Morgunblaðið - 20.06.1999, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 20. JIJNÍ 1999 19
LISTIR
„BÁLKÖSTUR dýranna", Karel Appel, 1994.
Cobra-áranna, jafnvel þótt langt sé
um liðið, til að átta sig á list Appels,
því ég fæ ekki betur séð en að verk
hans séu enn gegnsýrð hinum upp-
runalega Cobra-anda.
Yfírskrift sýningarinnar er
„Leikfbng af toftinu", eftir einu
verkinu. Titillinn á vel við, því það
er einna líkast því að skúlptúrunum
hafi verið klambrað saman af
gargantúísku smábarni, úr gömlu,
löngu gleymdu skrani, sem safnað
hefur ryki uppi á háalofti. Appel
hefur sankað að sér hinu ólíklegasta
dóti til að setja saman skúlptúra
sína, og hann hefur greinilega leitað
víða fanga, m.a. í Indlandi. Mest er
þetta útskurður í tré af ýmsum
furðufígúrum, ásamt hlutum af
kerrum, dyraumbúnaði, pílárum og
uppstoppuðum dýrum. Efniviðurinn
gæti hafa verið sóttur í tívolígarða,
hringekjur, sjálfspilandi lírukassa,
skrúðgöngur og skrauthýsi, og til-
heyrir ævintýraheimi Rudyard
Kiplings, frekar en Nintendo-kyn-
slóðar samtímans. Það er einhver
fortíðarþrá sem hvílir yfir þessum
verkum, sem á sér ef til vill rætur í
bemskuminningum Appels sjálfs.
Appel er mikið í mun að viðhalda
ásýnd hamsleysis og ákafa, en í sam-
anburði við málverkin eru skúlptúr-
amir þunglamalegir og yfirdrifnir.
Málverkin em léttari og þróttmeiri,
og persónulegri. Hann hefur bætt
ýmsu dóti inn á málverkin líka, en
þau verða ekki eins ofhlaðin og
skúlptúramir. Meðferð lita, sem er
sterka hlið Appels, nýtur sín einnig
mun betur í málverkunum.
Ýmis hástemmd orð hafa verið lát-
in falla um Appel og Cobra-hópinn,
m.a. af Appel sjálfum, en einnig af
Gunnari Kvaran í inngangi að sýn-
ingarskrá: algjör höfnun á hefðinni,
algjörlega nýtt upphaf, bylting, full-
komið frelsi, sjálfsprottin tjáning,
áköf innlifun. En það verður að gæta
að því að það er munur á ætlun og
árangri. Hugmyndafræði lista-
mannsins jafngildir ekki lýsingu á
verkunum. Það má spyrja sig að hve
miklu leyti list Appels uppfyllir retó-
ríkina í kringum hana. Ef við stillum
upp ofurmannlegum mælikvörðum,
sem enginn getur uppfyllt, þá veldur
Appel óhjákvæmilega vonbrigðum.
Appel er jafnmikið hluti af sögunni
eins og hver annar, hvað sem allri
mælskulist líður.
Þegar list Appels, og annarra
Cobra-listamanna, eins og t.d. As-
gers Jorns, er skoðuð í samhengi
við list síðustu áratuga, þá virðast
þeir hafa slegið á streng sem átt
hefur sér hljómgrunn hjá mörgum
listamönnum sem á eftir komu.
Cobra-seiðurinn kraumar enn, sér-
staklega í Danmörku, og meðal
yngri danskra listamanna má finna
samsvörun í hugsunarhætti, ef ekki
stíl, þeirra listamanna, sem vildu
gefa listinni nýtt tækifæri til að rísa
úr öskustó síðari heimsstyrjaldar.
Verk Appels hafa því óneitanlega
listræna og sögulega þýðingu, og
mikilsvert að fá tækifæri til að
skoða þau og endurmeta í návígi.
En þegar öllu er á botninn hvolft,
þá finnst mér málverk Svavars fal-
legri og heilsteyptari, og persóna
Asgers Joms áhugaverðari (þótt
það skipti minna máli). Ég hef líka
efasemdir um alla þessa upphafn-
ingu á list bama og geðsjúkra, sem
á að frelsa okkur undan oki sið-
menningar. Ef þetta er bemsk list,
sem dregur lærdóm af listsköpun
bama, er þá ekki rétt að láta börnin
dæma um hana?
Gunnar J. Árnasonx
ABS hemlakerfi.
Styrktarbitar
í huróum.
Þriggja punkta
öryggisbelti meö
strekkjurum og
höggdempurum
fyrir alla farþega
bílsins, líka aftur í
Farangursrými
stækkaó meó einu
handtaki.
Verð
1.678.000
>
Góó lesljós
f farþegarými,
leslampi yfir
framsætum, Ijós
í farangursrými.
Þad er líkt og Renault Mégane
Scénic stækki þegar þú sest inn í
hann, enda er hann fýrsti fjölnota-
btliinn í flokki bfla í millistærð. Segja
má aó Scénic sé f raun þrfr bílar,
fjölskyldubíll, feróabfll og sendibfll.
Hann er aóeins 4,23 m á lengd
en hugmyndarík hönnun og mikið
innanrými gerir hann ótrúlega
notadrjúgan og hagkvæman fyrir
einstaklinga og fjölskyldur.
Það er því engin furða þó hann hafi
umsvifalaust verió valinn bíll ársins
aföllum helstu bílatímaritum
í Evrópu þegar hann var kynntur.
Hér á landi hefur hann þegar
fengið frábærar viðtökur.
(
1 Fossháls
B&L a
Hestháls *“ .Criótháls
ÁA 11
Vesturlandsvegur
BARMMERKI
BIKARAR
VERÐLAU NAPENINGAR
FANNAR
LÆKJARTORGI S:S51-6488
Guðmundur Rafn
Geirdal
skólctstjóri og félagsftæðingur
Einkaskóli minn, Nuddskóli
Guðmundar, á 10 ára afmæli f dag.
Alls eru um 40 nemendur við
■t
skólann og 85 hafa útskrifast sem
nuddffæðingar. Fjöldi nuddþega
hefúr streymt um hendur þeirra
sem ég hef menntað og mörg
dæmi eru um heilsubætandi áhrif
nuddsins. Haldið verður upp á
afmælið í ágúst næstkomandi.
Mégane Scénic
stækkar þegar þú
sest inn í hann:
Rýmió kemur á
óvart, þú situr
hátt og hefur því
frábært útsýni.
RENAULT