Morgunblaðið - 25.04.1999, Blaðsíða 40
40 SUNNUDAGUR 25. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Ráðstefna um um-
hverfísábyrgð
Abyrgð fyrir-
tækja verði
skilgreind
í lögum
PÉTUR Már Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Vátryggingafélags ís-
lands, segir að skilgreina þurfi
ábyrgð fyrirtækja vegna um-
hverfistjóns og að lagaumhverfi
þeirra þurfi að vera þannig að
ábyrgðin sé vátryggingahæf, ella
geti hún orðið atvinnulífinu ofviða.
VI gengst fyrir ráðstefnu næst-
komandi þriðjudag um umhverfisá-
byrgð fyrirtækja þar sem meðal
annarra munu tala dr. Jiirg Spiihler,
svissneskur sérfræðingur í umhverf-
ismálum og umhverfisábyrgð, og
Guðmundur Bjarnason umhverfis-
ráðherra.
I fréttatilkynningu frá VIS um ráð-
stefnuna segir meðal annars að aukn-
ar kröfur til umhverfisvemdar á
næstu árum muni hafa veruleg áhrif á
rekstrarumhverfi íyrirtækja. „Það
eru því hagsmunir íslenskra íyrir-
tækja að taka fullan þátt í mótun um-
hverfisstefnu til framtíðar. Sú ábyrgð
sem lögð verður á atvinnulífið þarf að
vera vel skilgreind, svo áhættan sé
öllum ljós. Fyrirtæki, stór og smá,
þurfa að geta varast þessa hættu með
ýmsum forvamaraðgerðum, en þeim
er ekki síður nauðsynlegt að geta
keypt vátryggingar gegn þeirri
ábyrgð sem þau bera á umhverfinu.
Lagaumhverfinu verður því að haga
þannig að þessi ábyrgð verði vátrygg-
ingahæf, elia er hætt við að hún geti
orðið atvinnulífinu ofviða," segir í
fréttatilkynningunni.
Draumaíbúð ungfrú Is-
lands verður til sýnis
á Lífsstíl ‘99
DRAUMAIBÚÐ ungfrú íslands
verður sýnd á stórsýningunni
Lífsstíll ‘99 sem fram fer í Laugar-
dalshöllinni dagana 28.-30. maí nk.
Hin nýkrýnda fegurðardrottn-
ing mun velja innanstokksmuni,
húsgögn, rafmagns- og hljóm-
burðartæki auk alls tilheyrandi í
draumastofuna, draumasvefnher-
bergið og draumabaðherbergið.
Yfirskrift Lífsstfls ‘99 er
„glæsileiki og munaður" og þar
verður að sjá flest það sem hug-
ann gimist, eins og nýtísku hús-
gögn, innréttingar, gjafavömr,
fatnað, útivistarvömr, glæsibif-
reiðar og margt fleira.
Elite-keppnin kynnir íyrirsæt-
ur framtíðarinnar.
Tískusýningar verða haldnar
alla sýningardagana. Fínn miðill
mun starfrækja þrjár útvarps-
stöðvar á sýningarsvæðinu, sem
höfða munu til mismunandi ald-
urshópa en þær em FM 95,7, Létt
96,7 og Gull 90,9.
Fermingar
Fermingarbörn
Ferming í Selfosskirkju 25. apríl
kl. 10.30. Prestur sr. Gunnar
Björnson. Fermd verða:
Ari Már Gunnarson,
Hólatjöm 4.
Axel Þorsteinsson,
Urriðafossi, Villingaholtshreppi.
Elín Magnúsdóttir,
Skólavöllum 12.
Helga Úlfsdóttir,
Fagurgerði 2.
Jóhanna Hlín Kolbeinsdóttir,
Fossheiði 5.
Sigurður Hans Arason,
Lækjarmóti 2.
Sverrir Daði Þórarinsson,
Skólavöllum 14.
Ferming í Selfosskirkju 25. apríl
kl. 14. Prestur sr. Gunnar Bjöms-
son. Fermd verða:
Alexander Þórsson,
Víðivöllum 15.
Bryndís Jóna Sveinbjamardóttir,
Seftjöm 14.
Friðgeir Pétursson, -
Hrauntjöm 5.
Guðmundur Steinþórsson,
Þrastarima 18.
Hafþór Gylfi Gíslason,
Grashaga 2.
Hafþór Magnússon,
Lambhaga 30.
Harpa Steinarsdóttir,
Suðurengi 27.
Heiðar Þór Karlsson,
Grandartjörn 9.
Inga Berglind Einarsdóttir,
Vallholti 6.
Inga Sjöfn Sverrisdóttir,
Alftarima 1.
Jón Hilmar Magnússon,
Fossheiði 62.
Oddný Guðríður Pálmadóttir,
Lóurima 25.
Pálmi Hólm Halldórsson,
Þrastarima 23.
Steinunn Fjóla Birgisdóttir,
Erlurima 6.
Sævar Þór Halldórsson,
Sílatjörn 15.
Tómas Héðinn Gunnarsson,
Laufhaga 14.
Unndís Osk Gunnarsdóttir,
Lóurima 12.
--------------------
Foreldrar verji lokadegi
samræmdu prófanna
með börnum sínum
STARFSMENN ÍTR, Fræðslu-
miðstöðvar Reykjavíkur, Félags-
þjónustunnar í Reykjavík, lög-
reglunnar og SAMFOKS hvetja
foreldra bama í 10. bekk til að
verja þriðjudeginum 27. apríl og
kvöldi þess dags með bömum
sínum eða hvetja bömin til að
fara í skipulagðar ferðir sem
staðið verður íyi-ir á lokadegi
samræmdu prófanna, næstkom-
andi þriðjudag.
I fréttatilkynningu frá ofan-
greindum stofnunum segir að
undanfarin ár hafí, með sam-
stilltu átaki skóla, félagsmið-
stöðva, lögreglu foreldra og
fleiri, tekist að draga úr hópa-
myndun og drykkju meðal bama
við lok samræmdu prófanna.
Ennfremur er minnt á að
gefnu tilefni, að ólöglegt er að
kaupa, veita og afhenda ein-
staldingi undir 20 ára aldri
áfengi. Einnig em foreldrar
hvattir til að samþykkja ekki
eftirlitslaus heimasamkvæmi og
minnt er á að börn undir 16 ára
aldri megi ekki vera úti eftir
klukkan 22.
Garðastræti - Reykjavík
Einstakt tækifæri
Nýkomið í einkasölu þetta glæsilega hús í hjarta Reykjavíkur.
Skiptist í kjallara, 2 hæðir og turnherbergi, alls 686 fm. Nýtt sem
skrifstofur í dag en fleiri nýtingarmöguieikar fyrir hendi. Húsið er
í mjög góðu ástandi, allt tekið í gegn að utan árið 1992.
Glæsilegur garður. Laust til afhendingar í byrjun maí 1999.
Tilboða er óskað í eignina.
Nánari upplýsingar hjá Ás fasteignasölu,
Fjarðargötu 17, Hafnarfirði,
sími 520 2600.
Islenskir aðalverktakar
kaupa vinnulyftu
ISLENSKIR aðalverktakar hafa
keypt tvær vinnulyftur af Vinnu-
lyftum ehf. Þær eru af stærri
gerðinni því hvor um sig vegur
um 11,5 tonn og Iyftihæð er allt
UNGT fólk í Samfylkingunni
minnti m.a. á stefnu Samfylking-
arinnar í sjávarútvegsmálum í Kr-
inglunni á föstudag og dreifðu
m.a. barmmerkjum og kortum
með slagorðinu Hveijir eiga kvót-
ann? Á bakhlið kortanna er því
m.a. haldið fram að sautján út-
gerðarfyrirtæki eigi 42% kvótans
að 22 metrar. Lyfturnar fóru
beint í vinnu við nýbyggingu
orkuversins í Svartsengi og eru
þar nú 3 lyftur frá Vinnulyftum
ehf.
en framan á þeim er mynd af Da-
víð Oddssyni, Kristjáni Ragnars-
syni, Halldóri Ásgn'mssyni og
Þorsteini Pálssyni.
Á myndinni nælir Vilhjálmur H.
Vilhjálmsson barmmerki í jakka
Guðrúnar Höllu Sveinsdóttur en
við hlið þeirra stendur Benedikt
Rafnsson og dreiilr kortunum.
Opinber fyr-
irlestur í
guðfræði-
deild HÍ
DR. Abbas Amanat flytur opinber-
an fyrirlestur miðvikudaginn 28.
apríl á vegum guðfræðideildar Há-
skóla Islands sem hann nefnir
„The Resurgence of Apocalyptic in
Modem Islam“.
Abbas Amanat er sérfræðingur í
nútímasögu Miðausturlanda með
áherslu á menningar- og trúar-
bragðasögu Iran. Hann hefur
skrifað nokkrar bækur á því sviði
og verið ritstjóri tímaritsins Irani-
an Studies auk þess sem hann stýr-
ir rannsóknarverkefnum á þessu
sviði. Amant lauk doktorsprófí í
sagnfræði frá Oxfordháskóla 1981
og er nú starfandi sem prófessor í
sagnfræði við háskólann í Yale í
Bandaríkjunum.
Fyrirlesturinn verður haldinn í
Odda, stofu 201, og hefst kl. 15.15.
------♦-♦-♦----
LEIÐRÉTT
Stórnotendaáskrift
I töflu um verðskrá Landsíma Is-
lands hf. á bls. 6 í gær, skaut prent-
villupúkinn upp kollinum á óþægi-
legan hátt. I verðskrá stóð „Stjóm-
endaáskrift“, en átti að sjálfsögðu
að standa Stórnotendaáskrift.
mbl.is
Barðastaðir
Stórglæsilegar 3ja og 4ra herb. rúm-
góðar lúxusíbúðir með frábæru útsýni
yfir Esjuna og upp i Mosfellsbæ. Frá-
bært útivistarsvæði í næsta nágrenni.
íbúðir allar með amerískum sérinnflutt-
um innréttingum. ibúðum verður skilað
fullbúnum með gólfefnum. Mjög góðir
bllskúrar einnig í boði.
Hafið samband og fáið frekari upplýs-
ingar.
Heimasíða byggingaraðila:
http://www.eignaval.is/addord
Velkomin|n) á heimasiðu Eignavals www.eignavai.is
Ungi fólk í Samfylkingunni
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Halda kvótadag í Kringlunni