Morgunblaðið - 08.06.1999, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 1999 35
LISTIR
Fallegiir söngur
TðlVLIST
Hafnarborg
EINSÖNGSTÓNLEIKAR
Sigríður Jónsdóttir og Anna Snæ-
björnsdóttir fluttu erlenda ástar-
söngva og sönglög eftir Atla Heimi
Sveinsson, Gunnstein Ólafsson og
Hjálmar H. Ragnarsson. Föstudagur-
inn 4. júní 1999.
ÞAÐ hefur oft verið til umræðu
að föstudagskvöld væru afleit til
tónleikahalds en enginn veit ástæð-
una og hefur helst verið talið, að þá
hefjist í raun helgin og hvfldin eftir
erfíði vikunnar. Sigríður Jónsdóttir
messósópran og Anna Snæbjörns-
dóttir píanóleikari létu slík hindur-
vitni ekki aftra sér frá því að halda
tónleika í Hafnarborg sl. föstudag,
við góðar undirtektir áheyrenda.
Yfirskrift tónleikanna var
„Dæmd ást“ og eins og segir í efnis-
skrá snúast viðfangsefnin um þá
ást, „sem ekki fær leyfi til að lifa“.
Tónieikamir hófust á fjórum
Lieder-lögum, Mtdehenlied og
Liebestreu, eftir Brahms og þar eft-
ir Die Mánner sind mechant, eftir
Schubert og Der Zauberer, eftir
Mozart. Sigríður hefur fallega og
töluvert hljómmikla rödd sem hún
beitir af smekkvísi en mætti í mót-
un tónlínanna, leggja meiri áherslu
á „legato“.
Þessa gætti ekki eins í óperuarí-
unum, aríu Sextusar, úr óperunni
La clemenza di Tito, eftir Mozart,
hinni bráðfögru aríu Orfeusar, Che
faro senza Euridice, úr óperunni Or-
feo, eftir Gluck og Que fais-tu, aríu
Stefáns, úr Roméo, eftir Gounod.
Þar blómstraði söngur Sigríðar og
sérstaklega í aríu Orfeusar, sem vai-
mjög fallega flutt. Ekki man undir-
ritaður eftir að hafa heyrt íslenskan
söngvara flytja aríu Stefáns, sem
var bæði af hálfu söngvara og pí-
anista, sérlega glæsilega mótuð.
Fjögur lög, eftir Gabriel Fauré,
Les berceaux, Le secret, Automne
og En sourdine, voru að mörgu leyti
vel flutt og fallega mótuð, sérstak-
lega En sourdine, sem er fógur tón-
smíð. Þrjú síðustu lögin voru ís-
lensk, fyrst Það kom söngfugl að
sunnan, eftir Atla Heimi Sveinsson
og var flutningurinn á þessum
skemmtilega leik Atla með hefð-
bundinn vals mjög góður og ein-
staklega lifandi. Vertu, nefnist lag
eftir Gunnstein Olafsson og veit
undirritaður ekki betur en að um
frumflutning á almennum tónleik-
um sé að ræða. Vertu er ágætt lag,
vel samið og var vel sungið. Tón-
leikunum lauk með Yfirlýsingu
Magneu Matthíasdóttur, sem
Hjálmar H. Ragnarsson hefur tón-
sett á eftirminnilegan máta, og var
þetta leikræna verk flutt á sannfær-
andi hátt.
Sigríður Jónsdóttir er góð og vel
menntuð söngkona, gefin góð og
hljómfalleg rödd, er músíkölsk en
mætti leggja sig meira eftir að ná
betra valdi á „legato" söng og bæta
textaframburð. I aríunum sýndi
Sigríður sitt besta og að hún getur
sleppt fram af sér beislinu, eins og
heyra mátti í íslensku lögunum.
Anna Snæbjörnsdóttir lék á píanóið
og hélt sig ef til vill helst of mikið til
baka, sérstaklega í lögunum eftir
Faure en sýndi sig að vera góður pí-
anisti, sem best mátti heyra, t.d í
millispilinu, í lagi Atla og í aríunum
eftir Mozart og Gounod.
Jón Ásgeirsson
Tónlist eftir
Leif Þórarinsson
Gefín út
í Banda-
ríkjunum
FYRIR nokkrum dögum kom út í
Bandaríkjunum hljómdiskur með
tónlist eftir Leif Þórarinsson í
flutningi Caput-
hópsins. Þessi út-
gáfa er tileinkuð
minningu Leifs
sem lést á síðasta
ári. I bæklingi
sem fylgir diskin-
um eru tvær
greinar um Leif,
önnur eftir Atla
Heimi Sveinsson
en hin eftir hljóm-
sveitarstjórann og tónskáldið,
Gunther Schuller þar sem hann
fjallar m.a. um hina miklu grósku í
íslenskri tónsköpun á síðustu árum.
A diskinum eru verkin Afstæður
fyrir fiðlu, selló og píanó (1960),
Mósaik fyrir fíðlu og píanó (1961),
Smátríó fyrir flautu, selló og píanó
(1974), Pente X fyrir flautu, selló,
slagverk og sembal (1994), Preludio
- Intermezzo - Finale fyrir píanó
(1995), Serena fyrir fiðlu og hörpu
(1995). Flytjendur eru Snorri Sig-
fús Birgisson, píanó, Auður Haf-
steinsdóttir, fiðla, Bryndís Halla
Gylfadóttir, knéfiðla, Kolbeinn
Bjarnason, flauta, Guðrún Oskars-
dóttir, semball, Eggert Pálsson,
slagverk, Steef van Ooster-
hout,slagverk og Elísabet Waage,
harpa.
Bjami Rúnar Bjamason stjórn-
aði upptökum og klippingum á veg-
um Ríkisútvarpsins. Það er banda-
ríska útgáfufyrirtækið GM Recor-
dings sem gefur hljómdiskinn út og
verður honum dreift í íslenskar
verslanir á næstunni.
---------------
Diddú og
Anna Guðný
á Hvamms-
tanga
SIGRÚN
Hjálmtýsdóttir,
Diddú, sópran-
söngkona og
Anna Guðný Guð-
mundsdóttir, pí-
anóleikari, flytja
blandaða söng-
dagskrá í félags-
heimilinu á
Hvammstanga í
kvöld, þriðjudag,
kl. 21.
Tónleikarnir
em haldnir á veg-
um tónlistarfélags
Vestur-Húna-
vatnssýslu.
Leifur
Þórarinsson
Alvöru Suzuki j eppi
á verði smábíls!
Flottur í bæ; seigur á fjöllum
Suzuki Jimny er sterkbyggður og öflugur sportjeppi,
byggður á sjálfstæðri grind og með hátt og lágt drif. Það
er sama hvort þú ætlar með vinina í fjallaferð eða á
rúntinn niður í bæ, Jimny er rétti bíllinn!
1.399.000,- beinskiptur
1.519.000,- sjálfskiptur
$ SUZUKI
SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Akranes: ólafur G. ólafsson, Garðabraut 2, simi 431 28 00. Akureyri: BSA hf., Laufásgötu 9, simi 462 63 00. Egilsstaðir:
Bfla- og búvélasalan hf., Miðási 19, simi 471 2011. Hafnarfjörður: Guðvarður Eliasson, Grænukinn 20, sfmi 55S 15 50. Isafjörður: Bilagarður ehf., Grænagarði,
sfmi 456 30 95. Keflavik: BG bflakringlan, Grófmni 8, sfmi 421 12 00. Selfoss: Bilasala Suðurlands, Hrismýri 5, simi 482 37 00.
Hvammstanga: Blla- og búvélasalan, Melavegi 17, sfmi 451 26 17.
SUZUKI BÍLAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
Heimasíða: www.suzukibilar.is