Morgunblaðið - 17.06.1999, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 17.06.1999, Blaðsíða 30
30 FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Jarðskjálftinn sem reið yfír suðurhluta Mexíkó á þriðjudagskvöld Óttast að á þriðja tug manna hafi farist Mexfkdborg, Puebla. Reuters. TALA látinna eftir jarðskjálftann sem reið yfir suðurhluta Mexíkó á þriðjudagskvöld var í gær á reiki, en óttast var að á þriðja tug manna hefði farist, og ljóst var að um 300 manns höfðu slasast. Að sögn stjómvalda höfðu ýmsar sögufrægar byggingar og fomar minjar einnig eyðilagst í skjálftan- um, sem mældist 6,7 á Richterskvarða. Héraðið Puebla varð verst úti, en þar fómst að minnsta kosti 18 manns. Þar af vora tvö böm sem urðu undir vegg er hrandi. Tvö lík fundust í opinni námu í héraðinu, en menn úr björgunarsveit hersins björguðu þaðan 33 verkamönnum sem höfðu verið tepptir undir leðju og grjótmulningi. Yfir 200 manns slösuðust í Puebla-héraði og nokkrir tugir þurftu á læknishjálp að halda í héraðunum Morelos, Oaxaca og Veracraz. Jarðskjálftinn í Mexíkó Öngþveiti í Mexíkóborg Upptök skjálftans vora á strjál- býlu svæði nálægt Huajapan de Leon í Oaxaca-héraði, um tvö hundrað kílómetra suðaustur af Mexíkóborg og hundrað kílómetra frá borginni Puebla, héraðshöfuð- borg Puebla-héraðs. í Mexíkóborg fórast tveir menn, en litlar skemmdir urðu. Talsvert öngþveiti skapaðist meðal íbúa borgarinnar, sem era um 20 milljónir, er skjálft- inn reið yfir. Jarðskjálftinn, sem stóð yfir í um 40 sekúndur, vakti þó mestan ugg í brjóstum íbúa nærri upptök- unum, sem margir hverjir þustu úr húsum sínum, af ótta við að þau hryndu, og leituðu skjóls í görðum. Að sögn hjálparstarfsmanna féllu sumir á kné í bæn og aðrir grétu eða öskraðu af skelfingu. Starfs- menn Rauða krossins telja að hundraðir manna muni þurfa á áfallahjálp að halda. Lítið mannljón miðað við styrkleika skjálftans Tala látinna þykir lág miðað við hve öflugur skjálftinn var, en sérfræðingar telja styrkleika S U M A R F Sunnudaginn 4. júlí nk. mun Morgunblaðið gefa út 52 síðna ferðahandbók í þægilegu og handhægu broti, smáformi. I handbókinni er að finna áhugaverð- ar upplýsingar fyrir íslenska ferðalanga og til nánari glöggvunar verður birt stórt Islandskort þar sem vísað er á upplýsinga- og þjónustumiðstöðvar á landsbyggðinni. Einnig verður fjallað um ýmsar skemmtanir og menningar- viðburði sem eiga sér stað um land allt í sumar. Meðal efnís: • Ferðir • Gisting • Siglingar • Hestaferðir • Jöklaferðir • Bátaferðir • Gönguferðir • Tjaldsvæði • Sundstaðir • Fuglaskoðun • Hvalaskoðun • Krossgátur • O.fl. Skilafrestur auglýsingapantana er til kl. 12 fimmtudaginn 24. júní Allar nánari upplýsingar veita sölu- og þjónustufulltrúar á auglýsingadeild í síma 569 1111. fHorgnnblabib AUGLÝSINGADEILD Sími 569 1111 • Bréfasími 569 1110 • Netfang: augl@mbl.is Dreifing í rúmlega 60.000 þúsund eintökum. Áskrifendur Morgunblaðsins fá ferðahandbókina með Morgunblaðinu en auk þess verður henni dreift á helstu lausasölustaði og upplýsingamiðstöðvar um land allt þar sem hún mun liggja frammi. E R ÐI R '99 Reuters STARFSMAÐUR Rauða krossins virðir fyrir sér rústir byggingar sem hrundi í jarðskjálftanum, í Puebla-borg í gær. hans um sjö sinnum meiri en atómsprengjunnar, sem varpað var á japönsku borgina Hiros- hima árið 1945. Nokkrir eftir- skjálftar fylgdu í kjölfarið, en enginn þeirra mældist öflugri en 2 á Richerskvarða. Öflugasti jarð- skjálfti sem orðið hefur í Mexíkó reið yfir í september árið 1985, en hann mældist 8,1 á Richterskvarða og varð yfir 6 þúsund mönnum að bana. Ernesto Zedillo, forseti Mexíkós, heimsótti Puebla-borg í gær, en þar búa um 1,2 milljónir manna. Borgin var byggð á ný- lendutímanum og þar er margt sögulegra minja. „Miðað við hvað jarðskjálftinn var öflugur, held ég að við höfum verið heppinn", sagði forsetinn eftir að hafa virt fyrir sér eyðilegginguna. Stj órnarmy ndun innanseilingar í Israel Jerúsalem. Reuters. MYND virtist loks vera að komast á stjómar- myndunarviðræður í Israel í gær eftir að Aryeh Deri, leiðtogi Shas-bókstafstrúar- flokksins, vai’ð við þrýstingi frá Ehud Barak, leiðtoga Verka- mannaflokksins og ný- kjömum forsætisráð- herra, á þriðjudag og sagði af sér for- mennsku í Shas, en Deri var sakfelldur fyr- ir mútuþægni og spill- ingu fyrr á þessu ári. Aryeh Sagði ónefndur aðstoð- Deri armaður Baraks að afsögnin skap- aði forsendur fyrir viðræðum um stjómarmyndun við Shas-flokkinn, sem er þriðji stærsti flokkurinn á ísraelska þinginu. Deri sagði sig frá þingmennsku skömmu eftir þingkosningamar í síðasta mánuði en hélt áfram að gegna leiðtogahlut- verki í flokki sínum. Barak útilokaði hins vegar samstarf við Shas á meðan Deri væri þar í forsvari og steig Deri því skrefið til fulls á þriðjudag. „Ég segi af mér frekar en að vera þröskuldur í vegi þjóðarsáttar," sagði Deri í yfirlýsingu sinni. Er Barak nú kleift að bjóða Shas-flokkn- um aðild að stjóm sinni og þykir líklegt að aðrir flokkar bók- stafstrúarmanna gangi einnig til liðs við stjómina, sem myndi tryggja meirihluta hennar, og þar með stöðugleika í ísraelskum stjómmálum. A hinn bóginn myndi það einnig þýða að öllu meiri hægri slagsíða yrði á stjóminni en annars hefði orðið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.