Morgunblaðið - 25.04.1999, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 25.04.1999, Qupperneq 10
10 SUNNUDAGUR 25. APRÍL 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRAMTIÐ KISILIÐJUNNAR I MYVATNI ER I BRENNIDEPLI í KOSNINGABARÁTTUNNI í NORÐURLANDI EYSTRA Á LÍFRÍKIÐ EÐA ATVINNULÍFIÐ AÐ NJOTA VAFANS? Málefni Kísiliójunnar við Mývatn eru komin í brennidepil aö nýju eftir aö Halldór Blöndal, sam- gönguráöherra og þing- maður Noröurlandskjör- dæmis eystra, lét svo um mælt í umræðuþætti frambjóöenda í kjördæm- inu aö hann teldi sjálfgef- iö aö námavinnsla úr Syöriflóa í Mývatni yröi hafin þegar í staö. Pétur Gunnarsson kynnti sér sögu málsins og ræddi viö fýlgjendur og and- stæöinga námavinnslu. KÍSILIÐJAN í Mývatnssveit starfar nú samkvæmt námaleyfi, sem gefið var út af iðnaðarráðherra hinn 7. apríl 1993 en um leið og það var gef- ið út var greint frá samkomulagi iðn- aðarráðuneytis, umhverfisráðuneyt- is og Náttúruvemdarráðs (nú Nátt- úruvemdar ríkisins) þar sem fram kom að skilningur allra sem að því stóðu væri sá að með útgáfu leyfisins væri aðeins verið að gefa svigrúm til að hætta kísilgúrtöku úr Mývatni. Fram kom að rannsóknir hefðu sýnt að botngröftur hefði óæskileg áhrif á undirstöður vistkerfisins í Mývatni og ekki væri rétt að taka þá áhættu fyrir lífríki Mývatns, sem fælist f námavinnslu í Syðriflóa. Hafí orðið að samkomulagi að ganga lengra en ráðlegt gat talist út frá vemdarsjónarmiði í vinnslu í Ytriflóa til að skapa svigrúm en námavinnsla í Syðriflóa mundi jafn- gilda námavinnslu í nýju stöðuvatni. Að samkomulaginu stóðu Jón Sig- urðsson iðnaðarráðherra og Eiður Guðnason umhverfisráðherra og skyldi hið nýja námaleyfi gilda ekki iengur en til ársins 2010. Jafnframt væri Ijóst að líkur væru á að námur tæmdust fyrr, jafnvel innan 2-3 ára. Settur var á fót sjóður til að stuðla að aukinni fjölbreytni atvinnulífs í Mývatnssveit og fram hefur komið að í þann sjóð hafi síðan runnið 5-600 þúsund krónur á ári. Þrátt fyrir þetta hefur Kísiliðjan nú sótt um nýtt námaleyfi, stækkun námasvæðisins í Ytriflóa Mývatns og Morgunblaðið/Snorri Snorrason MÝVETNSKAR endur í vetrarstillum á vatninu þar sem eru varpstöðvar og uppeldisstöðvar sjaldséðra andategunda. til vinnslu á nýju svæði í svokölluð- um Bolum í Syðriflóa Mývatns. Sveitarstjóm Skútustaðahrepps hef- ur m.a. þrýst á um þetta. Að fmm- kvæði Kísiliðjunnar vinnur verk- fræðistofan Hönnun í Reykjavík nú að mati á umhverfisáhrifum vegna slíkrar vinnslu. Náttúruvernd leggst eindregið gegn stækkun námasvæðis 16. janúar sl. greindi Morgun- blaðið frá því að Náttúruvemd rík- isins hefði sent verkfræðistofunni bréf þar sem lagst er eindregið gegn stækkun námasvæðisins. Um skeið hefur verið rætt um mögu- leika á nýrri vinnsluaðferð við kísil- gúmámið, svonefndan undanskurð, þar sem skorið væri undan botni vatnsins, en í yfirlýsingu Náttúru- vemdar segir að jafnvel slík aðferð verði ekki samþykkt nema fyrir liggi ótvíræðar sannanir með rann- Nýtt umhverfismat vegna stækkunar væntanlegt frá Kísiliðjunni á næstunni sóknum um að aðferðin raski ekki undirstöðu lífríkis við Mývatn. í umsögn sinni minnir Náttúruvernd ríkisins á gildandi lög um vemdun Laxár og Mývatns, þar sem segir að á landsvæði, þvi sem lögin ná yfir, sé hvers konar mannvirkjagerð og jarðrask óheimilt nema með leyfi Náttúravemdar ríkisins. Mest rannsakaða vatn landsins „Mývatn er líklega það vatn á landinu sem hefur verið rannsakað m.t.t. lífríkis meira en nokkurt annað vatn hér á landi. Þær rannsóknar- niðurstöður sem liggja fyrir um hvers vegna Mývatn er svo lífauð- ugt, sem raun ber vitni, benda ein- dregið til þess að það byggist á hár- fínu jafnvægi milli dýptar vatnsins, efnainnihalds þess og annarra eðlis- rænna þátta svo sem hitastigs. Nátt- úravernd ríkisins telur allt benda til þess að sú áhætta sem tekin væri með þeiirí nýju tækni sem hefur verið kynnt stjóm [Rannsóknastöðv- arinnar við Mývatn] sé ekki viðun- andi þar sem miklar líkur séu á að lífríki vatnsins raskist veralega. Náttúravemd hafnar því jafnramt að náttúralegar sveiflur í lífríki vatnsins geti verið afsökun af neinu tagi til að taka áhættu á vinnslu kísil- gúrs í Syðriflóa.“ Deilur frá upphafi Deilur hafa fylgt starfsemi Kísiliðj unnar allt frá því hún hóf starfsemi árið 1966 og enn era skiptar skoðan- ir um hana, innansveitar sem utan. Við verksmiðjuna starfa um 40-50 manns, eða um 10% íbúa sveitarinn- ar. Tengd störf era fleiri. Kísiliðjan veltir um 700 m.kr. og er uppspretta um helmings tekna sveitarsjóðs. Upphaflegt námaleyfi var gefið út til 20 ára og Sverrir Hermannsson iðnaðarráðherra framlengdi það árið 1985 til ársins 2001 með því skilyrði að ef breytingar yrðu til hins verra vegna efnistökunnar á dýralífi eða gróðri mætti endurskoða málið. Þessi framlenging var í blóra við vilja Náttúruverndarráðs, sem taldi að með þessu hefði Sverrir sniðgeng-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.