Morgunblaðið - 20.06.1999, Page 16

Morgunblaðið - 20.06.1999, Page 16
16 SUNNUDAGUR 20. JÚNÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR + * Islenskur píanókonsert á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Islands Islenskt efni í fyrirrúmi Morgunblaðið/Sverrir STEINUNN Birna Ragnarsdóttir píanóleikari, Jórunn Viðar tónskáld og Petter Sundquist á æfingu Sinfóníuhljómsveitar íslands. SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ís- lands heldur undir stjóm Petters Sundquist tónleika í Háskólabiói á þriðjudaginn, 22. júní, kl. 20.00. Á efnisskránni verða eingöngu íslensk verk; tvö eftir Jórunni Viðar, nýút- nefndan borgarlistamann, og eitt eftir Finn Torfa Stefánsson. Verk Finns Torfa kallast Hljóm- sveitarverk IV og er samið í minn- ingu Fróða Finnssonar sem lést 1994, þá 19 ára. Verkið er að sögn Finns Torfa' í þremur þáttum og heitir sá fyrsti Æska, annar Dansað á torginu en þriðji Endir. „Að öðru leyti en sem felst í þessum kafla- heitum kemur það sem ég vil segja fram í tónlistinni sjálfri," segir Finnur, sem hefur doktorsgráðu í tónsmíðum frá UCSD í Kaliforníu. Frá 1990 hefur Finnur starfað við tónsmíðar hér á fslandi og hefur að sögn gert m.a. sex verk fyrir Sin- fóníuhljómsveitina, en tvö þeirra hafa verið flutt áður. Ballettsvítan Eldur er annað tveggja verka Jórunnar Viðar sem flutt verða á tónleikunum á þriðju- dagskvöldið. Það var samið árið 1950 fyrir listamannaþing sem haldið var í tengslum við opnun Þjóðleikhússins. Verkið var gert bæði fyrir hljóm- sveit og dansara en síðan það var frumflutt hafa dansaramir ekki ver- ið með að sögn Jórunnar. Hún segir verkið byggt á ljóði Einars Bene- diktssonar Eldur. „Við Sigríður Ár- mann danshöfundur túlkum í verk- inu ljóðið, sem er um eld og vaxandi og minnkandi loga,“ segir Jórunn. Píanókonsertinn Slátta var sam- inn árið 1977 að frumkvæði Tón- skáldasjóðs Ríkisútvarpsins. „Það er mikil upplyfting fyrir verkið að vera flutt af Sinfóníuhljómsveit- inni,“ segir Jórunn. „Ég er hug- fangin af flutningi Steinunnar Birnu einleikara og það er munaður fyrir mig að fá að sitja úti í sal og hlusta,“ segir tónskáldið, sem frumflutti verkið sjálf fyrir tuttugu árum. Þannig vill til að þá fletti Steinunn Bima, sem nú er einleikarinn, fyrir Jórunni. Að sögn Steinunnar sagði Jómnn við hana að loknum þeim tónleikum að lofa sér að flytja verk- ið einhvem tímann almennilega, „svo ég er að efna tuttugu ára gam- alt loforð“, segir Steinunn hlæjandi. Steinunn hefur leikið einleik víða um heim og fékk m.a. „Gran Podi- um“-verðlaunin á vegum Juvenus de Musicals í Barcelona. Nýverið hlaut hún Islensku tónlistarverð- launin ásamt Bryndísi Höllu Gylfa- dóttur fyrir geislaplötu þeirra Ljóð án orða. Um Sláttu eftir Jómnni Viðar segir hún; „Þetta er stórfint verk og gaman að taka þátt í að endurvekja íslenskan píanókonsert. Hann er hefðbundinn en um leið er mikill íslenskur framkraftur í hon- um. Maður heyrir stíleinkenni Jór- unnar í gegn og einnig gætir fleiri áhrifa, sem einhvern veginn ekki er hægt að setja fingurinn á, en á sér alíslenskar rætur,“ segir Steinunn og bætir við að í verkinu séu marg- ar fallegar laglínur. „Mér finnst merkilegt að svo gott verk skuli vera til og ekki seinna vænna að fólk fái að njóta þess,“ segir Stein- unn, en verkið hefur ekki verið flutt síðan 1977. „Hér er um alvöra ís- lenskan píanókonsert að ræða og því hlýtur maður að flytja hann með margfalt meiri ást en ella,“ segir Steinunn Bima. Hljómsveitarstjórinn Petter Sundquist er aðstoðarhljómsveitar- stjóri sinfóníuhljómsveitar sænska útvarpsins og hefur stjómað yfir tuttugu uppfærslum við óperuhús víða um Sviþjóð. Tónleikamir á þriðjudagskvöldið verða þeir fyrstu sem hann tekur þátt í hér á landi. Ars magica - Vision 2000 á fsafírði ARS magica - Vision 2000 er hópur listamanna frá Austurríki, íslandi, Italíu og Noregi sem mun starfa saman á Isafirði dagana 20. júní til 4. júlí nk. Þeirra helsti vinnustaður verður Edinborgarhúsið á ísafirði en hópurinn mun þó teygja arma sína víða um héraðin í kring. Ætlunin er að listamennimir starfi saman að a.m.k. einu sameiginlegu listaverki með það að leiðarljósi að starfinu verði fram haldið á komandi fawrifö TÆTARAR Ármúla 29 - Rvk. Sími 588 4699 Vefsíða: www.oba.is POTTASETT KÚNÍGÚND SKÓLAVÖRÐUSTÍG 8 S 551 3469 árum með hápunkti í borginni Graz í Austurríki árið 2003, en hún verður þá menningarborg Evrópu. ARS MAGICA hefur verið til um nokkurra ára skeið og er frumkvöð- ull þess Robert Wilfing, listamaður frá Hitzendorf í Austurríki, en hann hefur dreymt um að sameina lista- menn áðurnefndra landa til list- sköpunar í þeirri trú að sameiginleg orka muni nýtast vel í leit að nýj- ungum í myndlist. Fugl í tré SÆNSKI gagnrýnandinn Carl- Gunnar Áhlén skrifar í blað sitt, Svenska Dagbladet í Stokkhólmi (8. maí), um fyrstu sinfóníu Atla Heimis Sveins- sonar, sem Sin- fóníuhljómsveit Islands flutti nýlega undir stjóm Bern- harðs Wilkin- sonar. Áhlén vitnar til orða tón- skáldsins um að Island minni á fugl í tré í hæfi- legri fjarlægð frá hinum miklu meginlöndum: „En maður getur líka hugsað sér tónskáldið sem fugl í sextugu lífstré sínu, virða fyrir sér óteljandi tónverk sín þar sem allar gerðir hafa hingað til átt full- trúa nema sinfónían," skrifar gagn- rýnandinn. Að mati Áhléns lætur tónskáldið undirvitundina ráða í verkinu sem hann kallar „sjálfsævisögulega sin- fóníuskáldsögu" með mörgum bók- menntalegum þráðum, en árangur þessa innblásturs andartaksins með villtum kenjum sínum líkist þó kunnum formum. Verkið er sagt hafa verið eld- skím fyrir stjómandann Bemharð Wilkinson. Hljóðfæraleikarar eru sagðir hafa staðist meistaraprófið með leik í háum gæðaflokki. Deilt um réttmæti þess að hagnýta sér nafn Pablos Picassos Picasso á göturnar London. The Daily Telegraph. AFKOMENDUR listmálarans Pa- blos Picassos hafa fram að þessu alltaf verið tregir til að græða óhóf- lega á nafni föður síns en á því verð- ur senn breyting. Brátt mun nefni- lega koma á göturnar nýr bíll frá Citroén-bflaframleiðendunum sem kenndur verður við málai’ann heimsfræga. Ef hinn nýi Citroén Picasso reynist eitthvað líkur mann- inum sem hann er nefndur eftir mun bfllinn væntanlega verða afar óútreiknanlegur, láta illa að stjórn og líklegur til að breyta um stefnu án nokkurra viðvarana. Bflaunnend- ur verða þó að bíða enn um stund áður en þeim gefst tækifæri til að fá sér rúnt á þessum merkilega bfl. Langt er síðan fólk tók að venjast því að ganga um með Monet-regn- hlífar, hafa Van Gogh-sturtuhengi á baðherberginu og drekka te úr Tut- ankhamun-tekrúsum. Afkomendur Picassos hafa hins vegar fram að þessu ekki verið ýkja ginnkeyptir fyrir því að „selja“ nafn föður síns hinum ýmsu fyrirtækjum til afnota. Reyndar er það svo að afkomend- urnir era alls ekki á eitt sáttir um þá ákvörðun nú að leyfa Citroén- fyrirtækinu að setja á markað Picasso-bíl sinn og deila þeir nú hart um hvort réttlætanlegt sé að græða þannig á frægð Picassos. Marina Picasso, bamabarn list- málarans fræga, hefur borið málið upp fyrir frönskum dómstólum og gerir hvað hún getur til að koma í veg fyrir áform annarra ættingja sinna. „Það er óþolandi,“ segir hún, „að nafn hans sé notað til að selja eitthvað jafn ömurlegt og bfl. Þetta er hneykslanleg misnotkun í gróða- skyni. Nafn afa míns og sál á ekki að nota til framdráttar nokkurs annars en listarinnar." Hafa ítrekað lögsótt þá sem misnotað hafa nafn Picassos Samningurinn sem Citroén gerði við afkomendur Picassos, og sem reyndist þeim „ofboðs- lega dýr“, hefur vakið nokkra furðu enda hef- ur Picasso-fjölskyldan fram að þessu varið nafn málarans sem mest hún má. Hafa af- komendur Picassos ít- rekað reynst reiðubúnir að hefja kostnaðarsöm málaferli til að koma í veg fyrir að óprúttnir aðilar misnoti nafnið til að selja vöru sína. Hafa þeir m.a. lögsótt pítsustað í New York og mexíkanska fram- leiðendur undirfatnaðar fyrir misnotkun á nafni Picassos. „Þau eru afskaplega hörð í hom að taka og mjög gjörn á að leita til dómstóla," segir Dorothy Weber, lögmaður sem sinnir hags- munum Picasso-fjölskyldunnar í Bandaríkjunum. Andlát Picassos árið 1973 dró dilk á eftir sér. Erfingjar hans deildu hart innbyrðis um eigur hans og hafa í raun aldrei náð sáttum. Erfðaskrá listmálarans, sem var 92 ára þegar hann dó, reyndist ragl- ingsleg og börðust afkomendumir um yfirráð yfir dánarbúinu í meira en áratug. Á endanum hlaut Claude, sonur Picassos og Frangoise Gilot, yfirráð yfir búinu en verður að deila öllum tekjum með hinum fjórum lögerf- ingjunum, Palomu, Marinu, Bem- ard og Mayu. Picasso-eðalkoníak væntanlegt á markað Claude Picasso hefur ekki sýnt mildnn áhuga á að hagnýta sér Picasso-nafnið þar til nýverið og hefur hann reyndar staðið í ströngu síðustu misserin. Um leið og Citroén Picasso er kominn á göt- umar má vænta Picasso-sígarettu- kveikjara írá Dupont, væntanlegt á markaðinn er einnig Picasso-eðalkoníak frá Hennessy - og mun eft- irmynd af málverkinu Café hjá Royan, sem Picasso málaði árið 1940, prýða flöskuna - og loks ber þess að geta að á síðasta ári leyfði Claude Picasso banda- ríska auðkýfingnum Steve Wynn að opna veitingastað sem ber nafn Picassos á spilavíti sínu í Las Vegas. Afkomendur Picassos - öll nema Marina - segjast einfaldlega láta raunsæið ráða. Hvort sem þeim lfld betur eða verr muni menn reyna að græða á nafni málar- ans og því sé að minnsta kosti betra að þau hafi eftirlit með því hvaða vörur er verið að selja í nafni hans. Aðrir saka þau um peningagræðgi og segja málaranum sýnd vanvirðing með þessum samningum. Einkaréttur á notkun nafnsins rennur út 2023 Þó er ekkert einsdæmi að nöfn frægra listamanna prýði vörur og veitingastaði. Synir rithöfundarins Ernests Hemingways hafa leyft sölu á ýmsum vöram er bera nafn föður þeirra, kaffihús er bera nafn Mozarts eru hvarvetna, Michael- angelo-snyrtivörar má finna á markaðnum sem og fatnað sem ber nafn Jacks Kerouacs. Þykir reyndai- ekki ólíklegt að Picasso-fjölskyldan hafi skyndilega gert sér grein fyrir að einkaréttur hennar á notkun nafns listamannsins rennur út árið 2023 - fimmtíu áram eftir andlát hans - en eftir það er öll- um heimilt að hagnýta sér nafn Picassos. Með þetta í huga segist ónefndur fyrrverandi stjómandi Picasso-safnsins í París ekki áfellast afkomenduma fyrir ákvörðun þeirra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.