Morgunblaðið - 14.04.1999, Page 28

Morgunblaðið - 14.04.1999, Page 28
28 MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 1999 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR BERNSKIR DRAUMAR SUMARDRAUMUR rjúpunnar, eftir Þórð Valdimarsson. «-? & - ■ ■■* ■ ■ ’ ’'í®^Si£ LOKI Laufeyjarson og Sigyn kona hans, umlukin orminum, eftir Guðrúnu Jónasdóttur. PÉTUR frá Bíldsey, sofandi í bátnum, eftir Sigurlaugu Jónasdóttur. MY1\PL1ST Mcnningariniðstöðin Gerðuberg BLÖNDUÐ TÆKNI GUÐRÚN JÓNASDÓTTIR; SIGURÐUR EINARSSON; HJÖRTUR GUÐMUNDSSON; SIGURLAUG JÓNASDÓTTIR; SVAVA SKÚLADÓTTIR og ÞÓRÐUR VALDIMARSSON /KÍKÓ KORRIRÓ Til 9. maí. Opið mánudaga til fímmtu- daga frá kl. 9-21; föstudaga frá kl. 9-19 og frá kl. 12-16 um helgar. ROSKNUM einföi'um fer fjölg- andi í myndlistinni, en slíkii- lista- menn njóta þess öðrum fremur að ekkert og enginn getur truflað þá í sköpunarferlinu. Með því er átt við það að rosknir einfarar þurfa ekki að burðast með listaheiminn og listkerfið á bakinu líkt og ungir kollegar þeirra neyðast til að gera. Sú staðreynd veitir þeim einstakt frelsi tO að gera hvaðeina sem hugurinn girnist, en um leið gætir ákveðins andvaraleysis gagnvart list þeirra eins og væri hún ekki fullgild né fyllilega metin að verð- leikum. Vissulega verður ekki í móti mælt að bernskir listamenn standa utan við þann vettvang þar sem mest og áköfust umræða fer fram um nýjungar í faginu og gildi þeirra fyrir listræna framvindu. En meðan slík umræða er af jafn skornum skammti meðal okkar og raun ber vitni skera einfaramir sig minna úr heildarmengi listamanna en ætla mætti í fyrstu. Flestir íslenskir listamenn eru einfarar og undanfama tvo áratugi hafa bernskir listamenn haft ómæld áhrif út fyrir raðir sínar. Það nægir að skanna grandvöll nýja málverksins á íslandi, á 9. áratugnum, til að sjá hve ríkulega ungir málarar sóttu í uppsprettur næfrar listar. Það má næstum full- yrða að bemskir alþýðumálarar hafl verið íslenskum nýmálurum áþekkur brannur og Afríkulistin kúbístunum í upphafi aldarinnar. Ástæðan virðist augljós. í listheimi þar sem meginmálið felst í því að sanna einlægni sína - ólíkt því sem gerðist á öldunum áður, þegar fæmi listamannsins var aðalatriðið - geta bemskir listamenn ekki verið annað en fyrirmynd því ein- lægni þeirra verður vart dregin í efa. Það er vert að hafa þetta í huga þegar litast er um á sýningunni „Hjartans list“, samsýningu sex einfara í Gerðubergi. Valið á þátt- takendum er býsna gott því sex- menningamir bera vitni þeirri breidd sem einkennir íslenska næf- urlist. Henni má gróflega skipta í femt. Bernskir listamenn skiptast í tvennt varðandi yrkisefni. Annars vegar era allraunsæjar lýsingar á einhverju eftirminnilegu úr at- vinnulífinu forðum líkt og ógleym- anlegur Ullarþvottur Sigurlaugar Jónasdóttur frá 1970, eða frábær Kofnareyting hennar frá 1989. Sig- urlaug er meistaralegur mynd- sagnamálari, nákvæm, ljóðræn og gamansöm. Hins vegar era hinar fullkomnu fantasíur eins og verk Þórðar Valdimarssonar, sem betur er þekktur af listamannsheiti sínu, Kíkó Korriró. Gjörólíkt Sigur- laugu og nákvæmum frásagnarstfl hennar hefur Þórður komið sér upp leikandi stílbrigðum og graf- ískri snerpu sem nýtur sín vel í fjölmörgum risskenndum og eró- tískum myndum hans af svífandi gyðjum og goðmögnum. Þó nýtist þessi tækni honum hvergi betur en í Sumardraumi rjúpunnar, hríf- andi óði til náttúrannar og vors- ins. Hin andstæðan er fólgin í efnis- notkun. Annars vegar era lista- menn á borð við þá sem sem áður var getið, eða Sigurð Einarsson, frábæran málara sem nær ein- stakri dýpt úr æskulandslagi sínu og þeim kynjamyndum sem af því era sprottnar og fylgt hafa málar- anum alla ævina. Hins vegar eru bemskir listamenn sem fást við annars konar efnivið og brúa bilið milli listar og föndurs. Vefarinn Guðrún Jónasdóttir er í þeim hópi, með myndir sprottnar af þjóðsög- um og goðsögnum. Meðferð henn- ar á myndefni og efniviði er óvið- jafnanleg. Svava Skúladóttir og Hjörtur Guðmundsson ganga enn lengra í viðleitni sinni til að mægja saman föndur og frásagnarlist. Smáverk þeirra í glerskáp á sýningunni era sérkennilegar perlur sem eiga sér óvenjuleg tengsl við aðra norræna þjóðlist, svo sem útskomar smá- styttur Inúíta og föndurlist Sama. Hispursleysi beggja er einstakt og leiftrar af sjálfsprottinni sköpun- argleði. Þótt mikið sé búið að skrafa og skrifa um íslenska næfurlist frá þvi ísleifur heitinn Konráðsson reið á vaðið með sýningu á undur- fögram málverkum sínum árið 1962 er eftir að skoða betur áhrifin sem bernskir einfarar hafa haft á mótun íslenskrar listar á síðustu þremur áratugum. Mér er ekki ör- grannt um að þau séu snöggtum meiri en hingað til hefur verið ætl- að. Eitt er víst; bemskir einfarar hafa verið öðram kollegum sínum ómetanlegir. Hvort þeir hafa feng- ið áhrifin endurgoldin í sömu mynt skal hins vegar ósagt látið. Halldór Björn Runólfsson Húsmóðurstörf og heiðursnafnbætur KVIKMYJMPIR ltíöborgin ONE TRUE THING ★★★ Leikstjóri Carl Franklin. Handrits- höfundar Karen Croner. Kvikmynda- tökustjóri Declan Quinn. Tónskáld Cliff Eidelman. Aðalleikendur Meryl Streep, René Zellweger, WiIIiam Hurt, Tom Everett Scott, Lauren Graham, Nicky Katt, James Eckhouse. 127 mín. Bandarísk. Universal 1998. ÍMYNDIN sem við búum til af foreldram okkar í bernsku er um- fjöllunarefnið í The One True Thing. Tregafullri endurskoðun Ellenar Golden (Reneé Zellweger), ungrar, metnaðarfullr- ar konu sem snýr áftur til for- eldrahúsa þegar erfiðleikar steðja að í fjölskyldunni. Hún er komin á skrið, búin að skapa sér nafn í blaðaheimi New York, þegar faðir hennar George (William Hurt), krefst þess að hún komi heim og annist móður sína (Meryl Streep), sem greinst hefur með alvarlegan sjúkdóm. Hún hefur jafnan dáð föður sinn, mikilsmetinn prófessor JjKmrdhásMlann_Qg_ihrifar^ mann í innsta hring bókmennta- heimsins. Kate móðir hennar er í augum Ellenar „bara húsmóðir“, sem leggur allan sinn metnað í að halda húsinu hreinu og heimilis- legu, fjölskyldunni saman og taka virkan þátt í starfsemi broddborg- arafrúnna í háskólabænum. Sem einkum felst í matargerð og jóla- trésskreytingum. I stuttu máli er hún þannig sú ímynd sem Ellen hefur fastmótað í huga sínum. Hún hrynur á þeim mánuðum sem hún annast fár- sjúka móðir sína. Smám saman verður henni ljóst að það er móðir- in sem hefur verið hjarta og drif- kraftur heimilisins, sem hún hefur látið ganga fyrir sínum kröfum alla tíð. Karlrembuveldið fær sann- gjarna og umhugsunarverða gagn- rýni. í ágætri jnynd.iiyggðri Asam.-. nefndri Pulitzer verðlaunabók eftir Önnu Quindlen. Það er ekki allt sem sýnist þegar burðarásar í lífi okkar flestra, foreldrarnir, era teknir í nærskoðun. Fyrst og fremst er staða móðurinnar oft hastarlega vanmetin, okkur hættir við að taka hlutverk hennar sem sjálfsagðan hlut. Hún á að vera á sínum stað fyrir okkur hin, eyða kröftum sínum í barnauppeldi, heimilisstörf og almennt ljúf. Heimilisfaðirinn aftur á móti ósnertanlega hetjan á hvíta gæð- ingnum sem leggur í víking að morgni hvers vinnudags. One True Thing er fjarri því að vera fullkomin, en hún tekur skyn- samlega á þessum ójöfnuði og gerir það eins trúverðuglega og Hollywood er fær um. Maður er sáttur að leikslokum, þó ekki eins xljúpLsnortiim .og.,mað.ur. átthmn. á*. eða vildi. Styrkur myndarinnar er einkum fólginn í afburðaleik aðal- leikaranna þriggja, þeir fá líka góð hlutverk og skýrar persónur að fást við. William Hurt er að venju firna sterkur sem sjálfselskur, hrokafullur og eigingjam mennta- maður og fyrirvinna sem krefst þess að allir og allt snúist um hans mikilvægu persónu. Sem er ekki svo ýkja merkileg þegar Ellen fær tækifæri til að skoða hana í nýju ljósi sem þroskuð kona. Hinsvegar verður henni ljóst að það er hin vanmetna móðir hennar sem haldið hefur utanum hlutina og henni ber að þakka það sem vel hefur verið gert og uppúr stendur. Streep er aðdáunarverð, hún er dásamleg leikkona sem jafnan gerir hlutina á eðlilegan og hreinskilinn hátt, gjör- samlega laus við þá megnu yfir- horðsmennsku aem emkennk. margar kvenstjörnur samtíðarinn- ar. Reneé Zellweger sýnir það hér að heillandi leikur hennar í Jerry Maguire var engin tilviljun. Þar hélt hún sínu á móti stjömuhlut- verki Tom Craise, hér gefur hún sínum valinkunnu mótleikuram ekkert eftir. Hún er ein af fáum hæffleikakonum Hollywood úr röð- um ungra leikkvenna. One True Thing er þörf og góð lexía, sem gerir margt vel, sneiðir t.d. gjörsamlega framhjá allri væmni þótt efnið bjóði uppá mikið tilfinningaflóð. Vissulega er hún klútamynd, en á mannlegum og hreinskilnum forsendum. (A.m k. miðað við velflestar, hliðstæðar bíómyndir.) Þó spyr maður sig hvort slíkar fórnir sem Kate þarf að færa séu þess virði. George er í rauninni illþolandi og óalandi spemleggur og Kate er föst í gamla farinu og gerir ekkert í mál- inu. Við skulum vona að kynslóð Ellenar geri eitthvað í málinu. Myndin er sannarlega óvænt frá hendi Carls Franklin því besta verk hans til þessa er tvímælalaust sá gallharði krimmi, One False Move, sem á ekkert skylt við hina hjartnæmu One True Thing. Sæbjörn Valdimarsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.