Morgunblaðið - 20.06.1999, Qupperneq 4
4 SUNNUDAGUR 20. JÚNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
VIKAN 13/6 -19/6
►PETER Angelsen, sjávarút-
vegsráðherra Noregs, sagði
að samþykkt norska stór-
þingsins á Smugusamningum
væri gjöf tíl Islendinga á
þjóðhátíðardaginn, en tók
jafnframt fram að hann væri
líka gjöf tíl Norðmanna. Ang-
elsen átti fund með starfs-
bróður sínum á íslandi, Áma
Mathiesen, á mánudag og
komu þeir inn á samninginn,
sjávarspendýr og samsldpti
þjóðanna í sjávarútvegsmál-
um við Evrópusambandið. Al-
þingi samþykkti samninginn
16. júní og sfðan var hann
samþykktur í norska þinginu
17. júní.
►FORSVARSMENN íslands-
síma undirrituðu í vikunni
samstarfssamning að við-
stöddum Sturlu Böðvarssyni,
samgönguráðherra, og Conni
Simonsen, forstjóra Ericsson.
Samningurinn, sem er tíl
þriggja ára, nemur nokkur
hundruð milljónum króna.
►AÐSÓKNARMET í sögu
Blóðbankans var sett nú í
vikunni. Almenningur brást
vel við neyðarkalli um að
blóðbirgðir bankans væru
undir hættumörkum.
►FJALLAÐ var um virkjun-
aráform norðan Vatnajökuls
í norska blaðinu Aftenposten.
Umhverfisverndarsamtökin
World Wide Fund for Nature
opnuðu fyrir umræðu um
málið þar í Iandi. Fram-
kvæmdastjóri samtakanna
WWF Artíc Programme
sagði að aðilar innan ríkis-
stjómar Islands hefðu beðið
samtökin að tala við Norsk
Hydro og sannfæra þá um að
draga sig út úr fyrirhuguðum
álversframkvæmdum við
Reyðarfjörð svo bjarga mætti
hálendinu.
Morgunblaðið/Sverrir Vilhelmsson
Þjóðhátíð í
rysjóttu veðri
HÁTÍÐAHÖLD í tilefni 17. júní voru
vel sótt um land allt þrátt fyrir kalsa-
veður víðast hvar. Sums staðar var
gripið til þess ráðs að færa skemmtanir
inn í hús. Rúmlega 20.000 manns voru í
miðbæ Reykjavíkur þegar mest var, að
mati lögreglu.
íslenskir aðilar
kaupa 17% hlut í
DeCODE
SAMNINGUR var undirritaður um
kaup Fjárfestingarbanka atvinnulífsins,
Landsbankans, Búnaðarbankans og
eignarhaldsfélagsins Hofs á hlutabréfum
í DeCODE Genetics, eignarhaldsfélagi
Islenskrar erfðagreiningar í vikunni.
Með þessum kaupum hafa Islendingar
eignast tæplega 70% hlut í fyrirtækinu.
Hættir framkvæmda-
stjórn hjá LÍÚ
STJÓRN LÍÚ samþykkti í vikunni að
Kristján Ragnarsson léti af störfum
sem framkvæmdastjóri samtakanna um
næstu áramót eftir 30 ára starf. Við
framkvæmdastjórninni tekur Friðrik J.
Amgrímsson lögfræðingur. Kristján
mun áfram gegna stjórnarformennsku í
sambandinu.
Óvissa áÞingeyri
BYGGÐASTOFNUN hefur synjað hrað-
frystihúsinu Rauðsíðu á Þingeyri um lán
til bjargar rekstri þess. Um eitt hundrað
starfsmenn frystihússins bíða í óvissu
meðan framtíð fyrirtækisins er rædd.
Tugþúsundir halda
heim til Kosovo
FJÖLDI flóttafólks frá Kosovo, er
haldið hefur heimleiðis frá búðum í ná-
grannaríkjunum Albaníu og Makedón-
íu, margfaldaðist er leið á síðustu viku
og ríkti umferðaröngþveiti við landa-
mærin, að því er haft var eftir fulltrúa
Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóð-
anna á miðvikudag. Þann dag hefðu
hátt í tólf þúsund manns farið yfir
landamærin. Fréttamenn töldu þetta
vanáætlað, og greindu frá því að tugir
þúsunda flóttafólks biðu í endalausum
röðum Albaníumegin landamæranna og
biðu þess að komast yfir. Samtímis
þessu hafa Serbar yfirgefið héraðið
þúsundum saman af ótta við Kosovo-Al-
bana og menn Frelsishers héraðsins í
hefndarhug. Sagði talsmaður Öryggis-
og samvinnustofnunar Evrópu í
Kosovo, að sorglegt væri að sjá að eitt
flóttamannavandamálið væri vart af-
staðið er annað skapaðist.
Forsetaskipti í
Suður-Afríku
THABO Mbeki sór
embættiseið sem
nýr forseti Suður-
Afríku á miðviku-
dag og varð þar
með annar blökku-
maðurinn sem
gegnir því embætti
eftir lýðræðislegar
kosningar. Um fjög-
ur þúsund boðs-
gestir, hvaðanæva úr heiminum, voru
viðstaddir embættistökuna í Pretóríu. í
innsetningarræðu sinni sagði Mbeki að
hann myndi berjast af öllum mætti
gegn svartnætti þeirrar útbreiddu fá-
tæktar sem hijáð hefur íbúa landsins.
Fyrirrennari Mbekis, Nelson Mandela,
var óspart hylltur við athöfnina, og hét
Mbeki því að senda hinn fráfarandi for-
seta brosandi inn í ævikvöldið að lokn-
um farsælum ferli sem friðargjafi og
leiðtogi.
►ÓTTAST var að allt að 25
hefðu farist í öflugum jarð-
skjálfta er reið yfir suður-
hluta Mexíkú á þriðjudags-
kvöld. Skjálftínn mældist 6,7
stíg á Richter og voru upp-
tökin um tvö hundruð kíló-
metra suðaustur af Mexíkú-
borg. Mikill útti greip um sig
í borginni, en litlar skemmdir
virtust hafa orðið þar.
►AL GORE, varaforsetí
Bandaríkjanna, lýsti þvf yfir
á miðvikudag að hann sækt-
ist eftír útnefningu sem for-
setaefni Demúkrataflokksins
í kosningunum er haldnar
verða á næsta ári. Fyrr í vik-
unni lýsti George Bush yngri,
ríkissljúri í Texas, yfir því,
að hann sæktist eftir útnefn-
ingu sem forsetaefni
Repúblíkanaflokksins.
►RÍKISSTJÓRNIN í Belgíu
og ríkisstjúrn Lúxemborgar
féllu í kosningum á sunnu-
dag. Jean Luc-Dehaene, for-
sætísráðherra Belgfu, kvaðst
axla ábyrgðina á úsigri
flokks sfns, en talið er að or-
sakir tapsins séu fyrst og
fremst díoxínmengunar-
hneykslið svonefnda, er kom
upp í Belgíu þrem vikum fyr-
ir kosningarnar.
►KOSIÐ var tíl Evrúpuþings-
ins á sunnudag, og urðu meg-
inniðurstöður þeirra kosninga
að vinstriflokkar og jafnaðar-
menn fengu víða slæma út-
reið, en mið- og hægriflokkar
styrktu stöðu sína.
►MAURICE Greene frá
Bandaríkjunum bætti heims-
metið í 100 metra hlaupi
karla um fimm sekúndubrot
á miðvikudag. Hljúp hann á
7,79 sekúndum á alþjúðlegu
fijálsfþrúttamúti f Aþenu.
FRETTIR
573 kandídatar brautskráðir frá Háskóla Islands
Mæðgur útskrifast á sama tíma
VIÐ útskriftarathöfn Háskóla
íslands í gær átti sér stað sá
merkisviðburður að mæðgur út-
skrifuðust á sama tíma. Jónína
Gunnarsdóttir útskrifaðist með
B.A.-gráðu í uppeldis- og mennt-
unarfræðum, en Arna Bjart-
marsdóttir, dóttir hennar, með
B.A.-gráðu í spænsku.
I samtali við Morgunblaðið
sagðist Jónfna vera afar stolt
yfir að þær mæðgur hefðu náð
þessum áfanga, en óhætt er að
segja að þær hafí verið sam-
stiga á leiðinni að honum. „Við
byrjuðum á sama tíma og nú,
þremur árum síðar, útskrifumst
við saman og er gaman að það
skuli hafa borið upp á kvenna-
daginn, þótt það hafi að vísu
orðið til þess að við misstum af
kvennahlaupinu. Þá munaði
ekki nema 0.01 á lokaeinkunn-
um okkar og við fengum ná-
kvæmlega sömu einkum fyrir
B.A.-ritgerðirnar okkar,“ sagði
Jónína. Kvað hún þær mæðgur
einnig oft hafa setið saman við
lestur á Þjóðarbókhlöðunni,
þótt ekki læsu þær sömu náms-
greinar og höfðu þær þannig
mikinn stuðning hvor af
annarri við námið. Sagði hún
Morgunblaðið/Jim Smart
MÆÐGURNAR Jónfna Gunnarsdúttir og Arna Bjartmarsdóttir
útskrifuðust báðar frá Háskúla Islands í gær.
námsárin hafa verið mjög
skemmtilegan tíma og hvatti
konur á sínum aldri til að fara
að sínu fordæmi.
Þrátt fyrir að hafa nú lokið
B.A.-námi eru þær mæðgur eng-
an veginn hættar námi. Jónfna
mun í haust heíja starfsréttinda-
nám í félagsráðgjöf og Arna
hyggur á mastersnám í sjávarút-
vegsfræðum.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
SENDIHERRARNIR og makar þeirra í Bláa lóninu.
Fjölmargir sendiherr-
ar staddir hér á landi
SENDIHERRAR 43 erlendra ríkja
voru staddir hér á landi ásamt mök-
um sínum á ráðstefnu. Sendiherr-
arnir komu hingað til lands á
fimmtudag og lauk heimsókn þeirra
með kvöldverðarboði í Ráðherrabú-
staðnum við Tjarnargötu á fóstu-
dagskvöld. Um morguninn fóru er-
lendu sendiherrarnir hins vegar í
Bláa lónið.
Tilgangurinn með heimsókn
Ljósmyndir eftir Sigurgeir Sigurjónsson. Texti eftir Sigurð Steinþórsson
jarðfræðing og formáli eftir frú Vigdísi Finnbogadóttur.
Fæst á íslensku, ensku,
þýsku, frönsku og sænsku.
4>
FORLAGIÐ
sendiherranna er meðal annars til að
kynna land og þjóð og einnig að
vekja athygli á hátíðarhöldum í til-
efni aldamótanna og þúsund ára af-
mælis kristnitöku hér á landi.
Sendiherramir 43 koma víðsvegar
að úr heiminum og meðal annars voru
hér fulltrúar Botswana, Swazilands
og Vatíkansins. Aldrei hafa jafnmarg-
ir sendiherrar verið saman komnir á
einum stað hér á landi og nú.
Háskólarektor
Tengdi
menntun
kvenna og
áhrif
KVENRÉTTINDADAGURINN,
19. júní, varð Páli Skúlasyni, rektor
Háskóla íslands, að umtalsefni er
hann ávarpaði kandídata við braut-
skráningu þeirra frá Háskóla Is-
lands í Laugardalshöll í gær. „Bar-
átta kvenna fyrir jafnrétti sem
minnst er á þessum degi [19. júní]
hefur ekki síst verið barátta fyrir
aukinni menntun kvenna svo þser
geti orðið sjálfstæðari í einkalífi og
áhrifameiri í þjóðlífi,“ sagði rektor.
„Staðreyndin er raunar sú að gildi
háskólaprófa hefur löngum verið
tengt störfum manna fyrst og
fremst; gráðan sé ávísun á ákveðið
starfsheiti. Þetta er vissulega rétt.
Sama prófgráðan getur reyndar ver-
ið ávísun á mörg ólík störf. En þetta
á ekki og má ekki vera eini mæli-
kvarðinn á gildi hennar. Hún á líka
að hafa gildi fyrir ykkur til að eiga
gott einkalíf og jafnframt til þess að
verða virkir þátttakendur í þjóðlíf-
inu, eins og það mótast og birtist
með ýmsum hætti á opinberum vett-
vangi; í fjölmiðlum eða á mannamót-
um og í menningar- og atvinnulífi.“
571 kandídat var brautskráður
auk þess sem tveir nemendur luku
starfsréttindanámi í guðfræðideild,
tveir í heimspekideild og 67 í félags-
vísindadeild.
Laugavegi 18 • Sími S15 2500 • Síðumúla 7 • Siml 510 2500
Val á landsliði í
hestaíþróttum
Auðunn og
Tomas með
trygg sæti
AUÐUNN Kristjánsson varð
fyrstur manna til að gulltryggja
sér sæti í íslenska landsliðinu í
hestaíþróttum er hann varð
efstur öðru sinni í seinni umferð
í úrtökunni í Glaðheimum á
Baldri frá Bakka. Næstur hon-
um varð Páll Bragi Hólmarsson
á ísak frá Eyjólfsstöðum. Að af-
loknum fimmgangi var Sigurð-
ur Matthíasson á Demanti frá
Bólstað orðinn efstur í saman-
lögðum stigum en hann varð
þriðji í fimmgangi.
Tómas Ragnarsson brá sér á
Hornafjörð á fóstudag með
hryssuna Hyllingu frá Korp-
úlfsstöðum og hækkaði hún þar
í kynbótadómi úr 8,30 í 8,40 og
hefur að því er virðist skotið
hryssunni Viðju frá Síðu aftur
fyrir sig í baráttunni um sæti á
kynbótasýningu heimsmeist-
aramótsins.