Morgunblaðið - 14.04.1999, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 14.04.1999, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Kosningastefnuskrá Framsóknarflokksins kynnt Vilja verja milljarði til bar- áttunnar gegn vímuefnum HALLDÓR Ásgrímsson, formaður Framsóknarflokksins, telur að með áframhaldandi skynsamlegri hag- stjóm og markvissri og sldpulagðri stefnu í atvinnumálum verði hægt að auka hagvöxt um 3 til 4% á komandi kjörtímabili. Með því verði hægt að skapa svigrúm til að auka útgjöld til lífskjarajöfnunar og velferðarmála um 10 til 15 milljarða á næstu fjómm ámm. Kom þetta fram í máli Hall- dórs Asgrímssonar á blaðamanna- fundi í gær þar sem framsóknar- menn kynntu kosningastefnuskrá sína fyrir alþingiskosningamar 8. maí nk. í henni segir m.a. að Fram- sóknarflokkurinn vilji ráðstafa 1.000 milljónum króna á næsta kjörtíma- bili, til viðbótar því sem nú er gert, til baráttunnar gegn vímuefnum. „Við teljum að það sé til lítils að tala um góðæri, aukna velferð og bættan kaupmátt ef við tökumst ekki á við þennan vágest,“ sagði Halldór. Einnig vilja framsóknarmenn auka útgjöld til heilbrigðis-, trygginga- og annan’a velferðarmáia um tvo til þrjá miUjarða á næsta kjörtímabili, auka útgjöld til menntamála um tvo milljarða og auka útgjöld til lífs- kjarajöfnunar og til að tryggja rétt- láta skiptingu þjóðartekna um fjóra til fimm milljarðar. Varðandi síðastnefnda atriðið sagði Halldór að Framsóknarflokk- urinn teldi það forgangsverkefni að auka barnabætur og rétta hlut unga fólksins. Framsóknarflokkurinn leggur í því sambandi áherslu á að skattalöggjöfín verði tekin til end- urskoðunar svo hún styrki fjöl- skylduna í stað þess að sundra henni en einnig með það að mark- miði að einfalda skattkerfið og draga úr áhrifum jaðarskatta. Þá leggur flokkurinn áherslu á að hluti bamabóta verði án tekjutengingar þannig að öll börn fái bamakort við fæðingu sem verði 30.000 krónur á ári. „Kortið nýtist foreldrum til skattalækkunar eða greiðslu frá ríkinu,“ segir í stefnuskránni. Þar er ennfremur lögð áhersla á að fæð- ingarorlof verði lengt í níu mánuði og gert sveigjanlegra, m.a. með því að styrkja rétt feðra. Sölu ríkisfyrirtækja haldið áfram I kosningastefnuskránni er einnig fjallað um atvinnumál, land- búnar- og sjávarútvegsmál, svo eitt- hvað sé nefnt. „Framsóknarmenn Morgunblaðið/Þorkell FRAMSOKNARMENN kynntu kosningastefnuskrá sína fyrir komandi alþingiskosningar á blaðamannafundi í gær. F.v.: Finnur Ingólfsson, Halldór Ásgrímsson, Iiigibjörg Pálmadóttir og Valgerður Sverrisdóttir. viija hafa forystu um breytingar á fiskveiðistjómunarkerfinu til að sátt náist um þetta grundvallarmál íslensks samfélags, sátt sem er í samræmi við réttlætiskennd þjóðar- innar sem á auðlindina. Með starfi auðlindanefndar Alþingis gefst gott tækifæri til að reisa nýja þjóðar- sátt,“ segir m.a. í stefnuskránni. Þá sagði Halldór að framsóknar- menn væru þeirrar skoðunar að iðn- aðurinn byggi við mikla möguleika til dæmis í þekkingariðnaði og að því er varðaði orkumál og stóriðju sagði Halldór að þeir vildu ná sem bestri sátt milli nýtingar landsins og atvinnumála. „Uppbygging at- vinnulífsins og umhverfismála verð- ur að haldast hönd í hönd en við verðum að halda áfram að nýta okk- ar gæði í landinu með sama hætti og við höfum gert frá örófi alda.“ Að síðustu benti hann á að fram- sóknarmenn gerðu ráð fyrir því að verja hluta af þeim hagnaði, sem fengist vegna sölu ríkisfyrirtækja á næsta kjörtímabili, til samgöngu- mála og annarra jöfnunarmála til að efla byggð í landinu. Askorun á Hall- * dór Asgrímsson MORGUNBLAÐINU hefur borizt eftirfarandi yfirlýsing frá Valdimar Jóhannessyni, fram- bjóðanda Frjálslynda flokksins í Reykjaneskjördæmi: „Hér með skora ég undirrit- aður á Halldór Asgrímsson, for- mann Framsóknarflokksins, að mæta mér í kappræðum á opin- berum vettvangi til að ræða þar um þá hagkvæmni sem hann fullyrðir að hafi hlotist af núver- andi kvótakerfi. Þrátt fyrir að áskorun frá mér hafi birst fyrir rúmu ári í Mbl. að hann gerði grein opinberlega fyrir þeirri hagkvæmi fyrir þjóðarheildina sem eigi að hafa hlotist af gjafa- kvótakerfínu hefur hann ekki lýst henni ennþá nema með innihaldslausum fullyrðingum. Ef Halldór Asgrímsson getur sýnt fram á hagkvæmni kvóta- kerfisins í umræðum þar sem andstæð sjónarmið geta fengið að njóta sín, hlýtur hann að fagna því að fá tækifæri til þess að kveða okkur andstæðinga sína í þessu máli í kútinn. Kjósendur eiga rétt á því að heyra þessi rök. Ef hann verður ekki við ítrekaðri áskorun minni fyrir vikulok, jafngildir það að mínu að hann geti ekki undir- byggt fullyrðingar sínar með rökum.“ Framboðslisti Anarkista á Islandi ANARKISTAR á íslandi bjóða fram í Reykjavík í Alþingiskosningum 8. maí nk. Efstu nítján frambjóðendur á lista þeirra eru. 1. Þórarinn Einarsson, 2. Hall- gerður Pálsdóttir, 3. Magnús Egils- son, 4. Heiða D. Liljudóttir, 5. Sig- urður Harðarson, 6. Hallgrímur Grétarsson, 7. Elvar Geir Sævars- son, 8. Oskar Levy 9. Ragnar Eiríks- son, 10. Anna Karen Símonardóttir, 11. Hákon J. Pétursson, 12. Sverrii- Asgeirsson, 13. Sólver H. Hafsteins- son, 14. Brynhildur Stefánsdóttir, 15. Arnar Óskar Egilsson, 16. Viggó Jóhannsson, 17. Ragnar Þórisson, 18. Pjetur St. Arason og 19. Ragn- heiður Eúíksdóttir. Fundur um siðferði í stjórn- málum VINSTRIHREYFINGIN - grænt framboð heldur fund fimmtudaginn 15. apríl um siðferði í stjórnmálum í kosningamiðstöðinni Suðurgötu 7 kl. 20.30. Frummælandi verður Jóhann Björnsson, M.A. í heimspeki. „I erindi sínu, sem kallast „Mun minn tími koma?“, mun Jóhann ræða ýmis álitamál sem tengjast siðferði og metnaði stjórnmálamanna til valda. Nefnd verða dæmi úr íslensk- um stjórnmálum og þau rædd í ijósi siðfræðinnar," segir í fréttatilkynn- ingu. Vestfírðir Framboð Húmanista- flokksins FRAMBOÐSLISTI Húmanista- flokksins í Vestfjarðakjördæmi fyrir alþingiskosningarnar í vor hefur ver- ið samþykktur. Hann er þannig skip- aður: 1. Stefán Bjargmundsson toll- vörður. 2. Ólafur Þór Einarsson beit- ingamaður. 3. Þór Örn Víkingsson nemi. 4. Hrannar Jþnsson í'orritari. 5. Halldór Arnar Ulfarsson stuðn- ingsfulltrúi. Davíð Oddsson fundar á Akranesi DAVÍÐ Oddsson, formaður Sjálf- stæðisflokksins, heldur opinn fund um stjómmál í Sal Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi í kvöld, mið- vikudagskvöld, kl. 20.30. Fundurinn er hinn fyrsti í fundarherferð Davíðs í öllum kjördæmum landsins. ERU ÞEIR AÐ FA’ANN? Lá við slysi í Soginu ÞARNA veiða menn frá bakka Þrastarlundar, en víða er breidd Sogsins mun meiri og alls staðar er þungur straumur sem krefst aðgæslu veiðimanna sem út í vaða. KULDAKASTIÐ hefur dregið mjög úr veiðiskap þar sem hann er á annað borð hafinn, en það kemur ekki í veg fyrir að menn reyni og dæmin sanna að kapp er best með forsjá. Veiðimaður nokk- ur er egndi fyrir bleikju í Soginu á dögunum lenti a.m.k. í þeirri raun, að missa fótanna langt úti á As- garðsbreiðu og íljóta 50 til 100 metra með straumnum uns hann náði botni aftur og gat staulast til lands skelfingu lostinn. Þetta óvænta bað veiðimannsins hefði auðveldlega getað endað verr. „Við fundum enga bleikju niðri á töngunum í Asgarði og fórum því upp úr. Byrjuðum á Asgarðs- breiðu og þá sá ég að menn voru að fá einhverja fiska Bfldsfells- megin. Eg óð þá af stað og þetta er þannig að maður finnur ekki mikið fyrir straumnum og botninn er góður. Þetta var auðvitað meira kapp en forsjá og þegar ég sá að malarbotninn þraut og dýpi var framundan reyndi ég að bakka til baka. En það var of seint, það grófst undan mér og ég fór af stað. Þetta var fjári kalt og þarna var raunveruleg skelfing á ferð- inni því maður veit ekkert hvað gerist á næstu andartökum. En þetta endaði þó vel með því að ég náði aftur botni og þar óð félagi minn út og aðstoðaði mig í land,“ sagði umræddur veiðimaður í samtali við Morgunblaðið, en vildi ekki láta nafns getið. Hann taldi þó rétt að greint væri frá óhappinu ef það gæti orðið mönnum áminn- ing um að fara gætilega. Og þá ekki aðeins í Soginu, heldur við öll veiðivötn. Þess má geta í þessu sambandi, að SVFR leigir Asgarð, Bíldsfell og Alviðru, en á þeim svæðum þarf víða að vaða talsvert í Soginu og alla tíð hefur félagið auglýst að hverju leyfi fylgi björgunarvesti sem hangi á snaga í veiðihúsun- um. Fágætt er hins vegar að sjá veiðimenn í Soginu íklædda slík- um flíkum og að mati margra kunnugra er mesta mildi hve sjaldan alvarleg slys hafa orðið við ána. Það er ekki aðeins hið mikla vatnsmagn árinnar og gríð- arlega þungur straumur sem víða leynir á sér, heldur einnig að endalausar og óvæntar vatns- borðshækkanir vegna athafna manna við virkjanir Sogsins hafa löngum stóraukið hættuna. Nöfn veiðistaða á borð við „Ysta nöf‘ ættu þó að duga til að hvetja menn til árvekni við veiðar í Sog- inu, því oft eru menn þar bókstaf- lega á ystu nöf.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.