Morgunblaðið - 01.06.1999, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚNÍ 1999 31
Belgrad, Brussel. Reuters.
TALIÐ er að a.m.k. sautján manns
hafi farist í loftárásum Atlantshafs-
bandalagsins (NATO) á byggingar
serbnesks heilsuhælis í gær. Jú-
góslavneska fréttastofan Beta
sagði frá því að tölur um fallna
eldri borgara og flóttamenn sem í
heilsuhælinu bjuggu kunni að
hækka en tvö flug-
skeyti orrustu-
þotna NATO
hæfðu bygging-
arnar sem standa
við bæinn Sur-
dulica.
Alls er talið að 37
borgarar hafi týnt
lífi í Júgóslavíu
undanfama sólar-
hringa í kjölfar
hai-ðnandi loftárása
NATO að degi til.
Talsmenn banda-
lagsins hafa lýst því
yfir að stigmögnun
hernaðaraðgerð-
anna sé gerð með
það að markmiði að
lama júgóslavneska
herinn og brjóta
skipulega niður
samgöngu- og sam-
skiptamannvirki
Serba. Markmiðið
sé enn að hrekja
Serba frá Kosovo-
héraði og gera
flóttamönnum af al-
bönskum uppruna
kleift að snúa til
síns heima í fylgd
alþjóðlegs friðar-
gæsluliðs.
Afleiðingar loftárása NATO
snemma í gær voru þær að stór
hluti íbúa Belgrad, Vojvodina-hér-
aðs og borgarinnar Nis, í suður-
hluta Serbíu, voru án hita og raf-
magns í gær.
Fulltrúar Orkustofnunar Serbíu
sögðu í gær að ómögulegt væri að
koma á eðlilegri dreifingu rafmagns
um landið eftir loftárásir NATO að-
faranótt mánudags. „NATO sýndi
það og sannaði að markmið þess er
UCK og serbnesk-
ar hersveitir berj-
ast um yfírráð í
suðurhluta Kosovo
Reuters
VERSLUNAREIGANDINN Hasan Qarri heldur hér á Kalashnikov-
vélbyssu sinni í þorpinu Qarra í Kosovo-héraði, nærri landamærum
Albaníu. Serbneskar hersveitir eru taldar halda sig nokkra kíló-
metra frá þorpinu og hafa íbúar þess þvi búið sig undir hið versta.
að valda sem mestri mannlegri neyð
með því að fyi-irbyggja eðlilegt
orkuflæði, [...],“ sagði í yfirlýsingu
Orkustofnunarinnar.
Harðar árásir hafa verið gerðar á
Kosovo-hérað undanfama daga en á
sunnudagskvöld var talið að um 40
flugskeyti hefðu hæft skotmörk í
borgunum Pristina, Prizren, Dja-
kovica og Urosevac. Talsmenn
bandalagsins hafa sagt að markmið-
ið sé að ráðast gegn vopnuðum
sveitum Serba sem berjist við liðs-
menn Frelsishers Kosovo (UCK) á
þessum slóðum.
Talsmenn NATO viðurkenndu í
gær að þeir liðsmenn UCK sem
berjast gegn Serbum um yfirráð yfir
afar mikilvægu fjallaskarði í suður-
hluta Kosovo, högnuðust á loftárás-
um bandalagsins.
Sögðu þeir jafn-
framt að UCK hafi
náð tangarhaldi á
þremur þorpum í
kjölfar þess að Ser-
bar flúðu undan
flugskeytum
NATO. „Markmið
okkar, að ráðast
gegn vopnuðum
sveitum Serba hvar
sem þær kunna að
halda sig innan
Kosovo, er skýrt.
[...] Ef sveitir UCK
ná að hagnast á að-
gerðum okkar er
ekkert meira um
það að segja,“ sagði
Jamie Shea á
blaðamannafundi í
Brussel í gær.
Konrad Freytag,
ofursti og talsmað-
ur herdeilda
NATO, sagði á
sama fúndi að Pa-
strik-fjall á landa-
mærum Kosovo og
Albaníu væri hem-
aðarlega afar mikil-
vægur staður þar
eð þaðan sé unnt að
stjóma samskipt-
um og birgðaflutningum til Kosovo-
héraðs. „Ailmikill fjöldi vel vopnum
búinna serbneskra hermanna er tal-
inn halda sig á þessu svæði,“ sagði
Freytag. „Ormstuvélar NATO nýta
sér þetta tækifæri til árása.“ Sögðu
þeir Jamie Shea að þetta væri enn
ein ástæða þess að Slobodan Milos-
evic Júgóslavíuforseti ætti að hætta
stríðsrekstri sínum í Kosovo og fall-
ast á skilyrði alþjóðasamfélagsins
um friðsamlega lausn deilunnar.
Úrskurður júgóslavnesks herréttar í Serbíu
Hj álpar starfsmenn
fundnir sekir um njosnir
Sydney^ Jóhannesarborg, Lundúnum. AFP.
JÚGOSLAVNESKUR herréttur
dæmdi á sunnudag áströlsku hjálp-
arstarfsmennina tvo sem verið hafa í
haldi frá 31. mars sl., í tólf og fjögur
ár í fangelsi fyrir að hafa stundað
njósnh’ í Júgóslavíu. Að auki var
júgóslavneskur samstarfsmaður
þeima dæmdur í sex ára fangelsi, en
réttarhöldin fóru fram fyrh- luktum
dyrum. Aströlsk yfirvöld brugðust
hart við dómnum, en margir ráða-
menn og hjálparstarfsmenn segja
ásakanirnar á hendur mönnunum
byggjast á ósannindum.
Upphaflega voru mennh-nir
ákærðir fyrir að hafa haft í hyggju
að setja á laggirnar njósnahring, en
engin sönnunargögn fyrir því fund-
ust. Akærunni var því breytt og þeir
sakfelldir fyrh- að hafa komið leyni-
legum hernaðarupplýsingum til Atl-
antshafsbandálagsins (NATO).
Lögfræðingar þeirra sögðust eftir
réttarhöldin, sem fram fóru í
Belgrad, höfuðborg Serbíu, ætla að
áfrýja dómnum sem Alexander
Downer, utanríkisráðhen'a Ásti-alíu,
sagði vera bæði „óskiijanlegan og
eríjtt að réttlæta".
I úrskurði yfirdómarans, Ratko
Korlat, sagði m.a. að „dómstóllinn
hefði fengið sannanh- fyrir því að
hinir ákærðu, hjálparstarfsmenn hjá
CARE, hefðu lekið upplýsingum til
samtakanna, sem sumar teljast til
hemaðarleyndarmála og því flokkist
verknaður þeirra undir njósnir".
Sakleysi mannanna
ítrekað haldið fram
Áströlsk yfirvöld segja mennina
hins vegar saklausa og þau muni
halda áfram að reyna að fá þá lausa
úr haldi og dóminn ógildan. Yfirmað-
ur CARE sagði úrskurðinn hafa ver-
ið reiðarslag þar sem sönnunargögn-
in hafi án alls efa bent til að menn-
imir hefðu ekki stundað njósnir.
Talið er að mennirnir hafi verið í
einangrun frá því að júgóslavneskar
hersveitir tóku þá til fanga á landa-
mærum Króatíu og Serbíu. I ríkis-
sjónvarpi Serbíu fyrir skömmu, við-
urkenndi annar áströlsku mannanna
að hafa njósnað, en útlit hans bar
það með sér, að sögn ástralskra
stjórnvalda, að hann hefði verið illa
haldinn og framburður hans knúinn
fram með valdi.
Nelson Mandela, fráfarandi for-
seti Suður-Afríku, hefur auk annarra
ráðamanna ítrekað reynt að fá yfir-
völd í Serbíu til að fella niður ákæru
á hendur mönnunum, en án árang-
urs. í gær vísaði Dragan Dra-
gojlovic, sendiherra Júgóslavíu í
Astralíu, á bug að mennirnir væru
saklausir en gaf í skyn að hugsan-
lega yrðu áströlsku mennirnir látnir
lausir úr haldi fyrr, hætti NATO
loftárásum á Júgóslavíu.
AP
HELEN McHendry, eitt barna Jean McConvilie, beið þess í gær, ásamt
eiginmanni sinum Seamus, að likamsleifar móður hennar fyndust, en
Helen, sem var elst níu barna McConville, hefur beðið þess í tuttugu og
sjö ár að fá að veita móður sinni sómasamlega greftrun. IRA myrti
McConville árið 1972.
Grafíð eftir líkiim
„horfínna fórnar-
lamba“ IRA
Dublin. Reuters.
ÍRSKA lögreglan hélt í gær áfram
leit að líkum átta fómarlamba Irska
lýðveldishersins (IRA) sem liðs-
menn hersins rændu og myrtu á
áttunda áratugnum. Uppgröftur
hafði hafist á sunnudag á sex stöð-
um í austurhluta írlands eftir að
ábendingar úm hvar líkin væri að
finna bárust nefnd sem skipuð var
af írskum og breskum stjórnvöldum
í því skyni að styðja við baráttu
nokkurra fjölskyldna á N-írlandi
fyrir því að endurheimta líkamsleif-
ar ástvina sinna, svo þeim mætti
veita sómasamlega útfór.
Uppgröfturinn reyndist árang-
m-slaus á sunnudag og gekk harla
illa í gær enda upplýsingar um stað-
setningu þeirra ónákvæmar, auk
þess sem meira en tuttugu ár eru
liðin síðan þau voru grafin í jörðu,
og staðhættir því í mörgum tilfell-
um aðrir. T.a.m. er nú bílastæði þar
sem lögreglu var tjáð að lík níu
barna móður, Jean McConville,
væri að finna, um áttatíu kílómetra
norður af Dublin. Böm McConville
voru öll saman komin í bænum Car-
lingford í Louth-sýslu og biðu þess
að lögreglan græfi upp lík móður
þeirra, en hún hvarf árið 1972.
Þetta mun aðeins vera í annað
skipti sem öll systkinin níu koma
saman frá því móðir þeirra hvarf.
Faðir þeirra hafði látist ári áður og
eftir hvarf móður þeirra þurfti að
senda bömin á munaðarleysingja-
hæli. Ekki reyndist unnt að senda
þau öll á sama hælið, og hafa þau
einungis einu sinni áður öll komið
saman á sama stað, eins og áður
sagði.
A föstudag hafði IRA vísað á lík
Eamons Molloys, sem hvarf spor-
laust árið 1975. Kista með líki hans
fannst í afskekktum kirkjugarði
nærri bænum Dundalk, þar sem
IRA hafði skilið hana eftir.
Leið til að auka fylgi Sinn Féin?
Um helgina vom uppi getgátur
um það að með því að koma til móts
við kröfur ættingja „hinna horfnu
fórnarlamba", en það em þeir kall-
aðir sem talið er öruggt að IRA
myrti, en hvers lík hafa aldrei kom-
ið í leitirnar, væri IRA að gefa til
kynna ásetning sinn um að binda
enda á ofbeldisherferð sína, sem
staðið hefur um þriggja áratuga
skeið. Á hinn bóginn töldu margir
að frumkvæði IRA nú tengdist
meira Evrópuþingkosningunum,
sem fram eiga að fara 10. júní næst-
komandi, og að markmiðið væri að
styrkja stöðu Sinn Féin, stjórn-
málaarms IRA, í baráttunni um at-
kvæði kjósenda.
Nýkomin sending
Tegund: Ecco-herraskór
Litur: Svart
Stærðir: 41-46
Tegund: Ecco-sandali
Litir: Svart og brúnt
Stærðir: 35-46
5.995
Stór hluti Serbíu
án rafmagns