Morgunblaðið - 14.04.1999, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 14.04.1999, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 1999 59 FRÉTTIR Fyrirlestur um sögu hval veiða við Island Morgunblaðið/Ámi Sæberg STARFSMENN sjúkraþjálfunarstofunnar í Stangarhyl. TRAUSTI Einarsson sagnfræðing- ur heldur fyrirlestur fimmtudaginn 15. apríl í boði Rannsóknaseturs í sjávarútvegssögu og Sjóminjasafns Islands sem nefnist Saga hvalveiða við ísland. Fyrirlesturinn verður fluttur í Sjóminjasafni Islands, Vesturgötu 8, Hafnarfirði, og hefst kl. 20.30. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Saga hvalveiða á íslandi er ágætt dæmi um það hve sjávarhættir eru ólíkir meðal þjóða. Hér á landi hafa hvalir verið veiddir allt frá því að landið var numið af norrænu fólki. Ailt bendir til þess að landnemarnir hafi komið með kunnáttuna frá heimabyggðum sínum en hún nýtt- ist landsmönnum fram eftir öldum Garðyrkjuskóli rfkisins Námskeið um jarðgerð á vegum sveitar- félaga GARÐYRKJUSKÓLI ríkisins, Reykjum í Ölfusi, verður með nám- skeið föstudaginn 16. apríl nk. um jarðgerð á vegum sveitarfélaga. Námskeiðið stendur frá kl. 13-18.30 og er haldið í Borgartúni 6, Reykja- vík. Tilgangur námskeiðsins er að kynna hvað er að gerast hjá sveitar- félögum í jarðgerð og fjalla um helstu atriði málaflokksins. Magnús Stephensen hjá Sorpu mun fjalla um markað fyrir jarðvegsbæti og kynna Fenúr sem er fagráð um endurvinnslu og úrgang. Björn Guðbrandur Jónsson, umhverfís- fræðingur, mun tala um sjálfbæra þróun og meðferð lífrænna úr- gangsefna. Stefán Gíslason, verk- efnisstjóri Staðardagskrár 21, ætlar að ræða um jarðgerð, hlutverk sveitarfélaga og stjórntæki. Þá mun Guðmundur Ti’yggvi Ólafsson, um- hverfisfræðingur hjá Sorpstöð Suð- urlands, segja frá jarðgerð á Suður- landi og að síðustu mun Jóna Fann- ey Friðriksdóttir, framkvæmda- stjóri Gróðurs fyrir fólk í landnámi Ingólfs, gera grein fyrir umhverfis- verkefninu Skil 21. Námskeiðið endar á heimsókn í Sorpu þar sem stafsemin verður kynnt og boðið upp á léttar veiting- ar. Skráning og nánari upplýsingar um námskeiðið fást hjá endur- menntunarstjóra Garðyrkjuskólans. Samræmd fram- setning tölvu- teikninga TÖLVUTÆKNIFÉLAG íslands hefur í samstarfi við Framkvæmda- sýslu ríkisins gefið út vinnureglur fyrir samræmda framsetningu tölvuteikninga. „Þessar reglur eru í samræmi við nýjan staðal, ISO 13456, sem tók gildi sem alþjóðleg- ur staðall í mars 1998. Útgáfan ber heitið Tölvutækni 3 og það er for- maður félagsins, Magnús Þór Jóns- son, sem er ábyrgðarmaður en Magnús K. Sigurjónsson, ritari TTFÍ, hefur ritstýrt verkinu. Mark- miðið með þessum reglum er að auðvelda samstarf fagsviða og að- gengi að upplýsingum á tölvutæku formi. Með þessu á að stuðla að bættri og hagkvæmari hönnun,“ samkvæmt því sem fram kemur í fréttatilkynningu. „Fimmtudaginn 15. apríl kl. 12 verður haldinn hádegisverðarfund- ur í gamla iðnaðarmannasalnum Skipholti 70, 2. hæð. Á fundinum verður kynning og umræður um Tölvutækni 3, leiðbeiningar fyrir samræmda framsetningu tölvu- teikninga. Mikilvægt er að þeir, sem málið varðar, mæti á fundinn til að fá fram skoðun þeirra á regl- til þess að stunda hvalveiðar. Hing- að til lands sóttu líka erlendir hval- fangarar og fjallar fyrirlesturinn sérstaklega um kynni Islendinga af Böskum og Norðmönnum. Með þessum þjóðum bárust til íslands erlendir sjávarhættir og verkmenn- ing og verður í fyrirlestrinum vikið að samskiptum íslendinga við þess- ar þjóðir og því hvaða afleiðing þessi kynni höfðu fyrir íslenska sjávarhætti, segir í fréttatilkynn- ingu. Þetta er fjórða erindið í röð fyrir- lestra fyrir almenning á vegum Rannsóknaseturs í sjávarútvegs- sögu og Sjóminjasafns íslands og það síðasta á þessari önn. Stefnt er að nýi’ri röð fyrirlestra næsta haust. unum, hvernig til hefur tekist, hvað megi betur fara og hvert skuli stefna. Öllum er heimill aðgangur meðan húsrúm leyfir,“ segir þar ennfremur. Það er stefna félagsins að setja reglurnar ásamt leiðbeiningum um notkun á heimasíðu félagsins http://www.islandia.is/~ttfi. Málstofa um bindandi álit í skattamálum MÁLSTOFA í samvinnu Laga- stofnunar og Lögfræðingafélags Is- lands verður haldin fimmtudaginn 15. apríl um bindandi álit í skatta- málum samkvæmt lögum nr. 91/1998. Framsögumenn verða Páll Hreinsson, dósent við lagadeild Há- skóla íslands, og Kristján Gunnar Valdimarsson, lögfræðingur hjá umboðsmanni Alþingis. Páll mun fjalla almennt um rétt- arreglur stjórnsýsluréttar um forá- kvarðanir. Fjallað verður um tengsl forákvarðana við stjórnvaldsá- kvarðanir, lögfestar og óski-áðar heimildir til töku forákvarðana og kosti og galla þessa réttarúrræðis, segir í fréttatilkynningu. Kristján Gunnar fjallar sérstak- lega um bindandi álit í skattamál- um. Að loknum framsögum verða al- mennar umræður. Málstofan verður haldin í Lög- bergi, stofu 204 og hefst hún kl. 16. Hugræktarnám- skeið fyrir konur FJÖGURRA kvölda hugræktar- námskeið verður haldið fyrir konur á Þorragötu 1 í Reykjavík og hefst það miðvikudaginn 14. apríl kl. 20. Leiðbeinandi er Didi. „Didi er leikskólastjóri og jóga- kennari. Á námskeiðinu kennir hún konum að sigrast á öryggisleysi, kvíða- og óttatilfinningu og hvernig sækja megi andlegan styrk og sjálfstraust úr iðrum andans. Að- ferðirnar byggjast á hugleiðslu og hugsýnum, staðhæfingum, einbeit- ingu og djúpslökun," segir í frétta- tilkynningu frá Didi. Gengið úr Ana- naustum út á Eyjagarð HAFNARGÖNGUHÓPURINN stendur fyrir gönguferð í kvöld frá Hafnarhúsinu að vestanverðu kl. 20. Farið verður upp Grófina og Vesturgötuna út í Ánanaust að gamla Ánanaustavararstæðinu, til baka eftir hafnarbökkum að Hafn- arhúsinu. Aliir velkomnir. Ný sjúkraþjálf- unarstofa NÝ sjúkraþjálfunarstofa og líkams- rækt tók til starfa 1. mars sl. í Stangarhyl 7 í Reykjavík. Þar starfa 8 sjúkraþjálfarar, bæði við einstaklingsmeðferð og við almenn- ar leiðbeiningar í vel búnum líkams- ræktarsal. Næsta haust verður húsnæðið stækkað. Verður þá boðið upp á hópþjálfun fyrir fólk með gigt, hjartadjúkdóma, iangvinna bak- verki, hálshnykksáverka, grindar- gliðnun, helftarlömun o.fl. Sjúkra- þjálfararnir sem starfa við stöðina hafa flestir 10 ára eða lengri starfs- reynslu og hafa sérhæft sig á ýms- um sviðum. Fjórir þessara sjúkra- þjálfara eru í fjarnámi við Uni- versity of St. Augustine Fiorida og munu útskrifast á næsta ári með liðlosunargráðu (Manuel Therapy). Myndakvöld Ferðafélagsins FERÐAFÉLAG íslands efnir í kvöld til myndakvölds F.I. í salnum að Mörkinni 6. Fyrir hlé sýnir Oddur Sigurðs- son jarðfræðingur myndir frá skögunum tveimur sem teygja sig í vestur frá landinu, Snæfellsnesi og Reykjanesskaga. Þar er náttúran og ekki síst jarðfræðin ákaflega sérstæð og áhugaverð og mun Oddur segja frá því. Eftir hlé sýnir Gerður Steinþórsdóttir myndir frá hvítasunnuferð Ferðafélagsins á Öræfajökul og í Inghólfshöfða, auk ferðar í Esjufjöll. Aðrar hvíta- sunnuferðir verða kynntar. Góðar kaffiveitingar í hléi. Fjölbreytt myndasýning þar sem ferðaslóðir Ferðafélagsins á árinu koma mjög við sögu. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Ferðaáætlun 1999 liggur frammi. Byggðaþróun á Islandi INGUNN Bjamadóttir landfræð- ingur flytur erindi í kvöld, miðviku- dagskvöldið 14. apríþ sem hún nefn- ir: Byggðaþróun á íslandi - Starf- semi þróunarsviðs Byggðastofnun- ar á Sauðárkróki, á vegum Félags landfræðinga í stofu 201 í Odda, Fé- lagsvísindahúsi HÍ. í erindinu verður kynnt starfsemi þróunarsviðsins, raktar orsakir fólksflutninga og aðgerðir sem lagð- ar eru til í hinni nýju byggðastefnu sem samþykkt var á Alþingi nýver- ið. Auk þess mun Ingibjörg segja frá Byggðabrúnni sem notuð er til funda og fjarkennslu landshorna á milli í rannsóknum og fleiru. Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir. Eldri borgarar fagna auknum skilningi ríkis- stjérnar EFTIRFARANDI tillaga var sam- þykkt á aðalfundi Félags eldri borg- ara í Kópavogi föstudaginn 19. mars sl. í Gullsmára 13, Kópavogi: „Aðalfundurinn fagnar auknum skilningi hjá ríkisstjórn íslands í garð eldri borgara. Fundurinn væntir þess að efndir og orð fari saman. Fundurinn áréttar brýna nauðsyn þess að leysa úr vanda eldri borgara sem bíða eftir sjúkra- rými. Um 300 einstaklingar voru á biðlista eftir plássi á sjúkrastofu um sl. áramót. Hér duga ekki falleg orð. Lausn á þessum vanda verður að koma sem fyrst. Fundurinn hvetur alla eldri borg- ara til að myna sterka samstöðu um hagsmuni sína og hagnýta sér þann tíma sem framundan er til að knýja á um breytta stefnu varðandi hag þessa hóps. ítrekar fundurinn m.a. óréttlætið í skatta- og lífeyrismálum eidri borgara. Fundurinn minnir alþjóð á þá ein- földu staðreynd að það voru núver- andi eldri borgarar sem mótuðu þetta þjóðfélag og lögðu sitt af mörkum til grundvallar núverandi hagsæld. Það sæmir því engum að standa sinnulaus og horfa á erfið- ieika margi-a innan þessa hóps. Þjóðfélag, sem talið er með ailra ríkustu þjóðfélögum heims, getur ekki gleymt hundruðum einstak- linga í fátækt sinni. Meiri jöfnuður verður að nást milli þegnanna, svo að enginn þurfi að ganga betlandi til búðar. Fátæktarmerki burt af ís- landi nú í aldarlokin. Fundurinn metur það hvað vel er gert í húsnæði hér í Kópavogi fyrir eldri borgara. Félagið minnir á að starfsemi innan FEBK er ekki síður mikilvæg en annarra hópa á félagslegu sviði og telur því að hliðstæður styrkur tii FEBK sé réttmætur og óskar eftir að við samþykkt næstu fjárhagsáætlunar bæjarfélagsins verði munað eftir að Félag eldri borgara í Kópavogi er vel lifandi og með margvíslega starfsemi. Fjöldi eldri borgara hér telur nú um 10-11% íbúa Kópa- vogs og félagsmenn eru um 800 manns. Öll starfsemi á vegum FEBK hefur verið öllum íbúum Kópavogs opin.“ Rætt um merg- skipti hjá Styrk STYRKUR, samtök krabbameins- sjúklinga og aðstandenda þeirra, verður með opið hús miðvikudaginn 14. apríl kl. 20.30 að Skógarhlíð 8 í Reykjavík. Sigrún Reykdal, sérfræðingur í lyflækningum og blóðsjúkdómum, og Nanna Friðriksdóttir hjúkrunar- fræðingur ræða um stofnfrumu- ígræðslu og mergskipti. í frétt frá Styrk segir að allir velunnarar fé- lagsins séu velkomnir. Harma grein tryggingayfír- læknis EFTIRFARANDI bókun var sam- þykkt samhljóða á aðalfundi SPOEX, Samtaka psoriasis- og ex- emsjúklinga: „Áðalfundur Samtaka psoriasis- og exemsjúklinga haldinn 25. mars 1999 lýsir vonbrigðum sínum með nýsamþykkt lög frá Alþingi um al- mannatryggingar þar sem afnumið er lagaákvæði sem tryggt hefur rétt psoriasissjúklinga til loftslagsmeð- ferðar á norrænni meðferðarstöð á Kanaríeyjum. Aðalfundurinn lýsir furðu sinni á" að ríkisstjórnarflokkarnir skuli hafa keyrt í gegn á lokadögum þingsins mestu skerðingu á heil- brigðisþjónustu sem psoriasissjúk- lingar hafa sætt síðan samtök þeirra voru stofnuð árið 1972 með því að afnema réttindi psoriasis- sjúklinga sem þeir hafa haft svo áratugum skiptir, til að leita sér meðferðar við erfiðum og ólækn- andi sjúkdómi. Jafnframt harmar fundurinn blaðagi-ein tryggingayfirlæknis um málið þar sem alið er á fordómum í, garð psoriasissjúklinga.“ Sveinn Einars- son í Alliance Francaise SVEINN Einarsson flytur í dag fyrirlestur hjá Alliance Francaise um Fedru eftir franska 17. aldar rithöfundinn Jean Racine. Fyrir- lesturinn hefst klukkan 20.30 og verður í salarkynnum Alliance Francaise að Austurstræti 3 og er gengið inn frá Ingólfstorgi. Fyrirlesturinn nefnist „Að setja upp „Fedru“ á íslandi í dag“ og er í tilefni uppsetningar Þjóðleikhússins á Fedru í haust, sem Sveinn mun leikstýra. í fréttatilkynningu frá Alliance Francaise segir: „Sveinn er sér- fræðingur í frönskum leikbók- menntum. Hann hefur leikstýrt og þýtt Moliere, eftirlætisrithöfund sinn. En, segir hann, „að leikstýi-a Fedru á íslandi er fyrh- mig mikill heiður". Það því Ailiance Francaise mikil ánægja að Sveinn haldi fyrir- lestur sinn í húsakynnum okkar, og uppsetning á Ieikriti Racine er menningarviðburður sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara.“ Ferðastyrkjum úthlutað ÚTHLUTAÐ hefur verið styrkjum þess árs úr sjóðnum Þjóðhátíðar- gjöf Norðmanna. Norska Stórþing- ið samþykkti í tilefni af ellefu alda afmæli íslandsbyggðar 1974 að færa íslendingum eina milljón norskra króna að gjöf í ferðasjóð. Samkvæmt skipulagsskrá sjóðsins skal ráðstöfunarfénu, vaxtatekjum af höfuðstólnum sem varðveittur er í Noregi, varið til að styrkja hóp- ferðir Islendinga til Noregs. „Styrkir voru veittir úr sjóðnum 1976 og fór nú fram 22. úthlutun. Ráðstöfunarfé sjóðsins var að þessu sinni 804.636 kr. Styrkumsóknir voru 25 en samþykkt var að styrkja eftirtalda aðila: Kennara leikskólaskorar Kenn- araháskóla íslands, hóp nemenda við Verslunarskóla íslands, Samtök íslenskra barna- og unglingabóka- höfunda, hóp nemenda við Mennta- skólann á Akureyri, Umsjónarfélag einhverfra, hóp starfsmanna Heil- brigðisstofnunar ísafjarðarbæjar, Sólheima í Grímsnesi og Rann- sóknastofnun um helgisiðfræði í Skálholti,“ segir í fréttatilkynningu frá forsætisráðuneytinu. Fagna ákvörðun um viðtöku flóttamanna „FUNDUR miðstjómar Sambands ungra framsóknarmanna haldinn hinn 10. apríl 1999 á Akranesi fagn- ar ákvörðun ríkisstjórnarinnar um viðtöku flóttamanna frá Kosovo," segir í samþykkt miðstjórnar SUS. „Framganga ríkisstjórnarinnar á liðnu kjörtímabili í þessum mála- flokki hefur verið til fyrirmyndar. Um leið er skorað á ríkisstjórnina að flýta sem mest viðtöku þeirra flóttamanna frá Kosovo sem munu bætast við til þess að þjáningum' þeirra linni,“ segir ennfremur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.