Morgunblaðið - 17.06.1999, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 1999 11
FRÉTTIR
Islensk erfðagreining í frönsku sjdnvarpi
Hoffmann-
La Roche afneitar
gagnagrunni
Strassborg. Morgunblaðið.
I SJONVARPSÞÆTTI sem sýndur
var í Frakklandi í fyrrakvöld um ís-
lenska erfðagreiningu og gagna-
grunninn á heilbrigðissviði lagði
talsmaður svissneska lyfjafyrirtæk-
isins Hoffmann-La Roche áherslu á
að það tengdist gagnagrunninum
ekki með nokkrum hætti. Þátturinn,
sem var 35 mínútna langur, var
sýndur á sjónvarpsstöðinni Arte
sem er samstarfsfyrirtæki Þjóð-
verja og Frakka. Þar var rætt við
fjölmarga íslendinga, bæði fylgis-
menn og andstæðinga gagna-
grunnsins. Ennfremur var því hald-
ið fram í þættinum að andstaða væri
í alþjóðlegu vísindasamfélagi við þá
einokunaraðstöðu sem gagna-
grunnslögin veita einu fyrirtæki.
Sagt var að svissneska fyrirtækið
skynjaði þessa andstöðu og yrði
meðal annars vart við hana á Net-
inu. í þættinum sagði að svissneska
lyfjafyrirtækið sem gert hefur
samning við Islenska erfðagrein-
ingu um samstarf við að finna or-
sakir nokkurra tiltekinna sjúkdóma
reyndi nú að bregðast við gagnrýni
og hótunum um samskiptabann með
því að útskýra nánar hvernig
tengslum þess við Island væri hátt-
að. „Það er grundvallaratriði að
rannsóknarverkefni okkar og Is-
lenskrar erfðagreiningar séu aðskil-
in frá þessum gagnagrunni," sagði
Peter Herrmann, talsmaður fyrir-
tækisins, í þættinum. „Rannsóknir
okkar munu byggjast á gögnum
sem koma úr öðrum áttum.“
Þegar hann var spurður hvers
vegna fyrirtækið væri andvígt því
að rannsóknir þess færu fram fyrir
tilstilli gagnagrunnsins svaraði
hann eftir nokkurt hik: „Gagna-
grunnurinn var ekki inni í samn-
ingnum."
Islendingar staðfesta
Smugusamninginn
ALÞINGI ályktaði í gær að heimila
ríkisstjóm Islands að staðfesta
samning milli ríkisstjórna Islands,
Noregs og Rússneska sambandsrík-
isins um þorskveiðar Islendinga í
Barentshafi og lausn á Smugudeil-
unni svokölluðu. Samningurinn gild-
ir út 2002 og framlengist um fjögur
ár í senn sé ekki ekki sagt upp.
Rússar hafa þegar staðfest samning-
inn en búist er við að Norðmenn
samþykki hann í dag.
A Alþingi í gær var ályktunin sam-
þykkt með fjörutíu atkvæðum gegn
einu. Fjórh- þingmenn sátu hjá.
Átján voru fjarstaddir.
Vinstrihreyfíngin - grænt framboð
Heræfíngum mótmælt
ÞINGFLOKKUR Vinstrihreyfing-
arinnar-græns framboðs mótmælir
heræfingum NATO hér á landi sem
fyrirhugað er að hefjist 19. júní nk. í
ályktun þingflokksins segir m.a. að
stríðsleikir í náttúru Islands með til-
heyrandi ónæði séu í hrópandi ósam-
ræmi við þá mynd af landi og þjóð,
„sem við Islendingar eigum að sýna
umheiminum".
I ályktuninni segir: „Þá mótmælir
þingflokkurinn því sérstaklega að um-
hverfismál séu dregin inn í væntan-
legar heræfingar með þeim ósmekk-
lega hætti sem raun ber vitni. Þing-
flokkur Vinstrihreyfingarinnar-græns
framboðs krefst friðlýsingar Islands
og íslenskrar lögsögu íyrir umferð
kjamorkuknúinna farartækja, kjam-
orkuvopnum og öðrum vopnum sem
geta verið skaðleg umhverfinu og
hvers kyns hemaðarbrölti."
Morgunblaðið/Arnaldur
URIM skoðar ljúffengt og nýbakað brauð hjá móður sinni Zymrie. Hún bakar slíkt brauð á hverjum degi.
Fjölskyldurnar frá Kosovo koma sér fyrir í Fjarðabyggð
Lífið í
FJÖLSKYLDURNAR frá Kosovo
úr síðari flóttamannahópnum sem
kom hingað til lands hafa nú komið
sér fyrir í íbúðum í Fjarðabyggð
og eru óðum að venjast lífinu á ís-
landi. Morgunblaðsmenn litu í
heimsókn til Gani Beciri, Zymrie
eiginkonu hans og barna þeirra Ki-
mete, Burim og Urim. Þegar blaða-
menn bar að garði var Zymrie að
baka brauð að sið Albana. Flestar
konur þaðan baka á hverjum
morgni. Brauðið var ljúffengt og
skildu blaðamenn mætavel hvers
vegna Zymrie bakar það daglega.
Fjölskyldan hefúr náð ótrúlega
góðum tökum á fslensku miðað við
þann stutta tíma sem hún hefur
verið hér. Samræðurnar fóru fram
á íslensku og gengu bærilega en
lengi framan af var enginn túlkur
viðstaddur. Gani dró þó fram glós-
umar til að styðjast við og með
þær við höndina var eftirleikurinn
auðveldur. Allur hópurinn stundar
íslenskunám á hverjum morgni.
Fjölskyldunum hefur verið vel
tekið af íbúum Fjarðabyggðar og
aðstoða stuðningsfjölskyldur þær
við það nauðsynlegasta, eins og
innkaup og annað í þeim dúr.
Nokkrir úr hópnum hefja vinnu í
næstu viku og um helgina munu
konurnar selja brauð á hæðinni
fyrir ofan kaupfélagið, þar sem
jafnframt er starfrækt nokkurs
konar félagsmiðstöð hópsins.
fastar skorður
FJÖLSKYLDUFAÐIRINN Gani blaðar í glósunum sínum og leitar að
ákveðnu orði á íslensku. Dóttir hans Kimete fylgist með.
ILIR, sem á íslensku þýðir friður, er bróðursonur Gani. Hann kom í
heimsókn til fjölskyldunnar og æfði sig að skrifa.
Samgönguráðherra um álit samkeppnisráðs vegna málefna Landssíma fslands hf.
Segir ráðið ganga
lengra en efni eru til
STURLA Böðvarsson samgönguráð-
herra sagði við utandagskrárum-
ræðu á Alþingi í gær að samkeppnis-
ráð gengi lengra en efni stæðu til í
álitsgerð sinni um málefni Lands-
síma íslands hf. Gagnrýndi hann
jafnframt mörg atriði álitsgerðarinn-
ar.
Meðal þess sem fram kemur í áliti
samkeppnisráðs er að eignir Pósts
og síma hafi verið vanmetnar þegar
fyrirtækinu var breytt í hlutafélag,
að viðskiptavild þess hafi ekki verið
metin og að 7,5 milljarða króna skuld
þess við lífeyrissjóð starfsmanna rík-
isins hafi verið lækkuð um 1,5 millj-
arða króna. Telur samkeppnisráð að
í þessu felist ríkisstuðningur sem
brýtur í bága við ákvæði samkeppn-
islaga og raskai’ samkeppnisstöðu
keppinauta Landssímans. Fer sam-
keppnisstofnun því fram á að sam-
gönguráðherra gangist fyrir endur-
mati á eignum Landssímans, mati á
viðskiptavild hans og afturköllun á
lækkun skuldar hans við lífeyrissjóð
starfsmanna ríkisins. Þá leggur sam-
keppnisstofnun til að stofnað verði
nýtt hlutafélag um GSM-þjónustu
Landssímans.
Viðbrögð samgönguráðherra
Sturla Böðvarsson samgönguráð-
herra vildi ekki kveða upp úr um
hvort mat á eignum Landssímans
væri rétt. Sagði hann þrjú ár liðin
frá því að matið var gert og að nauð-
synlegt væri að fara aftur yfir stöðu
mála. Hann gagnrýndi hins vegar
samkeppnisráð fyrir að hafa ekki
gert sjálfstæða úttekt á eignum
Landssímans og kvað það aðeins
hafa sagt að um vanmat væri að
ræða án þess að birta fyrir því frek-
ari rökstuðning. Hann sagði það
einnig rangt að ekki hefði farið fram
neitt mat á viðskiptavild Pósts og
síma og taldi það vafasamt að segja
ríkisaðstoð felast í því að losa fyrir-
tæki í ríkiseign undan hluta lífeyris-
skuldbindinga sem eru umfram
skuldbindingar sem almennt gilda.
Sturla gagnrýndi einnig sam-
keppnisráð fyrir að miða umfjöllun
sína um of við reglur EES-samn-
ingsins um bann við ríkisaðstoð.
„Það er ekki í verkahring Sam-
keppnisstofnunar að fjalla um þær
reglur, heldur er það Eftirlitsstofn-
un EFTA sem á að fjalla um þær. í
samkeppnislögum er ekki að finna
sambærileg ákvæði um bann við rík-
isaðstoð. Það orkar því tvímælis að
ráðið skuli fjalla um þetta,“ sagði St-
urla. Þá kvað hann málsmeðferð
samkeppnisráðs ekki samræmast
reglum stjórnsýsluréttar þar sem
fulltrúum samgönguráðuneytisins og
Landssímans hefði ekki verið gefinn
kostur á að tjá sig um meinta ólög-
mæta ríkisaðstoð frammi fyrir ráð-
inu.
Hvað varðar þau tilmæli Sam-
keppnisstofnunar að stofnað verði
nýtt hlutafélag um GSM-þjónustu
Landssímans sagðist Sturla telja
stofnunina þar komna út á mjög
hálan ís með því að ætla að skipu-
leggja atvinnustarfsemi í landinu.
Kvaðst Sturla ekki viija brjóta
Landssímann upp þar sem það veikti
stöðu fyrirtækisins og minnkaði
verðgildi þess. Sagði hann það aðal-
atriði að tryggja með eftirliti aðfarið
væri eftir reglum um að ekki væri
verið að millifæra og nota styrk
einnar deildar til þess að klekkja á
samkeppnisaðilum.
Afstaða stjórnarandstöðunnar
Guðmundur Árni Stefánsson,
þingmaður Samfylkingarinnar, var
málshefjandi utandagskrárumræð-
unnar. Sagði hann athugasemdir
samkeppnisráðs kalla á að þingmenn
glöggvuðu sig á því hvort samkeppn-
islög, fjarskiptalög, lög um hlutafé-
lagavæðingu Landssímans og
ákvæði EES-samningsins færu sam-
an og hvort ákvarðanir af hálfu
markaðsráðandi fyrirtækja gengju
þvert á lagafyrirmæli. Þá sagði hann
nauðsynlegt að fá fram viðhorf sam-
gönguráðherra og ríkisstjórnarinnar
varðandi ákveðin grundvallaratriði
og að þar dygði ekki að vera með
pólitískan útúrsnúning og einfóldun,
auk þess sem ekki væri rétt að
hengja boðbera slæmra tíðinda, þ.e.
Samkeppnisstofnun
„Samkeppnisstofnun vinnur sam-
kvæmt lögum og er gert að tryggja
það í okkar litla landi að virk sam-
keppni eigi sér stað og að markaðs-
ráðandi fyrirtæki geti ekki farið sínu
fram og til dæmis drepið keppinauta
sína með því að lækka verð óhóflega
tímabundið eða þar til samkeppnis-
aðilinn hefur gefist upp,“ sagði Guð-
mundur Árni.
Aðrir þingmenn stjórnarandstöð-
unnar sem stigu í ræðustól voru á
svipaðri skoðun og Guðmundur Ámi.
Steingrímur J. Sigfússon, þingmaður
Vinsti-i hreyfingarinnai’-græns fram-
boðs, sagði athugasemdir samkeppn-
isráðs vera alvarlega aðvörun til rík-
isstjórnai-innar um að vanda til verks-
ins við hlutafélagavæðingu ríkisfyrir-
tælq'a, ekki síst þeirra sem hafa búið
við einokunar- eða fákeppnisumhverfi
eða sinnt mikilvægri þjónustu fyrir
almenning.
Svaníríður Jónasdóttir, þingmaður
Samfylkingarinnai', beindi spjótum
sínum að eignarhaldi Landssímans á
gru nnfj arskiptakerfinu og sagði það
leiða til þess að keppinautar fyrirtæk-
isins kæmust ekki hjá því að eiga við
það viðskipti. Því væri nauðsynlegt að
stjómvöld huguðu vandlega að sam-
keppnisstöðu þeiira fyrirtækja er
hefðu verið eða væru að hasla sér völl
á fjarskiptamarkaðnum.
Ogmundur Jónasson, þingmaður
Vinstri hreyfingarinnar-græns fram-
boðs, sagðist ekki telja víst að tryggt
væri að góð þjónusta og lágt verð til
neytenda hlytist með sölu Landssím-
ans og mæltist til þess að staldrað
yrði við og öllum söluáformum
frestað.
Þá spurði Bryndís Hlöðversdóttir,
þingmaður Samfylkingarinnar,
hversu langt menn væm tilbúnir að
ganga í þeirri viðleitni að tryggja
samkeppnisstöðu Islendinga gagn-
vart útlendingum. Spurði hún einnig
hvort ríkisstjórnin væri tilbúin að
vernda samkeppnisstöðu Landssím-
ans á sama hátt og hún gerir með
veitingu einkaréttar til gerðar gagna-
grunns á heilbrigðissviði, eða hvort
hún teldi samkeppni aðeins af hinu
góða á ákveðnum sviðum.