Morgunblaðið - 14.04.1999, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 14.04.1999, Qupperneq 14
14 MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 1999 AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ Ný tækni með Snerti- banka Héraðsdómur Reykjavíkur hafnar dómkröfum Valdimars Jóhannessonar Ekki skylt að færa útveggi í horf samþykktrar teikningar Sigling víkinga- skips vestur um haf ræðst 1 vikunni SNERTIBANKI var tekinn í notkun hjá Sparisjdði Hafnar- fjarðar í fyrradag og varð Geir H. Haarde Qármálaráðherra fyrstur til að notfæra sér þjón- ustu hans. Með Snertibankanum geta menn sjálfir greitt gíróseðla með debetkorti og er þessari tækni ætlað að létta á gjaldker- um. Snertibankinn er árangur þróunarstarfs Sparisjóðs Hafnar- fjarðar og SPRON. Myndin er tekin í Sparisjóði Hafnarfjarðar þegar tækið var tekið í notkun. Frá vinstri: Þór Gunnarsson sparisjóðsstjóri, Geir H. Haarde og Matthías A. Mathiesen, stjórn- arformaður sparisjóðsins. HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hafnaði á mánudag dómkröfum Valdimars Jóhannessonar m.a. þess efnis að Borgarsjóður Reylyavíkur, Tríton ehf., Gerpir sf. og Renata Erlendsson skyldu færa útveggi í austurenda 1. hæðar hússins nr. 20 við Hafnarstræti í Reykjavík í það horf sem samþykkt teikning frá 22. desember 1977 gerir ráð fyrir. Héraðsdómur féllst hins vegar á þær kröfur aðalstefnanda að stefndu skyldu færa innréttingar og skilrúm í miðrými hússins, þ.m.t. snyrtiaðstöðu, í það horf sem um- rædd teikning gerir ráð fyrir. Valdimar keypti verslunanými á 1. hæð hússins árið 1978, sem markast af miðrými að austanverðu og Hafnarstræti að norðanverðu, 58,05 fm ásamt 11,05 fm hlutdeild í sameign. í kaupsamningi var tekið fram að kaupanda væri kunnugt um að biðskýli verði fyrir SVR á 1. hæð. Auk séreignar aðalstefnanda telst hlutdeild hans í sameign nú vera 12,01 fm og eignarhluti hans alls 3,65% af heildareigninni. Gerðar voru breytingar á 1. hæð hússins á grundvelli byggingarleyf- is frá 23. október 1996, sem fólust í því að sett var upp rennihurð á norðurhlið austurendans svo og á suðurhlið. Þá voru mörk austur- rýmis að sunnanverðu við stiga- kjarnann 1,50 m vestar en sem svarar mörkum séreignarhluta samkvæmt uppdrættinum frá 1977 og þeim eignahlutföllum sem greind eru í sameignar- og eigna- skiptasamningi frá 30. nóvember 1978. Mörk austurrýmis að norðan- verðu við stigakjarnann voru enn- fremur 2,10 m vestar en sem svar- ar mörkum séreignarhlutans. Þá hafði snyrtikjarni verið innlimaður frá miðrými í rými austurenda og mörk hans uppleyst og endurgerð. Einnig voru dyr milli miðrýmis og séreignarýmis stefnanda stækkaða og færðar lítið eitt. Aðalstefnandi taldi að fram- kvæmdir stefndu í húsinu brytu gegn lögvörðum rétti hans þess efn- is að ekki yrði hnikað frá sam- þykktri teikningu og þinglýstum gögnum hvað varðar inngöngudyr og gönguleiðir um húsið, ráðstöfun sameignar eða afmörkun á séreign nema eftir formlega umfjöllun á húsfélagsfundi og að fengnu sam- þykki allra þeirra eigenda sem hagsmuna hafa að gæta. Húsnæðið verðlagt með hliðsjón af góðri staðsetningu Taldi aðalstefnandi að húsnæði sitt hefði verið verðlagt á sínum tíma með hliðsjón af góðri stað- setningu í húsinu og að hin sam- þykkta teikning gerði ráð fyrir því að inngangur í húsnæði hans úr miðrými hússins blasti við öllum þeim sem erindi áttu í Húsið og greið leið að rými hans fyrir alla viðskiptavini hússins, þ.m.t. við- skiptavini SVR og/eða annars rekstrar sem í framtíðinni kynni að verða í mið- og austurenda hússins. Aðalstefnandi taldi einnig að venilegir hagsmunir væru fyrir sig að ekki yrði hróflað við teikningunni frá desember 1977. Breyting stefndu á 1. hæð hússins leiddi til þess að sölubúð/veitingasala í aust- urenda 1. hæðar fengi svo til enga samkeppni frá hliðstæðum rekstri í húsrými stefnanda. Væri því ljóst að veruleg fjárhagsleg _ röskun fylgdi þessari breytingu. I reynd væru stefndu með breytingunni að færa veruleg verðmæti frá stefn- anda til þeirra stefndu sem eiga rekstraraðstöðu í austurenda 1. hæðar. Að mati dómsins var breytingin hins vegai' ekki veruleg og hefði hún verið löglega ákveðin á grund- velli samþykkis aukins meirihluta húseigenda sem 2. mgr. 30. gr. fjöl- eignarhúsalaga. ÞAÐ ræðst væntanlega í þess- ari viku hvort samningar takast uni siglingu víkinga- skipsins íslendings vestur um haf í tengslum við 1.000 ára landafundaafmæli. Gunnar Marel Eggertsson, eigandi skipsins, segir að samningar um ætlaða siglingu vestur um haf hefðu þurft að vera frágengnir fyrir mánuð- um svo hægt væri að hefja undirbúning siglingar. Nú sé enn óljóst hvort af siglingu verði vegna óvissu um fram- kvæmdaatriði og fjármögnun í viðræðum við landafunda- nefnd. Gunnar Marel var á mánu- dag á fundi með samgönguráð- herra Nýfundnalands og for- stjóra strandgæslu Nýfundna- lands í Vestmannaeyjum, þar sem sigling skipsins var til um- ræðu. „Við vorum að fara yfir ákveðna punkta varðandi þessa siglingu en það er ekkert ákveðið ennþá og það er mjög bagalegt því á meðan er ekki hægt að hefja undirbúninginn fyrir alvöru,“ sagði Gunnar Marel. Hann sagðist hafa miðað við daginn í gær sem úrslita- dag um hvort af siglingu yrði en nú ætlaði hann að bíða út þessa viku með endanlega ákvörðun. Gunnar Marel sagði að upp- haflega hefði ætlunin verið að siglt yrði til Nýfundnalands og síðan suður til New York en nú Iiti út fyrir að einungis yrði siglt til Halifax. Hann sagði að haffærni skipsins og slík ati'iði lægju ljós fyrir og ráðgert væri að 9-10 manns yrðu í áhöfn skipsins á siglingunni. Snjóflóð féll við Reyðarfjörð Snjóflóð féll í Grænafelli á veginn til Egilsstaða um 5 kílómetra innan við Reyðarfjörð, en ekki er vitað hversu stórt flóðið var, en það lok- aði veginum. Vegurinn verður opn- aður um leið og veður leyfir. Vegurinn frá Reyðarfírði að Fá- skrúðsfírði var ófær en fært var þaðan og suður að Höfn í Horna- fírði. Þá voru Skeiðarár- og Mýr- dalssandur ófærir vegna sand- Morgunblaðið/Þorkell Steingrímsfiarðarheiðin ófær Á Vestfjörðum var Steingríms- fjarðarheiðin ófær, en hún verður mokuð í dag, annars voru veður og færð ágæt á Vestfjörðum í gær. Veðurstofan spáir suðvestan kalda og slydduéljum á Vestfjörðum í dag. Á Norðurlandi var ástandið ágætt í gær, Oxnadalsheiðin var fær en ófært var út á Dalvík og til Olafsfjai'ðar, en opna átti veginn þangað um leið og veður skánaði. ÞEIR brugðu sér um borð í víkingaskipið íslending í Vestmannaeyjahöfn í fyrradag. Frá vinstri: Halldór Blöndal samgönguráðherra, Guðjón Hjörleifsson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, Charles J. Furey, sam- gönguráðherra Nýfundnalands, og Gunnar Marel Eggertsson, eigandi fslendings. Ofært víða um landið vegna ofankomu og slæms skyggnis Blindbylur og stór- hríð á Austurlandi ALLIR fjallvegir á Austurlandi voru ófærir í gær, en veður var með versta móti, blindbylur og stórhríð. Þetta kom fram þegar Morgunblað- ið hafði samband við Vegagerðina og lögreglu í gær. Það var á mánudagskvöld sem vegir fóru að lokast og í gær var svo komið að Mývatns- og Möðru- dalsöræfín voru ófær, sem og Vopnafjarðarheiði, Fjarðarheiði, Oddsskarð og Fagridalur. í Fa- gradal báðu ökumenn þriggja bíla um hjálp vegna ófærðarinnar, en tveir bílanna voru jeppar en sá þriðji var póstflutningabíllinn. Að sögn lögreglunnar á Egilsstöðum voru mennirnir ekki í teljandi hættu heldur báðu þeir um hjálp vegna þess að þeir treystu sér ekki til að halda áfram leið sinni til Egilsstaða. Það var Björgunarsveitin á staðn- um sem kom mönnunum til hjálpar. storms sem þar geisaði. Veðurstof- an spáir norðvestan kalda og síðan hægri breytilegri átt á Austurlandi í dag. Að Suðurlandi og Suðausturlandi undanskildu var færð víða mjög slæm í gær og fyrradag og þá sér- staklega miðað við árstíma, en sam- kvæmt upplýsingum frá Vegagerð- inni er ekkert sérstaklega óalgengt að vegir verði ófærir um miðjan aprflmánuð. Vegir á Miðhálendinu eru allir ófærir og þá var Holta- vörðuheiðin lokuð frá mánudegi og þar til á hádegi í gær, en í gær var aðeins stórum bílum og jeppum hleypt yfir heiðina, þvi þar var þæf- ingsfærð og skafrenningur. Bratta- brekka var einnig ófær í gær, en ástandið á Snæfellsnesi og í Dölum var þokkalegt. Veðurstofan spáir vestlægri átt, golu eða kalda og slydduéljum á Vesturlandi í dag. Fært var um Víkurskarð og til Húsavíkur, en ófært var á Tjörnesi og þungfært þaðan og til Raufar- hafnar og með ströndinni til Vopna- fjarðar. Létta á til á Norðurlandi eystra í dag en spáð er hægri vest- lægri eða breytilegri átt. Á Norður- landi vestra er spáð suðvestan golu og éljagangi síðdegis í dag.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.