Morgunblaðið - 20.06.1999, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 20.06.1999, Blaðsíða 14
14 SUNNUDAGUR 20. JÚNÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR Morgunblaðift/Ámi Sæberg SÓKNARMAÐURINN brasilíski, Santos, sækir hér að marki Víkinga í heimaleik þeirra gegn Leiftri á dögunum. Þorri Ólafsson reynir að verjast, en á bak við þá fylgist Uni Arge grannt með. Arnór Guðjohnsen spáir í leiki dagsins á íslandsmótinu efstu deild karla Velgengni Blika er engin tiMQun Þrír leikir eru á dagskrá efstu deildar karla á Islandsmótinu í knattspyrnu í dag og ættu línur í deildinni nokkuð að skýrast í kjölfarið. Björn Ingi Hrafnsson fékk Arnór Guðjohnsen, leikmann Vals, til að rýna í leikina. Hann segir að velgengni Breiðabliks komi sér alls ekki á óvart, hún sé afsprengi mikillar skipulagningar þjálfarans Sigurðar Grétarssonar. Þrír leikir eru á dagskrá deildar- innar í dag, en leikur ÍBV og KR var í Vestmannaeyjum í gær og þá hefur leik Vals og ÍA verið frestað fram í næsta mánuð vegna Evrópuleikja Skagamanna. Fyrsti leikurinn í dag verður á Kópavogs- velli kl. 14, en þá mætast nýliðamir í deildinni, Breiðablik og Víkingur. í kvöld eru svo tveir leikir; á Laug- ardalsvelli eigast við Fram og Leiftur og í Grindavík nágrannalið- in Grindavík og Keflavík. Amór segir að allir leikimir séu mjög mikilvægir og miðað við stöð- una í deildinni komi tveir þeirra beint að toppbaráttunni. „Leikur- inn á Kópavogsvelli milli nýliðanna hefur þannig bein áhrif á toppbar- áttuna, enda hafa Blikar komið allra liða mest á óvart. Að mínu mati hefur heppni komið þar hvergi nærri, heldur er lið Sigurðar Grét- arssonar þaulskipulagt, verst vel og leikmenn liðsins hafa nægilegt sjálfstraust til að láta knöttinn ganga innan liðsins. Eg tel Breiða- blik því sigurstranglegra liðið í þessum leik, þótt hann verði án efa mjög erfiður og Víkingar hugsi sér eflaust gott til glóðarinnar gegn lið- inu sem kom einnig upp úr 1. deild. Nái Breiðablik sigri er liðið komið á flug í toppbaráttunni og að sama skapi myndi tap fyrir Víkinga koma þeim fyrir í baráttunni í neðri hluta deildarinnar. Barátta og kraftur hefur verið aðalsmerki Víkinga, en við Valsmenn höfum einmitt leikið gegn báðum þessum liðum. Breiða- blik hreif mig mun meira og ég tel liðið því sigurstranglegra.“ Leiftur brokkgengt Arnór segir að stórleikinn á Laugardalsvelli milli Fram og Leifturs megi alls ekki vanmeta. Sigur myndi færa liðin verulega upp töfluna, ekki síst Leiftursmenn sem eiga inni leik úr 2. umferð á heimavelli gegn KR. „Staða Leifturs er mjög góð mið- að við að liðið hafí leikið þrjá leiki á útivelli en aðeins einn á heimavelli. Hins vegar sýna úrslitin í bikar- keppninni [er liðið féll út fyrir Sindra á Hornafirði] að liðið er mjög brokkgengt og getur dottið verulega niður á milli góðra leikja. Mjög góðir sóknarmenn eru í Leift- ursliðinu og fyrir aftan er vömin traust með vin minn Hlyn Birgis- son í forystu. Mér hefur sýnst að Framarar séu heldur á uppleið, þrátt íyrir skrítið áfall í bikarnum og það er athyglisvert að bæði þessi lið misstu af bikarlestinni strax í fyrstu umferð. Framarar eru léttleikandi lið og þótt jafntefli séu alls ekki ólíkleg úrslit, fínnst mér meiri „Framlykt" af þessum leik. Bæði er að liðið er á heimavelli og einnig veit ég ekki hvort Leift- ursmenn hafa jafnað sig á tapinu gegn Sindra." Barátta suður með sjó Þriðji og síðasti leikur dagsins er í Grindavík þar sem heimamenn taka á móti nágrönnum sínum í Keflavíkurliðinu. Heimamenn urðu fyrir því áfalli að detta út í bikar- keppninni fyrir ungmennaliði Framara, en Keflvíkingar unnu auðveldan sigur. Staða þeirra í deildinni er þó ekkert sérstök og víst er að Keflvíkingar hefðu áhuga á að bæta stöðu sína í deildinni með sigri í þessum leik. Arnór segir að jafntefli sé líkleg- asta niðurstaðan í þessum leik, enda verði örugglega um mikla bar- áttu að ræða og hún komi niður á gæðum knattspyrnunnar að ein- hverju marki. „Grindvíkingar hafa náð að hala inn nokkur stig, einkum á heimavelli og munu fara drjúgt á því í sinni baráttu. Keflvíkingum hefur ekki tekist að fínna taktinn í leik sínum og við Valsmenn vorum t.d. mestu klaufar að vinna þá ekki á útivelli á dögunum í jafnteflisleik, 4:4. Bæði liðin þurfa á sigri að halda til að komast upp í deildinni, en mér fínnst líklegast að þau fái sitt stigið hvort eftir þennan leik,“ sagði Arnór. Þórsarar greiði Purisevic l, 5 milljónir KNATTSPYRNUDEILD Þórs á Akureyri var á föstudaginn dæmd í Héraðsdómi Norðurlands eystra til að greiða Ejup Purisevic 1.408.785 krónur, ásamt dráttarvöxtum, vegna vanefnda samnings. Purisevic, sem áður hafði leikið með Sindra á Homafírði, gekk til liðs við Þór skv. samningi sem gerður var 24. október 1996 og átti m. a. að tryggja leikmanninum allt að 1,5 milljónum ki’óna í laun fyrir níu mánaða tímabil; frá janúar 1997 til október það ár. Purisevic lék hins vegar aldrei með Þór. Hann rifti samningi sínum 7. mars 1997 vegna vanefnda. Knattspymudeild Þórs var að auki dæmd til að greiða 450.000 kr. í málskostnað. Freyr Ofeigsson, dómstjóri Hér- aðsdóms Norðurlands eystra, kvað upp dóminn. KÖRFUBOLTI Staða San Antonio er vænleg Leikmenn San Antonio sýndu andstæðingum sínum í New York enga miskunn í annarri viður- eign liðanna í úrslitum NBA-deild- arinnar í San Antonio á aðfaranótt laugardags. Heimamenn tók for- ystuna strax í fyrsta leikhluta og gáfu hana aldrei eftir og tryggðu sér 13 stiga sigur, 80:67. Þar með hefur San Antonio unnið tvo fyrstu leiki einvígisins og víst er að það er gott veganesti fyrir liðið þar sem næstu þrír leikir einvígisins fara fram í New York, hinn fyrsti á mánudag. Þetta var tólfti sigurleik- ur San Antonio í úrslitakeppninni á þessu sumri. „Það var enginn glæsileiki yfir þessum sigri, en það er ekki spurt að því að leikslokum," sagði Tim Duncan, stigahæsti leikmaður heimamanna með 25 stig. Auk hans var David Robinson atkvæðamikill að vanda, hann gerði 16 stig, Mario Elie var með einu stigi færra og Sean Elliot gerði 10 stig. Alls voru 39.554 áhorfendur á leiknum og hafa aðeins einu sinni verið fleiri áhorfendur á úrslitaleik í NBA-deildinni. Telja margir ástæðuna vera þá að stuðnings- menn San Antonio telji þetta hafa verið síðasta heimaleik leiktíðar- innar þar sem lið þeirra muni inn- sigla meistaratitilinn á útivelli í næstu leikjum. Latrell Sprewell skoraði flest stig New York-liðsins, 26, og Allan Houston kom næstur með 19 stig. Annars var skotnýting leikmanna New York aðeins 33% sem vart getur talist til fyrirmyndar hjá leikmönnum sem sækjast eftir meistaratitli í NBA. „Við erum að fá skotfæri, en nýt- ingin er hins vegar slæm,“ sagði Sprewell eftir leikinn. „Leikmenn San Antonio eru hins vegar að verjast vel auk þess sem þeir hafa hærri menn undir körfunni og hirða þar af leiðandi mun fleiri frá- köst.“ New York-liðið fékk aðeins 12 vítaköst í leiknum á sama tíma og liðsmenn San Antonio fengu nær þrefalt fleiri, eða 25. „Úrslitin réð- ust á vítaköstunum," sagði Jeff Van Gundy, þjálfari New York. „Við fengum fá á sama tíma og andstæðingurinn vann fjölmörg og nýtti þau ágætlega.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.