Morgunblaðið - 01.06.1999, Page 76
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.1S, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
ÞRIÐJUDAGUR 1. JUNI1999
VERÐ I LAUSASOLU 150 KR. MEÐ VSK
Undirbúningur fjárlaga er seinna á ferðinni en venjulega vegna kosninganna
UNDIRBUNINGUR fjárlaga var
ræddur á fyrsta ríkisstjórnarfundi
nýrrar ríkisstjómar í gær og er
samstaða um það innan ríkisstjóm-
arinnar að skila ríkissjóði með um-
talsverðum afgangi, að sögn Geirs
H. Haarde fjármálaráðherra.
Hann sagðist stefna að því að af-
gangur á fjárlögum yrði meiri en í
ár. Afgangurinn er áætlaður tveir
og hálfur milljarður króna í ár.
Afgangur fari yfir tvo
og hálfan milljarð
Geir sagði að undirbúningur
fjárlaga væri með hefðbundnum
hætti nema hvað hann væri aðeins
á eftir áætlun vegna kosninganna
og stjórnarmyndunar. Það ætti
hins vegar ekki að koma að sök,
Stefnt að mein
fjárlagaaf-
gangi en í ár
þar sem búið væri að vinna heil-
mikla undirbúningsvinnu í ráðu-
neytunum. Hann muni á næstunni
ræða við fagráðherrana og fara yf-
ir ákveðin mál og stefnt sé að því
að setja niður ákveðna ramma um
miðjan júní.
„Það er ríkur vilji ráðherranna
að skila ríkissjóði með umtalsverð-
um afgangi sem er nauðsynlegt að
gera við núverandi aðstæður, eins
og segir í stefnuyfirlýsingu stjórn-
arflokkanna,“ sagði Geir.
Afgangur á fjárlögum í ár er
áætlaður tveir og hálfur milljarð-
ur króna og sagðist Geir stefna að
því að afgangur á fjárlögum næsta
árs yrði meiri en það. Hann legði
áherslu á það við núverandi
ástand að afgangurinn yrði meiri
en í ár og hann teldi það ekki
óraunhæft.
Aðspurður hvernig horfur væru
varðandi fjárlögin í ár, sagðist
Geir gera sér vonir um að þau
markmið næðust sem þar væru
sett. „Eg geri mér vonir um að
fjárlaganiðurstaðan haldi, það er
að segja að við höfum þennan af-
gang sem að var stefnt. Hins vegar
eru náttúrlega alltaf einhver frávik
bæði tekna- og gjaldamegin, eins
og allir þekkja," sagði Geir enn-
fremur.
Sungið við
skólaslit
SKÓLABÖRN í ísaksskóla sungu
Ijúfa vortóna fyrir foreldra sína í
blíðviðrinu í gær við slit skólans.
Húfur krakkanna í fremstu röð
minna á sumarið en eldri krakk-
arnir í bakgrunni, sem þarna eru
að kveðja skóla Isaks Jónssonar,
eru með kunnuglegar útskriftar-
húfur sem kenndar eru við múr-
bretti í útlöndum.
Morgunblaðið/Halldór
Jeppaleiðangri
lýkur í dag
JEPPALEIÐANGURINN ICE-
225 lýkur ferð sinni vestur til baka
yfir Grænlandsjökul í dag, en Ómar
Ragnarsson, einn leiðangursmanna,
sagði í samtali við Morgunblaðið í
nótt að tekið hefði 12 klukkustundir
að aka 10 km leið niður skriðjökul-
inn, en þegar samtalið átti sér stað
voru leiðangursmenn staddir um 30
km frá Syðri-Straumsfirði.
Fyrirhuguð
ráðstefnumiðstöð
Stórar
hótelkeðj-
ur lýsa
áhuga
INGIBJÖRG Sólrún Gísladótt-
ir, borgarstjóri og formaður
miðborgarstjómarinnar, segir
að erlent fyrirtæki sem á stór-
ar hótelkeðjur hafi lýst áhuga á
því að kynna sér hugmyndir
um byggingu ráðstefnumið-
stöðvar og tónlistarhúss í mið-
borg Reykjavíkur með það í
huga að reka hótel í tengslum
við það. Fyrirtækið á hótel-
keðjumar Holiday Inn, Crown
Plaza og Intercontinental.
Nefnd á vegum þriggja
ráðuneyta og Reykjavíkur-
borgar vinnur að málinu og
segir Ingibjörg Sólmn að í
vinnu nefndarinnar sé reynt að
afmarka lóðina sem gert er ráð
fyrir að húsið standi á í mið-
borginni, fjármögnun þess og
rekstur.
Hún segir að fyrirtæki með
margar hótelkeðjur á sínum
snæmm hafi ámálgað það að
reka hótel í tengslum við ráð-
stefnumiðstöðina. „Fyrirtækið
óskaði eftir fundi með okkur til
þess að fara yfir hugmyndir
okkar og kynna sér fram-
kvæmdina,“ sagði borgarstjóri.
Bjöm Bjamason mennta-
málaráðherra segir málið þrí-
þætt. Gert sé ráð fyrir ráð-
stefnumiðstöð, tónlistarhúsi og
hóteli. „Það er alveg ljóst að
eftir að við tilkynntum það í
janúar að Reykjavíkurborg og
ríkið ætluðu að taka höndum
saman um byggingu á slíkri
miðstöð hafa erlendar hótel-
keðjur sýnt málinu áhuga,“
sagði Bjöm.
Verð á
bensíni
hækkar
BENSÍN hækkar í dag um
3,40 krónur lítrinn og er þar af
hækkun vegagjalds upp á 1,35
krónur. Lítrinn af 95 oktana
bensíni kostar nú 78,50 krónur
þegar ekki er um sjálfsaf-
greiðslu að ræða, sem er
11,8% hækkun frá áramótum,
og lítrinn af 98 oktana bensíni
kostar 83,20 krónur.
Bensín hækkaði seinast 13.
maí síðastliðinn um 1,50 krón-
ur og þar áður 1. maí um 1,50
krónur. Seinasta hækkun þar
á undan var í byrjun apríl-
mánaðar, þegar lítrinn hækk-
aði um 1,90 krónur. Það sem
af er þessu ári hefur bensín-
lítrinn því hækkað um rúm-
lega átta krónur.
Forsvarsmenn olíufélag-
anna segjast vonast eftir að
verðhækkanir á bensíni hafi
náð hámarki en lýsa jafnframt
yfir furðu sinni með þá
ákvörðun ríkisvaldsins að
hækka vegagjaldið á þessum
tíma.
■ Forsvarsmenn/4
Iðgjöld bifreiðatrygg-
'inga hækka um 35-40%
STORU íslensku vátryggingafé-
lögin þrjú hækka iðgjöld bifreiða-
trygginga nú um mánaðamótin og
em hækkanimar á bilinu 35-40%
fyrir algengustu tegundir einka-
bíla. Það jafngildir um 8-11 þúsund
kr. hækkun fyrir einkabíla af milli-
stærð, samkvæmt upplýsingum
forsvarsmanna félaganna. FIB-
tryggingar munu ekld hækka ið-
gjöld sín nú um mánaðamótin.
Fjármálaeftirlitið hyggst taka
þessar hækkanir til skoðunar.
„Ástæðan fyrir þessu era þær
■•breytingar sem áttu sér stað með
breytingu skaðabótalaga frá 1. maí
síðastliðnum samkvæmt ákvörðun
Alþingis. Þær hækka fyrirsjáan-
lega okkar tjónakostnað og okkur
er því nauðugur einn kostur að
bregðast við með því að laga ið-
gjöldin að breyttum forsendum,"
sagði Einar Sveinsson, fram-
kvæmdastjóri Sjóvár-Almennra
trygginga.
Axel Gíslason, forstjóri VIS,
^bendir á að skaðabótalögin hafi í
• 'X
för með sér verulegar breytingar á
bótafjárhæðum, sem gætu þó verið
mjög breytilegar eftir einstökum
tilvikum. Nefnir hann til dæmis að
ef um er að ræða 18 ára ungmenni
sem ekki hefur verið á vinnumark-
aði og lendir í slysi sem metið er til
20% varanlegrar örorku hefðu
bætur skv. eldri lögum numið
1.225.800 kr. en verða skv. nýju
lögunum 4.971.969 kr., sem er
296% hækkun, skv. útreikningum
félagsins.
FÍB undrast
hækkanir
Runólfur Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Félags íslenskra
bifreiðaeigenda, segist undrast
mikla iðgjaldahækkun trygginga-
félaganna, ekki síst fyrir þá sök að
nánast sé um sömu hækkanir að
ræða og á sama tíma hjá þremur
stærstu félögunum. FIB hefur
verið í samstarfi um vátryggingar
fyrir félagsmenn sína hjá Lloyd’s.
Runólfur sagði að FÍB-tryggingar
myndu ekki hækka iðgjöld sín nú
um mánaðamótin. Talið væri að
einhverra hækkana væri þörf til
að mæta hækkun skaðabótastuðla
vegna lagabreytingarinnar en þær
breytingar væm langt í frá jafn
miklar og þær hækkanir sem
tryggingafélögin hafa ákveðið.
„Það er mat manna í vátrygginga-
heiminum að mjög erfitt sé að
meta hversu mikil hækkunarþörf-
in er og það muni að einhverju
leyti koma í ljós á næstu árum,“
sagði hann.
Til kasta
Fj ármálaeftirlits
Jóhannes Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Neytendasamtak-
anna, gagnrýnir iðgjaldahækkanir
tryggingafélaganna harðlega.
„Maður verður orðlaus þegar mað-
ur heyrir svona tölur. Það em sem
betur fer að lágmarki tíu ár frá því
að svona prósentutölur hafa
heyrst,“ sagði Jóhannes og bætti
við að þörf væri á að þar til bær yf-
irvöld tækju þessar hækkanir og
forsendur þeirra til skoðunar og
upplýsingamar yrðu lagðar á borð-
ið fyrir almenning.
Páll Gunnar Pálsson, yfirmaður
Fjármálaeftirlitsins, segir að Fjár-
málaeftirlitið muni kalla eftir upp-
lýsingum frá tryggingafélögunum
um hækkanir á iðgjöldum og taka
málið til skoðunar í framhaldi af
því. Fjármálaeftirlitinu beri að
fylgjast með því að vátryggingarfé-
lögin standi undir þeim skuldbind-
ingum sem þau takist á hendur, en
einnig beri því að fylgjast með því
að iðgjöldin séu sanngjöm í garð
vátryggingartaka.
I fréttabréfi Fjárfestingarbanka
atvinnulífsins kemur fram að bif-
reiðatryggingar vegi um 2% í vísi-
tölu neysluverðs og eigi 35-40%
hækkun sér stað á tryggingunum
muni slík hækkun ein og sér hafa í
fór með sér u.þ.b. 0,8% hækkun
vísitölunnar.
■ 8.000-11.000/11