Morgunblaðið - 20.06.1999, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 20.06.1999, Blaðsíða 38
38 SUNNUDAGUR 20. JÚNÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR + Elskulegur eiginmaður minn, JÓN KRISTJÁNSSON, Kleppsvegi 62, Reykjavík, er látinn. Ingibjörg Karlsdóttir. Í Ástkaer eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, SIGÞRÚÐUR JÓNSDÓTTIR, Dvergabakka, Ásahreppi, áður Hraunbæ 98, verður jarðsungin frá Árbæjarkirkju þriðju- daginn 22. júní kl.13.30. Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á líknardeild Landspítalans. Martin Winkler, Ágústa Sigríður, Sturlaugur Tómasson, Hanna Björg, Gunnlaugur Briem, Ragnheiður Margrét, Guðbjarni Guðmundsson og barnabörn. + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, JENNY HELGA HANSEN, Blesugróf 1, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju þriðju- daginn 22. júní kl. 13.30. Hrafn Ingvason, Ólafía G. Steingrímsdóttir, Már Ingvason, Anna Carla Ingvadóttir, Árni Már Mikaelsson, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn. + Guðrún Andrés- dóttir fæddist á Felli í Árneshreppi í Strandasýslu 18. mars 1935. Hún lést 13. júni síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Andrés Guð- mundsson frá Felli, f. 11.9. 1892, d. 1.8. 1974, og Sigurlína Valgeirsdóttir frá Norðurfirði, f. 16. júlí 1900, d. 6. nóv. 1992. Systkini Guð- rúnar voru Bern- harð, f. 10.19. 1919; Guðný, f. 10.1. 1921, d. 31.1. 1921; Bergþóra, f. 1.6. 1922, d. 30.4. 1992; Sigvaldi, f. 29.8. 1924, d. 6.1. 1998; Soffía, f. 4.3. 1927, d. 18.4. 1962; Ólafur, f. 4.3. 1927; Guðmundur, f. 5.7. 1928; Vilborg, f. 8.3. 1931; Benedikt, f. 14.4. 1933; og Eygló, f. 13.2. 1939. Hinn 18. janúar 1959 giftist Guðrún Braga Emilssyni frá Hlíðarhúsi á Djúpavogi, f. 10.1. 1935. Foreldrar hans voru Emil Eyjólfsson, f. 10.8. 1893, d. 24.1. 1965, og Antonía Steingríms- Elsku mamma mín, takk fyrir árin sem við áttum saman. Þín er sárt saknað en þú munt alltaf lifa með okkur í minningunni. Vor ævi stuttrar stundar er stefnd tii Drottins fundar, að heyra lífs og liðins dóm. En mannsins sonar mildi skal máttug standa í gildi. Hún boðast oss í engils róm. Svo helgist hjartans varðar. Ei hrynur tár til jarðar í trú að eklá talið sé. I aldastormsins straumi og stundarbamsins draumi oss veita himnar vemd og hlé. (Einar Ben.) Bless, elsku amma og mamma. Björgvin, Hafdís, Erna Ósk og Eva dóttir, f. 23.2. 1890, d. 12.8. 1975. Börn Guðrúnar og Braga eru: 1) Björgvin, f. 7.9. 1956, maki Hafdís Þorvaldsdóttir, f. 29.6. 1971. Dætur þeirra eru _ Erna Ósk og Eva Ósk. 2) Anton Emii, f. 14.3. 1958, maki Guðrún Kristófersdóttir, f. 27.10. 1967. Synir þeirra eru Kristó- fer, Anton Sturla og Orri. 3) Bryndís, f. 11.12. 1959, maki Bogi Elvar Grétarsson, f. 17.7. 1960. Synir þeirra eru Eysteinn Sindri og Frans. 4) Andrés, f. 25.9. 1962, börn hans eru Axel Bragi, Guð- rún og Agnes Svava. 5) Ey- steinn, f. 12.8. 1964. 6) Sjöfn, f. 24.3. 1969, maki Emil Skúlason, f. 4.2. 1966. Börn þeirra eru María og Bragi. 7) Helga, f. 21.1. 1974. Útför Guðrúnar fer fram frá Hafnarkirkju á morgun, mánu- daginn 21. júní og hefst athöfn- in klukkan 14. Mig langar að kveðja tengda- móður mína, Guðrúnu Andrésdótt- ir, með nokkrum orðum, en hún er látin eftir erfíða baráttu við krabbamein, baráttu sem hefði mátt skila henni meiri árangri og bjartsýni sem hefði mátt lengja hennar líf. Gunna eins og hún var kölluð, ólst upp í Norðurfirði á Ströndum og þaðan átti hún vafalaust góðar minningar, því það duldist engum glampinn í augunum hennar þegar hún minntist á Strandimar. Sjálf hef ég ekki komið þangað en veit samt, eftir að hafa hlustað á frá- sagnir tengdamömmu, að þar skartar náttúran sínu fegursta. Það var fljótlega eftir að ég kynntist Tona, að ég hitti Gunnu fyrst og ekki löngu seinna hitti son- ur minn hana. Hann var þá fímm ára gamall, ég man svo vel hvað hún sagði við hann. Hún sagði: „Sæll og blessaður, ég er nú amm- an.“ Hann var nú ekki alveg sáttur við það, en það liðu ekki margir dagar áður en hann fór að kalla hana ömmu og Bragi varð afinn. Ég hef alltaf verið tengdaforeldr- um mínum mjög þakklát fyrir það hvað þau tóku honum opnum örm- um og komu fram við hann sem sitt eigið bamabam strax frá fyrsta degi. Tengdamamma hafði að geyma sterkan persónuleika, hún vai- alltaf sjálfri sér samkvæm og kom til dyranna eins og hún var klædd. Hún hafði góðan húmor en leit á hlutina raunsæjum augum. Hún hafði stórt hjarta og gaf alla sína ást fjölskyldunni sinni, þau voru henni allt. Hún gerði alltaf allt sem hún gat fyrir bömin sín og bama- bömin, sem nú em orðin tólf. Við munum öll varðveita minn- inguna um góða konu og segja þeim litlu sem ekki koma til með að muna eftir ömmu sinni, sögur af ömmu. Núleggégaugunaftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vöm í nótt. Æ, virzt mig að þér taka, mér yfír láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Þýð. S. Egilsson) Ég kveð þig, elsku tengda- mamma. Guð geymi þig. Þín Guðrún Kristófersdóttir. Elsku amma, vonandi líður þér vel uppi hjá Guði. Ég sakna þín mjög mikið. Ég vildi að þú hefðir ekki dáið því að þú varst svo skemmtileg og góð og frábær amma. Ég fel í forsjá þína, Guð faðir, sálu mína, því nú er komin nótt. Um ljósið lát mig dreyma og Ijúfa engla geyma öll böm þín, svo blundi rótt. (M. Joch.) Bless, góða amma mín. Þinn Anton Sturla. GUÐRÚN ANDRÉSDÓTTIR + Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, JÓN PÁLL ÁGÚSTSSON fyrrv. símamaður, Norðurbrún 1, Reykjavik, sem andaðist á Sjúkrahúsi Reykjavíkur sunnudaginn 13. júní, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju miðvikudaginn 23. júní kl. 13.30. Svandfs Guðmundsdóttir, Eyþór Guðmundur Jónsson, Bryndís Gísladóttir, Sveinn Jónsson, Margrét Magnúsdóttir, Sigríður Jónsdóttir, Steinar Jónsson, Björn Jónsson, Kerstin Wallquist Jónsson og barnabörn. + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, FREYJA SIGRÍÐUR JÓNSDÓTTIR, Helgamagrastræti 53, Akureyri, sem lést á heimili sínu aðfaranótt þriðjudags- ins 15. júní, verður jarðsungin frá Akureyrar- kirkju þriðjudaginn 22. júní kl. 13.30. Jón Dan Jóhannsson, Ruth Hansen, Rúnar Jóhannsson, Jónheiður Kristjánsdóttir, Heiðar Þ. Jóhannsson, Guðmundur Jóhannsson, Eva Ingólfsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. GUÐRUN RAGNHEIÐUR BENJAMÍNSDÓTTIR + Guðrún Ragn- heiður Benja- mínsdóttir fæddist á Skagaströnd 14. febrúar 1957. Hún lést á Landspítalan- um 10. júni síðastlið- inn og fór útför hennar fram frá Viðistaðakirkju 18. júní. Elsku Gunna mín. Nú kveð ég þig og bið al- góðan Guð að vemda þig og alla ástvini þína sem sakna þín mjög. Þú fylgdist alltaf með mér þar sem ég er líka með krabbamein og ég veit að þú heldur því áfram. Við vorum í sama liði og börðumst hetjulega. Þú þurftir að lúta í lægra haldi og við hin getum mikið lært af þér þar sem þú varst alltaf svo dug- leg. Þér fannst óréttlátt að ég átta ára gamall fengi þennan sjúkdóm en það er svo margt óréttlátt í þessu lífi og það vissir þú manna best. Ég ætla alltaf að vera dugleg- ur eins og þú og ég er viss um að þú fylgist alltaf með mér. Það er gott að vita það. Ég varð sorgmæddur er mamma sagði mér að þú værir dáin og þú verður alltaf í huga mín- um. Það var gott að heimsækja þig og Jörgen frænda þegar ég var í Reykjavík hjá lækni. Þú tókst alltaf utan um mig og kysstir og það var svo hlýlegt. Mamma og pabbi eru ykkur mikið þakklát. Elsku Gunna. Nú er þjáningum þínum lokið og þú munt hvfla í friði. Ég, mamma, pabbi og Brynjar vottum öll- um ástvinum þínum okkar dýpstu samúð. Lát opnast augu min, minn ástvin himnum á, < svo ástarundur þin mér auðnist skýrt að sjá: hið fríða foldarskraut, hinn fagra stjarnaher á loftsins ljómabraut og ljóssins dýrð hjá þér. (V. Briem) Blessuð sé minning þín. Pétur Davíð. Látinn er góður ferðafélagi, Guð- rún R. Benjamínsdóttir, aðeins 42 ára að aldri. Guðrún og maður hennar Jörgen og yngstu synirnir Jörgen Pétur og Benni voru virk í starfi og ferðum Félags húsbflaeigenda á meðan Guðrún hafði heilsu til, og í raun mun lengur en heilsa hennar leyfði. Hafði Guðrún mjög gaman af því að ferðast og vera í góðum félags- skap og oft urðum við félagarnir varir við að hún ætlaði sér um of, en þar kom til mikill viljastyrkur og löngun til þess að taka virkan þátt í því sem verið var að gera. Er skemmst að minnast helgar- ferðar að Hólahólum á Snæfellsnesi að Guðrúnu fannst heilsan í betra lagi. Lagði hún þá af stað í göngu upp í hlíð, en þegar hún var komin nokkuð áleiðis þá var þrekið búið og Jörgen hélt á konu sinni til baka. Einnig er í fersku minni að í einni svokölluðu stóru ferð vorum við komin í náttstað á Brjánslæk eftir langan dag í keyrslu. Þegar fólk var búið að grilla og snæða var setið útivið, spilað og sungið. Guð- rún var létt og kát og söng og skemmti sér, en þá sem fyrr sveik þrekið og hún hné niður. Þurfti að kalla á sjúkrabfl frá Patreksfirði og þetta kvöld ók Jörgen Guðrúnu á móts við sjúkrabflinn. Þessi tvö atvik segja betur en margt annað að hér var á ferðinni kona sem ekki gafst upp fyrr en í fulla hnefana. Það var jafnframt lærdómsríkt fyrir okkur að fylgjast með baráttu hennar og vilja til þess að lifa lífinu lifandi, því aldrei varð maður var við uppgjöf eða kveinstafi, heldur virtist hún taka veikindum sínum með mikilli ró, og alltaf var stutt í bros því henni virtist lagið að koma auga á hið jákvæða í lífinu. Er ekki nokkur vafi á því að það verður drengjunum hennar gott veganesti í framtíðinni. Félagar í Félagi húsbílaeigenda þakka Guðrúnu heilshugar góða samfylgd á undanförnum árum. Hugur okkar er hjá ykkur, kæru ferðafélagar, Jörgen, Benni og Jörgen Pétur. Við biðjum Guð að styrkja alla ástvini Guðrúnar. F.h. Félags húsbílaeigenda, Sigríður Arna Arnþórsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.