Morgunblaðið - 01.05.1999, Síða 42

Morgunblaðið - 01.05.1999, Síða 42
42 LAUGARDAGUR 1. MAÍ 1999 [J 1 MORGUNBLAÐIÐ 1 ÚTI AÐ BORÐA MEÐ FLEMMING M0RCH 1 SENDIHERRA Danskara getur ekki Flemming M0rch, sendiherra Dana --7-------------------— á Islandi, hefur aðeins dvalið hér á landi í þrjá mánuði, en kveðst þegar kunna vel við sig enda hvarvetna mætt hlýhug og ----------77--------------- velvild af hálfu Islendinga. I hádegisverð- arspjalli við Svein Guðjónsson ræðir hann -------------------————j,-- um starf sitt, samskipti Dana og Islend- inga og sitthvað fleira. Morgunblaðið/Sverrir FLEMMING Merch sendiherra: „íslendingar og Danir eiga margt sameiginlegt." AÐ lá eiginlega beint við að fara á „Jómfrúna“ í Lækjar- götunni. Ekta danskt smur- brauð, danskur matseðill og Tu- borg-bjór. Sendiherrann er sam- mála þessu, enda hafði hann enn ekki látið verða af því að heimsækja staðinn og þótti tími til kominn. „Eg ætla að fá mér hakkabuff með spældu eggi,“ segir hann eftir að hafa skoðað matseðilinn. „Danskara getur það ekki orðið,“ bætir hann við brosandi. Undirritaður ákveður að fylgja fordæmi sendiherrans. Það er greinilegt á öllu að hér ríkir hefð og handbragð danskrar matreiðslu. Eigandi staðarins, Jak- ob Jakobsson, er líka fyrsti karl- maðurinn í heiminum til að útskrif- ast sem „smorrebrodsjomfru" frá Idu Davidsen í Kaupmannahöfn. Hann kaus að halda starfsheitinu og um það var skrifað í dönsk blöð á sínum tíma, í einu þeirra undir fyri- sögninni: „Jakob er jomfru." Og hér er vitaskuld komið nafnið á staðn- um. Jakob stendur glaðbeittur fyrir innan afgreiðsluborðið og spyr hvort við viljum fá okkur snafs fyrir matinn. Hann er með alla Álaborg- arlínuna í ákavítinu: Den rpdc, jubelæum, porch, export og extra og að auki „kvindesnapsen" den blá. I Danmörku hefðum við eflaust látið þetta eftir okkur, en hér á landi fær maður sér ekki snafs í hádeginu á virkum degi. Við fáum okkur þó lít- inn Tuborg með matnum. Þó það nú væri! Hlýhugur og velvild - Blaðamaðurinn hefur á orði að íslendingar geti mikið lært af Dön- um hvað varðar þá list að „hygge sig“ og þykist tala af reynsiu eftir tveggja mánaða dvöl í Arósum. Hann spyr sendiherrann hvort hann hafí orðið var við einhvem mun á íslendingum og Dönum hvað vai'ðar almenn lífsviðhorf og hvern- ig íslendingar komi honum fyrir sjónir, svona við fyrstu kynni. „Eg er nú kannski ekki rétti mað- urinn til að svara þessu með mis- munandi lífsviðhorf Dana og íslend- inga. Til þess hef ég ekki verið hér nógu lengi, en ég held þó að það sé býsna margt líkt með þessum tveimur frændþjóðum. Eg hef hvar- vetna fundið fyrir miklum hlýhug og velvild í garð okkar Dana og það er mikils virði, þegar maður kemur í nýtt land og nýtt starfsumhverfi, að fínna fyrir svo jákvæðu viðmóti. Og mér er ljúft að játa að ég hef aldrei í mínu starfí fundið fyrir við- líka hlýhug og ég hef mætt hér í Reykjavík. Islendingar og Danir eiga margt sameiginlegt, bæði í sögulegu og menningarlegu tilliti. Þótt ég hafi ekki verið hér lengi tej ég mig hafa séð margt líkt í fari íslendinga og Dana og það gildir ekki aðeins um menningu og sameiginlega sögulega arfleifð. Ég hef til dæmis orðið var við að íslendingar eru „veisluglaðir" engu síður en Danir. Þegar ég kom hingað til lands fannst mér, eftir að hafa starfað í ýmsum löndum með mismunandi menningararfleifð, ég vera kominn hálfa leið heim. Bara það að sitja hér og spjalla við blaðamann á dönsku segir sína sögu. Það er ein- stakt að vera sendiherra í öðru landi og geta talað móðurmál sitt við nánast hvern sem er. Síðan ég kom hef ég sjaldan orðið að grípa til annars tungumáls en móðurmáls- ins, heldur hef ég talað dönsku við flesta embættismenn, stjómmála- menn og almenning, sem ég hef átt samskipti við. Það er ekki svo lítils virði. Ég geri mér samt grein fyrir því að íslendingum er tamara að bregða fyrir sig ensku og unga fólk- ið talar auðvitað mun betri ensku en dönsku. Þar koma meðal annars til sterk áhrif sjónvarps og tölvutækn- innar. Þessara áhrifa gætir einnig mjög meðal ungs fólks í Danmörku. En sem Dani er ég ákaflega upp með mér af því að danska skuli vera fyrsta erlenda tungumálið, sem kennt er í skólum hér á landi. Það út af fyrir sig styrkir hin mikilvægu sögulegu og menningarlegu tengsl, sem ávallt hafa ríkt milli Dana og Islendinga. Mikilvægur hluti af mínu starfi er eimitt að rækta þessi tengsl.“ - Blaðamaður reynir aftur að víkja talinu að muninum á Dönum og Islendingum, með skírskotun til áðurnefndrar reynslu frá Árósum og lýsir þeirri skoðun sinni að Danir séu ívið afslappaðri í viðhorfum sín- um til lífsins. Svona þægilega „ligeglad" eins og stundum er sagt: „Pað er meira stress hér á Islandi og margir óþarflega uppteknir af veraldlegum hlutum, eins og því að eignast stærri bíla, fleiri farsíma og þess háttar..." „Ef þú átt við kaupgleði, eru nú margir Danir haldnir henni líka. Munurinn er kannski sá að kaup- geta íslendinga, svona almennt, er líklega meiri.“ Hin hefðbundna leið Sendiherrann er ánægður með matreiðsluna á hakkabuffinu og ég Vor í sinni draums DRAUMSTAFIR Kristjáns Frímanns Mynd/Kristján Kristjánsson LEYSINGAR. VORIÐ er komið, landið losnar úr klakaböndum og vaknar til lífs með leysingum hækkandi sólar og lengri dags. Þessi táknræna mynd er einnig mynd draumsins af losun hugarfars úr viðjum vanans, með huglægum leysingum hækkandi vitundarstigs og aukinnar innsýn- ar. Að skoða drauma sína meðvit- að og grunda táknin til skilnings á þeim meiningum sem draumurinn ber á borð að næturlagi er ekki bara skoðun á eigin sjálfi og hugs- anlegri opnun á æðri vitsmuni, hann er lykill að sjálfri vitundinni og víkkun hugans, að hugmyndun- um! Draumurinn er gáttin að þeim sviðum vitundarinnar sem kölluð er snilli og við dáumst að hjá skákséníum, vísindamönnum eins og Kára Stefánssyni og listamönn- um á borð við Karl Kvaran, en eru flestum okkar lokaðar. Þar sveifl- ast dyr skynjunar frá draumi til vöku, frá dulvitund til meðvitund- ar og sópar framförum í hug- myndavinnu til hugans sem hvílir á rafbláum kvörkum í draumi næt- ur. Með hækkandi sól morgun- dagsins og vaknandi hug verður sú vinna að raunverulegum hug- myndum til sköpunar verðmæta á torgi íslensks atvinnulífs. Gróska draumavorsins verður að lárviði framtíðar þar sem ísland er orðið að hátæknivæddu samfélagi hug- myndaríkra einstaklinga sem byggja grunn sinn á útsjónarsemi fortíðar og seiglu, þjóðlegu innsæi og draumnum með vor og gullöld í haga. Draumur „Lóu“ Mér fannst ég vera stödd í húsi þar sem húsmóðirin var að sortera eitthvað gamalt dót og mér fannst hún einnig vera að setja myndir án ramma á vegg sem var í stiga- gangi upp á aðra hæð, sem í draumnum var komin ofan á þeirra hæð. Þar var kona í heim- sókn sem ég þekki og var hún í kápu sem ég hef ekki séð hana í áður. Á vinstra hom kragans var stimpill með einhverjum línum og mér fannst það ekki móta neitt sérstakt, en ég var með stimpil í höndunum og áður en ég veit af er ég búin að setja þennan stimpil á sama horn kragans, en konan var ekki hrifin af þessu og ég bauðst til að fara með kápuna í hreinsun og ég man eftir að sjá konuna í kápunni og báðir stimplamir voru horfnir. Síðan kemur húsbóndinn heim, hann var mjög hár maður en í draumnum töluvert lægri. Hann gengur til mín, heilsar mér með handabandi og spyr mig hvort ég sé ákveðin að taka þessa ákvörðun og ég játa því, og mér finnst það vera að taka litla telpu sem ég gerði, hún var í fallegum rauðum kjól og ég var á leiðinni heim til mín, þá kemst ég að því að þetta er drengur en ekki telpa. Síðan vakna ég. Ráðning Þegar draumurinn stillir upp táknum sínum í ákveðna mynd með föstum meiningum, fer hann oft þá leið að raða þeim upp lag fyrir lag þannig að í efsta laginu er kynning á innihaldi draumsins og við hvern er átt en þar fyrir neðan kemur sagan í nokkrum lögum og svo meining draumsins og tilgangur. Þessi draumur er þannig, í efsta laginu ert þú sem húsið, húsmóðirin og hæðin ofan á þeirra. Grúskið í gamla dótinu og rammalausu myndimar í stiga- ganginum koma í næsta lagi og tala um hug þinn til að skoða liðna tíð og vilja til að laga það sem aflaga hefur farið í lífi þínu og samskiptum við aðra. Þegar í næsta lag kemur birtast fordómar (stimpillinn) þínir í garð ákveðinn- ar manneskju og þú sérð að þeir hafa ekki átt við nein rök að styðj- ast, þú ákveður því að bæta gerð- an hlut. I fjórða laginu áréttar þú ætlun þína með komu húsbóndans og þegar í fimmta lag kemur, ertu afráðin og þegar búin að snúa blaðinu við. Þar endar sagan að þér líður sem nýrri manneskju, fullri af nýrri orku og (telpan, rauði kjóllinn og drengurinn) auk- inni. „Kona úr Rvk“ sendir draum 1998 Mig dreymdi að ég var að tala við konu sem mér fannst (sá hana ekki) heita Guðrún, um eitthvað og það sem erum að tala um varð- ar aðra konu sem er Sigurðardótt- ir. Ég segi við viðkomandi: „Ég ætla að fara snöggvast og athuga þetta fyrst ég er hér,“ og mér finnst sem ég gangi upp Suður- götu eða já og ég var að fara inn í turninn hjá gömlu slökkvistöðinni í Rvk nema hvað hann er ekki þar heldur í Þingholtunum eða á Lauf- ásvegi. Ég geng inn og finnst ég i I
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.