Morgunblaðið - 01.05.1999, Síða 75

Morgunblaðið - 01.05.1999, Síða 75
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MAÍ 1999 75-, KIRKJUSTARF Morgunbla3ið/Sverrir Vilhelmsson. SÖNGHÓPURINN við kvöldmessuna í Neskirkju ásamt organista (harmonikkuleikara). Á myndinni eru: Arnhildur Reynisdóttir, Davíð Ölafsson, Elín Reynisdóttir, Helga Birkisdóttir, Jóhanna Weisshappel og Steinunn Friðgeirsdóttir. Á myndina vantar: Ingvar Má, Ulfar Ormarsson og Halldór Sighvatsson. Fermingarmessa, vorferð barna- starfsins og djassmessa VORFERÐ sunnudagaskólans verð- ur farin nú á sunnudag. Farið verður upp á Akranes, skoðað steinasafn, grillað og leikið. Farið er frá kirkjunni kl. 11 og komið til baka um kl. 15. Kvöldmessa með djasstónlist verður í kirkjunni kl. 20.30. Djasskvartett Reynis Jónassonar ásamt saxafónleikaranum Halldóri Sighvatssyni spila og söngflokkurinn „Einkavinavæðingin“ syngur. Tón- list „Létt sveifla“ verður leikin frá kl. 20. Djasskvartettinn skipa: Reyn- ir Jónasson á harmonikku, Omar Ax- elsson, bassi, Edwin Kaaber, gítar og Sveinn Óli Jónsson, trommur. Þetta er í þriðja sinn sem þessir ágætu tónlistarmenn láta gamminn geisa í kirkjunni við góðar undirtektir viðstaddra. Prestur verður sr. Sig- urður Árni Þórðarson. Fermingarmessa verður kl. 11 ár- degis. Við það tækifæri verður leikið á gamla orgelið í Neskirkju í síðasta sinn. Eftir þessa helgi verður kirkjunni lokað í sumar vegna breytinga og komu nýs orgels. Stefnt er að vígslu nýja orgelsins þann 19. september kl. 14. Guðsþjónustuhald og önnur starf- semi kirkjunnar í sumar verður í safnaðarheimili í kjallara kirkjunn- ar. Börn biðja fyrir börnum frá Kosovo í GUÐSÞJÓNUSTU kl.ll þann 2. maí í Vídalínskirkju í Garðabæ verð- ur fyrirbænastund barna fyrir ung- um fórnaidömbum stríðsins í Kosovo. Prestarnir hafa fundið fyrir því að börn hafa miklar áhyggjur af jafn- öldrum sínum, sem eru ósjálfbjarga vegna ófriðarins í Júgóslavíu. Börn úr Hofsstaðaskóla og Skólakór Garðabæjar verða leiðandi í fyrir- bæninni. Guðsþjónustan er að vanda öllum opin. Prestarnir. Kaffísala KAFFISALA Kvenfélags Háteigs- sóknar verður á sunnudag í safnað- arheimil kirkjunnar og hefst hún kl. 15. Gengið er inn um aðaldyr safnað- arheimilisins að norðan. Á umliðnum árum hafa kvenfélags- konurnar verið ötular og fórnfúsar við að afla fjár til að prýða kirkjuna og sést þess víða merki. Eg hvet Háteigssöfnuð og hollvini Háteigskirkju til að sýna samstöðu með kvenfélaginu og styrkja það til góðra verka með því að koma með gesti sína á sunnudaginn og bjóða þeim upp á frábærar veitingar. Tómas Sveinsson sóknarprestur. Lok barnastarfs BARNASTARFINU í Breiðholts- kirkju lýkur á þessu vori nk. sunnu- dag 2. maí með fjölskylduguðsþjón- ustu kl. 11. Bamakórarnir syngja og afhentar verða viðurkenningar fyrir þátttöku í starfinu á liðnum vetri. Eftir hádegið verður síðan farið í stutt ferðalag. Til að gera þetta meira spennandi höfum við haft það fyrir reglu, að áfangastaðurinn er ekki gefinn upp fyrr en á hólminn kemur. Brottför verður frá kirkjunni kl. 13.30. Ferðin er að sjálfsögðu öll- um opin og er það von okkar að þetta verði raunveruleg fjölskylduferð. Sérstaklega er það nauðsynlegt að einhverjir eldri fylgi yngstu börnun- um. Kristnitökuhátíð SÍÐASTLIÐINN sunnudag 25.apríl var kristnitökuhátíð sett í Akureyr- arkirkju eins og alþjóð veit. Er ætl- unin að hátíðin standi í ein tvö ár og nái hámarki á Þingvöllum um sum- arið árið 2000. Undirbúningur há- tíðahaldanna fer nú fram um allt land og ætla menn víða að minnast merkisatburða kristnisögunnar. Sp- urningin vaknar hvort kristnitökuhá- tíðin verði fyrst og fremst röð minn- ingaráthafna um liðna tíð og list- rænna viðburða er þeim tengjast sem e.t.v. fáir hafa áhuga fyrir, eða hvort kristnitökuhátíðin bendi á lif- andi kirkju sem horfir til framtíðar og virkt afl í þjóðfélagi nútíðar og framtíðar? Um þessa spurningu verður fjall- að við guðsþjónustu í Hafnarfjarðar- kirkju sunnudaginn 2. maí. Prestur er sr. Þórhallur Heimisson. Hefst guðsþjónustan kl. 11. Eftir guðs- þjónustuna er boðið upp á umræður í safnaðarheimili kirkjunnar yfir kaffi- bolla. Digraneskirkja. Starf aldraðra á þriðjudögum kl. 11.15. Fella- og Hólakirkja. Opið hús laug- ardag fyrir unglinga kl. 21. Starf fyr- ir 9-10 ára drengi mánudag kl. 17.30. Æskulýðsstarf fyrir 9.-10. bekk mánudag kl. 20.30. Bænastund og fyrirbænir mánudaga kl. 18. Tekið á móti bænaefnum í kirkjunni. Grafarvogskirkja. Sunnudagur: Bænahópur kl. 20. Tekið er við bæn- arefnum í kirkjunni alla virka daga frá kl. 9-17, sími 567-9070. Æsku- lýðsstarf fyrir 16-18 ára kl. 20.-22. Æskulýðsstarf í Engjaskóla fyrir 9.- 10. bekk kl. 20-22. Hjallakirkja. Æskulýðsfélag fyrir unglinga 13-15 ára kl. 20.30 á mánu- dag. Seljakirkja. KFUK-fundir á mánu- dögum fyrir 10-12 ára kl. 18.30- 19.30. Mömmumorgnar þriðjudag kl. 10-12. Reykjavíkurprófastsdæmi: Hádeg- isfundur presta verður mánudag 3. maí kl. 12 í Bústaðakirkju. Bústaðakirkja. Starf TTT mánudag kl. 17. Friðrikskapella. Kyrrðarstund í há- degi mánudag. Léttur málsverður 1 gamla félagsheimilinu að stundinni lokinni. Grensáskirkja. Mæðramorgunn mánudag kl. 10-12. Allar mæður vel- komnar með lítil böm sín. Hallgríniskirkja. Æskulýðsfélagið Örk mánudag kl. 20 í kórkjallara. Laugarneskirkja. Mánudagskvöld kl. 20.12 spora hópurinn. Mánudags- kvöld kl. 20, fundur Kvenfélags Laugarneskirkju. Neskirkja. Laugardagur: Biblíulest- ur kl. 10.30. Lesið úr Matteusarguð- spjalli. Allir velkomnir. Sr. Frank M. Halldórsson. Fótsnyrting á vegum Kvenfélags Neskfrkju mánudag kl. 13-16. Uppl. í síma 551-1079. Mömmumorgunn miðvikudag kl. 10- 12. Kaffi og spjall. Ilafnarfjarðarkirkja. Kl. 11-12.30 opið hús í Strandbergi. Trú og mannlíf, biblíulestur og samræður. Leiðbeinendur sr. Gunnþór Ingason og Ragnhild Hansen. KEFAS, Dalvegi 24, Kópavogi. Al- menn samkoma kl. 14. Ræðumaður Sigrún Einarsdóttir. Þriðjud. 4. maí: Bænastund og brauðsbrotning kl. 20.30. Miðvikud. 5. maí: Samveru- stund unglinga kil. 20.30. Allir hjart- anlega velkomnir. Krossinn. Unglingasamkoma kl. 20.30 að Hlíðasmára 5. Allir vel- komnir. Landakirkja Vestmannaeyjum. Guðsþjónusta kl. 14 og vorlistahátíð. Barnakór Flúðaskóla leiðir gregorsk messusvör og syngur kór- verk undir stjórn Edit Molnár. Opn- uð verður sýning á grafiskum verk- um Þorgerðar Sigurðardóttur um heilagan Martein í safnaðarheimili Landakirkju. Kaffisopi á eftir. Barnakóratónleikar kl. 15. Litlir lærisveinar halda vortónleika sína í safnaðarheimilinu og flytja þeir 13 söngva undir stjórn Helgu Jónsdótt- ur, ásamt þriggja manna hljómsveit. Gestir á tónleikunum eru Barnakór Flúðaskóla og syngja þau nokkur lög en auk þess leika nemendur úr Tónlistarskóla Árnesinga á hljóð- færi. Aðgangur er ókeypis en Litlir lærisveinar taka á móti frjálsum framlögum. Æskulýðsfundur kl. 20.30. Hjálpræðisherinn. Sunnudag kl. 20: Hjálpræðissamkoma í umsjón Ás- laugar Haugland. Allir hjartanlega velkomnir. Klipptu toppa og sestu að fallegu morgunverðarborði Þannig berðu þig að: Ef þú vilt fá Merrild gjafavörur eða reiðufé þarftu að fylla út þennan miða og setja hann í umslag ásamt pokatoppunum. Ef þú hefur safnað pokatoppum fyrir gjafavöru sem þarf einnig að greiða fyrir getur þú annað hvort sent ávísun með eða greitt fjárhæðina inn á gíróreikning Merrild. Númer gíróreikningsins er 56 86 86 og senda þarf frumrit kvittunar ásamt útfylltum miðanum og pokatoppunum í umslagi til: Greiðsla með: Ávísun Q] Gíró Q Lene Bjerre diskamotta: Lene Bjerre brauðkarfa: Trip Trap stjakar fyrir teljós: Churchill krúsir: Trip Trap hitaplattasett: Lene Bjerre dúkur: Trip Trap framreiðslubakki: Bók um bakstur: Lene Bjerre lampi: Reiðufé: I I Ég óska eftir að fá Lene Bjerre diskamottu og sendi með: 15 stk. pokatoppa n Ég óska eftir að fá fjórar Lene Bjerre diskamottur og sendi með 30 stk. pokatoppa + greiðslu að fjárhæð 600 kr. []] Ég óska eftir að fá Lene Bjerre brauðkörfu og sendi með: 30 stk. pokatoppa + greiðslu að fjárhæð 550 kr. [~~| Ég óska eftir að fá Trip Trap stjaka fyrir teljós og sendi með: 5 stk. pokatoppa + greiðslu að fjárhæð 300 kr. □ Ég óska eftir að fá tvær Churchill krúsir og sendi með: 30 stk. pokatoppa + greiðslu að fjárhæð 500 kr. i.] Ég óska eftir að fá Trip Trap hitaplattasett og sendi með: 30 stk. pokatoppa + greiðslu að fjárhæð 600 kr. □ Ég óska eftir að fá Trip Trap hitaplattasett og sendi með: 15 stk. pokatoppa + greiðslu að fjárhæð kr. 850 kr. |~~l Ég óska eftir að fá Lene Bjerre dúk og sendi með: 40 stk. pokatoppa + greiðslu að fjárhæð 1.400 kr. I I Ég óska eftir að fá lítinn Trip Trap framreiðslubakka og sendi með: 40 stk. pokatoppa + greiðslu að fjárhæð 1.100 kr. [ j Ég óska eftir að fá Politikens Nye Bagebog og sendi með: 40 stk. pokatoppa + greiðslu að fjárhæð 550 kr. I I Ég óska eftir að fá Lene Bjerre lampa með skermi og sendi með: 60 stk. pokatoppa + greiðslu aö fjárhæð 1.800 kr. □ Ég óska eftir að fá reiöufé í skiptum fyrir pokatoppa og sendi meö: ____stk. pokatoppa (minnst 10 toppa og mest 60 toppa fyrir hvert heimili) en verðgildi hvers þeirra er 20 kr. Merrild kaffi • Pósthólf 4132 • 124 Reykjavík I I Ég óska ekki eftir að fá send önnur tilboð um gjafavörur f skiptum fyrir pokatoppa frá Merrild I framtíðinni. Lokafrestur til aö senda inn pöntun með þessum hætti er til 29. febrúar 2000. Ritaðu vinsamlegast með PRENTSTÖFUM Nafn____________________________________ Heimilisfang____________________________ Póstnr.____________Póststöö____________ Sími ___________________________________ MewUCcL -sctur brag á sérhvcm dag!
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.