Morgunblaðið - 20.06.1999, Side 12

Morgunblaðið - 20.06.1999, Side 12
12 SUNNUDAGUR 20. JÚNÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ István Mohácsi, sendiherra Ungverjalands á Islandi NATO-aðild veitir Ung- verjum aukið öryggi _ Reuters BANDARISKIR hermenn gæta herþotu á Taszar-flugvellinum í Ung- verjalandi en þaðan voru farnar eftirlitsferðir yfir Júgóslavíu meðan á iofthernaðinum stóð. Morgunblaðið/Rristinn ISTVÁN Mohácsi, sendiherra Ungverjalands á íslandi, segir nýtil- komna aðild Ungverjalands að Atlantshafsbandalaginu veita þjóðinni aukið öryggi, ekki sfst í ljósi átakanna handan landamæranna. István Mohácsi, sendi- herra Ungverjalands, var staddur hér fyrir skömmu og átti viðræð- ur við íslensk stjórn- völd. I samtali við Hrund Gunnsteins- ddttur ræddi hann um þróun mála í Kosovo, afstöðu ung- verskra stjórnvalda og framvindu mála í ESB-viðræðum. ISTVÁN Mohácsi, sendiherra Ungverjalands á íslandi með aðsetur í Svíþjóð, var staddur hér á landi fyrir skömmu og ræddi við fulltrúa íslenskra stjóm- valda, stjómarandstöðunnar og Ungverja búsetta á íslandi. Einnig átti Mohácsi viðræður við fulltrúa undirbúningsnefndar fyrir verk- efnið Reykjavík menningarborg árið 2000. Ungverjaland, ásamt Tékklandi og Póllandi, gerðist nýlega aðili að Atlantshafsbandalaginu (NATO). Hefur aðildin haft áhrif á umræðu ílandinu um átökin íKosovo? „Staða Ungverjalands er sér- stök að því leyti að það er eina að- ildamld NATO sem á landamæri að Júgóslavíu. Að auki em um 400.000 manna ungverskur minni- hlutahópur í Júgóslavíu, nánar til- tekið í Vojvodina, eða Vajdasag, eins og héraðið heitir á ung- versku.“ Mohácsi segir loftárásimar ekki hafa haft áhrif á stuðning almenn- ings við bandalagið. Um sjötíu til áttatíu prósent af ungversku þjóð- inni er hlynnt NATO-aðild sam- kvæmt könnun sem gerð var eftir að NATO hóf loftárásir á Júgó- slavíu, sem er litlu minna hlutfall en áður. „Þetta themaðaríhlutunin] var slæmur kostur, en meirihluta Ungverja er það Ijóst að á endan- um verður að koma á lýðræði, friði og velmegun í Serbíu þar sem allir íbúar em hamingjusamir og hafa jafnan rétt, óháð því hvort þeir era Serbar, Albanar, Ungverjar, Slóvakar, Króatar eða tilheyra ein- hverjum öðmm af þeim minni- hlutahópum sem þama búa.“ Telurðu líklegt að afstaða ung- verskra yfírvalda til Kosovo-deil- unnar væri önnur, væri landið ekki aðildarríki að NATO? „Líklega ekki. Nú er við höfum gerst aðilar að NATO finnst okk- ur við vera öruggari. Ef eitthvað kæmi fyrir vitum við að aðildar- ríki NATO eru reiðubúin að verja okkur, líkt og við erum reiðubúin að verja þau. Værum við hins veg- ar ekki aðilar að bandalaginu stæðum við einir, sem þessa stundina er ekki mjög traustvekj- andi. Við þekkjum þetta svæði mjög vel og við vonumst til að rödd okkar fái hljómgrann innan bandalagsins." Nú fíúðu nokkur þúsund Serbar Sei-bíu meðan á loftárásunum stóð. Hefur borið á fíótta Ungverja frá landinu? „Já, ungir karlmenn á her- skyldualdri hafa hundraðum sam- an flúið Vajdasag [Vojvodina] því þeir hafa, af skiljanlegum ástæð- um, ekki viljað þjóna í júgóslav- neska hemum og berjast við Al- bana í Kosovo. Enda hvers vegna ætti ungverskur drengur að drepa Albana í Kosovo?“ Vojvodina var sjálfsstjómarhér- að innan Serbíu, líkt og Kosovo, áður en Milosevic komst til valda og aðspurður um það hvort hann teldi það líklegt að héraðið komi til með að sækjast eftir sjálfsstjóm á ný, sagði Mohácsi ungversk stjómvöld telja það velta einvörð- ungu á vilja Serba og Ungverja í Vojvodina. „Meirihluti Serba og Ungverja í Vojvodina aðhyllist sjálfsstjóm. Líklegast verður einhvers konar sjálfsstjóm komið á líkri þeirri er var frá fyrri hluta áttunda áratug- arins og var afnumin á seinni hluta þess níunda. Fólki ætti að líða vel í eigin landi, sem er því miður ekki tilfellið eins og er.“ Uppbygging á Balkanskag- anum öllum mikilvæg Mohácsi sagði mikið uppbygg- ingarstarf þurfa að fara fram í Jú- góslavíu áður en lýðræði nái að skjóta rótum og fólk geti lifað í sátt og samlyndi. Mohácsi benti á mikilvægi þess að við uppbyggingarstarfið væri byggt á reynslu fyrri ára og ár- hundraða til að koma á langtíma- friði á Balkanskaga. í því sam- bandi væri brýnt að uppbyggingin ætti sér ekki einvörðungu stað í Júgóslavíu heldur á Balkanskag- anum öllum. „I dag ætti augu manna að bein- ast að uppbyggingu á öllu svæðinu með það fyrir augum hvemig Balkanskaginn ætti að líta út í framtíðinni, hvemig stjórnmálaleg og efnahagsleg tengsl þessi lönd eiga að hafa sín á milli. Ef litið verður á Júgóslavíu sem einangrað dæmi er ég hræddur um að tilskil- inn árangur muni ekki nást.“ Hvernig vindur Evrópusam- bandsviðræðum fram? „Þær halda áfram samkvæmt áætlun. Við eram í hópi þeirra landa sem líklegust eru til að verða aðilar að ESB í næstu atrennu en viðræður fara nú fram af miklum krafti. Sem stendur eram við að kynna stöðu landsins efnahagslega og á öðram sviðum samfélagsins, s.s. á sviði landbúnaðar-, mennta- og heilbrigðismála. Afls þurfum við að skila inn 29 skýrslum en við höfum lokið 60% af þeirri vinnu og er ráðgert að henni ljúki í lok þessa árs.“ Mohácsi sagði Ungverjaland vonast til að gerast aðili árið 2002, en þá hefur ESB sagt hugsanlegt að bandalagið muni taka inn ný að- ildarríki. „Það sem mun verða hvað erfið- ast fyrir Ungverjaland að sigrast á fyrir aðild era umhverfis- og land- búnaðarmál. Ungverjaland er aft- arlega á merinni hvað umhverfis- mál varðar í samanburði við lönd Vestur-Evrópu. Ekki vegna þess að við vitum ekki hver vandamálin era, heldur vegna þess að endur- bætur á umhverfissviði era mjög kostnaðarsamar." Mohácsi sagði það helsta sem torveldi aðlögun landbúnaðarins að skilyrðum ESB vera léleg sam- keppnisstaða margra ungverski’a bænda. „Margir bændur eru ekki nægi- lega í stakk búnir að takast á hendur samkeppni við önnur ríki ESB þar sem landbúnaður í þeim ríkjum er veralega niðurgreiddur í samanburði við ungverskan land- búnað.“ Mohácsi sagðist þó bjartsýnn á að bjöminn yrði unninn og að Ungverjaland yrði brátt aðili að sameiginlegri landbúnaðarstefnu ESB. Enda væri stuðningur við aðild mjög mikill þar sem Ung- verjum fyndist þeir eiga mikið sameiginlegt með öðram Evrópu- þjóðum. Franska stj órnlagaráðið getur ekki fallist á sáttmála um vernd minnihlutatungumála Sáttmálinn andstæð- ur stj órnarskránni Strassborg. Morgunblaðið. STJÓRNLAGARÁÐ Frakklands hefur kveðið upp þann dóm að Frakkar geti ekki að óbreyttri stjómarskrá sinni fullgilt sátt- mála Evrópuráðsins um svæðis- bundin tungumál og tungumál minnihlutahópa. Sáttmálinn leggur aðildarríkj- unum á herðar ýmsar skyldur til vemdar tungumálum sem töluð eru á afmörkuðum svæðum og af minnihlutahópum. Litið er á slík mál sem menningarsögulega arf- leifð sem skylt sé að standa vörð um. Ríkisvaldinu beri til dæmis að sjá til þess að málin séu kennd í skólum og að beita megi þeim í samskiptum við stjórnvöld. Tutt- ugu Evrópuríki hafa skrifað und- ir sáttmálann, fyrir skemmstu Frakkar og Islendingar á ráð- herrafundi Evrópuráðsins í Búd- apest 7. maí síðastliðinn. Samn- ingurinn er samt ekki genginn í gildi fyrir öll þessi ríki því ein- ungis átta ríki hafa fullgilt hann. Frakkar hafa ekki enn tilgreint hvaða tungumál það séu innan landsvæðis þeirra sem falli undir sáttmálann enda þarf ekki að gera það fyrr en við fullgildingu. Samkvæmt sáttmálanum er með minnihlutatungumálum einkum átt við mál minnihlutahópa, sem hefð er fyrir, að ríkisborgarar til- tekins ríkis noti á afmörkuðum hluta landsins. Hugtakið nær hvorki yfir mállýskur opinbera tungumálsins né tungumál fólks á faraldsfæti. Til greina koma með- al annars bretónska, baskamál og þýska mállýskan sem töluð er í Elsass. Kemur ekki á óvart Þegar eftir að sáttmálinn hafði verið undirritaður ákváðu frönsk stjómvöld að bera hann undir franska stjómlagaráðið, sem dæmir um það, ef eftir er leitað, hvort nýir þjóðréttarsamningar og nýsamþykkt lagaframvörp séu í samræmi við stjómarskrána. Niðurstaðan í dómi sem birtur var 16. júní síðastliðinn var sú að stjórnarskráin kæmi að óbreyttu í veg fyrir að Frakkar gætu fullgilt sáttmálann. Samkvæmt 1. grein stjómarskrárinnar væri franska lýðveldið órjúfanleg heild þar sem allir era jafnir fyrir lögunum án tillits til uppruna, kynþáttar eða trúarbragða. Það gengi gegn þessu ákvæði að viðurkenna sér- stök réttindi til handa einstökum hópum manna. Þá segði í 2. gr. stjómaskrárinnar að franska væri tunga lýðveldisins. Þess vegna gætu borgaramir ekki krafist þess að fá að nota önnur tungu- mál í samskiptum sínum við stjómvöld. Regína Jensdóttir, lögfræðing- ur og starfsmaður Evrópuráðsins, sem hefur umsjón með fyrmefnd- um sáttmála, segir að ákvörðun franska stjórnlagaráðsins þurfi ekki að koma mjög á óvart. Staða frönskunnar sem tungumáls sé mjög sterk ekki einungis í vitund þjóðarinnar heldur einnig í stjórnskipun landsins. Hins vegar hafi verið mikill þrýstingur á frönsk stjómvöld heima fyrir að fullgilda sáttmálann. Þeir sem tala minnihlutatungumál þar í landi bindi miklar vonir við sátt- málann og þær aðgerðir sem hann mælir fyrir um til verndar slíkum tungumálum. Það sé því engin ástæða til að ætla að umræða um aðild Frakka að sáttmálanum og þar með aukin réttindi til handa þeim sem tala minnihlutatungu- mál sé úr sögunni. Miklu frekar megi búast við að umræðan muni snúast um það með hvaða hætti megi breyta stjórnarskránni frönsku.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.