Morgunblaðið - 01.05.1999, Side 12
12 LAUGARDAGUR 1. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Fyrsta skrefíð í aukimii samvinnu Landspítala og Sjúkrahúss Reykjavíkur stigið í sumar
Deildir sameinað-
ar eða aðskildar
frá öðrum rekstri
✓
Ymsar breytingar eru framundan í rekstri Landspítala og
Sjúkrahúss Reykjavíkur. Magnús Pétursson forstjóri hefur unnið
að því að undirbúa þær og fékk Jóhannes Tómasson að heyra
hverjar þær væru helstar. Fleiri breytingar eru á döfinni síðar.
Morgunblaðið/Ásdís
MEÐAL breytinganna er að skilja rekstur rannsóknarstofanna frá sjúki'ahúsunum og gera þær að sjálf-
stæðum einingum. Miðstöð æðaskurðlækninga verður í Fossvogi og ráðgert er að frá og með næsta
hausti verði hægt að taka upp ákveðnar beinmergsaðgerðir sem fara myndu fram á Landspitalanum.
AKVEÐIÐ hefur verið að
hrinda í framkvæmd
ýmsum breytingum á
starfi Landspítalans og
Sjúkrahúss Reykjavíkur í fram-
haldi af samkomulagi ríkis og
borgar um að ríkið beri ábyrgð á
rekstri SHR frá síðustu áramótum.
Rætt er um að sameina starf nokk-
urra sérhæfðra deilda á öðrum
spítalanum, taka upp beinmergsað-
gerðir, aðskilja rekstur rannsókna-
stofa og Blóðbankans frá sjúkra-
húsarekstrinum, koma á lyfjanefnd
sem mai'ki sameiginlega stefnu
spítalanna í lyfjamálum og unnið er
að endurskoðun á innra starfi
Landspítalans, m.a. stjómunar-
sviði.
Magnús Pétursson, forstjóri
sjúkrahúsanna í Reykjavík, segir
að breytingarnar komi smám sam-
an til framkvæmda á næstu vikum
og mánuðum, taka eigi nokkur
skref í þessum efnum nú. „Ég hef
varið miklum tíma í að kynna mér
starfsemi spítalanna á þeim fjórum
mánuðum sem liðnir eru frá því ég
tók við starfinu enda er hún marg-
brotin og starfsmenn nærri fimm
þúsund,“ segir Magnús í samtali
við Morgunblaðið.
Hann hefur heimsótt starfs-
stöðvar sjúkrahúsanna skipulega,
rætt við sviðsstjóra hjúkrunar og
lækninga, yfirlækna og aðra deild-
arstjóra og segist enn eiga eftir all-
marga staði.
Fæ ábendingar
og hugmyndir
„Með þessu móti kynnist ég best
starfseminni, heyii hvaða vanda-
mál eru uppi og fæ ábendingar og
hugmyndir um hvað gera mætti til
að breyta og bæta reksturinn. AJlt
þetta þarf síðan að vega og meta,
ræða innan samvinnunefndar spít-
alanna, sem skipuð var í kjölfar
breyttrai' ábyi'gðar á rekstri SHR,
koma með tillögur og ákveða úr-
bætur.“
I samvinnunefnd spítalanna sitja
auk Magnúsar, sem er formaður
hennar, formenn stjóma spítal-
anna, Kristín Einarsdóttir og Guð-
mundur G. Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóramir Jóhannes
Pálmason og Ingólfm- Þórisson,
lækningaforstjói'amir Jóhannes
Gunnarsson og Þorvaldur Veigar
Guðmundsson og hjúkranarfor-
stjóramir, Sigríður Snæbjöms-
dóttir og Anna Stefánsdóttir. Sam-
vinnunefndin hefur haft vikulega
fundi og þótt hún hafi ekki form-
legt ákvörðunarvald eru þar saman
komnir lykilmenn á báð-
um stöðum og má telja
líklegt að það sem
nefndin verður sammála
um geti náð fram að
ganga hjá stjómamefnd
ríkisspítala og starfsstjóm Sjúkra-
húss Reykjavíkur. í starfi sínu hef-
ur samvinnunefndin meðal annars
haft til hliðsjónai' skýrslu faghóps
heilbrigðisráðuneytisins um mál-
efni sjúkrahúsa og styðst við sum-
ar hugmyndir hennar um breyting-
amar enda fól heilbrigðisráðherra
nefndinni að vinna úr þeim málum
sem þar koma fram.
Þrjár meginbreytingar hafa nú
verið ákveðnar: Æðaskurðlækning-
ar verða með höfuðaðsetur í Foss-
vogi, beinmergsígræðsla hefst i
haust á Landspítalanum og öll end-
urhæfing Landspítalans verður
flutt í húsnæði spítalans í Kópavogi
og yfirstjórn endurhæfingar spítal-
anna sameinuð. Þá verða rann-
sóknastofur Landspítalans og
Blóðbankinn gerðar að sjálfstæð-
um rekstrareiningum innan vé-
banda spítalans. Þá er í ráði að
skilja rannsóknastofu og röntgen-
deild SHR frá öðrum rekstri spítal-
ans. Magnús víkur fyrst að æða-
skurðlækningunum.
Æðaskurðlækningar
á einum stað
„Æðaskurðlækningar era mjög
sérhæfð starfsemi og hún krefst
sérhæfðs tækjabúnaðar og er því
ein þeirra sérgreina sem eðlilegt er
að verði byggðar upp á öðram spít-
alanum. Kransæðaaðgerðir falla þó
ekki hér undir. Þetta hefur verið
ákveðið eftir miklar umræður og
skoðun og að fengnu áliti ráðgjafa
okkar. Miðstöð æðaskurðlækninga
verður á Sjúkrahúsi Reykjavíkur
og því mun hluti lækna
og hjúkranarliðs Land-
spítalans á þessu sviði
flytjast í Fossvog. Þó
verður áfram veitt
ákveðin þjónusta á
Landspítalanum."
Á Landspítalanum hafa 6-10
rúm verið nýtt vegna æðaskurð-
lækninga og 2-4 rúm á SHR. Með
breyttri aðgerðatækni og nýjung-
um í innæðaaðgerðum hefur legu-
tími styst og því talið að 10 rúm
dugi fyrir æðaskurðlækningar séu
þær reknar á einum stað, þ.e. án
hjartaskurðlækninga. Magnús
nefndi sem dæmi að nú liggi fyrir
óskir um kaup á þremur æðarann-
sóknartækjum sem kosti hvert um
70 milljónir. Augljóst sé að aukin
sérhæfing og sameining á þessu
sviði leiði til hagræðingar.
„Þessi ákvörðun um æðaskurð-
lækningamar er umdeild," segir
Magnús, „en þetta er niðurstaðan.
Menn eru ekki alltaf sammála um
svona aðgerðir en styðja ákvörðun-
ina þegar hún er teldn.“
Um skeið hefur það verið til at-
hugunar hvort taka megi upp hér-
lendis ákveðnar beinmergsaðgerð-
ir og segir Magnús nú ákveðið að
hefja þær í haust. í fyrstunni verð-
ur ekki um mergflutning að ræða
frá gjafa til sjúklings heldur ein-
ungis skipt um svonefndar stofn-
frumur í sjúklingi sem ræktaðar
era frá honum sjálfum. „Þessi nýj-
ung í krabbameinslækn-
ingum hefur verið skoð-
uð ítarlega hjá báðum
sjúkrahúsunum og
stendur fátt í vegi fyrir
því að taka þessar að-
gerðir upp hér. Þær verða á Land-
spítalanum enda kemur Blóðbank-
inn mikið við sögu í þessum efnum.
Gera þarf minni háttar breytingar
á húsnæði áður en hægt verður að
hefjast handa. Tryggingastofnun
hefur til þessa greitt fyrir þá sjúk-
linga sem þurft hafa að leita til út-
landa vegna þessara aðgerða og
hér verður því ekki um aukinn
kostnað að ræða fyrir ríkið heldur
flytjast fjánnunirnir einungis til.
Mikið hagræði er að því fyrir sjúk-
linga að þurfa ekki að leita til út-
landa eftir slíki'i þjónustu."
Endurhæfing í Kópavogi
og Gi'ensásdeild
Þá verða ýmsar breytingar á
fyrirkomulagi endurhæffngar.
Éndurhæfing á Landspítalanum,
sem hefur verið veitt á hinum
ýmsu deildum spítalans, verður
flutt í húsnæði spítalans í Kópa-
vogi, þar sem áður var Kópavogs-
hælið en vistmenn þess hafa verið
að flytjast í annað húsnæði. „Hér
er bæði verið að nýta betur eign-
irnar í Kópavogi og létta á Land-
spítalanum ásamt því að veita þeim
sjúklingum, sem þurfa á endurhæf-
ingu að halda, markvissari þjón-
ustu. Jafnframt verða endurhæf-
ingardeild og taugalækningadeild
SHR aðskildar og öll endm-hæfing
spítalanna sett undir eina stjórn.
Endurhæfingin á Grensásdeild
verður áfram þar til húsa. Þessum
málum tengist einnig sú hugmynd
að heilbrigðisráðherra skipi endur-
hæfíngarráð með fulltrúum sjúkra-
húsanna, Reykjalundar, Heilsu-
stofnunar NLFI í Hveragerði og
jafnvel annarra félagasamtaka.
Ráðinu er ætlað að vera ráðheri'a
til ráðgjafar í þessum málaflokki á
svipaðan hátt og öldranarráð."
Stofnuð hefur verið lyfjanefnd
spítalanna sem skipuð er tveimur
læknum fi-á hvoram spítala og for-
stöðumönnum apótekanna. Hlut-
verk nefndarinnar er að marka
sameiginlega stefnu í lyfjamálum
og vinna að sparnaði og hagræð-
ingu í innkaupum lyfja. „Nefndin á
að velja lyf á sameiginlegan lyfja-
lista sem bjóða á út á vegum Ríkis-
kaupa, halda áft-am samstarfí við
Norðurlöndin um útboð þegar það
á við og hún á líka að sjá um gerð
leiðbeininga um notkun lyfja í sam-
vinnu við sérfræðinga og hafa eftir-
lit með því að þeim leiðbeiningum
sé framfylgt. Þá á nefndin að af-
greiða heimildir til að nota dýr lyf
á spítalanum og göngudeildum.“
Viðamikið
stjórnkerfi
Magnús segir að stjórnkerfi
sjúkrahúsanna sé nokkuð viðamik-
ið og á köflum þungt í
vöfum og án þess að
hann vilji nefna það
beint er sýnt að innan
þessara stóra fyrirtækja
ríkir sums staðar íhalds-
semi og tilhneiging til andstöðu við
hvers kyns breytingar. Rekstrin-
um á Landspítalanum er skipt í 10
svið og á hvexju sviði er einn sviðs-
stjóri lækninga og annar fyrir
hjúkran. Segir hann nauðsynlegt
að skoða hvort og hvar breyta þurfi
uppbyggingu sviðanna, færa ef til
vill til starfsemi og gera að sjálf-
stæðum einingum eða koma á þjón-
ustusamningum og hafi athuganir
hans að ýmsu leyti snúist um þessa
þætti og endui'skoðun á ýmsu fyr-
irkomulag þeixra.
„Það liggur fyi-ir að endui'skoða
innra starf og þar á ég við stjórn-
unarsvið, gæðamál, fjármál og
fleira. í því sambandi er spuming
hvort við færam ákveðna starfs-
menn frá stjórnunarsviðinu út til
sviðanna, til dæmis þá sem einkum
sjá um fjármálin, til að hin daglega
umsýsla þeiri'a verði nær sviðs-
stjóranum. Síðan þarf að fjalla uro
starfsmannamál, kjarasamninga og
marka stefnu í þeim málum og í
fi-amhaldi af þessu munum við
skoða önnm’ svið, svo sem fræða-
svið spítalans og í-ekstrai'- og
tæknisvið. En þetta er allt á byrj-
unarstigi og verður tekið í skref-
um.“
Ályktun læknaráðs Landspítalans um flutning deilda
Telur faglega umræðu
hafa vantað um málið
LÆKNARÁÐ Landspítalans er
ekki ánægt með hvemig staðið
var að ákvörðunum um flutning
deilda og ályktaði um það á aðal-
fundi sínum í gær. Tryggvi Ás-
mundsson, formaður læknaráðs,
segir að faglega umræðu hafi
vantað og sagði hann læknaráð
vilja hvetja stjóm spítalans til að
gæta þess að slík umræða færi
fram áður en flutningur deilda
væri ákveðinn.
Tryggvi Ásmundsson segir
með þessu verið að vísa til þeirr-
ar ákvörðunar stjómar spítalans
að færa æðaskurðlækningar frá
Landspítala til Sjúkrahúss
Reykjavíkur. Málið hefði verið
rætt við sviðsstjóra handlækn-
ingasviða en ekki viðkomandi
sérfræðinga í æðaskui'ðlækning-
um. Segir Tryggvi brýnt að sú
vinnuregla verði viðhöfð að flutn-
ingur deilda eða sameining verði
rædd faglega við viðkomandi sér-
fræðinga.
I annarri ályktun aðalfundar
læknaráðs er lýst áhyggjum
vegna sumarlokana sem Tryggvi
segir að verði meiri í ár en í
fyrra. Ástæðu þeirra segir hann
ekki sparnað heldur skort á heil-
brigðisstai'fsfólki, einkum hjúkr-
unai*fræðingum. Er hvatt til þess
að tekið verði á þessum vanda og
varpað fram því sem talið er
neyðarúrræði, að fagfólk fái að-
stoð annari'a stétta, svo sem
sjúkraliða og deildarritara.
Tryggvi segir þennan vanda
einnig uppi vegna skorts á
unglæknum.
Ekki allir sam-
mála um slíkar
ákvarðanir
Endurskoða
þarf stjórnun
arsviðið