Morgunblaðið - 01.05.1999, Side 57

Morgunblaðið - 01.05.1999, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MAÍ 1999 57 MINNINGAR + Rögnvaldur Sverrir Möller, fyrrverandi kennari í Ólafsfirði, var fæddur á Siglufírði 7. október 1915. Foreldrar Rögn- valds voru Christi- an Ludvig Möller, f. 5. apríl 1887, d. 11. ágúst 1946, verslun- armaður og lög- regluþjónn, og Jóna Sigurbjörg Rögn- valdsdóttir, f. 18. mars 1885, d. 6. febrúar 1972. Rögn- valdur kvæntist 15. apríl 1939 Kristínu Helgu Bjarnadóttur, f. 24. apríl 1919. Rögnvaldur og Kristín voru barnlaus en fóstu- dóttir þeirra er Lísbet Sigurð- ardóttir, f. 15. nóvember 1948. Börn Lísbetar eru Rögnvaldur Kristinn Rafnsson, f. 2. júní 1970, hann ólst að hluta upp hjá Rögnvaldi og Kristínu, hann er giftur Ingu Hafdísi Sigurjóns- Dags er geislai' dofna, dauðinn hraðar fór, sælt er að mega sofna með sigurbros ávör. Minning manninn lifir, að mold þótt hverfi hann. Auga þínu yfir eldur lífsins brann. (G. Kristófersson.) Nú þegar við kveðjum Rögnvald föðurbróður okkar, viljum við minn- ast hans með nokkrum orðum. Peg- ar við vorum böm vissum við af honum frænda okkar í Olafsfirði, en samgöngur voru stopular og við sá- um hann sjaldan. En þegar Múla- vegurinn var opnaður hófust árleg- ar ferðir til Siglufjarðar í gegnum Ólafsfjörð, þar sem stoppað var og heilsað upp á Rögnvald og Stínu. Minningar þessara funda eru okkur mikils virði og gott veganesti. Rögnvaldur var víðlesinn, fróður, glettinn og skemmtilegur maður. Ekki þótti okkur verra ef hann tók sér far með okkur til Siglufjarð- ar, þá kunni hann skil á hverri þúfu og fjallstoppi, bæjum og búendum dóttur, og Guðný Ósk Vilmundardótt- ir, f. 30. september 1979. Rögnvaldur ólst upp hjá móðurfor- eldrum sínuin í Ós- landshlíð í Skaga- firði 1920-1935 og var þar í vegavinnu á sumrin síðustu ár- in. Rögnvaldur tók gagnfræðapróf frá Gagnfræðaskóla Siglufjarðar 1936 og kennarapróf í Reykjavík _ 1938. Var farkennari í Ólafsfírði 1938-44 og stundaði þá ýmsa vinnu á sumrin. Einnig var hann starfsmaður hjá KEA í Ólafsfirði, síðar Kaupfélagi Ólafsíjarðar 1944-59, lengst af deildarstjóri. Var starfsmaður hjá útgerðarfélaginu Stíganda sf. 1959-67 við fiskverkun og síldarsöltun og þá oft verk- stjóri, en jafnframt við skrif- og sagði sögur er tengdust því sem fyrir augu bar. Á þessum tímum var alltaf tími til að stansa og spjalla, það er annað en í nútíma þjóðfélagi þar sem hraðinn ræður ríkjum og fólk hefur ekki tíma fyrir hvort ann- að. Rögnvaldur var nátturuunnandi og hafði gaman af að renna fyrir físk í fallegri á og margar sagði hann veiðisögurnar. Landsmálin og pólitík voru rædd með ýmsum tilbrigðum þegar faðir okkar Alfreð og Rögnvaldur hittust, og átti Rögnvaldur létt með að vera á öndverðri skoðun til að stríða hon- um og lífga þannig upp á umræð- urnar. Minningar sem þessar um Rögnvald gætu íyllt heila bók. í mars hringdi Rögnvaldur og bauð okkur til veislu 24. apríl. Tilefnið var 80 ára afmælið hennar Stínu og 60 ára hjúkskaparafmæli þeirra 15. apríl. Hann vissi sem var að þetta yrði sennilega síðasta veislan sem þau héldu. Þetta ætlaði hann að gera fyrir Stínu sína, þessa hæglátu blíðu konu sem haldið hefur glað- værð sinni þrátt fyrir að hafa misst stofustörf og fiskmat. Kennari við Barnaskóla Ólafsfjarðar 1967-80, fór þá oft á námskeið og var þrisvar settur skólastjóri í forföllum skólastjóra. Rögn- valdur var félagi í Karlakór Ólafsfjarðar 1938-67 og í stjórn kórsins um skeið. Formaður slysavarnadeildar karla í Ólafs- firði 1951-55. í björgunar- skúturáði Norðurlands 1951-58. Fréttaritari Ríkisút- varpsins 1958-74. Félagi í Rótaryklúbbi Ólafsíjarðar frá 1972. Rögnvaldur hefur starfað í ýmsum nefndum fyrir Ólafs- fjarðarkaupstað. Endurskoð- andi reikninga Ólafsfjarðarbæj- ar 1958-90, Sparisjóðs Ólafs- Qarðar 1962-90, Hraðfrystihúss Ólafsfjarðar og Utgerðarfélags Ófafsjarðar urn árabil. I byggð- arsögunefnd Ólafsfjarðar frá 1983 til loka hennar 1991. Skáldsagan „Á miðum og Mýri“ eftir Rögnvald kom út 1972 og framhald hennar „Fortíðin gleymist“ í „Heima er best“ 1974. Einnig hafa birst eftir hann ýmsar greinar í bföðum og tímaritum. _ Utför Rögnvalds fer fram frá Ólafsfjarðarkirkju í dag og liefst athöfnin klukkan 11. heilsuna, ung kona í blóma lífsins. En áður en til veislunnar kom var hann kallaður brott. Við kveðjum Rögnvald frænda okkar með þökk og virðingu. Innilegar samúðar- kveðjur til Stínu, Bettýjar og fjöl- skyldu. Handan hafsins breiða, herrans nafni í, ljóss þig dísir leiða lífsins til á ný. Friðar röðull fagur fúlla veitir sýn, þar sem dýrðardagur drottins eilíft skín. (G. Kristófersson.) Gígja, Páll, Súsanna, Alma, Erla og Jóhann G. Möller. Vorið kom að vekja ungu blómin. Vorið kom og söng þér feigðarhljóminn. Vorið kom til þín með frið og fró, flutti anda þinn í himnaró. (Ók. höf.) Pað vorar víst heldur seint á Ólafsfirði í ár. Snjór í byggð og þung snjóalög enn í fjöllum. Ystu fjöll Tröllaskagans sami farartálm- inn og ávallt áður millý grannbæj- anna Siglufjarðar og Ólafsfjarðar þó að vissulega hilli undir úrbætur í samgöngumálunum þannig að fært verði allan ársins hring. Hann lifði það ekki, hann Rögn- valdur frændi á Ólafsfirði og hefur vafalaust saknað þess oft að geta ekki hæglega brugðið sér bæjarleið til æskustöðvanna á Siglufirði. Um hásumarið kom hann þó stundum að hitta móður sína og systkini og þá kynntumst við bróðurbörn hans honum, Kristínu konu hans og Bettý dóttur þeirra og enn meira líf færðist í húsið hennar ömmu Jónu sem var „umferðarmiðstöðin" fyrir stóran hóp afkomenda henn- ar. Rögnvaldur var þriðji elstur barna Jónu Sigurbjargar og Christ- ians L. Möller lögregluþjóns á Siglufirði en alls urðu börnin átta á þrettán árum. Heimilislífið var fjör- legt, hópurinn afar líflegur, hávaða- samur og áhugasamur um íþróttir, húsbóndinn gleðimaður og söngvari en húsmóðirin félagsvera hin mesta og leikkona af áhugamennsku. Ekki voru efnin mikil og oft þröngt í búi en glaðværðin réð ríkjum flesta daga. Orlögin höguðu því þó þannig til að Rögnvaldur fór ungur til móður- foreldra sinna á Hlíðarenda í Ós- landshlíð, Steinunnar Jónsdóttur og Rögnvaldar Jónssonar, sem áður höfðu búið að Miðhúsum í sömu sveit. Eftir lát afa síns sumarið 1926 var Rögnvaldur áfram með ömmu sinni og var til heimilis hjá henni til tvítugs er þau fluttu til Siglufjarðar og í Möllershúsið. Þar lést hún rúm- lega áttræð að aldri árið 1942. Eins og algengt er um yngra fólk hafði ég lítið velt fyrir mér sögu alls þessa frændfólks míns þar til fyrir nokkrum árum. Hafði þó Möllershúsið verið fastur punkt- ur í tilverunni á uppvaxtarárunum, föðurfólkið allt sérstakir og for- vitnilegir karakterar og afkomend- ur þeirra margir góðir vinir. Þá rataði ég til Rögnvaldar á Ólafs- fírði sem kominn var á dvalarheim- ilið á Hornbrekku og spjölluðum við nokkrum sinnum saman um ættarsöguna, því að Rögnvaldur var minnugur, nákvæmur og skemmtilegur í tali. í lifandi og myndrænni frásögn hans kynntist ég lífi hans með Steinunni ömmu sinni á Hlíðarenda öll unglingsár hans. Það var töggur í gömlu konunni og hún var ákveð- in í því að hann skyldi læra það sem hægt var í farskólum og ung- lingaskólum í sveitinni en þar kom v að þau tóku sig upp til að hann gæti sest í Gagnfræðaskóla Siglu- fjarðar. Eftir það lá leið hans til kennslu sjálfur í Ólafsfirði en þangað flutti Rögnvaldur frændi minn 23 ára og þar hitti hann bráð- lega konuefnið sitt, Kristínu Bjarnadóttur. Á Ólafsfirði bjó Rögnvaldur öll sín fullorðinsár. Af lýsingum hans var alveg ljóst að bærinn varð hon- um strax afar kær og fjölbreytt trúnaðarstörf hans fyrir bæjarfé- lagið þar bera þess glögg merki að honum var treyst til farsælla verka.' Auk kennslunnar annaðist hann verslunarstörf lengi, var endurskoð- andi fyrirtækja og stofnana, lengi fulltníi í fræðsluráði bæjarins og formaður í slysavarnafélögum. Þá var hann fréttaritari blaða og út- varps og vel virkur í Rotaryklúbbi Ólafsfjarðar. Áhugi hans á ritstörfum jókst inikið á miðjum aldri. Skáldsagan „Á miðum og mýri“ kom út 1972, fjörlega skrifuð og þótti nokkuð berorð á sinni tíð. Framhaldssagan „Fortíðin gleymist“ birtist svo í tímaritinu Heima er best nokkru síðar. Rögnvaldur skrifaði líka smá- sögur og hélt til haga erindum og ýmsum pistlum sem hann flutti t.d. í Rotaryklúbbnum. Þar á meðal er athyglisverð grein um upphaf grá- lúðuveiða, vinnslu og útflutnings fyrir norðan um miðjan fjórða ára- tuginn en þessi starfsemi varð um- fangsmikil í nokkur ár. Þessa grein gaf hann mér, taldi réttilega að þetta þætti mér forvitnilegt. Sameiginlegt öllum sögum og frá- sögnum Rögnvaldar frænda míns var lifandi orðfæri og kímni, jafnvel gáski, sem ég kannaðist svo vel við frá öðru fóðurfólki mínu. Ef til vill . hefði hann kosið að geta sinnt skap- andi skrifum meira á lífsleiðinni en ég hygg þó að hann hafi fremur litið á þau sem krydd í daglega lífinu og viljað nota frásagnargleðina sér og samferðarmönnum sínum til skemmtunar. Minningin um farsælan mann mun varðveitast og ég þakka frænda mínum Rögnvaldi Möller fyrir skemmtileg kynni fyrr og síðar. Alda Möller. ROGNVALDUR SVERRIR MÖLLER MAGNÚS MÁR BJÖRNSSON + Magnús Már Björnsson fædd- ist í Reykjavík 10. júní 1978. Hann lést af slysförum 9. apríl síðastliðinn og fór útför hans fram frá Háteigskirkju 19. apríl. Elsku hjartans Maggi minn, það er komið miðnætti og ég sit hér með logandi kerti og horfi á mynd af þér. Ég á svo bágt með að trúa því að þú sért horfinn frá okkur og ég fái ekki að horfa í fallegu brúnu augun þín og taka utan um þig og segja þér hvað mér þykir vænt um þig. Þú varst alltaf litli drengurinn hennar mömmu þinnar, þótt þú værir stöðugt að minna mig á það að þú værir orðinn fullorðinn. Þú varst orðinn fullvaxta karlmaður. En ég hafði alltaf áhyggjur af þér í um- ferðinni og aldrei fegnari en þegar þú seldir bílinn þinn og keyptir þér gröfu, því að ég vissi að þú gætir ekki farið mjög-hratt á henni. Svo þennan sorgardag, um morguninn sem þú fórst aftur upp í Borgarfjörð í vinnuna til föður þíns, áður en ég fór í vinnuna, komin í skóna og ætl- aði bara að kasta á þig kveðju, var eitthvað sem ýtti mér upp stigann, mér fannst ég þurfa að kyssa þig bless og segja þér að fara varlega og spenna beltin, því að þú varst oft óduglegur við það. En sama kvöld skeður þetta hræðilega slys og þú ert allur. Maður verður samt að trúa því að það sé annað líf eftir dauðann. Það er svo margt verra en dauðinn. Það er stutt á milli gleði og sorgar, því aðeins fimm vikum áður var mikill gleðidagur í lífi systur þinnar, þegar hún gifti sig. Og þú varst bílstjórinn henn- ar og stóðst þig með prýði og við vorum öll svo stolt af þér. Svo varstu svo mikill dýravinur. Þegar kisinn okkar dó varstu kom- inn með tvo hamstra heim samdæg- urs, vildir ekki hafa húsið án dýra. Síðustu máltíð þína gafstu svo hor- uðum hundi, sem var að sniglast í kringum þig. Alltaf að hugsa um dýrin. Það var einnig gaman að íýlgjast með þér, þegar þú varst að fara út að skemmta þér. Þú varst búinn að máta allar skyrturnar þínar, oftar en einu sinni, en endaðir alltaf í þeirri sömu, hvítu skyrtunni þinni. Nú hvílir þú í uppáhalds skyrtunni þinni og vonandi nýtur þú hennar þar sem þú ert núna, elsku drengur- inn minn. Oft finnst okkur vanta klukku- stundir í sólarhringinn og jafnvel daga í vikuna. Með öðrum orðum, við lifum of hratt. Augnablikið gleymist, augnablikið sem er í raun það dýrmætasta sem við’ eigum. Ég vil þakka þér, elsku Maggi minn, fyrir allar samverustundirnar sem við áttum hérna megin. Ég fékk að hafa þig í 20 ár og ég vil þakka þér fyrir þau ár. Við höfum víst börnin okkar bara að láni, en það er sárt að hafa misst þig svona ungan. Ég veit að við eigum eftir að hittast aftm’, ég trúi því. Láttu nú ljósið þitt logaviðrúmiðmitt. Hafðu þar sess og sæti, signaði Jesú mæti. (Höf. ók.) Við fjölskyldan á Birkihlíðinni og aðrir aðstandendur viljum þakka vinum og ættingjum fyrir alla vel- vild og hjálp þeirra á síðastliðnum vikum, sem hefur verið okkur mikils virði í þessum erfiða missi. Guð geymi þig, Magnús minn. Þín elskandi móðir, Kolbrún. Ég vil ekki yrkja um dauðann nagandi vissuna moldina tómið og myrkrið vatnið og maðkana nei ekki það ekki dauðann. Leyfðu mér heldur að yrkja um lífið í augum þínum. (Ingibjörg Haraldsd.) Elsku bróðir minn, ég vil ekki trúa því að ég sé komin heim til að kveðja þig til hins hinsta - æi, von- andi bara vondur draumur - en, sama hvað ég reyni, heldur hann áfram - ég trúi því ekki - geng um í leiðslu - dofin. Ég sem hlakkaði svo til að fá að kynnast þér betur, eftir að þú varðst stór. Svo falleg- ur, svo góður, svo duglegur, svo hraustur, svo ungur og loksins bú- inn að kynnast stóru ástinni, henni Lindu þinni, og litla stráknum hennar. Minningarnar hrannast upp, fal- legar minningar um þig í þau fáu skipti sem við áttum saman, þegar ég var heima. Stundirnar sem við áttum saman tvö í bflnum, þegar þú varst að keyra mig eða sækja mig til vinkvenna minna eða ömmu Stínu, alltaf varst þú til í það, sagðir alltaf: „Já, ekkert mál.“ Ég skil það núna hvað þessar stundir vom mér dýr- mætar. Einu skiptin sem ég gat tal- að við þig í næði, bara við tvö, stóra systir og litli bróðir. Þú varst alltaf litli bróðir í mínum augum og eflaust hefurðu verið pirraður á endalausu stómsysturhjalinu. Þegar við systumar vorum að burðast með þig, litla hnullunginn okkar, og keyra þig í kerranni í Am- eríkunni. Allir sem urðu á vegi okk- ar vildu skoða þennan litla ljós- hærða, brúneygða strák og við rifn- uðum af stolti af að segja að þetta væri hann litli bróðir okkar. En vor- um hálf skelkaðar af þessari ágengni og örkuðum aftur heim með litla sólargeislann okkar, enginn mátti taka hann frá okkur. En nú er búið að taka þig frá okkur, af hverju? Lífið er skrítið. Eflaust munum við aldrei vita tilganginn með því. Ég vil trúa því að þú sért einhvers staðar á góðum stað, að þar bíði þín eitthvert annað hlutverk og að þér líði vel. En söknuðurinn er sár, svo sár að það eru ekki til nein orð sem fú honum lýst. Ég sit núna í herberginu þínu, all- ir sofnaðir, smá næði til þess að skrifa þér bréf, sem ég gerði alltof sjaldan. Lít í kringum mig, þú ert hér, ég finn það. Það er erfitt að fá ekki að njóta samveru þinnar áfram í lifanda lífi. En þú lifir enn í minn- ingunni, verður með okkur hvar sem er við emm. Ég elska þig. Börnin fæðast litlum systkinum sínum eins og ljós sé kveikt, eins og fyrstu blóm vorsins vakni einn morgun. Efþaudeyja hverfa þau til guðs, eins og draumur, sem aldrei gleymist. I sorginni mætast foreldrar og böm og verða ekki síðan viðskila. Lítill drengur liggur í vöggu sinni og hlær, þegar við grúfum okkur niður í ullarflókanum á bijósti hans. íegar mamma situr með hann í fanginu og gefúr honum brjóst, horfum við hugfangin á, hve hann er öruggur og sæll. Svo einn morgun er hann dáinn. (Jón úr Vör.) Þín systir, Olga. Sumir koma inn í líf okkar og fara fljótt aftur - Sumir verða vinir og dvelja um stund - skilja eftir falleg fótspor í hjarta okkar - Ogviðverðum-aldrei- þau sömu aftur, því að við eignuðumst góðan vin! Þinn vinur, Cecil King Lewis jr.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.