Morgunblaðið - 17.06.1999, Blaðsíða 22
£<? ooor fT/rji vt q,rr)i(TTi'rT/WI'í
22 FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 1999
fflUAISrHUDflOM
MORGUNB LAÐIÐ
NEYTENDUR
Bréf og blöð eiga ekki
að standa út úr lúgunni
SÚ ALMENNA vinnuregla er í
gildi hjá fyrirtækjum að starfsfólk
sem sinnir útburði hjá þeim sjái til
þess að póstur og blöð fari alla leið
inn um lúguna en standi ekki í
henni miðri. Stundum hefur það þá
komið fyrir að blöðum er stolið eða
það gerst í rigningu og slagveðri að
fólk er að fá póstinn sinn eða blöðin
blaut ogsundurtætt.
„Hjá Islandspósti er sú almenna
vinnuregla í gildi að póstburðarfólk
setji allan póst inn um lúguna en
skilji hann ekki eftir fastan í lúg-
unni,“ segir Örn Skúlason fram-
kvæmdastjóri markaðs- og sölu-
sviðs Islandspósts. Örn segir að
fólk fari á sérstök byrjendanám-
skeið þegar það taki að sér útburð
póstsins og þar segir hann að þessi
mál séu tekin fyrir. Þá er tekið við
ábendingum og kvörtunum á
stöðvunum og reynt að koma mál-
unum í lag ef kvartanir koma upp.
Öm bendir á að stundum sé
ástæðan líka sú að bréfalúgur séu
mjög þröngar og litlar. „Viðmiðun-
arreglumar era að lúgumar séu
25x260 mm að stærð og margar
lúgur uppfylla ekki þessar kröfur."
Þá bendir hann á að í fjölbýlishús-
um séu póstkassar oft mjög litlir
og þegar búið er að setja blað eins
og Morgunblaðið í kassann er lítið
pláss fyrir annan póst.
Strangar reglur í gildi
Við vinnum samkvæmt reglum
frá árinu 1994 og í 7. grein þeirra
kemur íram að setja eigi póst í
póstkassa eða inn um póstlúgu,"
segir Ingigerður Heiðarsdóttir
Morgunblaðið/Árni Sæberg
dreifingarstjóri hjá Póstdreifingu.
„Ef engin lúga er á húsinu á að
sleppa því og ef póstkassinn er
troðfullur á sömuleiðis að sleppa
honum.“ Ingigerður segir að
starfsfólki fyrirtækisins sé óheimilt
að setja póst á gólf húsa eða ofan á
póstkassa. Hann á í öllum tilfellum
að fara ofan í lúgu eða kassa. Sé
orðsending á póstkassa eða lúgu
þess efnis að auglýsingaefnis sé
ekki óskað er orðið við þeirri bón.
„Þessar starfsreglur fær starfs-
fólk okkar afhentar þegar það hef-
ur störf hjá okkur og við leggjum
ríka áherslu á að unnið sé eftir
þeim. Til að minna starfsfólkið á
reglumar sendum við því með
reglulegu millibili orðsendingar
þar að lútandi." Ingigerður segir
það heyra til undantekninga að
starfsfólk fari ekki eftir þessum
reglum og hún bendir á að ef svo sé
fái það viðvöran.
Sjaldan kvartað
Á Morgunblaðinu fá blaðberar í
hendur starfsreglur þegar þeir
hefja störf hjá blaðinu. Öm Þóris-
son áskriftarstjóri Morgunblaðsins
segir að þar sé tekið fram að Morg-
unblaðið skuli sett tryggilega inn
um bréfalúgu þannig að hún lokist.
„Þetta er gert til að hverfult veður-
far og óprúttnir nágrannar komi
ekki í veg fyrir ánægjulega morg-
unstund við blaðalestur.
Það er sem betur fer sjaldgæft
að kvartað sé yfir blautu eða
skemmdu blaði. Algengara er að
því sé stolið, sérstaklega í fjölbýlis-
húsum þar sem gamlir póstkassar
era.“ Öm segir að í eldri húsum
hafi lúgur og póstkassar oft verið
hannaðar fyrir allt aðra stærð af
blöðum og minna magn af pósti en
dreift er í dag.
Hann segir að færst hafí í vöxt
að fólk snúi sér til áskriftardeildar
blaðsins þegar húsfélög endumýja
póstkassa í sameign. „Það er nauð-
synlegt að hafa í huga að blöð era
stærri en áður og ómerktur póstur
fyrirferðarmeiri. Smiðir, verktakar
og sérhæfð fyrirtæki eins og Akron
smíða póstkassa eins og fólk vill
hafa þá og breyta lúgum þannig að
allur póstur eigi greiða leið til
fólks.“
Morgunblaðið/Jim Smart
í KRYDDKOFANUM fást m.a. austurlensk matvæli og krydd.
Kryddkofinn
opnaður á ný
VERSLUNIN Kryddkofinn hefur
nú verið opnuð á ný á Njálsgötu
112, en hún var áður til húsa að
Skeifunni 8. I fréttatilkynningu frá
Kryddkofanum kemur fram að þar
sé hægt að fá úrval af austurlensku
kryddi og ýmis matvæli og einnig
verður boðið upp á heitan mat í há-
deginu. Þá hefur vöraúrvalið aldrei
verið meira en nú.
Hættuleg ferðarúm
NÝVERIÐ lést 11 mánaða gamalt
bam í Hollandi er ferðarúm sem
það svaf í féll saman. Orsök slyss-
ins er talin vera sú að rúmið var
ekki rétt fest saman. Samkvæmt
upplýsingum frá markaðsgæslu-
deild Löggildingarstofu er þessi
ákveðna tegund ferðarúma ekki á
markaði hérlendis en svo virðist
vera sem mörg þeirra ferðarúma
Bjóðum nú næstu daga hitakúta,
rafmagnsofna, eldavélar, kæliskápa,
ryksugur, matvinnsluvélar, sjónvörp,
hljómflutningstæki og margt fleira
í sumarbústaðinn á
sérstöku tilboðsverði.
I
erncns eídovél HN 26023
Sannköllud gæðaeldavél
með óvenju-rúmgóðum ofni.
H x b x d = 85 x 50 x 60 sm.
39.900kr.
stgr.
Fínn hiti og heitt vatn«
sumarbústaðinn.
Traustir og margreyndir
rafmagnsofnar og
hitakútar frá Siemens,
Dimplex og Nibe.
I
I
I
Vandaðar vörur,
gott verð og góð þjónusta.
Gríptu gæsina
meðan hún gefst.
Króm og hvítt
Árviridnn
Grindavík
Rafborg
Garður:
Raft.ekjav. Síq Ingvars*.
Keflavik:
Ljósboginn
Hafnarfjórdur:
Rafbúft Skúlo,
Áriaskeiðí
SMITH &
NORLAND
I
Nóatúni 4
105 Reykjavík
Simi 520 3000
www.sminor.is
Gott á pizzur!
Dreifing Heilsa ehf • sími 533 3232
sem til sölu eru hér á landi séu sett
upp á sambærilegan hátt.
Algengt er að ferðarúm séu sett
upp á þann hátt að fyrst eru hlið-
amar reistar við þar til þær era
beinar og oft heyrist smellur þegar
hliðarnar festast og uppsetningu
þeirra lýkur. Því næst er botninum
ýtt niður og þá er rúmið tilbúið. Ef
hins vegar hliðamar ná ekki að
festast í beinni stöðu getur rúmið
fallið saman með ófyrirsjáanlegum
afleiðingum.
Hjá markaðsgæsludeild Lög-
gildingarstofu fengust ennfremur
þær upplýsingar að dæmi væru
um að eldri ferðarúm sem algeng
era, t.d. í sumarbústöðum, hefðu
orsakað slys. Þau slys er fyrst og
fremst hægt að rekja til þess að
ferðarúmin vora orðin gömul
og/eða slitin og héldu því ekki
þunga bamsins.
Ferðarúm era auðveld í upp-
setningu en mikilvægi þess að
kaupendur fari eftir leiðbeiningum
um notkun vöra er aldrei of oft ít-
rekað. Markaðsgæsludeild Lög-
gildingarstofu vill hvetja kaupend-
ur ferðarúma að kynna sér upp-
setningu og aðrar ráðstafanir er
tryggja öryggi vörannar áður en
notkun þeirra hefst.
Kryddlegin þistilhjörtu
MONDVNINI
Hámarks gœði, einstakt hragð