Morgunblaðið - 14.04.1999, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 14.04.1999, Blaðsíða 20
AUK k936-23 20 MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 1999 VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ □agskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvaemt 4.04 grein samþykkta félagsins. 2. Tillögur um breytingu á 2. gn samþykkta félagsins varðandi heimild til útgáfu rafnænna hlutabréfa og 5. gr. samþykkta félagsins varðandi fækkun varastjórnarmanna úr fimm í tvo. 3. Tillaga um heimild stjórnar til kaupa á eigin hlutabréfum í félaginu. 4. Önnur mél, löglega upp borin. Dagskrá, endanlegartillögur og reikningarfélagsins liggja frammi á skrifstofu félagsins hluthöfum til sýnis. Aðgöngumióar og fundargögn veróa afhent á fundarstað. Stjórn Marel hf. ia/funcíur A/Tare/ h~if. Orðsending til hluthafa Aóalfundur Marel hf. verður haldinn fimmtudaginn 15. apríl nk. kl. 16:00 í húsnæöi félagsins að Höfðabakka 9, Reykjavík. MARK Hádegisverðarfundur ílVSARK* á Hótel Sögu, Ársölum, 2. hæð, fimmtudaginn 15. apríl kl. 12.00-13.30 / Utvarpsauglýsingar Miklar breytingax hafa orðið á útvarpsmarkaðnum á undanfömum missemm. Nýjar stöðvar hafa skotið upp kollinum sem stíla beint inn á afmarkaða mark- hópa. Minni stöðvar hafa verið að eflast og erlend þekking og reynsla er notuð til gmndvallar hjá þeim flestum. íslenskar útvarpsstöðvar hafa náð að laða til sín u.þ.b. fimmtung af því fé sem varið er til auglýsinga hér- lendis og er það allt að þrefalt meiri árangur en útvarpsstöðvar í nágrannalöndunum geta státað af. Hvemig er íslenski útvarpsmarkaðurinn samanborið við það sem er að gerast í Vestur-Evrópu og Banda- ríkjunum? Á hlutfall útvarpsauglýsinga á auglýsinga- markaðnum eftir að breytast? Ræðumenn: Bmce Law, útvarpsstjóri Fíns miðils. Viktor Ólason, auglýsingastjóri Islenska útvarpsfélagsins. Þorsteinn Þorsteinsson, forstöðumaður markaðssviðs RÚV. Fundarstjóri: Helga Þóra Eiðsdóttir, forstöðumaður Vildarklúbbs Flugleiða. Verð: 1.500 kr. fyrir þá sém greitt hafa félagsgjöld ÍMARK en 2.500 kr. fyrir aðra. Innifalið er léttur hádegisverður og kaffi. Morgunblaðið/Sverrir REKSTRARAÐILAR í Kringlunni fjölmenntu er endurbætur á Kringlunni voru kynntar á fundi í gær. Samningum við alla rekstraraðila í endurbættri Kringlu lokið Ahersla á merkjavöru, fólksflæði og veitingar HINN 30. september næstkom- andi er stefnt að opnun nýrrar og endurbættrar Kringlu með stór- auknu verslunarrými, fleiri bfla- stæðum, tengingu við Borgarleik- hús og aukningu veitingastaða svo eitthvað sé nefnt, auk þess sem endurnýjaðar verða innréttingar í núverandi húsnæði. Þeir sem leið hafa átt fram hjá lóð Kringlunnar í vetur hafa tekið þar eftir krönum og stórvirkum vinnuvélum að verki auk þess sem nágrannar Kringlunnar hafa nötr- að vegna tíðra sprenginga á svæð- inu. Samkvæmt Ragnari Atla Guð- mundssyni, stjórnarformanni Kr- inglunnar, miðar framkvæmdum vel og eru þær nú nokkra daga á undan áætlun, að hans sögn. GK, Boss, MacDonald’s og Marco Polo Breytingamar voru kynntar eig- endum og rekstraraðilum í Kringl- unni á fundi á Hótel Loftleiðum í gær. I endurbættu húsnæði Kringl- unnar verða áherslur þær helstar að framboð merkjavöru verður aukið, styrkja á fólksflæði inn í suðurenda hússins, veitingastaðir verða mun fleiri og fjölbreyttari, og aukin áhersla verður lögð á verslanir og afþreyingu fyi-ir tán- inga, 13 ára og eldri. Ragnar Atli fór yfir breytingarn- ar með fundarmönnum, en í máli hans kom m.a. fram að leigusamn- ingum um öll laus pláss í Kringl- unni væri nú lokið. Meðal þeirra verslana sem koma 'til með að verða í hinni endurbættu Kringlu er kvenfataverslunarkeðj- an Sasha frá Irlandi, sú stærsta sinnar tegundar þar í landi, Marco Polo frá Þýskalandi, sem einnig sel- ur kvenföt, Eurosko frá Noregi sem væri stærsta skóbúðarkeðja þar í landi, ný heilsubúð, 2.300 fer- metra útivistarverslun ásamt fleiru. Einnig munu verslanirnar Dressmann, Knickerbox og GK, sem allar reka verslanir á Lauga- veginum koma í Ki-ingluna, og stefnir GK á að versla með kvenfót í Kringlunni. Að auki munu eigend- ur Evu Gallery reka vei-slun með fatnað frá In Wear og Matinique og Hugo Boss verslun verður opn- uð. Auk þessa mun verslunin 17 færa sig um set og verða þar sem veitingastaðimir Kvikk eru núna, en þar sem verslunin 17 er núna munu eigendur 17 opna verslun með nýju heiti. Eins og komið hefur fram verður verslunin Byggt og búið ekki leng- ur á þeim stað sem hún er á núna en að sögn Ragnars verður versl- unin einungis færð til innan Kr- inglunnar. Um veitingastaði sagði Ragnar að miklar breytingar væra í vænd- um og alls yrðu 5 veitingastaðir, sem yrðu í samkeppni við veitinga- staði í miðbænum, í Kringlunni auk þess sem skyndibitastöðum mun fjölga mikið. Veitingastaðirnir 5 verða; einn franskættaður og einn ítalskættað- ur, Romanos, auk þess sem Hard Rock Café verður áfram rekið lítil- lega breytt, Kringlukráin verður rekin sem veitingastaður á daginn og Nýja kökuhúsið rekur kaffihús. Skyndibitastaðirnir verða af ýmsum toga. Ricci Chan verður áfram með austurlenskan mat, staðm- með grænmetisfæði verður opnaður, Subway og Dominos verða áfram með útibú auk þess sem MacDonald’s hefur samið um opnun staðar í Kringlunni. í tengslum við innreið MacDonald’s í Kringluna mun Jarlinn hætta með hamborgarasölu og fara yfir í kjúklinga og grillmeti. Inngangar og torg breytast Richard Abrams skipulagsarki- tekt fór yfir breytingarnar í smáat- riðum. Hann sagði meðal annars að lýsingu í Kringlunni yrði allri breytt, m.a. með það að markmiði að Kringlan yrði ekki eins í dag og hún var í gær, andrúmsloftið yrði mismunandi dag frá degi. Einnig mun inngöngum á jarðhæð verða breytt mikið og lýsingu þar breytt einnig. A torginu framan við Nýkaup, þar sem nú er tjörn og bekkir, verða settir upp kaffistaðir og skipt verður um rúllustiga, nýr rúllustigi verður gegnsær og upp- lýstur innan frá. Richard gerði ytra útlit verslana að umtalsefni og hvatti verslunar- fólk til að huga sérstaklega að því fyrir 30. september. Aðlaðandi bflastæðahús Steve Christer arkitekt og Krist- inn Hrafnsson myndlistarmaður kynntu síðan samstai-fsverkefni sitt við hönnun nýs bflastæðahúss Kringlunnar og útivistarsvæðis í grennd við bflastæðið. Mikið er lagt upp úr því að sólar- ljós eigi sem greiðastan aðgang að öllum helstu stöðum á svæðinu, hvoi-t sem er að vetri eða að sumri til. Lagði Steve mikla áherslu á að bílastæðahúsið yrði aðlaðandi enda er það að hans sögn andlit Kringl- unnar, rýmið sem heimsóknin í Kr- ingluna byrjar í. Þeir segja að samvinna þeirra hafi grandvallast á því að í staðinn fyrir að setja upp listaverk á af- mörkuðum stöðum í nýbygging- unni hafi verið ákveðið að skapað yrði eitt sameiginlegt listaverk, sem væri heildarhönnunin. Þó verður eitt listaverk sett upp, nokkurs konar kassi sem hægt verður að ganga upp á en inni í honum verða innsiglaðar minjar úr samtímanum. Læst þar til Kringlan verður rifin Á fundinum biðlaði Kristinn til verslunareigenda í Ki-inglunni um að leggja til vörar í kassann, en honum yrði síðan læst og ekki opn- aður fyrr en Kringlan yrði rifin einhverntima í ókominni framtíð, og munirnir þá fluttir á Þjóðminja- safnið. „Hvað er list? spyrja menn. Stundum er svarað: list er það sem listamenn gera, en við það má bæta: List er það sem listamenn fá aðra tfl að gera,“ sagði Kristinn og átti þar við þátttöku verslunar- manna í verkefninu. Ragnar Atli minntist sérstaklega á frétt Morgunblaðsins af þátttöku Baugs í verslunarmiðstöðinni í Smáralind í blaðinu á þriðjudag og hvatti til umræðu um málið í sam- hengi við verslun í Kringlunni. Umræður um málið urðu hins vegar engar á fundinum. Ragnar sagði í samtali við Morgunblaðið að enn væri of snemmt að álykta um áhrif Smáralindar á Ki-ingluna og sagði hann að sér þætti óraunhæft hjá aðstandendum Smáralindar að stefna að því að opna miðstöðina ár- ið 2001, eins og lýst hefur verið yfir. „Kiinglan hefur margt fram að færa umfram Smái-alind. Hún hefur t.d. staðsetninguna, en 70.000 bflai- fai-a um nálæg gatnamót, Miklu- braut/Kringlumýrarbraut, á dag. Kringlan hefur einnig verið við lýði í 12 ár og hefur eflst að reynslu og þekkingu á þeim tíma og í Kringl- unni er rjómann af kaupmönnum á Islandi að finna,“ sagði Ragnar. Ragnar telur að Smáralindin komi ekki til með að hafa neikvæð áhrif á Kringluna, nema þá í mesta lagi til skamms tíma. „Kr- inglan verður miðbæjarverslunar- miðstöð en Smáralind verður út- hverfaverslunarmiðstöð og þar er munur á.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.