Morgunblaðið - 25.04.1999, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 25. APRÍL 1999 25
____LISTIR_
Söngfugl
að vestan
TONLIST
Gcislaplötur
JUDITH GANS
27 íslensk einsðngslög eftir Sigvalda
Kaldalóns, Björgvin Guðmundsson,
Sigfús Einarsson, Sigurð Þórðarson,
Árna Björnsson, Jónas Ingimundar-
son, Pál ísólfsson, Markús Kristjáns-
son, Fjölni Stefánsson, Þórarin Guð-
mundsson, Jón Laxdal, Jón Þórarins-
son, Eyþór Stefánsson, Jón Asgeirs-
son og Karl O. Runólfsson. Einsöng-
ur: Judith Gans (söpran). Kór: Karla-
kórinn Fóstbræður. Kórsljóri: Árni
Harðarson. Píanóleikur: Jónas Ingi-
mundarsson. Utgáfa: Judith Gans
1999.
BANDARÍSKA sópransöngkon-
an Judith Gans nefnir disk sinn -
Draumalandið - Romantic Art
Songs of Iceland“. Tilvilj-
unin ein réð því að hún
komst í samband við ís-
lenska tónlist í gegnum
hinn víðfræga veraldarvef
og varð það til þess að hún
fékk brennandi áhuga á því
að kynnast landinu og tón-
list þjóðarinnar. Fyrir
henni varð Island á endan-
um fyrirheitna landið -
nokkurs konar drauma-
land. Og hún hefur sannarlega átt
erindi sem erfíði.
Judith Gans er söngvari að at-
vinnu og kemur reglulega fram á
einsöngstónleikum og með hljóm-
sveitum. Hún hefur haldið fyrir-
lestra og meistaranámskeið í heima-
landi sínu og komið fram í útvarpi
og sjónvarpi. Hún hefur á einsöngs-
tónleikum sínum vestanhafs flutt ís-
lensk sönglög og í fyrrasumar flutti
hún hina íslensku söngdagskrá sína
á ráðstefnu National Association of
Teachers of Singing í Toronto í
Kanada.
Söngstíll Judith Gans er látlaus
og túlkunin innileg - aldrei örlar á
belgingi. Lögin fá að flæða áfram án
þess að listamaðurinn sýni hina
minnstu tilburði til að trana sér
fram og skyggja á það eina sem
skiptir máli - tónlistina. Rödd henn-
ar hefur mikla fyllingu og nokkuð
mikið víbrató sem sjaldnast er til
lýta nema helst í Bí, bí og blaka sem
að mínu mati er lag til þess að raula
en ekki syngja á þennan hátt.
Hraðaval laganna er yfirleitt í hæg-
ari kantinum og gefur það diskinum
afslappað yfirbrágð sem er þægilegt
áheyi'nar en sjaldnast dauflegt.
Eina undantekningin er Sólskríkja
Jóns Laxdals sem silast áfram og
kemst aldrei á loft. En flest laganna
eru reglulega vel sungin: sérstak-
lega eru undirrituðum minnisstæð
Pei, þei og ró, ró Björgvins Guð-
mundssonar sem er hljóðritað á tón-
leikum með Karlakórnum Fóst-
bræðrum. Hann er annars hvimleið-
ur þessi ósiður tónleikagesta á söng-
tónleikum að klappa þegar söngvar-
inn hefur sungið síðasta tóninn og
áður en meðleikarinn lýkur síðustu
töktum lagsins. Þetta er sérstaklega
áberandi í Þei, þei og ró, ró þar sem
sérlega fallegt píanóspil Jónasar
Ingimundarsonar drukknar í látun-
um. Þetta er óþolandi virðingarleysi
við alla hlutaðeigandi. Píanóleikar-
inn, Jónas Ingimundarson, á tvö lög
á diskinum, Vor og Vor í holtinu.
Þetta eru lítil og látlaus lög sem
venjast mjög vel, það fyrra er svolít-
ið „franskt" - minnir á Erik Satie -
og það seinna með óvenju skemmti-
lega píanórödd (sem varla kemur á
óvart). Islenskt vögguljóð á hörpu
eftir Jón Þórarinsson er
hreinasta perla og er hér
sungið af fágætum innileik.
Mamma ætlar að sofna eft-
ir Sigvalda Kaldalóns er
einn af hápunktum plöt-
unnar og það ekki síst fyrir
undurblíðan píanóleik
Jónasar Ingimundarsonar.
Síðast en ekki síst ber að
nefna sannfærandi túlkun
söngkonunnar á hinu
magnaða lagi Árna Björnssonar Sól-
roðin ský sem er með fegurstu
sönglögum Islendinga.
Textaframburður Judith Gans er
hvorki betri né verri en gengur og
gerist meðal söngkvenna. Reyndar
hefur hin bandaríska söngkona
greinilega náð nokkuð góðum tökum
á íslenskum framburði sem er virð-
ingarvert, en textinn er þó stundum
ógreinilegur. Slíkt er maður satt að
segja farinn að líta á sem lögmál
þegar um söng er að ræða (sérstak-
lega hjá konum í stéttinni).
Það verður varla sagt að þáttur
Fóstbræðra sé afgerandi í þeim
þremur lögum sem þeir taka þátt í
en söngur þeirra er þó smekklegur
og fágaður og alls ekki til lýta. Það
er að bera í bakkafullan lækinn að
lofa píanóleik Jónasar Ingimundar-
sonar en það skal þó gert enn einu
sinni í þessari grein. Hann hefur náð
fullkomnu valdi á þeirri vandasömu
og vanmetnu listgrein sem meðleik-
ur er.
Þessi diskur er mikilvæg viðbót
við hljóðritanir á íslenskum sönglög-
um. Það er sérstaklega fróðlegt að
heyra hvernig erlendur tónlistar-
maður tekst á við þá tónlist sem
liggur næst hjarta okkar - íslenska
sönglagið. Glöggt er gests augað -
eða eyrað.
Valdemar Pálsson
Judith Gans
Nýjar bækur
Fjórtánda ljóðabók
Þorsteins frá Hamri
• MEÐAN þú vaktír
er fjórtánda Ijóðabók
Þorsteins frá Hamri.
Fyrir jólin kom út
heildarritsafn skálds-
ins sem gefið var út í
tilefni sextugsafmælis
þess á liðnu ári, en í
því er að finna allar
eldri ljóðabækur Þor-
steins, skáldsögur.
hans þrjár o.fl.
I kynningu segir:
„Nú á vordögum send-
ir Þorsteinn frá Hamri
frá sér fjórtándu ljóða-
bók sína, gjöfull á það
andríki, kraft og birtu
sem einkenna allan
hans skáldskap. Minningar og
reynsla eru sífelld uppspretta
nýrra spurninga um
þann veg sem við
göngum, og með
djúpri skynjun, skap-
andi lífssýn og á lit-
ríku myndmáli, sem
sífellt kemur á óvart,
miðlar skáldið auðlegð
sinni. I bókinni eru yf-
ir fjörutíu Ijóð sem öll
eru ort á nýliðnum ár-
um, aðeins þrjú þeirra
hafa áður birst á
prenti.“
Útgefandi er Iðunn.
Kápumynd er eftir
Magnús Kjartansson.
Bókin er 54 bls. og
prentuð í
Prísma/Prentbæ ehf.
Verð: 2.980 kr.
Þorsteinn
frá Hamri
„Frumsýningargestirnir tóku bgkstaflega
BAKFÖLL AF HLATRI OG ÞVÍ ÓHÆTT AÐ LDFA
VÆNTANLEGUM SÝNINGARGESTUM GDÐRI
KVÖLDSTUND"
H.F. DV
SPl/N
Næstu sýningar:
Sun. 2 5/4 - ÖRFÁ sæti laus
FIM. 29/4 - Aukasýning: Örfá sæti LAUS
LAU. 1/5 UPPSE l_T
FÖS. 7/5 Aukasýning: Örfá sæti LAUS
Lau. B/5 UPPSE LT
FIM. 1 3/5 - Aukasýning: UPPSELT
FÖS. 1 4/5 - UPPSE l_T _ . I
eitt N