Morgunblaðið - 17.06.1999, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 1999 35
FERÐALÖG
Nýtt gistiheimili
opnað á Akureyri
NÝVERIÐ var opnað á Akureyri
nýtt gistiheimili sem hjónin Erl-
ing Ingvason og Margrét
Thorarensen eiga og reka. Petta
nýja gistiheimili, Gistiheimili
Akureyrar, er sérlega vel staðsett
við aðalgöngugötu bæjarins, nán-
ar tiltekið stendur það við Hafn-
arstræti 104. I Gistiheimili Akur-
eyrar stendur val gesta um eins
eða tveggja manna herbergi, með
eða án snyrtingar, en öll eru her-
bergin með fjölrása sjónvarpi.
Þarna er öll þjónusta í næsta ná-
grenni og stutt að fara á kaffihús
og veitingastaði. Einnig er sund-
laugin í göngufæri.
Gistingunni fylgir morgunmat-
ur og er boðið upp á þá skemmti-
legu nýjung að leikherbergi fyrir
börnin er út frá matsalnum. „Það
hefur verið almenn ánægja með
þetta herbergi þar sem börnin
geta leikið sér á meðan foreldr-
arnir klára að borða morgunmat-
inn í ró og næði,“ segir Erling.
Þess ber einnig að geta að gisti-
heimilið er reyklaust og segir Erl-
ing gesti hafa tekið því vel. Hann
bendir ennfremur á að reykinga-
fólk sé líka sátt við að gista í her-
bergjum þar sem ekki hefur verið
reykt.
Það ljáir herbergjunum enn-
fremur skemmtilegan blæ að vera
skreytt með málverkum eftir list-
fenga Akureyringa, nánar tiltekið
þá Ola G. Jóhannsson og Sigurð
GISTIHEIMILI Akureyrar er hvíta húsið fyrir miðri mynd.
Árna Sigurðsson. Erling segir að
Gistiheimili Akureyrar stefni á að
veita ýmsa þjónustu hótelanna,
eins og t.d. næturvörslu, svo gest-
ir geti komið á hvaða tíma sólar-
hringsins sem er. Breytingin er
að þessi þjónusta sé nú veitt í
vinalegu umhverfi gistiheimil-
anna.
„Markmið Gistiheimilis Akur-
eyrar er að bjóða gæðagistingu í
vinalegu andrúmslofti á sam-
keppnishæfu verði,“ segir Erling
að lokum.
GÆGST inn í eitt herbergjanna sem snýr að göngugötunni.
Miðnæt-
urferð í
Málmey
LAUGARDAGSKVÖLDIÐ
nítjánda júní nk. verður boðið
upp á miðnætursiglingu um
Skagafjörð. Farið verður frá
Hofsósi kl. 21 og siglt fyrir
Þórðarhöfða út í Málmey. Ef
aðstæður leyfa verður farið á
land í Málmey og gengið um
eyna með leiðsögn þar sem
sögu, jarðfræði og fuglalífi
verða gerð góð skil. Komið
verður í land á Hofsósi um
klukkan eitt eftir miðnætti þar
sem slegið verður upp grill-
veislu með söng og dansi fram
eftir nóttu á veitingahúsinu Sig-
túni.
Málmey er 125 metra há þar
sem hún rís hæst og var búskap-
ur í eynni fram undir 1950 eða
þar til bæjarhúsið þar brann.
Álög eru sögð hvíla á Málmey
sem kveða á um að enginn megi
þar búa lengur en í tuttugu ár og
væri sú regla brotin átti hús-
ffeyjan á bænum að hverfa og
aldrei að sjást mönnum ffamar.
Þar var snemma vigt bænhús og
var látið loga Ijós í glugga þess
fýrir sjófarendur og segir sagan
að þar hafí verið fyrsti viti á Is-
landi.
Tekið er við skráningu í mið-
næturferðina og allar nánari
upplýsingar veittar í Upplýs-
ingamiðstöðinni í Varmahlíð í
síma 453-8860.
Upplýsinga-
rit um
Akranes
BÆNDAKIRKJAN í Bjarnarhöfn.
Morgunblaðið/Hrönn Marinósdóttir
HILDIBRANDUR Bjarnason hringir gömlu kirkjuklukkunum.
Bjarnarhöfn á Snæfellsnesi
Gamlir munir í
lítilli bændakirkju
AKRANE SKAUPSTAÐUR hefur
nýlega gefið út tvö upplýsingarit
um Ákranes. Annars vegar er um
að ræða bækling fyrir ferðamenn
sem á íslensku nefnist „Fólkið,
fjallið, fjaran" og vísar til þeirra
einkenna sem eru á Akranesi og
þess sem markverðast þykir, eftir
því sem fram kemur í fréttatiÞ
kynningu frá Akraneskaupstað. I
bæklingnum er fjallað um Akra-
nes, afþreyingu, þjónustu, gisti- og
veitingastaði og athyglisverða
staði.
Hitt upplýsingaritið felur í sér
útivistarkort af Akranesi og Akra-
fjalli þar sem sýndar eru hlaupa-
leiðir, gönguleiðir og reiðleiðir.
Ennfremur er á kortinu af Akra-
nesi sýnt hvar útilistaverkum og
minnismerkjum hefur verið komið
fyrir í bænum.
I fréttatilkynningunni segir að
tilgangur með útgáfu ritanna sé að
koma til mótst við breyttar aðstæð-
ur en frá opnum Hvalfjarðar-
gangna hafi töluverð breyting orð-
ið á komu ferðamanna til bæjarins.
Áður hafí verið mikill straumur í
gegnum bæinn af ferðafólki sem
nýtti sér Akraborgina en eftir að
göngin voru opnuð hafi hópferðum
ferðafólks til Akraness fjölgað
mjög. Einnig sé verið að veita íbú-
um bæjarins handhægar upplýs-
ingar.
ÁTTA manns eru nú í kirkju-
sókninni, en árið 1920 voru þeir
áttatíu," segir Hildibrandur
Bjarnason bóndi og hákarla-
verkandi í Bjarnarhöfn á Snæ-
fellsnesi og býður viðstöddum
sæti á 300 ára gömlum bekkj-
um.
Við erum stödd í bændakirkj-
unni sem staðsett er í túnfætin-
um hjá Hildibrandi og Qöl-
skyldu en þar er að finna ýmsa
gamla og merkilega muni.
Sonur Hildibrands hefur und-
anfarið séð um búskapinn, tók
við af föður sínum sem hefur al-
farið snúið sér að hákarlaverk-
un og ferðaþjónustu. Ferða-
mönnum sýnir hann litlu
bændakirkjuna sem hann hefur
gert upp og býður þeim síðan
að smakka hákarl og hlusta á
sögu hákarlaverkunar á íslandi.
„I annálum er þess getið að
bændakirkja hafi staðið hér ár-
ið 1286 en þessi kirkja var
byggð árið 1856 af þeim merka
manni Þorleifi smáskammta-
lækni sem bjó í Bjamarhöfn,“
segir Hildibrandur við við-
stadda.
Merkileg altaristafla
„Hér í kirkjunni er ekkert að
finna sem er verksmiðjufram-
leitt,“ bætir hann við og sýnir
altaristöfluna sem geymir mynd
af Jesú Kristi þegar hann birtist
fyrst eftir upprisu. „Myndin er
líklega yfir 300 ára gömul og
hefúr varðveist svona vel því
birtan nær aldrei að skína á
hana.“ Listamaðurinn er ókunn-
ur en Hildibrandur telur hann
hafa verið af skóla Rembrandts.
Ymislegt fleira markvert er
að finna í litlu viðarkirkjunni
svo sem messuskrúða sem Ingi-
ALTARISTAFLAN er vel varð-
veitt en komin til ára sinna.
leif Melsteð saumaði og gaf
kirkjunni árið 1862 þegar Páll
Melsteð eiginmaður hennar var
þar jarðsettur.
Þar hangir einnig annar hök-
ull mun eldri, frá því fyrir siða-
skipti, að sögn Hildibrandar.
Nýlega var barnabarn hans
fermt í kirkjunni og skýddist
prestur gamla höklinum af því
tilefni. „I fyrsta sinn í yfir 450
ár,“ segir afinn stoltur.
Áður en kirkjan er yfirgefín
hringir Hildibrandur kirkju-
klukkum, önnur er frá árinu
1741 en hin frá því um 1600.
Leiðin upp á kirkjuloft er tölu-
vert þröng og því ekki á hvers
manns færi að komast þangað
upp.
Að lokinni kirkjuferð býður
Hildibrandur í hús þar sem
hann geymir vísi að hákarla-
safni sínu og lítið steinasafn.
Allir fá siðan að smakka hákarl,
harðfisk og brennivín.
Hrönn Marinósdóttir
Nuddpottar
Amerískir rafmagnspottar
fyrir heimili og sumarhús.
Stærð ca 2x2 m, 1.100 Itr. Kr. 450 þús.
VESTAN ehf.,
Auðbrekku 23, 200 Kópavogi,
sími 554 6171, fars. 898 4154.