Morgunblaðið - 17.06.1999, Blaðsíða 60
60 FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Sjáumst ...
Undirbúningsncfnd og fyrirtækin sem
tóku þátt í færeysku iðnaðarsýningunni
RekTór ’99 í Perlunni 6. - 8. maí 1999,
þakka hér meö Islendingum og
Færeyingum kærlega fyrir mótt0kur-
nar.
Sérstakar þakkir til Utflutningsráðs
Islands, Aflvaka, Eimskips, Perlunnar
og Reykjavíkurborgar.
Við vonum og trúum, að þetta átak efli
samvinnu landanna tveggja, íslands og
Færeyja.
Fyrir hönd undirbúningsnefndarinnar
og fyrirtækjanna
MENNINGARSTOVAN
Utfiutningsráð Færeyja
Bryggjubakki 12 • P.O. Box 1287
FO-110 Tórshavn • Færeyjar
Tel +298 313028 • Fax +298 310459
e-mail: menningarstovan@ms.olivant.fo
heimasíða: ms.olivant.fo
I
I l
FRÉTTIR
FRÁ fundi nfu félagasamtaka um Eyjabakka á þriðjudag.
Askorun um
verndun Eyjabakka
Byggingafull-
trui annast
manntal í
Hafnarfirði
MANNTAL fyrir Hafnarfjörð
færist frá og með 1. júní 1999 til
embættis byggingafulltrúa, þar
sem er að flnna t.d. eftirlit með
byggingaframkvæmdum, fast-
eignaskráningu, yfirferð eigna-
skiptasamninga og nú síðast
manntal, segir í fréttatilkynningu
frá byggingafulltrúa Hafnarfjarð-
ar.
Manntalsskrifstofan er flutt af
2. hæð á 3. hæð Strandgötu 6 til
umhverfis- og tæknisviðs og þar er
opið frá kl. 9:30 til 15:30 alla virka
daga.
Lilja Ólafsdóttir tekur við starfi
manntalsfulltrúa frá og með 1. júní
en LiJja hefur áður starfað sem rit-
ari í Innkaupum hf.
Vesturlands-
vefur kynntur
VESTURLANDSVEFURINN
var opnaður síðastliðinn vetur.
Hann er heimasíða fyrir allt Vest-
urlandskjördæmi og sameiginlegt
markaðstæki landshlutans í víðum
skilningi. Formlega verður Vestur-
landsvefurinn opnaður á atvinnu-
vegasýningunni Vesturvegi sem
haldin verður í íþróttahúsinu í
Stykkishólmi um næstkomandi
helgi. Formaður SSV, Björg
Ágústsdóttir, mun með aðstoð full-
trúa yngri kynslóðarinnar opna
vefinn formlega kl. 15.15, fóstudag-
inn 18. júní
Félagsfundur
Parkinson-
samtakanna
FÉLAGSFUNDUR Parkinson-
samtakanna á Islandi verður hald-
inn í Áskirkju laugardaginn 19.
juní kl. 14. Flutt verða erindi og
Ástríður Alda Sigurðadóttir leikur
á píanó. Kaffiveitingar.
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi ályktun frá níu félaga-
samtökum:
„Fundur fulltrúa fjölmargra um-
hverfis-, útivistar- og hagsmunasam-
taka haldinn 15. júní 1999 skorar á
ríkisstjórn íslands að láta meta um-
hverfisáhrif af fyrirhuguðum fram-
kvæmdum við Fljótsdalsvirkjun með
hliðsjón af lögum nr. 63/1993. Þegar
Alþingi samþykkti heimOdarlög fyrir
virkjuninni 1981 voru viðhorf til
áhrifa stórframkvæmda á viðkvæma
náttúru íslands allt önnur en síðar
hefur orðið, og varúðarreglan
óþekkt, sem nú er ætíð höfð að leið-
arljósi við allar framkvæmdir. Það er
því ótvíræð siðferðileg skylda ríkis-
stjórnarinnar að láta slíkt mat á um-
hverfisáhrifum fara fram. Fundurinn
telur óeðlilegt, að á sama tíma og
stjórnvöld lýsa vilja sínum til að leita
sátta um verndun og nýtingu orku-
linda landsins, sé ráðist í jafn um-
deildar framkvæmdir og Fljótsdals-
virkjun.
Éyjabakkar eru dýrmætt gróður-
lendi og einstakt griðland fugla. Það
yrði óbætanlegt tjón fyrir komandi
kynslóðir ef þeim yrði sökkt, auk
þeirrar neikvæðu ímyndar, sem það
myndi skapa íslandi á alþjóðavett-
vangi. Slík gjörð væri í andstöðu við
samþykktir Ríóráðstefnunnar og
sáttmálann um vemdun votlendis
(Ramsar), sem ísland er aðili að.
Fundurinn lýsir yfir fullum skiln-
ingi á því að treysta þarf byggð og
styrkja atvinnulíf á Austfjörðum, en
það má ekki verða til þess, að ein
dýrmætasta náttúruperla íslands
verði eyðilögð. Því skorar fundurinn
á ríkisstjórnina að láta kanna alla þá
kosti til hlítar, sem leyst gætu málin
í sátt við íslensku þjóðina.
Félag leiðsögumanna, Félag um
verndun hálendis Austurlands,
Fuglaverndarfélag íslands, Hið ís-
lenska náttúrufræðifélag, Land-
vernd, Náttúruverndarsamtök Is-
lands, Samtök útivistarfélaga,
Sjálfboðaliðasamtök um náttúru-
vernd og Umhverfisverndarsamtök
íslands."
Þjóðhátíðar-
gsrnga
Utivistar
FERÐAFÉLAGIÐ Útivist stendur
fyrir dagsferð í dag, 17. júní. Farið
verður með rútu frá Umferðarmið-
stöðinni við Vatnsmýrarveg kl.
10.30.
I fréttatilkynningu segir að ekið
verði um Þingvelli að Dímon en það-
an gengið á Dímon að Tintron og
leitað að Stelpnahelli áður en gengið
verður að Gjábakka. Frá Gjábakka
eru gengnir fornir stígar að Al-
mannagjá en þar gefst tækifæri til
að skoða Öxarárfoss.
Útivist stendur fyrir dagsferðum
alla sunnudaga en næsta sunnudag
verður genginn hluti Selvogsgötunn-
ar frá Bláfjallavegi að Hafnarfirði.
„Græni herinn“ á Vest-
fjörðum um helgina
GRÆNI herinn verður á Vestfjörð-
um helgina 18. og 19. júní, nánar til-
tekið á Patreksfirði á föstudaginn og
Isafirði á laugardaginn.
I fréttatilkynningu segir að dag-
skráin á Patreksfirði hefjist á hádegi
á fóstudaginn með herkvaðningu, en
þá mæta hermenn Græna hersins í
félagsheimilið og þiggja súpu og
brauð og gera léttar Mullers-æfingar
undir stjóm Jakobs Frímanns Magn-
ússonar áður en skundað er til vinnu
kl. 13.
„Græni herinn er síðan við störf til
kl. 16 en þá er tekið kaffihlé þar sem
boðið verður upp á veitingar og glens
og gaman á vel völdum stað í bænum.
Að fengnu kaffi skundar Græni her-
inn aftur til vinnu og er að störfum til
kl. 19, en þá er grillveisla fyrir her-
mennina. Úm kvöldið er hermönnun-
um boðið á Stuðmannaball í félags-
heimilinu.
Dagskráin á Isafirði verður með
svipuðu sniði, en þar eiga hermenn
Græna hersins að mæta til leiks á 4.
hæð Stjómsýsluhússins. Um kvöldið
verður Stuðmannaball í félagsheimil-
inu í Hnífsdal.
Hægt er að skrá sig í Græna her-
inn á heimasíðunni www.graeniher-
inn.is sem og hjá samstarfsaðilum
hersins, en það em íslandsflug,
Toyota, Landssíminn, Sparisjóðimir,
Olís, Samskip, og Ríkisútvarpið/Sjón-
varp,“ segir í fréttatilkynningu.
Leiðrétt
Rangur titill
í VINNSLU blaðsins á athugasemd
Skeljungs í blaðinu í gær er Jón Ög-
mundur Þormóðsson titlaður
stjómarmaður Flutningsjöfnunar-
sjóðs. Það er ekki rétt. Jón er
stjómarmaður í Flutningsjöfnunar-
sjóði. Beðist er velvirðingar á mis-
tökunum.
Villandi fyrirsögn
FÉLAG Sögukennara er ekki að
mótmæla nýrri námsskrá eins og
skilja hefði mátt á fyrirsögn þeirri
sem var yfir ályktun þeirra í blaðinu
á þriðjudag.
I fréttinni var hnykkt á ályktun
þeirra frá því í janúar sl. um nauð-
syn þess að til komi nýjar náms-
bækur með gildistöku nýrrar náms-
skrár. Beðist er velvirðingar á mis-
sögninni.
í Langadal
í FRÉTT um árekstur þriggja bif-
reiða í blaðinu í gær var ranghermt
að óhappið hefði átt sér stað við Mó-
berg í Laugardal. Áreksturinn varð
við Móberg í Langadal í grennd við
Blönduós.
Entrapment í Borgarbíói
KVIKMYNDIN Entrapment er
sýnd í Borgarbíói á Akureyri en
ranghermt var í blaðinu í gær að
hún væri sýnd í Nýja-bíói og er
beðist velvirðingar á því. Einnig
sagði að Lolita væri sýnd í Háskóla-
bíói en hún er í raun sýnd í Bíóborg-
inni.
Hefðbundinn 17. júní
á Eyrarbakka
HATIÐARHOLD á þjóðhátíðar-
daginn 17. júní em með hefð-
bundnu sniði á Eyrarbakka að
þessu sinni. Kvenfélag Eyrarbakka
hefur umsjón með hátíðarhöldun-
um.
í fréttatilkynningu segir að há-
tíðin hefjist kl. 11 með guðsþjón-
ustu í Eyrarbakkakirkju. Prestur
er sr. Úlfar Guðmundsson prófast-
ur Árnesinga. Kirkjukór Eyrar-
bakkakirkju syngur og organisti er
Haukur Gíslason. Kl. 14 verður há-
tíðardagskrá við Sjóminjasafnið á
Eyrarbakka. Fjallkonan flytur
ávarp og Friðrik Erlingsson rithöf-
undur flytur hátíðarræðu.
Farið verður í leiki og boðið upp
á skemmtiatriði.
Kl. 17-22 verður Ljósmyndasýn-
ing frá hátíðarhöldum á 17. júní á
Eyrarbakka - „Þjóðhátíð í 55 ár“.
Kirkjukórinn syngur Eyrarbakka-
lög við opnun sýningarinnar.