Morgunblaðið - 01.06.1999, Side 72
72 ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚNÍ 1999
MORGUNB LAÐIÐ
J
# *
r
HASKOLABIO
HASKOLABIO
Hagatorgi, sími 530 1919
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.10.
4.30, 6.45,
11.15. B.i. 16.
4.45 og 11. b. i. 16.
®j|íoíj1j|| LJyy.d
'J Ör Back To The Föture
Úr Dumb & Dumber
i - ■'
FYRIR
990 PUNKTA
FERDU I BÍÓ
Atfabakka 8, simi 587 8900 og 587 8905
www.samfilm.is
ÞORVALDUR B. Þorvaldsson, lagahöfundur, söngkonan
Selma Björnsdóttir og kærasti hennar Rúnar Freyr Gísla-
son skála í kampavíni sem þau fengu sent frá ríkisstjórn
Islands.
SÖNGKONAN Charlotte Nilsson, sem er kunn í Svíþjóð
eftir að hafa leikið í sápuóperu, fagnar sigrinum ásamt
félögum sínum.
Morgunblaðið/Ásdis
ÞÓTT ekki ynnist sigur að þessu sinni var glatt á hjalla
hjá Islendingunum.
Besti árangur Islendinga
Söngvakeppni
Evrópskra
sjónvarpsstöðva
íslendingar náðu besta árangri sínum í
Eurovision er lag Porvaldar B, Þorvalds-
sonar „All out of Luck“, í flutningi Selmu
Björnsdóttur, lenti í öðru sæti keppninnar
síðastliðinn laugardag. Sigrún Birna Birnisdóttir blaðamaður og
Ásdís Ásgeirsdóttir ljósmyndari voru meðal þeirra íslendinga
sem fylgdust með keppninni í Ráðstefnuhöllinni í Jerúsalem.
SÖNGVAKEPPNI evrópskra
sjónvarpsstöðva fór fram í
ísrael síðastliðinn laugardag
og var það í annað skipti sem
keppnin var haldin í Jerúsalem.
Mikil öryggisgæsla var um Ráð-
stefnuhöllina þar sem keppnin fór
fram enda höfðu bæði Palestínu-
menn og heittrúaðir gyðingar lýst
yfír andstöðu við það að keppnin
færi fram í borginni. Þannig var
aðliggjandi götum t.d. lokað
kvöldið sem keppnin fór fram auk
þess sem öryggisverðir lögðu hart
að áhorfendum að yfirgefa ekki
salinn nema í neyð þá þrjá tíma
sem keppnin stóð.
Mikil stemmning var meðal
þeirra 15 Isiendinga sem fyigdust
með keppninni í Ráðstefnuhöllinni
en alls voru um 2.000 áhorfendur í
salnum auk þess sem talið er að
rúmlega 300 milljónir áhorfenda
víðs vegar um heim hafi fylgst með
keppninni. Israelar hafa þrisvar
unnið keppnina og voru flytjendur
allra vinningslaga þeirra viðstaddir
keppnina á laugardag. íslenska
lagið var númer 13 í röð keppn-
islaganna og hafði Selma Björns-
dóttir verið spurð að því á blaða-
mannafundi fyrr í vikunni hvort
það gerði hana ekkert órólega.
Selma kvað það hins vegar vera
happatölu sína enda ætti hún af-
mæli þann þrettánda.
Islenski hópurinn kom á sviðið
eftir að stutt hlé hafði verið gert á
keppninni og gestir skálað í rauð-
víni. Framlagi Selmu og félaga
hennar var greinilega vel tekið af
áhorfendum og að flutningi þess
loknum mátti heyra þá hrópa
„Selma, Selma“. Eftir keppnina
hafði fólk á orði að flutningur ís-
lenska lagsins hefði tekist einstak-
lega vel og virtist fólk almennt
sammála um að það hefði notið
meiri hylli meðal áhorfenda í sal
en sænska lagið. Þá var Selma
kynnt sem eftirlæti allra þeirra
sem að keppninni komu í frétta-
flutningi ísraelska sjónvarpsins að
keppninni lokinni. Er að stigagjöf
kom magnaðist spennan meðal
stuðningsmanna íslenska hópsins
á ný enda hafði íslenska lagið for-
ystu framan af stigagjöfinni þó
það hlyti ekki hæstu einkunn fyrr
en undir miðbik talningarinnar.
Þá veittu Danir íslenska laginu
hæstu einkunn eða 12 stig og í
kjölfarið veittu Svíar og Kýpurbú-
ar því einnig hæstu einkunn.
Króatía, Slóvenía, Frakkland og
Bosnía Herzegóvina, veittu ís-
lenska laginu hins vegar engin
stig.
Undir lok stigagjafarinnar, er
Svíar og Þjóðverjar höfðu saxað á
forskot Islendinga, og spenna var í
hámarki vakti það nokkra kátínu
áhorfenda hversu ákaft stuðnings-
menn íslenska lagsins fögnuðu því
er Þjóðverjar veittu Svíum einung-
is tvö stig. Gleði þeirra var hins
vegar skammvinn enda leið ekki
nema andartak þar til ljóst varð að
Þjóðverjar höfðu einungis veitt ís-
lendingum þrjú stig.
Aður en stigagjöfinni lauk varð
síðan ljóst að sænska lagið „Take
Me to Your Heaven", í flutningi
Charlotte Nilsson, hafði borið
sigur úr býtum og á sjónvarps-
skjám mátti sjá Nilsson fagna
sigri og taka við hamingjuóskum
Selmu Björnsdóttur. Dana
International, sigurvegari síðasta
árs, kom síðan fram á sviðið til að
veita Nilsson sigurlaunin, styttu
eftir hinn fræga listamann
Ya’acov Agam. Ekki vildi hins
vegar betur til en svo að söngkon-
an, sem klædd var ákaflega
þröngum kjól, kikknaði undan
þunga styttunnar og féll í gólfið.
Keppninni lauk síðan með því að
allir flytjendur minntust þjáninga
fólks á Balkanskaga með því að
syngja ísraelska vinningslagið
Hallelujah.