Morgunblaðið - 17.06.1999, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 17.06.1999, Blaðsíða 26
26 FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 1999 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Sífellt fleiri ummerki voðaverka Serba koma í ljós Draugabæir og ráfandi kettir Togstreita mynd- ast í friðargæslu- stjórn í Pristina Pristina. APP, AP, Reuters. TALSMAÐUR KFOR-friðargæslu- sveita Atlantshafsbandalagsins (NATO) sagðist í gær „ánægður og sáttur“ við framgang brottflutnings serbneskra hersveita frá Kosovo sem hann sagði hafa farið nær und- antekningarlaust fram samkvæmt áætlun. Þó virðist friðargæslan í hér- aðshöfuðborginni Pristina ekki ætla að ganga átakalaust fyrir sig og hef- ur spennan þar magnast mikið sl. daga. Robin Clifford, ofursti í KFOR, sagði í gær að júgóslavneskar her- sveitir og serbnesk lögregla hefðu að mestu staðið við skilmála friðarsam- komulagsins um að yfirgefa „svæði eitt“ í Kosovo fyrir miðnætti á þriðjudag. Það svæði nær yfir suður- hluta Kosovo-héraðs og nágrenni Pristina. Var nokkrum hersveitanna auka- lega gefinn 24 klukkustunda frestur til að yfirgefa Kosovo að sögn Clif- fords, þar sem framkvæmdin hefði ekki gengið sem skildi. Þó var það mat embættismanna KFOR að flutn- ingurinn færi almennt skipulega og vel fram. í gær höfðu um 26.000 af þeim 41.000 hermönnum sem voru í hérað- inu yfirgefið Kosovo, ásamt 110 skriðdrekum, 210 brynvörðum liðs- flutningabílum og 151 þungavopni og vopn sem hefur orðið til þess að auka tortryggni serbneskra íbúa sem í stórum stíl hafa yfirgefið Kosovo samfara serbneskum hermönnum. Á þriðjudaginn hófu liðsmenn UCK skothríð á friðargæsluliða í austurhluta borgarinnar, en engan sakaði. Voru mennirnir handteknir en þeir sögðust hafa talið serbneska hermenn hafa verið á ferð. Eftir at- vikið sem átti sér hliðstæður víðs- vegar í Pristina, skipaði Bill Rollo, yfirmaður fjórðu brynvörðu her- deildarinnar, að allt eftirlit skyldi hert og varúðarráðstafanh' gerðar til að stemma stigu við ófriðnum. Þá náði bresk fallhlífarsveit eftir nokkurra klukkustunda samninga- þóf að fá liðsmenn UCK, sem um- kringt höfðu herskála serbneskra hermanna, til að lúta stjórn KFOR. Embættismenn NATO eiga nú í samningaviðræðum við leiðtoga UCK um afvopnun. Sögðu talsmenn Bandaríkjastjórnar í gær að leiðtog- ai' frelsishersins hefðu ítrekað sagst muna afvopnast, en hins vegar væri það ekki alfarið í þeirra valdi að láta einstaka herdeildir UCK leggja nið- ur vopn. Djakovica og þorpanna í kring, skammt frá landamærum Albaníu, hafi orðið hvað verst úti í þjóðemis- hreinsunum Serba í héraðinu. Hvort sem ástæðan er sú að um 99 prósent af íbúunum eru Albanar eða að Frelsisher Kosovo (UCK) hefur haft aðsetur þar er ekki vitað. Það sem á hinn bóginn liggur Ijóst íyrir er að með komu friðargæsluliða og full- trúa Stríðsglæpadómstóls Samein- uðu þjóðanna til Kosovo finnast sí- fellt fleiri verksummerki þeirra sorgarsagna sem flóttafólkið hefur sagt af þjóðemishreinsunum víðs- vegar í héraðinu. Til þessa hefur vitneskja um voða- verk, sem framin hafa verið í Kosovo síðustu mánuði, verið byggð á frá- sögnum flóttafólks frá Kosovo og gervihnattamyndum af fjöldagröf- um. Nú þegar blaðamönnum hefur verið heimilaður aðgangur að Kosovo, ásamt friðargæsluliðum og hjálparstarfsmönnum, hefur komið í ljós að frásagnimar, oft niður í minnstu smáatriði, virðast eiga við rök að styðjast. Mike Doubleday, yfirmaður í bandaríska sjóhernum, sagði í gær að friðargæsluliðar KFOR hefðu fundið ummerki 90 fjöldagrafna frá því að þeir héldu inn í Kosovo um sl. helgi. A mánudag fundu KFOR-friðar- gæsluliðar undir stjórn NATO fyrstu ummerki um fjöldagrafir u.þ.b. 100 Albana, í þorpum um- hverfis Kacanik í suðurhluta Kosovo. Ummerki um fleiri fjöldagrafir fundust svo á þriðjudag í Koliq norð- ur af Pristina, héraðshöfuðborg Kosovo. Að sögn vitna féllu 64 Al- Thabo Mbeki sver forsetaeiðinn Heitir því að berj- ast gegn fátækt Pretóríu. Reuters. sprengjuvörpu. Um 14.000 friðargæsluliðar undir stjórn NATO era í Kosovo og er bú- ist við um 3.000 frönskum friðar- gæsluliðum til Kosovo til viðbótar í dag. Með liðsflutningi Serba hefur KFOR nú yfir þriðjungi héraðsins að ráða. Á þriðjudagskvöld keyrði bílalest rússneskra hersveita frá Bosníu til Pristina með mat og drykk fyrir þá 200 rússnesku hermenn sem komið höfðu NATO í opna skjöldu með því að hertaka flugvöllinn þar sl. laugar- dagsnótt, á undan KFOR. Gaf þetta ráðamönnum á Vestur- löndum tilefni til að efast um sam- starfsvilja Rússa við friðargæslulið NATO en samningaviðræður milli bandarískra og rússneskra ráða- manna fara nú fram í Helsinki í Finnlandi. KFOR sakað um iinkind gagnvart liðsmönnum UCK Ástandið í Pristina er ótryggt, en töluvert hefur borið á ofbeldisverk- um sl. daga, aðallega í úthverfum borgarinnar. Svo virðist sem aðal- götumar séu undir stjóm KFOR, en á hliðargötum virðast liðsmenn UCK vera famir að hreiðra um sig, nokk- uð sem orðið getur að verulegu vandamáli. I friðarsamningunum var kveðið á um að frelsisherinn skyldi hætta baráttu og leggja niður vopn sín er KFOR héldi inn í Kosovo. Hins veg- ar eru meðlimir UCK ennþá ein- kennisklæddir og bera margir þeirra THABO Mbeki sór í gær embættis- eið sinn sem nýr forseti Suður-Af- ríku og varð þar með annar blökku- maðurinn er gegnir embættinu eftir lýðræðislegar kosningar. I innsetn- ingarræðu sinni sór Mbeki þess eið að berjast af öllum mætti gegn svartnætti þeirrar útbreiddu fátækt- ar sem hrjáð hefur íbúa landsins allt síðan aðskilnaðarstefna hvíta minni- hlutans var afnumin fyrir tæpum áratug. Frelsishetjan Nelson Mand- ela, fráfarandi forseti Suður-Afríku, var hylltur óspart við hina hátíðlegu athöfn í Pretóríu, höfuðborg lands- ins, og hét hinn nýkjörni forseti því að senda Mandela brosandi inn í ævikvöldið að loknum farsælum ferli sínum sem friðargjafi og leiðtogi. Yfír 4000 háttsettir gestir hvaðanæva úr heiminum og 30.000 heimamenn, sem þyrptust á svæðið sem umlykur stjórnarbyggingarnar í Pretóríu, fylgdust með því er Mbeki sór embættiseiðinn. Forsetinn, sem hefur verið illa haldinn af kvefi und- anfarna daga, hóf ræðu sína með ljóðrænum hætti og ræddi um nauð- syn þess að huga að þeim sem undir hafa orðið í hinni hörðu baráttu um lífsgæðin og ítrekaði að einingar allr- ar þjóðarinnar, sem skilin hefði verið að í aldanna rás, væri þörf. „Draum- ar okkar geta ekki verið annað en martraðir á meðan milljónir með- bræðra búa við ömurleg kjör. Við getum ekki unnt okkur hvíldar á meðan milljónir manna era án at- vinnu og aðrir eru neyddir til að betla, ræna og myrða til að afla sér ogrínum viðurværis," sagði Mbeki. I gær voru 23 ár síðan mestu upp- þot blökkumanna gegn ríkisstjórn hvíta minnihlutans urðu í Suður-Af- ríku og var atburðarins minnst við athöfnina. Nú er vika þar til Mand- ela nær 81. aldursári og sagði hann að hans fyrsta verk þegar hann kæmist á eftirlaun væri að fara ásamt Graea Machal, eiginkonu sinni, í stutt frí. Raunsæismaður sem láta mun að sér kveða Muammar Ghadafi, forseti Líbýu, og Yasser Arafat, forseti Palestínu, vora á meðal þeirra erlendu þjóð- höfðingja er kvöddu frelsishetjuna og nóbelsverðlaunahafann Mandela sem notið hefur hylli milljóna manna um víða veröld. Thabo Mbeki var í forystu þeirra banar þar fyrir hendi serbneskra hermanna í apríl sl. er þeir reyndu að flýja héraðið. I Mala Krasa, norðvestur af Prizren, fannst m.a. 21 lík á sveita- bæ. Öll vora þau illa leikin eftir bruna en að sögn vitna var aðeins ein beinagrindin í heilu lagi. Báru út- veggir hússins glögglega merki kúlnahríðar og af líkunum mátti sjá að meðal hinna látnu var barn. Handan við aðalgötuna í Velika Krasa könnuðu þýskir friðargæslulið- ar ummerki um fjöldagröf sem liðs- menn UCK höfðu vísað þeim á og sögðu innihalda lík allt að hundrað Albana sem drepnir vora seint í mars. Fyrirfínnst meiri grimmd en þetta? Skammt norðvestur af Velika Krasa er þorpið Bela Crkva. Ibúam- ir bentu friðargæsluliðum á fjölda- gröf með 64 Albönum sem sebneskir hermenn era sagðir hafa drepið 25. mars sl., degi eftir að loftárásirnar hófust. Sá yngsti í gröfinni er sagður 14 ára og sá elsti 82. í Bela Crkva bjuggu um þrjú hundrað fjölskyldur áður en serbneskir hei-menn réðust þar inn. Nánast hvert einasta hús í þorpinu þarf að endurbyggja. Einn þorpsbú- anna sagði blaðamanni The New York Times að hann og vinur hans hefðu leitað fórnarlamba voðaverk- anna í nokkra daga á eftir. Þeir fundu líkin við læk skammt frá þorpskjarnanum og víðar. Mesta áfallið var þegar þeir fundu tveggja ára gamalt barn á lífi ofan á hrúgu af líkum. „Þegar við komum á miðnætti lá hann milli móður sinnar og fóður. Hann grét. Fyrirfinnst meiri grimmd enþetta?" spurði þorpsbúinn. I mörgum af frásögnum þorpsbúa víðsvegar í Kosovo kemur fram að þeir grófu fjölda fólks um miðjar nætur við birtu vasaljóss sem þeir fóldu undir yfirhöfnum sínum af hræðslu við að hermenn sæju til þeirra. Stundum era grafirnar merktar með nafni en í sumum til- vikum er aðeins að finna þorpsheitið. Enn aðrar era ómerktar og munu jafnvel aldrei finnast. I hinum aldargamla bæ Djakovica gengu örfáir íbúar um göturnar, margir hverjir í fyrsta skipti í tvo og hálfan mánuð, innan um niðumídd hús og verslanir. Menningarlegar minjar bæjarins og moskvur hafa verið eyðilagðar, eins og takmarkið er peð þjóðernishreinsunum. Ibúar Djakovica höfðu verið í fel- um í húsum sínum og nágranna sinna þangað sem þeir grófu sér leið til að forðast grimmdarverk serbneskra hermanna. Tugir þúsunda flúðu á fyrstu dögunum eftir að loftárásimar hófust og um eitt þúsund karlmenn voru numdir á brott að sögn íbúanna. Þar hafa fundist fjöldagrafir með a.m.k. 150 líkum Albana. Sums staðar má fmna ummerki um fjöldagrafir sem virðast hafa ver- ið teknar í flýti en í Djakovic, sem og annars staðar, bárust einnig fregnir af því að mörg líkanna hefðu verið grafin í kirkjugörðum til að hylma yfir að um nýjar grafir sé að ræða. Hani Hoxha, gamall maður frá Djakovica, hafði sagt blaðamanni í Albaníu frá reynslu sinni af serbneskum hermönnum og voða- verkum þeirra. Er blaðamenn gengu um fyrrverandi híbýli hans og ná- grenni var um að litast eins og gamli maðurinn hafði skýrt frá, þarna mátti sjá blóðbletti, lík og fleira, allt átti við lýsingu hans í smáatriðum. Á kaffihúsinu fundust lík fólksins sem hann hafði sagt að serbneskir hermenn hefðu drepið á grimmdar- legan hátt. I nágrenni heimilis hans mátti sjá eyðilegginguna sem hann hafði reynt að lýsa fyrir blaðamann- inum. Umhverfis hús hans var nán- ast ekkert að finna, búðirnar voru lokaðar og aðeins örfáir kettir ráfuðu um götuna. Þegar komið var að húsi mannsins var það branarústir einai’ og í rústunum fundust líkamsleifar eiginkonu hans, tveggja dætra og sex ára gamals barnabarns sem hafði verið slátrað, rétt eins og hann hafði lýst því. AP THABO Mbeki, nýkjörinn forseti Suður-Afríku, sór í gær embættiseið sinn við ákafan fógnuð viðstaddra. blökkumanna er mest létu að sér kveða í baráttu Afríska þjóðarráðs- ins (ANC) gegn aðskilnaðarstefnu stjórnvalda. Á þeim tíma var haft eftir honum að hvíti minnihlutinn hefði bæði völdin og vígtólin í sínum höndum en meirihluti blökkumanna hefði fjöldann og reiðina. Líkt og Mandela vai' Mbeki einn þeirra er komu af stað þeim sögu- legu tilhliðranum sem gerðu suður- afrísku þjóðinni kleift að feta sig á braut lýðræðis, hver sem kynþáttur- inn var. Hann var líka framarlega í flokki í kosningabaráttunni árið 1994 er Mandela var kjörinn forseti. Flestir telja að þær kosningar hafi skipt sköpum í lýðræðisþróun lands- ins. Mbeki hefur sagt að ekki sé hægt að bera sig saman við Nelson Mand- ela og hefur hann lýst því yfir að ætl- un hans sé ekki að feta í fótspor Mandelas. Telja þeir sem þekkja til Mbekis að forysta hans verði ólík því sem fólk vandist af hálfu Mandela. I raun verði hann forseti sem líkja mætti við framkvæmdastjóra, þ.e. hann sé maður er hrindi hlutum í framkvæmd og ryðji fyrirstöðum úr vegi. Er Mandela var inntur eftir því fyrir nokkrum misserum hvort hann hefði einhver heilræði að gefa Mbeki, svaraði hann: „Ég hef engin ráð að gefa Thabo, hann hefur þá visku til að bera sem þarf til að stjórna þessu landi." Reuters SERBI tekur upp skammbyssu eftir að hafa lent í deilum við Albana í Gnjilane, úthverfi Pristina. Hafa átök brotist út víða í borginni sl. daga. Drenica, Djakovica. AFP, Reuters. „FIMM aldir og þeir brenndu allt á einni nóttu.“ Þannig lýsti Fatime Boshnjaku aðkomunni þar sem hann stóð andspænis rústum hundraða íbúðarhúsa og verslana í miðborg Djakovica, byggingum sem báru kúlnahríð serbneskra hermanna ófagurt vitni. Af lýsingum þeirra Albana að dæma sem flúið hafa Kosovo á síð- ustu mánuðum virðist sem íbúar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.