Morgunblaðið - 01.05.1999, Side 19

Morgunblaðið - 01.05.1999, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI LAUGARDAGUR 1. MAÍ 1999 19 Kirkjustarf AKUREYRARKIRKJA: Ljóðatón- leikar Bjargar Þórhallsdóttur og Daníels Þorsteinssonar í Safnaðar- heimili kl. 17. Guð í Þúsund litum - guðsþjónusta fyrir alla aldurshópa í kirkjunni kl. 11. Barna- og unglinga- kór kirkjunnar syngur undir stjóm Jóns Halldórs Finnssonar. Kristján Edelstein leikur með á gítar, org- anisti Bjöm Steinar Sólbergsson. Prestar eru sr. Birgir Snæbjömsson, sr. Svavar A. Jónsson og Jóna Hrönn Bolladóttir og starfsfólk barnastarfsins Arna Ýrr Sigurðar- dóttir og Gunnar Árnason. Morgun- bæn í kirkjunni á þriðjudag kl. 9. Mömmumorgunn í Safnaðarheimili kl. 10 til 12 á miðvikudag, Björg Bjamadóttir ræðir um málþroska barna. Kyrrðar- og fyrirbænastund á fimmtudag kl. 12 og hefst hún með orgelleik. Hjónanámskeið verður á mánudagskvöld í Safnaðarheimili, leiðbeinendur eru sr. Jóna Lísa Þor- steinsdóttir og sr. Svavar A. Jóns- son. GLERÁRKIRKJA: Fjölskylduguðs- þjónusta kl. 11 á sunnudag. Kristni- tökuafmælis verður minnst með táknrænum hætti. Bama- og ung- lingakór syngur ásamt hljóðfæra- leikurum. Léttir söngvar með sumar- sveiflu. Nemendur Tónlistarskólans á Akureyri leika á píanó. Foreldrar, afar og ömmur eru hvött til að fjöl- menna í kirkju með börnum sínum. Fjölskyldusamvera frá kl. 10 til 12 á fimmtudag. Heitt á könnunni og safi fyrir bömin. HJÁLPRÆÐISHERINN: Hugvekju- stund kl. 9.30 í dag, laugardag. Kvennasamkoma kl. 15 og hátíðar- samkoma fyrir herfjölskylduna og vini kl. 20 þar sem þoðið verður upp á veitingar. Fjölskyldusamkoma kl. 11 á sunnudag, fjölbreytt dagskrá. Börn fá verðlaun fyrir góða mætingu í vetur. Ungbarnablessum og fleira. Ræðumaður er ofusti Einar Höyland. Gestir verða ofurstarnir In- ger og Einar Höyland, deildarstjóra- hjónin Turid og Knut Gamst, brig. Ingibjörg Jónsdóttir og Óskar Jóns- son, kapt. Miriam Óskarsdóttir og fleiri. HVÍTASUNNUKIRKJAN: Bæna- og lofgjörðarstund kl. 20 í kvöld, laug- ardagskvöld. Amber Harris gospel- söngkona predikar. Sunnudagaskóli fjölskyldunnar á morgun kl. 11.30. Biblíukennsla fyrir alla aldurshópa. Kristinn Pétur Birgisson frá ísafirði predikar. Léttur hádegisverður á vægu verði kl. 12.30. Vakningasam- koma ki. 16.30 á sunnudag þar sem Amber Harris predikar og syngur. Mikill og líflegur söngur. Fyrirbæn. Barnapössun fyrir börn yngri en 6 ára. Alfanámskeið kl. 20 á miðviku- dagskvöld. Gospelkvöld kl. 21 á föstudagskvöld, 7. maí. HRÍSEYJARPRESTAKALL: Hátíð- arguðsþjónusta í Stærri-Árskógs- kirkju kl. 14 á morgun, sunnudag í tilefni af Kristnihátíð. Fermingarbörn munu flytja leikþátt um kristnitökuna og Kór Stærri-Árskógskirkju syngur undir stjórn Guðmundar Þorsteins- sonar organista. Hátíðarmessa og ferming í kirkjunni kl. 10.30 á sunnu- dag. Fermd verður Hrund Teitsdótt- ir, Austurvegi 11, Hrísey. Minnst verður 1000 ára kristni á íslandi. KAÞÓLSKA KIRKJAN: Messa í dag, laugardag kl. 18 og á morgun, sunnudag kl. 14 í kirkjunni við Eyrar- landsveg 26. LAUGALANDSPRESTAKALL: Há- tíðarmessa verður í Hólakirkju kl. 13.30 í dag, laugardag. Kaffi og með því [ Bangsabúð á eftir. Safnaðar- fundur á sama stað að því loknu. Hátíðarguðsþjónusta f Munkaþver- árkirkju kl. 11 á sunnudag. Hátíðar- guðsþjónusta í Grundarkirkju kl. 13.30 á sunnudag. Aðalsafnaðar- fundur Grundarsóknar verður í Laugaborg á mánudagskvöld kl. 20.30. Aðalsafnaðarfundur Munka- þverársóknar verður í kapítulinu kl. 20.30 á miðvikudagskvöld. MÖÐRUVALLAPREST AKALL: Guðsþjónusta verður í Möðruvalla- kirkju kl. 14 á morgun, sunnudag, í tilefni hátíðarhalda vegna kristni- tökuafmælisins. í athöfninni verður frumflutt lag við texta Péturs Sigur- geirssonar biskups sem hann hefur samið í tilefni hátíðarhaldanna. Sameiginlegur kór kirknanna í prestakallinu syngur. Organisti Birgir Helgason. Kaffiveitingar verða í Þelamerkurskóla í boði sóknarnefndanna eftir guðsþjón- ustu. Önnur skrifstofa Norður- skautsráðsins í bænum Morgunblaðið/Kristján GUÐMUNDUR Bjarnason umhverfisráðherra ræðir við Sofffu Guð- mundsdóttur, forstöðumann PAME-skrifstofunnar, og Níels Einars- son, forstöðumann Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar. GUÐMUNDUR Bjamason um- hverfisráðherra opnaði á Akureyri í gær skrifstofu Norðurskautsráðsins um vemd gegn mengun hafsins á norðurslóðum, svokallaðrar PAME- skrifstofu. Forstöðumaður hennar er Soffía Guðmundsdóttir, umhverf- isverkfræðingur frá Akureyri. Þetta er önnur alþjóðlega um- hverfisskrifstofan sem umhverfis- ráðherra opnar á Akureyri á því kjörtímabíli sem nú er að ljúka, auk þess sem Stofnun Vilhjálms Stefánssonar tók til starfa í bæn- um. Guðmundur sagði við það tækifæri að hann hafi beitt sér í ríkum mæli fyrir því að opinberar stofnanir verði staðsettar utan höf- uðborgarsvæðisins, „og verð vart sakaður um linkind í þeim efnum“. Stærsta verkefnið er flutningur Landmælinga Islands til Akraness, sem Guðmundur sagði hafa tekist vonum framar. Hann gerði einnig að umtalsefni að nokkuð skiptar skoðanir hafi verið um aðsetur þessara alþjóð- legu skrifstofa á Akureyri. Guð- mundur sagði að sú gagnrýni ætti við nokkur rök að styðjast, þar sem nokkru dýrara væri að reka þær á Akureyri vegna alþjóðlegra sam- skipta við hinar faglegu stofnanir sem skrifstofurnar þurfa að vinna með og eru að minnsta kosti enn í Reykjavík. Hins vegar væri mikill vilji til þess á Akureyri að vinna vel með þessum nýju sprotum atvinnu- lífsins. Fjórir vinnuhópar starfandi Guðmundur sagði að á vegum Norðurskautsráðsins væru nú starfandi fjórir vinnuhópar um vemd umhverfis Norðurskautsins. AMAP-hópurinn sér um að sam- ræma vöktun á norðurhjara, EPPR er vinnuhópur um sameiginlegar aðgerðir við bráðahættu eða meng- unaróhöppum, Þá er í þriðja lagi hópur um vemdun gróðrar og líf- vera á norðurslóðum en skrifstofa þess verkefnis, svokölluð CAFF- skrifstofa var opnuð á Akureyri ár- ið 1996. PAME-skrifstofan tengist svo fjórða vinnuhópnum og verður rekin við hlið CAFF-skrifstofunnar að Hafnarstræti 97. Guðmundur sagði að fyrir um einu og hálfu ári hafi á vegum PAME verið hafist handa við gerð svæðisbundinnar framkvæmdaáætl- unar og tóku fulltrúar íslenskra stjómvalda virkan þátt í gerð henn- ar. „Forgangsverkefni samkvæmt áætluninni er stuðningur við gerð framkvæmdaáætlunar fyrir heim- skautahluta Rússlands. I öðru lagi stuðningur við áframhaldandi að- gerðir til að draga úr losun þung- málma og þrávirkra lífrænna efna og í þriðja lagi að undirbúa gerð samræmdra áætlana um strand- svæði.“ Morgunblaðið/Benjamín Baldursson Vorsýning Myndlistaskóla ArnarInga VORSÝNING Myndlistaskóla Arnar Inga verður haldin á morgun, sunnu- daginn 2. maí í Klettagerði 6 á Akur- eyri og verður hún opin frá kl. 14 til 18. Á sýningunni verða um 60 verk unnin með olíu- eða pastellitum. Við- fangsefnin eru fjölbreytt og per- sónuleg en um er að ræða úrval mynda beggja anna vetrarins. Um hvítasunnuhelgina verður á sama stað útskriftarsýning tveggja nem- enda skólans. ------------- Félag vélsleðamanna í Eyjafírði Ferð um Odáðahraun FÉLAG vélsleðamanna í Eyjafirði gengst fyrir dagsferð um Odáða- hraunssvæðið á morgun, sunnudag- inn 2. maí. Farið verður á sleðum írá Fosshóli kl. 11.30 og ekið í Svartár- kot. Þar mun Tryggvi bóndi taka við hópnum en hann er allra manna kunnastur á þessu svæði. Þeir sem vilja geta ekið á bflum í Svartárkot og er áætluð brottför þaðan kl. 12. Gera má ráð fyrir að eknir verði allt að 200 kflómetrar. Tónleikar söngdeildar Tónlistarskóla Eyjaíjarðar Kornakurinn á kafi í snjó Morgunblaðið/Eyjaljarðarsveit. ÁRSKÓGSSTRÖND hefur kannski ekki verið talin búsæld- arlegasta sveit iandsins en þar hafa bændur þó ræktað korn til þroska á undanförnum árum. Baldvin Haraldsson á Stóru-Há- mundarstöðum er einn þeirra og hefur hann að jafnaði verið búinn að sá um þetta leyti. Hann hefur haft þann háttinn á að sá þegar komið hefur verið 10 cm þítt lag í jarðveginn. Klak- inn hefur svo borið jarðvinnslu- tækin uppi og varnað því að jarð- vegurinn þjappist um of. Útlitið er ekki jafn gott á þessu vori og er nú um eins metra þykkt snjó- lag yfir akrinum. Baldvin var þó bjartsýnn og var búinn að dreifa sandi yfir snjóinn til að flýta fyr- ir bráðnun hans. TÓNLEIKAR söngdeildar Tónlist- arskóla Eyjafjarðar verða í Frey- vangi sunnudagskvöldið 2. maí kl. 20.30. Á þessum tónleikum koma fram nemendur Þuríðar Baldurs- dóttur söngkennara og er efnisskrá- in fjölbreytt að vanda, bæði innlend og erlend sönglög. Undirleikari er Dóróthea Dagný Tómasdóttir. Þetta eru fyrstu tónleikar skólans á þessu vori, en alls verða þeir sjö. Aðgang- ur er ókeypis og allir velkomnir. Aðalfundur Aðalsafnaðarfundur Akureyrarsóknar verður haldinn miðvikudaginn 5. maí nk. kl. 20.00 f Safnaðarheimilinu. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf 2. Önnur mál. Sóknarnefndin. Kirkjulistaviku lýkur Ljóðatónleikar og litrík guðs- þjónusta KIRKJULISTAVIKU í Akureyrar- kirkju lýkur á morgun, sunnudag, en aðsókn að dagskrárliðum hefur verið mjög góð. Nú í dag, laugardag, verða ljóða- tónleikar í Safnaðarheimili þar sem fram koma Björg Þórhallsdóttir sópransöngkona og Daníel Þor- steinsson píanóleikari, en Tónlistar- félag Akureyrar efnir til tónleik- anna. Á efnisskránni eru trúarleg ljóð eftir fjölda innlendra og er- lendra tónskálda, m.a. Friður á jörð eftir Árna Thorsteinsson, Klukkna- hljóð eftir Sigvalda Kaldalóns og Biblíuljóð eftir A. Dvorák. I tengslum við Kirkjulistavikuna sýnir Kvikmyndaklúbbur Akureyr- ar myndina Jesus Christ Superstar í Borgarbíói á morgun, sunnudag- inn 2. maí, kl. 17. Kirkjulistavikunni lýkur með guðsþjónustu fyrir alla aldurshópa með yfirskriftinni „Guð í þúsund lit- um“. Teknir verða fyrir fjórir grunnlitir, grænn, gulur, rauður og blár, reynt verður að skynja litina eins og þeir eru og leyfa sérkennum þeirra að sýna ákveðna eiginleika Guðs. Sýning á kirkjumunum úr Eyja- firði og teikningum af eyfirskum kirkjum stendur jfir í Safnaðar- heimili en henni lýkur á sunnudag. Þá stendur enn í Listasafninu á Akureyri sýningin „Jesús Kristur - eftirlýstur" sem sett var upp í tengslum við Kirkjulistavikuna. Bifreiðastjórar Hafið bílabænina í bílnum og orð hennar hugföst þegar þig akið. ■ "■ ^ Drottinn Guö, veit mér vernd þina, og lát mig minnast ábyrgöar minnar er ég ek þessari bifreið. í Jesú nafni. Amen. L„.......................ZZ4 Fæst í Kirkjuhdsinu Laugavegi 31, Jötu, Hátúni 2, Reykjavík, Hljómveri og Shellstöðinni v/Hörgárbraut, Akureyri, Litla húsinu, Strandgötu 13B, Akureyri. Verð kr. 200. Orð dagsins, Akureyri

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.