Morgunblaðið - 01.06.1999, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Þak sett á greiðslur til bænda fyrir umframmjólk á verðlagsárinu
Bændur hvattir til að leita
réttar síns fyrir dómstólum
KÚABÆNDUR á framleiðslusvæði
Mjólkursamlags Kaupfélags Eyfirð-
inga eru allt annað en ánægðir með
tilkynningu frá Mjólkursamlagi
KEA, þess efnis að ekki verði greitt
fullt verð fyrir alla umframmjólk
eins og boðað var í haust. Mjólkur-
samlag KEA, eins og aðrar afurða-
stöðvar, hvatti bændur til að auka
framleiðsluna og bauð um leið, eitt
mjólkursamlaga, fullt afurðastöðva-
verð fyrir alla umframmjólk á yfir-
standandi verðlagsári, þ.e. fyrir
prótein og fitu.
Stefán Magnússon, bóndi í Fa-
graskógi í Arnarneshreppi og for-
maður Félags eyfirskra nautgripa-
ræktenda, sagði KEA ekki stætt á
því að borga ekki fullt verð fyrir um-
frammjólkina, miðað við það sem áð-
ur var ákveðið. Hann sagði að bænd-
ur yrðu að leita réttar síns fyrir
dómstólum ef þessari ákvörðun yrði
ekki breytt.
Sigurgeir Hreinsson, bóndi á
Hríshóli í Eyjafjarðarsveit og for-
maður Búnaðarsambands Eyjafjarð-
ar, sagði að þessi ákvörðun kæmi sér
mjög illa fyrir marga bændur.
„Mönnum þykir mjög hart að þegar
búið er að lofa fullu verði að ekki
skuli staðið við það, enda margir
búnir að ráðstafa þessum pening-
um.“
Misskilningur meðal bænda
Samtök afurðastöðva í mjólkuriðn-
aði, SAM, samþykktu nýlega að
setja þak á greiðslur fyrir umfram-
mjólk. Þetta var gert í ljósi þess að
mjólkurframleiðslan umfram
greiðslumark á verðlagsárinu stefnir
í að verða allt að 10 milljónir lítra,
sem er 5-6 sinnum meira en þörf var
talin íyrir í upphafi verðlagsárs.
Samkvæmt ákvörðuninni verður
greitt fyrir próteinhluta 8 milljóna
lítra umframmjólkur á landinu, eða
7,8% umfram greiðslumark. Stjórn
KEA samþykkti að fylgja eftir
ákvörðun SAM að öðru leyti en þvi
að KEA mun einnig greiða fyrir fitu-
hluta umframmjólkur allt að 7,8%
umfram greiðslumark.
Þórarinn E. Sveinsson, aðstoðar-
kaupfélagsstjóri KEA, sagði ákveð-
ins misskilnings gæta meðal bænda.
„Það verður borgað fyrir 8 milljónir
lítra á landinu öllu og við munum
standa við þau orð okkar að borga
bæði fyrir fitu og prótein. Af þessum
8 milljónum h'tra koma um 1,6 millj-
ónir lítra í hlut okkar svæðis. Síðan
verður jafnað út innan svæðis milli
einstaklinga og síðan milli svæða og
við vonumst til að þá standi ekkert
út af hér. Ef hins vegar eitthvað
stendur út af verður að skoða það
sérstaklega," sagði Þórarinn.
Stefán sagði að úr því að menn
hefðu ekki haft rænu á að hafa þak á
umframmjólkinni yrði að greiða það
verð sem lofað var í haust. „Menn
höfðu einnig möguleika á því að
draga í land í vetur og þá hefðu
bændur haft tækifæri tO að bregðast
við, annað hvort með því að kaupa
framleiðslurétt eða draga úr fram-
leiðslunni. Þessi ákvörðun nú kemur
alltof seint. Við vitum það jafnframt
að þetta kemur í hausinn á okkur á
næsta ári og jafnvel því þarnæsta og
ekkert greitt fyrir umframmjólk þau
árin. Við verðum að kyngja því en á
móti ætlumst við til að greitt verði
fullt afurðastöðvaverð fyrir alla um-
frammjólk út þetta verðlagsár eins
og búið var að lofa.“
Númer
fjúka af
bifreiðum
LÖGREGLUMENN á Akur-
eyri hafa síðustu daga verið að
klippa númer af bílum sem
ekki hafa verið færðir til skoð-
unar á tilsettum tíma eða lög-
boðin gjöld ekki verið af þeim
greidd.
Mikið hefur verið klippt síð-
ustu daga að sögn varðstjóra
lögreglunnar á Akureyri, en á
síðustu sólarhringum hafa
númer fokið af um 30 bílum
vegna vangoldinna gjalda. Þá
hafa lögreglumenn nú í maí-
mánuði límt miða á yfir 200
bíla þar sem eigendur eru
minntir á að færa bifreiðirnar
til skoðunar og fá þeir nokk-
urra daga frest til að hlýða
kallinu. Sé því ekki sinnt mega
eigendur búast við að númerin
verði fjarlægð.
Utvegssvið VMA á Dalvík flytur í nýtt húsnæði
Aðstaða kennara
og nemenda batnar
Morgunblaðið/Jónas Baldursson
Þrjátíu og þriggja ára
óhappalaus skólaakstur
Morgunblaðið/Kristj án
GRENIVÍKURSKÓLA var slit-
ið síðastliðinn föstudag og
lauk þar með 33 ára farsælum
skólaakstri Kristjáns Stefáns-
sonar á Grýtubakka II. Gói, en
Áverkar í andliti
eftir líkamsárás
UNGUR maður hlaut talsverða
áverka í andliti eftir að annar ungur
maður réðst að honum skammt ut-
an við anddyri Fosshótels KEA.
Arásin var tilkynnt til lögreglu laust
fyrir kl. 6 á sunnudagsmorgun, en
vitni að atburðinum létu vita. Arás-
armaðurinn var handtekinn og
vistaður í fangageymslu lögreglunn-
ar, en hann var yfírheyrður á
sunnudag og sleppt að því loknu. Að
því er best er vitað var árásin tilefn-
islaus.
það hefur Kristján ætíð verið
nefndur í skólabflnum, hóf
akstur við Grenivíkurkskóla
árið 1966 á Land Rover-jeppa
og hefur hann aldrei orðið
fyrir óhappi öll þessi ár. Oft
hefur hann verið á ferðinni í
mikilli ófærð og vondum veðr-
um;
Á annað hundrað börn hafa
notið þjónustu Góa í gegnum
tíðina. Fyrir um tíu árum var
reiknað út að Gói væri búinn að
aka ámóta leið og til tunglsins
og hálfa leið til baka. Því má
gera ráð fyrir að Gói væri kom-
inn heim aftur, hefði verið lagt
upp í slíka langferð.
Við skólaslitin voru Góa
færðar þakkir fyrir starf sitt og
fékk hann blómvönd að leiðar-
lokum.
ÚTVEGSSVIÐ Verkmenntaskól-
ans á Akureyri, VMA, á Dalvík
verður flutt í nýtt húsnæði, í gamla
barnaskólann á staðnum, og verður
unnið að endurbótum á því nú í
sumar. Við það batnar aðstaða
nemenda og kennara til mikilla
muna.
Stýrimannaskóli hefur verið
starfræktur á Dalvík frá árinu 1981
þegar kennsla til 1. stigs skip-
stjórnarprófs hófst þar, 2. stiginu
var bætt við árið 1987 og ári síðar
hófst kennsla til fiskiðnaðarprófs
auk 1. árs almenns náms. Nú er þar
starfrækt útvegssvið VMA og er
boðið upp á nám á fjórum brautum;
almennri braut, sjávarútvegsbraut,
fískvinnslubraut og skipstjórnar-
braut.
Björn Bjömsson kennslustjóri
sagði að í kjölfar þess að útvegs-
sviðið verði flutt yfir í gamla barna-
skólann aukist húsnæðið til muna
og rýmra verði um starfsemina.
Tónlistarskólinn er til húsa á sama
stað og munu kennarar samnýta
ýmsa aðstöðu, s.s. kennara- og
kaffistofur. Áður hefur kennsla far-
ið fram á efstu hæð Ráðhúss Dal-
víkur og einnig í skrifstofuhúsnæði
hjá KEA á staðnum og nú síðast
var kennt í heimavistarhúsnæðinu,
en þar eru þrjár kennslustofur og
tölvustofa auk þess sem sviðið hef-
ur aðgang að húsnæði í viðbygg-
ingu við heimavistina.
I nýja húsnæðinu eru nú tvær
rúmgóðar kennslustofur, 45 fer-
metrar hvor, og verður þeim skipt
niður í smærri stofur en þannig
nýtist plássið betur, enda ekki svo
margir nemendur í hverjum bekk.
Þá verður útbúin sérstofa þar sem
settur verður upp hei-mir. Einnig
verður komið upp þar fagbóka-
safni, þar sem verður að finna blöð,
bækur og tímarit um allt það sem
tengist fiskveiðum og vinnslu og
siglingum, en þegar er þó nokkuð
til af slíku efni. „Við vonum svo að
einhverjir vilji styrkja okkur í
þessu, t.d. þeir sem eiga efni af
þessum toga sem ef til vill ætti bet-
ur heima á fagbókasafni," sagði
Björn.
Framkvæmdir munu standa yf-
ir í sumar við breytingar á nýja
húsnæðinu og verður það tilbúið í
haust. „Við verðum mun betur í
stakk búin til að taka á móti þeim
nemendum sem hafa hug á að
stunda nám hjá okkur,“ sagði
Björn, en hann sagði að eftir að
skipstjórnarnámið var lengt um
tvö ár, úr tveimur í fjögur, hafi
margir hugsað sig um tvisvar og
nokkur lægð komið í aðsókn. „Það
tekur alltaf töluverðan tíma að
laga sig að nýju kerfi,“ sagði
hann.
Starfsemi útvegssviðsins á Dal-
vík er mikilvæg bæjarfélaginu, en á
síðasta ári stunduðu 53 nemendur
nám við sviðið. „Það má því alveg
segja að starfsemin hafí svipuð
áhrif og Háskólinn á Akureyri hef-
ur á bæjarfélagið á Akureyri. Nem-
endur koma víða að af landinu, en
heimavistarpláss er fyrir 40 nem-
endur. Á næsta ári er fyrirhugað að
gera breytingar á heimavistinni í
samræmi við auknar kröfur not-
enda.
Góður stuðningur
Útvegssviðið á Dalvík hefur
einnig til afnota kennsluhúsnæði
undir verklega kennslu í tengslum
við Snæfell, en Björn sagði fyrir-
tækið alla tíð hafa verið mjög vel-
viljað og samstarfið hafí verið gott.
Ymis önnur fyrirtæki hafa einnig
lagt sitt af mörkum til uppbygging-
ar, s.s. Marel sem gefið hefur tæki
og Kerfi sem séð hefur skólanum
fyrir forritum af nýjustu gerð.
„Með þessum stuðningi hefur okk-
ur tekist að reka útvegssviðið með
hagkvæmum hætti, við höfum kom-
ist hjá því að þurfa að fjárfesta í
dýrum tækjum vegna þessa stuðn-
ings,“ sagði Bjöm.
Björn sagði skólann vel búinn
tækjum en fullkominn siglinga- og
fiskleitarhermir er til í skólanum
sem og einnig fjarskiptahermir, en
frá því hann var tekin í notkun í
nóvember síðastliðnum hafa yfir 70
manns útskrifast af námskeiði sem
haldin voru fyrir starfandi skip-
stjórnendur.
Atvinnuþróunarfélag
liyjafjarðar
Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar verður
með kynningarfundi um starfsemi félagsins
á eftirfarandi stöðum í byrjun júní:
Miðvikudaginn 2. júní, hótelinu í Ólafsfirði, fiá kl. 10.00 til 11.30.
Miðvikudaginn 2. júní, Café Menning, frá kl. 14.00 til 16.00.
Fimmtudaginn 3. júní, Gistiheimilinu Miðgörðum, Grenivík, frá kl. 10.00 til 11.30
Föstudaginn 4. júní, Fiðlaranum, 4. hæð, Skipagötu 14, Akureyri, frá kl. 16.00 til 18.00.
Sveitarstjórnamenn, atvinnurekendur og ibúar á Eyjafjarðarsvæðinu eru hvattir til að
mæta og kynna sér starfsemi félagsins.