Morgunblaðið - 14.04.1999, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 14.04.1999, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Greiði bætur vegna mistaka við kvótasölu HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíknr hefur dæmt Ábyrgðai-sjóð Félags fasteignasala til að greiða íyr- h-taekinu Haraldi ehf. á Dalvík 3,9 milljónir króna með dráttarvöxtum frá 1995 vegna mistaka sem gerð voru við sölu á bátinum Hildi Ara RE-888 og veiðiheimildum til fyrirtækisins í október 1990. Tilgangurinn með viðskiptunum var sá að Har- aldur ehf var að kaupa aflaheimildir sem bátnum fylgdu en ekki bátinn sjálfan. Viðskiptunum lauk þannig að seljandinn gat ekki efnt samninginn því að báturinn var seldur á nauðungaruppboði vegna vanskila hans. Kaupandinn, Haraldur ehf, höfðaði mál á hend- ur Bergi Guðnasyni, lögmanni fasteignasölunnar sem annaðist viðskiptin, til heimtu skaðabóta vegna þess tjóns sem hann varð fyrir vegna fram- angreindra viðskipta. Lögmaður eða fasteignasali? Lauk því máli með dómi Hæstaréttar þar sem Bergur var dæmdur til að greiða 3.536.064 kr. ásamt dráttarvöxtum og 400. 000 kr. í málskostn- að eða samtals 3.936.064 kr. Sú upphæð fékkst ekki greidd vegna gjaldþrots Bergs á árinu 1993 og því stefndi Haraldur ehf VIS, þar sem lögmað- urinn hafði starfsábyrgðartryggingu, og ábyrgð- arsjóði Félags fasteignasala. Fyi'ir dómi snerist ágreiningur aðilanna um hvort Bergur hefði við viðskiptin og samnings- gerðina, en fulltrúi hans samdi samninginn, komið fram sem lögmaður eða fasteignasali. Niðurstaða dómsins er sú að um viðskipti með atbeina löggilts fasteignasala hafi verið að ræða. VIS var sýknað þar sem bótaskylda starfsábyrgð- artryggingar lögmanns taki aðeins til gálausra verka, mistaka eða athafnaleysis. Þekkti ekki lagareglur um aflaheimildaframsal Munur á henni og ábyi'gðartryggingu fasteigna- sala hafí verið sá að tjón, sem fasteignasali veldur viðskiptamönnum sínum af ásetningi eða stórfelldu gáleysi í starfí, skuli bætt af Ábyrgðarsjóði Félags fasteignasala, en sé gáleysið ekki talið stórfellt skuli það bætt af starfsábyrgðartryggingunni. í dómi Hæstaréttar frá 1995 um bótaskylduna, frá 15. júní 1995, sé rakið að samkvæmt yfirliti frá október 1990 hafi vanskil skulda, tryggðra með veði í skipinu, numið 5.459.847 kr. „Utborgun að fjárhæð 3.500.000 kr. sem fasteignasalan veitti móttöku hafi einungis að hluta verið ráðstafað til gi-eiðslu vanskila, en seljanda afhentar 2.240.000 kr. Engar ráðstafanir hafi verið gerðar í því skyni að koma í veg fyrir að lánardrottnar leituðu fulln- ustu í skipinu vegna hinna miklu vanskila. Ekki var með fullnægjandi hætti aflað gagna um veð- bönd á skipinu og ekki var upplýst um haldsrétt skipasmíðastöðvar í skipinu til tryggingar við- gerðarkostnaði, eins og nánar greinir í dómi Hæstaréttar. Þá voru kaupsamningar þessir málamyndagerningar vegna sölu aflahlutdeildar en fasteignasalinn hafði ekki kynnt sér lagaregl- ur þar að lútandi. Þegar þetta er virt verður að telja að um stórfellt gáleysi hafi verið að ræða af hálfu fasteignasalans," segir í dómi Eggerts Óskarssonar héraðsdómara, þar sem krafa um að Ábyrgðasjóður Félags fasteignasala væri látinn bæta kaupandanum tjón sitt með fyrrgreindum hætti var tekin til greina. Trygginga- miðstöðin hf. kaupir Aðalstræti 6 BORGARRÁÐ hefur sam- þykkt að selja Tryggingamið- stöðinni hf. eignarhlut borg- arinnar í Aðalstræti 6 ásamt hlutdeild í eignarlóð og er kaupverðið 114,5 milljónir. Réttur til að byggja ofan á húsið Kaupunum fylgir eignar- hlutur í lóðinni Fischersundi 1 og hluti lóðarinnar við Mjóstræti 5 og skal kaupverð greiðast með jöfnum afborg- unum á níu mánuðum, í fyrsta sinn 15. apríl 1999. Þá fylgir kaupunum hlutdeild í sam- eign og réttur til að byggja ofan á húsið. Kaupandinn, Trygginga- miðstöðin hf., tekur við öll- um réttindum og skyldum leigusala samkvæmt samn- ingum. Ólafur Tryggvason úrsmiður hefur séð um klukkuna í Domkirkjunni síðastliðin sjötíu ár Trekkir á hverjum þriðjudegi Á HVERJUM þriðjudegi fer Ólafur Tryggvason úrsmiður upp í turn Dómkirkjunnar til þess að trekkja kirkjuklukkuna. Blaðamaður Morgunblaðsins slóst í gær í för með Ólafí upp í turninn, en þangað hefur hann farið í nánast hverri viku síðast- liðin 70 ár. Kirkjuklukkan í Dómkirkj- unni varð 100 ára í nóvember í fyrra. Henni þarf að halda við eins og öðru og ekki síst þarf að trekkja hana þar sem hún er ekkert annað en stækkuð út- gáfa af gömlu heimilisklukkun- um með lóðunum sem allir þekkja. Ólafur Tryggvason hef- ur séð um klukkuna síðan hann var ungur lærlingur hjá Magn- úsi Benjamínssyni úrsmiði sem setti klukkuna upp þegar hún kom frá Þýskalandi á sínum tíma. Þó hafa nokkrir lærlingar hans séð um klukkuna tíma- bundið, svo 70 árin eru ekki al- veg óslitin. „Klukkan er í góðu ásigkomu- lagi og gæti eflaust slegið næstu 100 árin,“ sagði Ólafur í gær, en hann þekkir klukkuna manna best. Að hans sögn breytir klukkan sér lítið en það fer eftir veðri, vindum og rakastigi lofts- ins hvort hún flýtir sér eða seinkar. Klukkan stoppað örsjaldan í tugi ára trekkti Ólafur klukk- una með handafli. Lóðin eru þijú og tekur það þau viku að síga niður. Snúa þurfti 35 snúninga t.il þess að ná hveiju lóði upp og var það nokkuð strembið. „Þetta var soddan galeiðuþrælkun. Eg varð kófsveittur og þurfti iðulega að fara í bað á eftir,“ sagði Ólafur sem fyrir um áratug eða svo lét smiða rafmagnstæki sem trekkir lóðin. Með því sparar hann krafta sína en samt sem áður er ekki hægt að láta klukkuna vera algerlega sjálfvirka af því að í henni er slagverk og inn í það má ekki grípa nema á vissum tímum að sögn Ólafs. Þess vegna verður hann að koma í hverri viku. Klukkan hefur gengið nánast óslitið í rúm 100 ár. Olafur minnist einungis nokkurra at- vika þar sem hún stöðvaðist. Eitt skiptið slitnaði strengur, í annað fékk mjög snarpur jarð- skjálfti hana til að stoppa og stöku sinnum hafa vísamir á klukkunum frosið fastir í mjög mikilli vestanátt og snjókomu. Ólafur minnist þess þegar ís- lendingar voru með sumar og vetrartíma. Þá þurfti hann að koma á vorin og flýta klukkunni um klukkustund á miðnætti og seinka henni um klukkustund á haustin. „Eg var farinn að hafa það þannig að ég bauð eigin- konunni út að borða á þessum kvöldum. Við sátum róleg þar til klukkan tæplega eitt, þá pantaði ég leigubfl og sagði bfl- stjóranum að fara að Dómkirkj- unni. Bflstjórarnir horfðu yfír- leitt undrandi á mig en fóru þangað samt. Eg lét þá bíða fyr- ir utan á meðan ég hljóp upp og flýtti eða seinkaði klukkunni eftir því sem við átti,“ sagði Ólafur sem segist hafa orðið „guðslifandi feginn þegar þeir hættu þessari vitleysu að breyta klukkunni." Ólafur er á 89. aldursári en lætur aldurinn ekki aftra því að stunda þessa iðju sína. Vegna slitgigtar í hnjám á hann þó orð- ið erfitt með að ganga upp bratta stigana í Dómkirkjunni og alla leið upp í kirkjuturn. „Það hlýtur að koma að því að ég hætti þessu,“ segir Ólafur en gefur ekkert í skyn um hvort það verður á næstunni. Morgunblaðið/RAX ÓLAFUR Tryggvason hefur séð um að trekkja klukkuna í Dómkirkj- unni nánast óslitið síðastliðin 70 ár, en hann er nú á 89. aldursári. Ráðherra ræðir kennaraskort Ljósmyndir eftir Sigurgeir Sigurjónsson. Texti eftir Sigurð Steinþórsson jarðfræðing og formáli eftir frú Vigdísi Finnbogadóttur. Laugavegi 18 • Sími 515 2500 • Síðumúla 7 • Sími 510 2500 TALIÐ er að nemendum grunnskóla hér á landi fjölgi á næstu fjórum til fimm árum í rúm 44 þúsund en fækki aftur í tæp 42 þúsund á skólaárinu 2009-2010. Stöðugildi grunnskóla- kennara á landinu eru nú rúmlega 3.200. Stöðugildum fjölgar á næstu árum og verða um 3.450 árið 2004 en fækkar svo aftur í tæplega 3.300 árið 2009. Þetta er niðurstaða nefndar á vegum menntamálaráðherra sem métið hefur þörf fyrir grunnskóla- kennara fram til ársins 2010. Viðræður við skóla- stjórnendur í gær Bjöm Bjarnason menntamálaráð- herra kynnti niðurstöður nefndar- innar á ríkisstjórnarfundi í gær. Ráðherrann fékk einnig rektora Kennaraháskóla íslands, Háskóla íslands og Háskólans á Akureyri á sinn fund í gær til að ræða niður- stöður nefndarinnar og hugsanlegar aðgerðir af hálfu i'íkisins til að mæta viðvarandi kennaraskorti í grunn- skólum landsins, að sögn Jónmund- ar Guðmarssonar, aðstoðarmanns menntamálaráðherra. Hugmyndir um að Ijölga nemendum í Ijarnámi Á fundinum kom fram vilji til samstarfs um aðgerðir í þessu efni. Beinist athyglin einkum að því að fjölga nemendum í fjarnámi. Fram kemur í fréttatilkynningu frá menntamálaráðuneytinu að ljóst sé að Háskólinn á Akureyri geti tekið við fleiri kennaranemum. Kennara- háskóli íslands telur sér einnig fært að fjölga nemendum. „Við erum að kljást við aukna tímabunda þörf fyr- ir fleiri stöðugildi kennara," segir Jónmundur. í niðurstöðum nefndarinnar kem- ur fram að nemendum mun fjölga mest á Reykjanesi og í Reykjavík en fækka á Vestfjörðum, Norðurlandi vestra og Austurlandi. Kennarar og leiðbeinendur að störfum í grunn- skólum nú eru 3.726. Þeim fjölgar í rúm 4.000 árið 2004 en fækkar aftur í um 3.835 árið 2009 að öðru óbreyttu. Ákvæði grunnskólalaganna 1995 um fjölgun kennslustunda kalla á 283 ný stöðugildi á átta árum. Fjölg- un stöðugilda af þessum sökum verður komin fram 2001-2002 að mati nefndarinnar. Hlutfall leiðbein- enda haustið 1998 var lægst í Reykjavík, um 7%, og á Reykjanesi, um 10%, en hæst á Vestfjörðum og Norðurlandi vestra eða um 50%. Fram kemur í niðurstöðum nefnd- arinnar að flestir grunnskólakenn- ara eru á aldrinum 45-49 ára og um 60% grunnskólakennara eru 40 ára eða eldri. Eru líkur taldar á að um 70% nýrra kennara muni skila sér til kennslustarfa.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.