Morgunblaðið - 01.05.1999, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 1. MAÍ 1999 13
FRÉTTIR
Yfirvöld veita 16 milljónir í að gera lagagögn
aðgengileg á Netinu án endurgjalds
Stór gagnabankiþeg-
ar til hjá einkaaðila
Sýning stóðhestastöðvarinnar
Háar tölur fjög-
urra vetra hesta
IIESTAR
ÞRÖSTUR frá Innri-Skelja-
brekku sem Jóhann Þorsteinsson
sýndi stóð efstur sex vetra hesta
og eldri að loknum kynbótadóm-
um í Gunnarsholti á fimmtudag.
Hlaut hann 8,05 fyrir sköpulag,
8,51 fyrir hæfileika og 8,33 í aðal-
einkunn. Annar varð Spuni frá
Miðsitju sem Atli Guðmundsson
sýndi en hann hlaut 8,10 fyrir
sköpulag, 8,39 fyrir hæfileika og
8,24 í aðaleinkunn. Þriðji varð svo
Bi’ynjar frá Argerði sem Sveinn
Ragnarsson sýndi en hann hlaut
7,98 fyrir sköpulag, 8,47 fyrir
hæfileika og 8,22 í aðaleinkunn.
Af fimm vetra hestum stóðu
efstir Dynur frá Hvammi sem
Þórður Þorgeirsson sýndi með
8,15 fyrir sköpulag, 8,37 fyrir
hæfileika og Keilir frá Miðsitju
sem Vignir Jónasson sýndi með
8,30 fyrir sköpulag, 8,21 fyrir
hæfileika. Báðir hlutu þefr 8,26 í
aðaleinkunn. I þriðja sæti varð
svo Þór frá Prestbakka sem Þor-
valdur Á. Þorvaldsson sýndi en
hann hlaut fyrir sköpulag 8,38,
fyrir hæfileika 8,11 og 8,24 í aðal-
einkunn.
Garpur frá Auðsholtshjáleigu
sem Erlingur Erlingsson sýndi
stóð efstur fjögra vetra hesta.
Hlaut hann 8,03 fyrir sköpulag,
8,37 fyrir hæfileika og 8,20 í aðal-
einkunn sem er frábær árangur
hjá svo ungum hesti. í öðru sæti
varð Gnýr frá Stokkseyri sem
Vignir Siggeirsson sýndi en hann
hlaut fyrir sköpulag 8,03, fyi-ir
hæfileika 8,20 og 8,11 í aðalein-
kunn. Þyrnir frá Þóroddsstöðum,
sem er albróðir Hams frá Þór-
oddsstöðum, varð þriðji með 8,40
fyrir sköpulag, 7,66 fyrir hæfi-
leika og 8,03 í aðaleinkunn.
Flest þeirra hrossa sem fram
komu í dómum í Gunnarsholti í
vikunni verða sýnd í dag á sama
stað og hefst sýningin klukkan
13.30. Hægt er að nálgast dómana
á heimasíðu Búnaðarsambands
Suðurlands. Netfangið er httpv!/
www.bssl.is og vilji menn grunn-
skrá hross er bætt við /frhtml.
Valdimar Kristinsson
Stökktu til
Benidorm
26. maí
í 1 eða 2 vikur
frá kr. 29.955
Heimsferðir bjðða , SíðUStU 24 Sætill
nú þetta ótrúlega
tilboð til Benidorm hinn 26. maí, þessa vinsælasta
áfangastaðar Islendinga. Þú bókar núna og tryggir
þér sæti í ferðina 26. maí og fjórum dögum fyrir
brottför hringjum við í þig og tilkynnum þér á
hvaða gististað þú gistir í fríinu. Á Benidorm er
sumarið byrjað og hér nýtur þú frísins við frábærar
aðstæður og um leið getur þú valið um spennandi
kynnisferðir með fararstjórum Heimsferða.
GARÐAR Garðarsson, stjórnarfor-
maður fyrirtækisins Urlausn Að-
gengi ehf., telur sjálfsagt og eðli-
legt að yfirvöld leiti til þeirra sem
hafi sérþekkingu á miðlun laga-
gagna á veraldarvefnum varðandi
þá vinnu sem þau ætla að leggja í
við að gera slík gögn aðgengileg al-
menningi á Netinu.
í niðurstöðu fimm manna nefnd-
ar sem skilaði niðurstöðum til
dómsmálaráðherra nýlega segir að
almenningur eigi að hafa aðgang að
lagagögnum á veraldarvefnum.
Fyrirtækið Úrlausn Aðgengi ehf.
hefur um nokkurra ára skeið unnið
að uppsetningu lagagagna á verald-
arvefnum og er gagnabanki fyrir-
tækisins orðinn mikill að vöxtum að
sögn Garðars Garðarssonar. Önnur
nefnd verður skipuð á næstunni og
mun hún vinna að frekari útfærslu
framkvæmdarinnar. Ekki er því
ljóst á þessu stigi hver muni vinna
verkið. Garðar túlkar hins vegar
niðurstöðu nefndarinnar á eftirfar-
andi hátt:
„Ég lít þannig á niðurstöður
Skuldirn-
ar koma
sam-
keppni
ekki við
FRIÐRIK Sophusson, for-
stjóri Landsvirkjunar, segir
að það sé misskilningur að
skuldir fyrirtækisins hamli
samkeppni í orkusölu. Franz
Arnason, framkvæmdastjóri
Hita- og vatnsveitu Akureyi-ar
og stjórnarformaður í Þeista-
reykjum ehf., hefur sagt að
landsmenn sitji uppi með
skuldir Landsvirkjunar og
þyrftu að greiða skuldir fyrir-
tækisins í gegnum skattkerfið
þótt þeir fengju ódýra orku
frá Þeistareykjum.
„Það er einhver misskiln-
ingur, ef rétt er eftir haft, að
skuldir Landsvirkjunar komi
samkeppninni við. Eigendur
Landsvirkjunar á hverjum
tíma vilja áreiðanlega fá arð af
eignum sínum eins og lánveit-
endur vexti af lánum,“ segir
Friðrik Sophusson, forstjóri
Landsvirkjunar.
Varðandi hugmyndir manna
um að virkja Þeistareykja-
svæðið til raforkuframleiðslu
segir Friðrik: „Stóru vatns-
aflsvirkjanirnar hafa hingað til
skilað lægra orkuverði en raf-
orkuvinnsla úr háhita, nema
hún sé hliðarbúgrein með hita-
veitu, eins t.d. á Nesjavöllum
og í Svartsengi. Flutnings-
lengdin hefur einnig verulega
þýðingu í þessu samhengi. Það
sem ég held að skipti mestu
máli fyrir Norðlendingana er
að finna not fyrir heita vatnið,
t.d. í iðnaði sem notar heitt
vatn. Við slík skilyrði gæti raf-
orkuframleiðsla á svæðinu
verið mjög hagkvæm. Lands-
virkjun styður það að menn
leiti slíkra atvinnutækifæra og
í því sambandi minni ég á að
fyrirtækið er langstærsti hlut-
hafinn í borverkefni í Öxar-
firði,“ sagði Friðrik.
nefndarinnar að hún telji ráðlegt að
leita til frumkvöðlanna og mér
finnst það sjálfsagt og eðlilegt. Við
höfum alltaf verið þein'ar skoðunar
og höfum barist fýrir því í mörg ár
að þetta verði gert með þeim hætti
eins og lagt er til í skýrslunni. Við
eigum hins vegar orðið þennan
gagnagrunn nánast allan og það á
enginn annar á landinu. Ég myndi
því ekki telja það mjög klókt af yf-
irvöldum að fara að leggja í þá
vinnu sem við erum búnir að vera
að gera síðustu þrjú ár. Það væri
miklu nær að semja við okkur um
að sjá um þetta. Þetta er bara
spurning um hver vinnur verkið og
hver útbýr gögnin þannig að þau
séu aðgengileg almenningi og mér
finnst sjálfsagt að frumherjarnfr
verði fengnir til þess verks,“ segir
Garðar.
Stór hluti gagnanna
þegar á Netinu
Garðar segir að fyrirtækið sé
fylgjandi því að almenningur hafi
frjálsan aðgang að þeim upplýsing-
um sem um ræðir. Hann bendir á
að stærsti hluti þeirra upplýsinga
sem fyrirtækið miðli á Netinu sé
endurgjaldslaus. Hann segir þó að
þjónustan sé aldrei ókeypis, það sé
einfaldlega spurning um hvort
neytendur eða ríkisvaldið greiði
fyrir þjónustuna.
Að sögn Stefáns Eiríkssonai',
formanns nefndar um aðgengi laga-
gagna á veraldarvefnum, mun
nefnd skipuð fulltrúum frá Alþingi,
utamíkisráðuneytinu, forsætis-
ráðuneytinu, Hæstarétti og dóms-
málaráðuneytinu vinna að fram-
gangi málsins á næstunni. Nefndin
mun meðal annars taka ákvörðun
um með hvaða hætti verkefnið
verði framkvæmt.
„Það er í rauninni opið hvert
nefndin leitar. Hvort hún kjósi að
gera þetta alfarið sjálf eða leiti eftir
því að einhver einkaaðili sinni
þessu fyrir hana. Það á eftir að
móta það en oft er ódýrara að leita
til einkaaðila með útboði en að fara
aðrar leiðir," segir Stefán.
Stefán segir að ef leitað verði til
einkaaðila um að vinna verkið þurfi
opinberir aðilar samt sem áður að
koma að verkinu og taka ábyrgð á
því, til þess að tryggja að gögnin
séu rétt innfærð, ávallt uppfærð og
útlit í samræmi. „Ég geri ráð fyrir
því að menn reyni að nýta sér
reynslu og þekkingu þeirra sem
hafa þegar komið sér fyrir á mark-
aðnum og reyni að skoða möguleika
á samstarfi, eða leita til einhverra
annarra aðila,“ segir Stefán.
Hagsmunir almennings
í fyrirrúmi
Aðspurður segir Stefán að
rekstrargrundvöllur einkafyrirtæk-
is eins og Úrlausnar Aðgengis ehf.
geti verið erfiðleikum háður þegar
ríkið er farið að miðla þessum
gögnum endurgjaldslaust. Um
þetta er fjallað í skýrslunni og segir
Stefán að nefndin hafi skilning á
sjónarmiðum einkaaðilans sem
frumkvöðuls á þessu sviði.
„Þetta er spurning um hagsmuni
almennings og í skýrslunni eru
færð rök fyrir því að það skipti
miklu máli fyrir almenning að hafa
góðan aðgang að upplýsingum um
réttindi sín og skyldur í þjóðfélag-
inu. Það vegi þyngra en einkahags-
munir fyrirtækisins. A móti kemur
hins vegar að við framkvæmd
verksins verði litið til þess að þeir
þættir sem hagkvæmt er að bjóða
út verði boðnir út,“ segir Stefán
sem telur að frumkvöðlarnir muni
hafa nokkuð góða stöðu ef leitað
verður eftir útboði.
Að sögn Stefáns hafa 16 milljónir
verið settar í upplýsingasamfélagið
og miðlun gagna á Netinu á fjárlög-
um þessa árs. Nefndin gerir tillög-
ur um skiptingu fjái-magnsins og
miðað við það verður hægt að ýta
þessu starfi hraustlega af stað á ár-
inu.
Verð kr. 29*955
M.v. hjón með 2 böm, 2-11 ára,
vikuferð 26. maí, skattar innifaldir.
Verð kr. 39.955
M.v. hjón með 2 böm í íbúð, 2
vikur 26. maí, skattar innifaldir.
Verð kr. 39*990
M.v. 2 í herbergi/íbúð, vikuferð
26. maf, skattar innifaldir.
Verð kr 49*960
M.v. 2 í studíó/íbúð, 2 vikur,
26. maí, skatlar innifaldir.
ASSA
Master-
lyldakerfi
Húsasmiðjan smíðar ASSA
höfuðlyklakerfi (Masterlyklakerfi)
fyrir fyrirtæki, húsfélög,
stofnanir ofl.
HÚSASMIÐJAN
Sími 525 3000
j»p\
HEIMSFERÐIR
Austurstræti 17, 2. hæð • sími 562 4600 • www.heimsferdir.is