Morgunblaðið - 01.05.1999, Síða 24
24 LAUGARDAGUR 1. MAÍ 1999
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
350 milljóna tap af reglu-
legri starfsemi Básafells
Básafell
1. sept. 1998- 28. feb. 1999 1/9 '98- 1/9 '97- 28/2 '98
Rekstrarreikningur Miiyónir króna 28/2 '99 Breyting
Rekstrartekjur Rekstrargjöld 1.891 1.768 1.322 1.134 +43,0% +55,9%
Hagnaður fyrir afskriftir og fjárm.kostn. Afskriftir Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur 123 (221) (252) 188 (158) (129) ■34,6% +39,9% +95,3%
Tap af regiulegri starfsemi Aðrar tekjur umfram gjöld (350) 121 (99) 69 +253,5% +75,4%
Tap tímabilsins (229) (30) +663,3%
Efnahagsreikningur Miiyónir króna 28/2 ‘99 31/8 '98 Breyting
Fastafjármunir 5.700 5.699 0%
Veltufjármunir 1.107 1.199 ■7,7%
Eignir samtals 6.807 6.898 ■1,3%
Eigið fé 1.348 1.592 ■15,3%
Langtímaskuldir 3.370 3.467 -2,8%
Skammtímaskuldir 2.089 1.839 +13.6%
Skuldir og eigið fé samtals 6.807 6.898 ■1,3%
Kennitölur og sjóðstreymi 28/2'99 31/8 '98 Breyting
Veltufjárhlutfall 0,53 0,65
Eiginfjárhlutfall 20% 23%
Veltufé (til rekstrar) frá rekstri Millj. kr. (75) 45
TAP af reglulegri starfsemi Bása-
fells hf. á Isafirði fyrstu sex mánuði
rekstrarársins, þ.e. frá 1. september
1998 til 28. febrúar 1999, nam 350
milljónum króna. Óreglulegar tekjur
umfram gjöld námu 121 milljón
króna og varð því 229 milljóna króna
tap á rekstri félagsins á tímabilinu.
Þetta kemur fram í árshlutareikn-
ingi Básafells sem stjóm félagsins
hefur samþykkt.
Básafell skilaði 122 milljóna króna
hagnaði fyrir afskriftir og fjár-
magnskostnað. Rekstrartekjur á
tímabilinu voru 1.891 milljón króna
en rekstrargjöld námu 1.768 milljón-
um. Afskriftir voru 221 milljón og
fjármagsnkostnaður 252 milljónir.
Veltufjármunir námu 1.107 milijón-
um króna í lok febrúar og voru
skammtímaskuldir 2.089 milijónir
króna á sama tíma. Veltufjárhlutfall-
ið er nú 0,53. Eigið fé nam 1.348
milljónum króna í lok febrúar og á
sama tíma voru heildarskuldir fé-
lagsins 5.459 milljónir. Eiginfjárhlut-
fallið er því 20%. Handbært fé frá
rekstri nam 94 milljónum króna.
Búist við að reksturinn
verði í jámum
í síðustu viku sendi Básafell frá
sér afkomuviðvörun og 1 tilkynningu
sem félagið sendi frá sér í gær kem-
ur fram að helstu ástæður þess að
afkoma félagsins er lakari en gert
var ráð fyrir í fjárhagsáætlun séu
verulegur samdráttur í rækjuveiðum
og gengistap. Rækjuveiðar hafi
gengið illa síðari hluta síðasta
rekstrartímabils, en enn verr fyrstu
mánuði þessa tímabils sem leitt hafi
til þess að áður úthlutað aflamark
var skorið niður um 33%. Þá hafi
Básafell einnig þurft að loka annarri
rækjuverksmiðju félagsins á ísafirði
vegna hráefnisskorts, en rúmlega
helmingur tekna Básafells hafi kom-
ið frá rækjutengdri starfsemi. Eftir
lokun verksmiðjunnar og samein-
ingu við Fiskiðjuna Freyju hf. og
Bræðraverk ehf. hafi þær tekjur
lækkað niður í einn þriðja af tekjum
félagsins, en tveir þriðju teknanna
koma nú frá bolfiskvinnslu og út-
gerð. Þá segir að verulegt gengistap
hafi verið af skuldum félagsins í er-
lendri mynt og þá sérstaklega
japönskum jenum.
Fram kemur í tilkynningu Bása-
fells að endurskoðuð rekstraráætlun
félagsins gerir ráð fyrir að því að
reksturinn verði í jámum á rekstrar-
tímabilinu í heild þegar óreglulegir
liðir hafi verið teknir með. Nú sé
verið að vinna að endurfjármögnun
og sé áætlað að veltufjárhlutfallið
fari úr 0,5 í 1,0 eftir þær aðgerðir.
Bjuggust við hagnaði
þrátt fyrir samdrátt
Rósant Már Torfason hjá Við-
skiptastofú Islandsbanka segir að af-
koma Básafells sé í samræmi við af-
komuviðvörun félagsins sem að vísu
hafi ekki birst fyrr en 21. apríl síð-
astliðinn.
„I fréttatilkynningu frá félaginu
kemur fram að gengistapið hafi verið
sérstaklega í japönskum jenum.
Þegar sveiflur japanska jensins
gagnvart íslenskri krónu eru skoðað-
ar á þessu sex mánaða tímabili kem-
ur í ljós að mestu sveiflumar áttu
sér stað í október 1998 þegar jap-
anska jenið styrktist um tæplega
15%. I fréttatilkynningu írá félaginu
sem birtist í nóvember á síðasta ári
kom fram að rækjuveiðar hefðu
gengið mjög illa hér við land og ef
fram héldi sem horfði veiddist ekki
nema helmingur úthlutaðs afla-
marks og þá mundu tekjur Básafells
dragast enn frekar saman.
Þrátt fyrir að forráðamenn félags-
ins hafi gert sér grein fyrir sam-
drætti í rækjuveiðum og þar af leið-
andi samdrætti í tekjum og að jap-
anska jenið hafði þá þegar styrkst
um tæp 15% þá gerðu þeir ráð fyrir í
rekstraráætlunum að félagið myndi
skila hagnaði. Tap af reglulegri
starfsemi fyrstu sex mánuði rekstr-
arársins varð síðan 350 milljónir.
Endurskoðuð rekstraráætlun gerir
ráð fyrir því að reksturinn verði í
jámum á rekstrartímabilinu í heild
þegar óreglulegir liðir hafa verið
teknir með. Það verður athyglisvert
að fylgjast með því hvað nýir hlut-
hafar hafa fram að færa til þess að
rétta fyrirtækið af,“ sagði Rósant.
Delta með
hlutafjár-
útboð
LYFJAFYRIRTÆKIÐ Delta
hf. hefur ákveðið að gefa út
nýtt hlutafé að fjárhæð 20
milljónir að nafnverði. Hluta-
féð verður selt á genginu 12 og
er því markaðsverðmæti nýs
hlutafjár 240 milljónir króna.
Astæða hlutafjáraukningar er
lokafjármögnun vegna nýrrar
lyfjaverksmiðju á athafnasvæði
fyrirtækisins. Hluthafar Delta
hf. em í dag 126 en mun fjölga
um 1.100 í lok maí en stjóm
Lyfjaverslunar íslands hefur
ákveðið að dreifa til sinna hlut-
hafa hlutabréf í Delta hf.
Hlutabréfin eignaðist Lyfja-
verslun Islands við kaup Delta
á framleiðslu- og þróunarsviði
Lyfjaverslunar Islands í lok sl.
árs.
í fréttatilkynningu kemur
fram að hlutaféð verður fyrst
boðið núverandi hluthöfum fyr-
irtækisins á tímabilinu 4. maí
til 17. maí. Það hlutafé sem
óselt kann að verða að loknu
forkaupsréttartímabili verður
boðið almenningi tO kaups frá
18. maí til 21. maí. Að loknu út-
boði verður fyrirtækið skráð á
Aðallista Verðbréfaþings ís-
lands. fslandsbanki hefur um-
sjón með útboðinu og er milli-
gönguaðili vegna skráningar
fyrirtækisins á Verðbréfaþingi
Islands.
Helstu lyf sem Delta hf.
framleiðir fyrir innlendan
markað em verkjalyfið park-
ódín, magalyfið asýran og
hjartalyfið daren, en fyrirtæk-
ið hefur markaðsleyfi fyrir
rúmlega 150 lyf á íslandi.
Delta hefur skrifað undir stóra
sölusamninga í Bretlandi og
Þýskalandi vegna tveggja lyfja
og munu þeir koma til fram-
kvæmda í lok þessa árs.
SjQlfstæðismemi
Re^jaueskjördæmi
Kveðjuhóf fyrir Ólaf G. Einorsson, forseta Alþingis
og fyrrverondi róðherro, verður holdið í Kirkjuhvoli,
Gorðobæ, lougordoginn 1. maí nk. kl. 17:00-19:00.
Allir velkomnir
www.xd-reijigones.is
Kjördæmisród Sjólfstæðisflokksins í Reykjaneskjördæmi aD
FBA með 362 milljónir
í hagnað fyrir skatta
SAMKVÆMT óendurskoðuðu árs-
hlutauppgjöri nam hagnaður af
rekstri Fjárfestingarbanka atvinnu-
lífsins fyrstu þrjá mánuði ársins
1999 rúmum 362 milljónum króna
fyrir skatta, og er þetta meiri hagn-
aður en var fyrstu sex mánuði árs-
ins 1998. FBA birtir nú ársfjórð-
ungstölur úr rekstrinum í fyrsta
sinn og er það í samræmi við þá
stefnu stjómar bankans að upplýsa
hluthafa um rekstur bankans fjór-
um sinnum á ári.
„Við erum mjög sátt við niður-
stöðu fyrsta ársfjórðungs. Hann
kom mun betur út en við vorum að
gera ráð fyrir í upphafi árs. Þar
kemur margt til. Fyrir það fyrsta
hagstæð ytri skilyrði á þessum
tíma, og svo hitt að við erum famir
að uppskera því sem við sáðum í
viðskiptasamböndum og þjónustu
við okkar viðskiptavini á seinasta
ári,“ sagði Bjami Armannsson, for-
stjóri FBA, í samtali við Morgun-
blaðið.
í rekstraráætlun sem kynnt var í
útboðslýsingu bankans var gert ráð
fyrir 890 milljóna króna hagnaði, en
sú áætlun verður endurskoðuð við
birtingu hálfsársuppgjörs ef ástæða
þykir til. I fréttatilkynningu segir
að sveiflur í ytri skilyrðum geti
valdið snöggum breytingum á af-
komu bankans og rétt sé að vekja
athygli á að hér sé um stutt tímabil
að ræða.
Vaxtatekjur fyrstu þriggja mán-
aða ársins 1999 vora 1.235 milljónir
króna og vaxtagjöld 977 milljónir
króna. Aðrar rekstrartekjur námu
358 milljónum króna og hreinar
rekstrartekjur því 616 milljónir
króna. Onnur rekstrargjöld voru
173 milljónir, 81 milljón var lögð á
afskriftareikning og hagnaður fyrir
skatta því 362 milljónir króna.
Hagnaður fyrstu þriggja mánaða
ársins 1999 er meiri en hagnaður
fyrstu sex mánaða ársins á undan
þegar hagnaður var 357 milljónir
króna fyrir skatta, en árið 1998 var
fyrsta starfsár bankans. í uppgjörs-
tölum má sjá að aðrar rekstrartekj-
ur námu 160 milljónum króna fyrstu
sex mánuði ársins 1998, en þær voru
358 milljónir fyrstu þrjá mánuði
þessa árs eins og áður sagði.
„Aðrar rekstrartekjur eru aðal-
lega gengishagnaður vegna sölu á
markaðsskráðum hlutabréfum og
skuldabréfum. Það fer mjög eftir
markaðsaðstæðum á hverjum tíma
hverjar aðrar rekstrartekjur era, en
á þessum tíma voru aðstæður okkur
mjög hagfelldar. Við höfum ekki
gert ráð fyrir söluhagnaði hluta-
bréfa í Baugi hf. sem kemur inn í
aprílmánuð, þannig að annar árs-
fjórðungur fer einnig vel af stað. En
það er erfitt um þetta að spá til
framtíðar vegna þess hversu háð
þetta er ytri aðstæðum,“ segir
Bjami.
Vöxtur efnahagsreiknings var um
4% á fyrstu þremur mánuðum árs-
ins og er það í samræmi við stefnu
bankans um aðhaldssemi í útlánum.
Heildareignir FBA nema nú 75,8
milljörðum króna en námu 72,8
milljörðum króna í árslok 1998. Eig-
ið fé bankans að loknum fyrsta árs-
fjórðungi var 8.696 milljónir króna,
að teknu tilliti til 544 milljóna króna
arðgreiðslu til hluthafa vegna ársins
1998. Bankinn mun fyrirsjáanlega
nýta að fullu það skattalega tap sem
hann átti í byrjun árs að fjárhæð
340 milljónir króna. Hluthafar FBA
era nú 3.950 talsins.
7\n ilmefna
An litarefna
íshöfn ehf.
Snyrtivörukynning á
Simple húðvörum í Lyfju
Lágmúla í dag kl. 13-16
20% kynningarafsláttur
Cb LYFJA
LYF Á LÁGMARKSVERDI
Lágmúla, Setbergi.