknir hefðu verið af lífí það sem af væri árinu í Bandaríkjunum, en þeir væru 31 talsins. Aðgerðirnar nú voru hluti af her- ferð Amnesty gegn mannréttinda- brotum í Bandaríkjunum, en her- ferðin hófst hinn 6. október á síð- asta ári. Bandaríkjamenn skipa sér sess með ríkjum á borð við írak, íran, Nígeríu og Kína þegar kemur að mannréttindabrotum á ákveðnum sviðum, sagði Jóhanna. Hún sagði að mikil aukning hefði verið á aftök- um þar frá því þær voru ieyfðar á ný árið 1976, en frá þeim tíma hefði 531 einstaklingur verið tekinn af lífi. Jóhanna sagði að 38 fylki leyfðu dauðarefsingar. Hún sagði að mörg ríki ieyfðu einnig aftökur á geðfötl- uðu fólki og á mönnum sem framið hefðu glæp þegar þeir voru ekki orðnir 18 ára gamlir, en að það væri í andstöðu við alþjóðalög. A laugardaginn var safnað undir- skriftum, sem sendar verða til Bandaríkjanna m.a. til Clinton. Þá sagði Jóhanna að fulltrúar fslands- deildarinnar hefðu komið sínum málum á framfæri við sendiherra Bandaríkjanna á fundi sem þeir hefðu átt með honum í gær, en sendiherranum var m.a. afhent bréf þar sem afstaða samtakanna til málsins kom fram. Morgunblaðið/Sverrir HELGI Magnússon, framkvæmdastjóri Hörpu, afhendir Hrólfi Jóns- syni slökkviliðsstjóra viðurkenningu til handa slökkviliðinu fyrir vask- Iega framgöngu. Harpa heiðrar slökkviliðið Fjárreiður V-Landeyjahrepps Opinber rannsókn EMBÆTTI ríkislögreglustjóra hef- ur ákveðið að verða við beiðni níu íbúa V-Landeyjahrepps um að hefja opinbera rannsókn á því hvort átt hafí sér stað brot er varða almenn hegningarlög, bókhaldslög, sveitar- stjórnarlög, stjórnsýslulög og skattalög hjá fyrrverandi oddvita hreppsins Eggerti Haukdal og lög- giltum endurskoðanda hreppsins. Óskuðu íbúarnir ennfremur eftir því við ríkislögreglustjóra að rann- sakað yrði hvort kjörnir hrepps- nefndarmenn hefðu sinnt störfum sínum sem skyldi sem eftirlitsskyld- ir aðilar samkvæmt sveitarstjómar- lögum. í þágu rannsóknar málsins hefur efnahagsbrotadeild ríkislögreglu- stjóra farið þess á leit við hrepps- nefnd V-Landeyjahrepps, að hún afhendi embættinu margs konar gögn, þ.á m. yfirlit yfír allar endur- greiðslur Eggerts Haukdals vegna skuldar hans við sveitarsjóð, sem nam rúmum 3 milljónum króna í árslok 1997 samkvæmt gi-einargerð KPMG Endurskoðunar varðandi vinnu við ársreikning hreppsins fyr- ir árið 1997. Ennfremur er óskað eftir ljósriti ársreiknings V-Land- eyjahrepps fyrir árið 1997 og ljós- riti eða staðfestu endurriti allra fundargerða hreppsnefndar þar sem með fjailað er með einum eða öðrum hætti um upphaflegan árs- reikning fyrir árið 1997. FORRÁÐAMENN Hörpu hf. veittu á mánudag slökkviliðsmönnunum, sem börðust við eldinn í vöru- geymslu fyrirtækisins 31. janúar sl., viðurkenningu fyrir að koma í veg fyrir stórbruna með vasklegri framgöngu við slökkvistörfin. Harpa lét reisa verksmiðjuna á Stórhöfða 1988 og var ekkert til sparað til að uppfylla ýtrustu kröf- ur yfirvalda varðandi brunavaruir og hollustuhætti. Helgi Magnús- son, framkvæmdastjóri Hörpu, segir að ístak hf. hafi nú afhenti fyrirtækinu hráefnisgeymsluna fullviðgerða og tók verkið aðeins um 50 daga. „Við heiðruðum slökkviliðið fyr- ir vasklega framgöngu og afhent- um því 250 þúsund krónur til for- varna- og fræðslustarfa. Við lítum þannig á að slökkviliðsmennirnir hafi komið í veg fyrir gríðarlegt tjón. Við getum ekki annað en dáðst að því hversu rösklega slökkviliðsmenn gengu fram í starfinu. Þeir réðust að eldinum úr þremur áttum og náðu tökum á þessum vágesti eftir klukkustund- ar baráttu. Það fór því betur en á horfðist og við í Hörpu sluppum með skrekkinn," sagði Helgi. Brynjólfur Mogensen á skurðlæknaþingi • • Oruggi bfll- inn ekki til ÁREKSTRAR og öruggar bifreiðar bílslysa varða einn bíl, útafakstur nefndist erindi Bryjólfs Mogensen, læknis á bæklunarlækningadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur, á þingi skurðlækna í síðustu viku. Hann sagði að ekld væri til algjörlega ör- uggur bíll, það væri fjarlægt mark- mið, en bflar væru misöruggir. I samtali við Morgunblaðið kvaðst Brynjólfur furða sig á því að framleiðendur og innflytjendur héldu fram ágæti öryggis bfla sinna en síðan kæmi á daginn að útkoma sama bfls í árekstrarpróf- unum væri slæm. Vísaði hann þar til prófana sérhæfðra stofnana á þessu sviði í Evrópu og Bandaríkj- unum. Hvetur hann neytendur til að leita sér upplýsinga um slíkt á netinu. „Mér sýnist augljóst að það á að mæla með þeim bflum sem fá fjór- ar stjörnur í þessum prófunum og sú almenna regla getur líka verið mönnum til leiðbeiningar að far- þegar og ökumenn í stórum bflum sleppa betur frá höggi en fólk í litl- um bfl,“ segir Bi-ynjóifur. Segir hann erlendar tölur sýna að dánar- tíðni á hverja milljón íbúa sé hærri hjá þeim sem eru í smábflum en stórum og hann taldi jepplinga með í flokki lítilla bíla hvað þetta varðar. Dánartíðni vegna umferðarslysa hefur lækkað að sögn Brynjólfs og sömuleiðis hefur fækkað alvarlega slösuðum. Hann sagði meirihluta eða menn keyrðu á eitthvað og um helmingur væri vegna hliðai'á- rekstra. Hann sagði hliðar bíla því ráða miklu um hvernig færi með fólk í hliðarárekstri og mælti með því að menn keyptu bfla með fjór- um loftpúðum, þ.e. tveimur í mæla- borði og hliðarpúða. Best væri þó að þeir væru sex. Brynjólfur lýsti þeirri skoðun sinni að veita ætti afslátt af bflum með ríkulegum öryggisbúnaði og ætti fremur að skattleggja minni bílana sem honum næmi. Taldi hann sjálfsagt að koma á nokkurri neyslustýi’ingu í þessum efnum. Ælina Fegurðin kemur innan fró Laugavegi 4, sími 551 4473 Auglýsing frá yfirkjörstjórn Vestfjarða um móttöku framboða til Alþingis Frestur til að skila framboðum til Alþingis rennur út kl. 12 á hádegi föstudaginn 23. apríl nk. Framboðslista skal fylgja skrifleg yfirlýs- ing allra sem eru á listanum um að þeir hafi leyft að setja nöfn sín á listann. Þá skal til- kynna skriflega hverjir tveir menn séu um- boðsmenn listans. Framboðum í Vestfjarða- kjördæmi, ásamt meðmælendalistum með nöfnum 100-150 meðmælenda, verður veitt móttaka í dómsal Sýslumannsembættisins á ísafirði, Stjórnsýsluhúsinu, Hafnarstræti 1, ísafirði, 23. apríl kl. 8-12. Einnig má skila framboðum beint til for- manns yfirkjörstjórnar Vestfjarða, Björns Teitssonar. Aðsetur yfirkjörstjórnar Vestfjarða á kjördag verður á 4. hæð Stjómsýsluhússins á ísafirði og þar mun talning atkvæða fara fram. ísafirði, 9. apríl 1999. Yfirkjörstjórn Vestfjarða, Björn Teitsson, Birkir Friðbertsson, Daði Guðmundsson, Jens Kristmannsson, Ólafur Helgi Kjartansson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.