Morgunblaðið - 01.05.1999, Síða 20

Morgunblaðið - 01.05.1999, Síða 20
20 LAUGARDAGUR 1. MAÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ Morgunblaðið/Finnur Pétursson EGILL Ólafsson safnvörður á Hnjóti í Örlygshöfn tók á móti skrúfunni á Patreksfirði. Með honum á myndinni er Steingrímur Þórarinsson bflstjóri, en hann flutti skrúfuna vestur fyrir Flugminjasafnið. Tálknafirði - Flugvélarskrúfan sem frystitogarinn Freri frá Hafn- arfirði fékk í trollið nýlega er kom- in vestur í Örlygshöfn. Ahöfn og útgerð Frera gáfu Flugminjasafn- inu á Hnjóti skrúfuna. Líkur eru taldar á því að skrúfan sé af sprengjuflugvél, sem fór í kafbátaleitarflug 3. nóvember 1941. Flugélin var bresk, Arm- strong-Withworth Whitley MK. V. I samtali við Egil Ólafsson safn- vörð á Hnjóti kom fram að skrúfan væri merkur og sérstæður gripur Flugvélar- skrúfa á flug- minjasafnið að Hnjóti þar sem vélar af þeirri gerð sem skrúfan er af, væru horfnar af sjónarsviðinu og mjög fátítt ef ekki ómögulegt að fá úr þeim heillega hluti. Nú bíður skrúfan þess að verða þrifin og fægð, en hún verð- ur síðan höfð til sýnis í Flugminja- safninu á Hnjóti. Egill vill koma á framfæri þakk- læti til áhafnar og útgerðar Frera fyrir þann velvilja og hlýhug, sem gjöfín ber með sér. Einnig vill hann þakka eigendum og starfs- fólki Vöruafgreiðslunnar á Pat- reksfirði fyrir aðstoðina við að flytja skrúfuna vestur á Patreks- fjörð. Barnfóstrur á námskeiði Hellu - Fræðslumiðstöð Rauða Kross Islands stendur árlega fyrir margvíslegum námskeiðum víðs veg- ar um landið. Þau eru liður í að auka fræðslu meðal almennings og efla vinsamlegt mannlíf og eiga það sam- eiginlegt að reynast gagnleg í dag- legu lífi. A vegum Rauðakrossdeildar Rangárvallasýslu var nú á vordögum haldið eitt slíkt á Hellu fyrir verð- andi barnfóstrur. Námskeiðið sóttu sextán ungmenni á aldrinum 12-14 ára frá Hellu, Hvolsvelli og ná- grannasveitum, en markmiðið var að þátttakendur fái aukna þekkingu á börnum og umhverfi þeirra og öðlist aukið öryggi í starfi. A dagski-ánni voru atriði eins og æskilegir eigin- leikar barnfóstru, þroski barna, leik- fangaval, mikilvægi fæðutegunda, veik börn, fyrirbygging slysa og skyndihjálp auk fleiri gagnlegra at- riða sem tekin voru íyrir. A nám- skeiðinu á Hellu voru Þórdís Ingólfs- dóttir hjúkrunarfræðingur og Krist- ín Sveinsdóttir leikskólakennari leið- beinendur. Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir VERÐANDI barnfóstrur ásamt leiðbeinendum, Þórdísi Ingólfsdóttur og Kristínu Sveinsdóttur. Morgunblaðið/Sig. Jóns. LESIÐ og lært um miðja nótt. Á milli námslotnanna voru teknar létt- ar leikfimiæfingar. Lesið, skrif- að, sofið og skeggrætt í námspuði Selfossi - Klárar Fjölbrauta- skóla Suðurlands, en svo eru þeir nefndir sem ljúka námi, lögðu á sig nám í maraþonstíl eftir að hafa safnað áskorunum í ijáröflunarskyni til að íjár- magna námsferð að stúdentsá- fanganum loknum í lok maí. Með námspuðinu í rúman sólar- hring stanslaust nýttu nemend- ur ijáröflunartímann til náms ásamt því að efla samstöðuna í hópnum. Ríflega 40 nemendur, Klárar, tóku þátt í þessari þol- raun þar sem var lesið, skrifað, sofið og skeggrætt. Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason ÞEIR stjórna siglingunum um Breiðaijörð með Eyjaferðum um borð í Brimrúnu sem tekur yfir 100 manns í sæti. Á myndinni eru Siggeir Pétursson, Pétur Ágústsson og Ólafur Sighvatsson. Byrjað að undirbúa unglingalandsmót UMFÍ í Bíldudal Tálknafirði - Laugardaginn 24. api'íl var héraðsþing HHF haldið á Bíldu- dal. HHF stendur fyrir Héraðsam- bandið Hrafnaflóka, en félagssvæði þess er Vestur-Barðastrandarsýsla. Aðalmál þingsins og verkefni næstu misserin er unglingalandsmót UMFÍ, sem HHF heldur um verslunar- mannahelgina árið 2000. Er undir- búningur íyrir mótið haflnn og miðar vel. Ráðgert er að auglýsa fljótlega eftir framkvæmdastjóra fyrir mótið. Nokkur tími fór í umræður um fyr- irkomulag á skiptingu tekna af lóttó- og getraunaseðlum og var samþykkt tillaga þess efnis. Þar er gert ráð fyr- ir að íbúafjöldi, fjöldi félagsmanna o.fl. hafi áhrif á úthlutun til einstakra félaga. Einnig var samþykkt að 5% af úthlutunartekjum fari í minningar- sjóð um S. Jóhannes Sigurðsson, en reglugerð fyrir sjóðinn var samþykkt á þinginm Þá var ekkju Jóhannesar, Kristínu Ólafsdóttur, færð stofnskrá- in ásamt lista yfir gefendur í sjóðinn, en sjóðnum hafa borist 53 gjafir, en gefendur eru mun fleiin, þar sem dæmi eru um heilu fjölskyldurnar bak við einstaka gjöf. Sjóðnum er ætlað að styrkja unga og efnilega íþróttamenn innan HHF til frekari þjálfunar. Lýst var kjöri íþróttamanna ársins. Ásgeir Sveinsson og Jónas Þrastar- son voru báðir útnefndir fyrir frjálsar íþróttir, Guðbjartur Ásgeirsson var útnefndur sem körfuboltamaður árs- ins og Haukur Sigurðsson sem sund- maður ársins. Það var síðan Jónas Þrastarson sem var kjöi’inn íþrótta- maður ársins hjá HHF. Gáfu farandbikar Fjölskylda Jóhannesai- Sigurðs- sonar gaf HHF farandbikar, sem skal veita þeim einstaklingi er stiga- hæstur er í hástökki á keppnistíma- bilinu. Eydís, dóttir Jóhannesar og Kristín móðir hennar, afhentu bikar- inn í fyrsta sinn á þinginu. Ásgeh’ ÍÞRÓTTAMAÐUR ársins hjá HHF var Jónas Þrastarson frá Iþrótta- félaginu Herði á Patreksfirði. Morgunblaðið/Finnur EYDIS Jóhannesdóttir og móð- ir hennar Kristín Ólafsdóttir af- henda hástökksbikarinn í fyrsta skipti. Það var Ásgeir Sveinsson frá Imiri-Múla á Barðaströnd sem hlaut bikar- inn og Sveinn Þórðarson, faðir hans, tók við honum. Sveinsson frá Innri-Múla á Barða- strönd hlaut bikarinn að þessu sinni, en faðir hans, Sveinn Þórðarson veitti bikarnum viðtöku fyrir hans hönd. Formaður HHF var kosinn Sigurður Viggósson og með honum í stjórn eru Helga Jónasdóttir, Thelma Ki'istinsdóttfr, Ásdís Guð- jónsdóttir, Karl Þór Þórisson og Silja Björg Jóhannsdóttir. Vorið er komið við Breiðafjörð Stykkishóimi - Síðustu daga hef- ur verið blíðskapar veður við Breiðafjörð og vorið birtist hér í ýmsum myndum. Margir Hólmar- ar huga að bátum sínum og fara að hlúa að eyjabúskapnum. Hjá Eyjaferðum eru það ferðamenn- irnir sem minna á vorið. Á þeim bæ er boðið upp á sérstakar vorferðir um Breiðafjörð sem nefndar hafa verið „Vorkoma við Breiðafjörð". Þessar ferðir eru sérstaklega ætlaðar fyrir hópa svo sem klúbba og starfsmannafélög. Ferðirnar byggjast upp á skoðunarferð, þar sem skoðað er fuglalífið sem er að kvikna á þessum tíma, skel- ílsksveiði og smökkun og endar á glæsilegu sjávarréttahlaðborði. Að sögn Maríu Valdimarsdóttur hjá Eyjaferðum hafa pantanir ver- ið miklar nú í vor og með þessum vorferðum lengist ferðamanna- tímabilið um nokkrar vikur. Við- tökur hafa verið góðar og um síð- ustu helgi voi'u farnar 3 slíkar vorferðir með hópa.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.