Morgunblaðið - 01.06.1999, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚNÍ 1999 53IL
Tími húman-
ismans er núna
í Uundangengnum
kosningum þar sem
undirrituð var í fyrsta
sæti á lista Húmanista-
flokksins á Suðurlandi,
var haft á orði við mig
hvort Húmanistaflokk-
urinn væri ekki tíma-
skekkja. Blaðamaður
einn sagðist hafa heyrt
að menn álitu okkur
húmanista 100 árum á
undan okkar samtíð.
Nú eftir kosningar
skulum við líta á þessi
málefni, sem ýmsum
fannst svona framúr-
stefnuleg. Okkar helsta
málefni var að útrýma
fátækt. Nú vorum við ekki að leggja
það til að við íslendingar útrýmdum
fátækt í öllum heiminum heldur að-
eins hér meðal þessarar litlu þjóðar
sem er svo skyld og tengd. Við sett-
um fram þá hugmynd að þetta yrði
gert í gegnum lífeyrissjóðakerflð,
ekki vegna þess að við hefðum neitt
á móti því sem slíku eins og það er,
heldur vegna þess að okkur er
kunnugt um að í það koma á hverju
Lífskjör
Til hvers þurftum við
kosningarétt? spyr Sig-
rún Þorsteinsdóttir. Til
þess að kjósa fámenna
klíku fjórflokksins aft-
ur og aftur?
ári peningar sem myndu nægja. Við
frambjóðendur Húmanistaflokksins
settum þessa tillögu fram á ótal
fundum um allt land. Ekki einn ein-
asti meðframbjóðandi sagði eitt orð
um þessa hugmynd. Þó voru fram-
bjóðendur flestra annarra framboða
famir að taka undir að það þyrfti að
útrýma fátækt hjá þessari fímmtu
ríkustu þjóð í heimi. Þó ekkert
framboðanna væru með ákveðna til-
lögu um hvemig ætti að fara að því.
Það var ekki fyrr en eftir að ég
hafði lagt töluvert hart að meðfram-
bjóðendum mínum á fundi hjá eldri
borgurum á Selfossi, að segja sitt
álit á þessari tillögu, sem Eggert
Haukdal sagði: „Auðvitað hefði átt
að vera búið að stofna sameiginleg-
an lífeyrissjóð allra landsmanna fyr-
ir löngu, sem öllum væru tryggðar
mannsæmandi greiðslur úr.“ Ég
ætla að nota tækifærið til að þakka
Eggerti fyrir þessi ummæli.
Þessi hugmynd okkar húmanista
var nefnilega ekki svo mjög nýstár-
leg þegar allt kemur til alls. Sam-
eiginlegur lífeyrissjóður hefur oft
verið í umræðunni og getur því ekki
talist hugmynd sem við getum hrós-
að okkur af að tilheyri eitthundrað
árum utan úr framtíðinni. Öllu held-
ur það að við skyldum tengja þessar
greiðslur því að útrýma fátækt. Því
mörgum mun sennilega farið líkt og
Halldóri Ásgrímssyni, sem álítur að
þar sem fátækt hafi alltaf verið með
mannkyninu hljóti hún alltaf að
fylgja því. Þetta er nú ekki mjög
framsækið viðhorf. Við skulum
muna að fátækt er af efnislegum
toga, ekki andlegum. Það var ekki
eins og við hefðum verið að leggja
til að útrýma heimsku, sem er
meira af andlegum toga og yrði
sennilega.eitthvað flóknara að fást
við. Nei, nei, við vorum bara að
leggja til að því sem er nú þegar til
staðar væri aðeins jafnara skipt
milli þessarar stórfjölskyldu sem
Islendingar eru.
Við vorum líka að leggja til með
tillögum okkar að almenningur
hefði meira um sitt líf að segja, með
tillögum okkar um lýðræði á vinnu-
stöðum og fleiri tillögum sem
myndu þýða að fleiri
væru með í að taka
ákvarðanir en nú er.
Ég sé ekki hættuna í
því að fólk taki í ríkari
mæli þátt í ákvörðun-
um. Allir eiga sitt líf og
sína tilveru sem krefst
þess að þeir þurfa að
taka allskonar ákvarð-
anir alla tíð. Þegar bú-
ið væri að setja fólk
inn í aðstæður í fyrir-
tækinu sem það vinnur
í, er ég viss um að
flestir væru ekki síður
í stakk búnir til að
vera með í ákvörðun-
um heldur en þeir sem
teljast eigendur eða framkvæmda-
stjórar.
Virðingarleysi stjórnmálamanna
við almenning
Það er ofboðslegt virðingarleysi
gagnvart almenningi að sjá þetta
ekki og viðurkenna í verki. Þetta
virðingarleysi sýna allir þeir stjórn-
málamenn, sem treysta almenningi
ekki betur en raun ber vitni.
Því eru t.d. aldrei þjóðaratkvæða-
greiðslur hér á landi, nema um
hundahald og áfengisútsölur?
Hvers vegna var ekki þjóðarat-
kvæðagreiðsla um gagnagrunns-
málið eða hálendismálið? Hvernig
má það vera að þeir sem teljast
stjórnendur landsins skuli komast
upp með þann hroka að geta kýlt
svona mál í gegnum þingið, þrátt
fyrir háværar óánægjuraddir um
allt þjóðfélagið?
Er almenningur svona sofandi og
svona snauður að sjálfsvirðingu? Ef
svo er, er það þá ekki einmitt að
hluta til vegna þess að stjórnendur
landsins sýna okkur svo mikið virð-
ingarleysi og vantraust? Ekki með
orðum sínum heldur gjörðum.
Fljótum ekki sofandi
að feigðarósi
Til hvers vorum við íslendingai-
að losa okkur við Dani? Hefði ekki
bara verið þægilegra að láta þá um
að hugsa fyrir okkur? Til hvers
þurftum við kosningarétt, til þess
að kjósa fámenna klíku fjórflokks-
ins aftur og aftur kjörtímabil eftir
kjörtímabil? Var það virkilega til
þess að þeir gætu séð um að
breikka launabilið sífellt og skilja
heilu hópana eftir? Eða var það til
þess að þeir geti seilst æ lengra of-
an í vasa sjúklinga eftir greiðslum
fyrir þjónustu í heilbrigðiskerfinu?
Nei, lesandi minn, við húmanistar
erum ekki hundrað árum á undan
okkar samtíð. Við erum akkúrat á
réttum tíma vegna þess að aðstæður
hér á landi leyfa einmitt breytingar
eins og þær sem við leggjum fram.
Menntunarstig þjóðarinnar er
þannig og efnahagurinn líka. Það
vantar bara dálítið á að fólk almennt
hafí þá trú á sjálfu sér sem til þarf.
Leyfðu mér að segja við þig: „Þér er
alveg óhætt að hafa þessa trú á sjálf-
um þér, því þú ert miklu merkilegri
og betri en þú heldur.“
Höfundur er ístjóm Húmanista-
flokksins.
Sigrún
Þorsteinsdóttir
Bjórinn og boltinn,
ÞAÐ ER merkilegt
hvernig sumir hlutir
virðast hreint og beint
skapaðir fyrir hvor
annan. Þetta á til dæm-
is við um kaffí og
súkkulaði að mínu viti.
Fátt er eins unaðsfullt
og að sitja í makindum
og láta heitt kaffið
bræða stökkt
súkkulaðið í munni sér
og gæla við bragðlauk-
ana á leið niður í maga.
Önnur slík fyrir-
myndar tvenna er bjór-
inn og boltinn. Að vísu
var ég seinni að átta
mig á hvílíkt gæðapar var þar á ferð-
inni en síðustu misserin hafa augu
mín sem betur fer verið að upp-
ljúkast fyrir því hversu ómissandi
þáttur bjórinn er í öllum alvöru
boltaviðburðum. Ekki hefði til dæm-
is verið hægt að halda heimsmeist-
arakeppni í handknattleik hér á
landi ef bjórsins hefði ekki notið við.
Ula hefði líka farið ef borgarstjóra
hefði ekki tekist, á síðustu stundu í
fyrra, að tryggja óheftan aðgang að
bjórnum í mikilvægum úrslitaleik
hjá IÍR. Stemmningin hefði blátt
áfram verið glötuð ella.
Eins og mörgum er kunnugt hafa
knattspymufélög mörg hver barist í
bökkum fjárhagslega undanfarin
misseri. Nú er hins vegar svo komið
að KR-Sport hefur loksins komið
auga á lausnina út úr þeim leiða
vanda og sýnt lofsvert frumkvæði
með þvi að einkavæða boltann og
fjárfesta í arðvænlegri bjórsölu.
Ahugasamir íþróttaunnendur hljóta
að fagna þessari
ábyrgu framsýni og
ættu líka að kunna að
meta frumlega krá í
miðbæ Reykjavíkur
sem farin er að aug-
lýsa beinar útsending-
ar í boltanum þar sem
þjónamir bera bjórinn
fram í dómarabúning-
um. Þetta frábæra
framtak eykur að sjálf-
sögðu verulega á hina
réttu stemmningu í
kringum boltann og
ætti að vera löggiltum
dómuram hvatning til
að feta í sömu spor, til
dæmis með því að þjóna stúkugest-
um í hálfleik með líkum hætti.
Bjórinn
Er ekki orðið tíma-
bært, spyr Þórarinn
Björnsson, að huga að
nýjum landsliðsþjálf-
ara, sem er hugsjón
boltamannsins trúrri?
Annað er það líka sem er svo gott
við bjórinn. Hann stuðlar að hinu
rétta boltaútliti ef vel og drengilega
er drakkið. Þetta hefur meðal ann-
ars þá augljósu kosti að í stað þess
að bera menn út af knattspyrnu-
kránum er nóg að rúlla þeim út ef
þörf er á. Svo geta menn ekið heim í
sæludraumi og sofnað bæði fljótt og
vel þegar heim er komið.
Sem uppalandi ungra knatt-
spyrnuáhugamanna hlýt ég að
fagna þessari auknu og markvissu
tengingu milli bjórsins og boltans.
Samkvæmt athyglisverðri skoðana-
könnun Rannsóknastofnunar upp-
eldis- og menntamála fyrir fáeinum
áram kom í ljós að ungt fólk sem
stundaði mikið íþróttir drakk lítil-
lega minna en aðrir jafningjar sínir.
Nú er loks von til að þessu misræmi'*.'
verði kippt í lag og að ungir
boltaunnendur láti ekki sitt eftir
liggja í drykkjunni heldur taki virk-
an þátt í að styðja fjárhagslegan
grandvöll boltaíþróttarinnar til
frambúðar.
Eitt veldur mér þó dálitlum von-
brigðum. I nýlegu blaðaviðtali við-
urkenndi núverandi landsliðsþjálf-
ari í knattspyrnu að hann væri fyrir
allnokkra hættur í þjónustu
Bakkusar. Það getur varla þjónað
hagsmunum boltaíþróttarinnar að
sá sem bera skal hróður hennar
heimshoma á milli skuli þannig upp
á sitt eindæmi ákveða að úthýsa
sjálfri „brjóstbirtunni“ úr lífí sínu.
Ég hlýt því að spyrja: Er ekki orðið<*
tímabært að huga að nýjum lands-
liðsþjálfara sem er hugsjón bolta-
mannsins trúrri, enda hefur ís-
lenska landsliðið einungis unnið fá-
eina landsleiki undir hans stjórn og
varð að gera sér jafntefli að góðu
móti Frökkum, og það meira að
segja á heimavelli!
Höfundur er faðir tveggja bama í
boltanum.
Vandaðar
innréttngar frá
Belgíu á hagstæðu
verði.
fíAoöfítmsíim
í*|______
Eitt fjölbreyttasta
úrval innréttinga og
tækja á einum stað
á Islandi !
OPIÐ:
Mánud. - föstud. kl. 9-18,
• laugard. kl. 10-14
Innréttingar & tæki
Vib Fellsmúla
Simi 588 7332
rrrrí ráfl*fc8€?r
*
C
m