Morgunblaðið - 21.07.1999, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 1999 9
FRÉTTIR
Íjaæhjgl
Hafnaríjörður
S. 565-5970
Gleraugnaverslanir
SJÓNARHÓLS
Glæsibær
S. 588-5970
Líklega hlýlegustu
og ódýrustu gleraugnaverslanir
norðan Alpafjalla
XX
SJÓNARHÓLL er frumkvöðull að lækkun gleraugnaverðs á íslandi
Spurðu um tilboðin
Strákar í golfi
UNGIR sem aldnir stunda golf af miklum þrótti yfir sumarið. Áhug-
inn hjá þessum ungu piltum leynir sér ekki.
KRINGLUNNI
SÍMI 553 7355
Sjúkraflutningaráð fór í kynnisferð til Pittsburg í Bandaríkjunum
Viltu verða rík/ur...
...og auðga líf þitt með því að kynnast nýrri menningu?
I LOK AGUST ERU
VÆNTANLEGIR 37
ERLENDIR SKIPTINEMAR
TIL ÍSLANDS.
HEFUR ÞÚ ÁHUGA Á AÐ
OPNA HEIMILI ÞITT FYRIR
SKIPTINEMA
í 5 EÐA 10 MÁNUÐI?
Þú þarft:
• Hús- og hjartarými.
• Opinn huga og víðsýni.
• Áhuga á að sjá ísland
með augum útlendings.
Þú þarft ekki:
• Að kunna ensku.
• Að elda mat í öll mál.
• Að vera með stanslausa
skemmtidagskrá.
Sjúkraflutninga-
mál standa vel hér
Toppurinn i sandölum
Herra-
undirföt
Höggdeyfandi sóli með grófum botni.
Níðsterkir og ótrúlega þægilegir skór.
Það er Sjúkraflutningaskólinn,
sem sér um menntun sjúkraflutn-
ingamanna á íslandi, en skólinn
var stofnaður árið 1996. Fyrir tíð
skólans voru haldin sérstök nám-
skeið af Borgarspítalanum, Rauða
krossinum og Slökkviliðinu fyrir
verðandi sjúkraflutningamenn. Að
sögn Kristins er námið nokkuð vin-
sælt hér á landi, en frá 1996 hafa
um 738 nemendur stundað nám við
skólann.
Að sögn Kristins var rætt um
það úti að stofnuni myndi gera út-
tekt á ástandinu hér á landi, en
hann bætti því við að ekkert hefði
verið neglt fast í þeim efnum, enda
væri slík úttekt mjög kostnaðar-
söm.
S JÚKRAFLUTNIN GAMÁL
standa mjög vel hérlendis, að sögn
Kristins Guðmundssonar, yfir-
læknis á Sjúkrahúsi Reykjavíkur
og formanns sjúkraflutningaráðs.
Kristinn fór ásamt þremur öðrum
til Pittsburg í Bandaríkjunum í lok
júní til að kynna sér sjúkraflutn-
ingastarfsemi í borginni, þ.e.
kennslu og nám sjúkraflutninga-
manna, skýrslugerð o.fl.
Hann sagði að góð samvinna
hefði verið á milli Sjúkraflutninga-
skólans hér og þess í Pittsburg og
því hefði sjúkraflutningaráð, sem
starfað hefur frá 1987, ákveðið að
fara út og kynna sér málin, en ráð-
ið samanstendur af þremur mönn-
um, þ.e. Kristni, sem skipaður er af
landlækni, Þóri Sigurbjörnssyni,
sem skipaður er af Rauða krossi
Islands og Knúti Halldórssyni, sem
er frá Landssambandi sjúkraflutn-
ingamanna. Auk þeirra þriggja fór
Lárus Pedersen, sjúkraflutninga-
maður einnig með út, en hann er
þar öllum hnútum kunnugur, þar
sem hann hefur sjálfur verið við
bráðatækninám í borginni.
Greinilega á réttri leið hér
í Pittsburg er það sérstök stofn-
un (Center for Emergency Medicin
Paramedic Education) sem sér um
kennslu sjúkraflutningamanna og
hefur umsjón með öllum neyðar-
flutningum í borginni.
„Við skoðuðum þetta, við ókum
þarna með sjúkrabílum, heimsótt-
um sjúkraflutningastöðvar, spítala
og bráðamóttökur. Sumir okkar
tóku þátt í sjúkraflutningum, bæði
í sjúkrabifreiðunum og þyrlum,“
sagði Ki-istinn. „Þetta er ólíkt ís-
landi að því leyti að þarna er allt í
miklu stærra formi, en kerfið,
reksturinn, meðferðin og með-
höndlunin var hins vegar mjög
svipuð því sem hér gerist. Við er-
um greinilega á réttri leið með
þessa hluti hér.“
Enginn læknir í neyðarbflum
í Pittsburg sjá sjúkraflutninga-
menn eða nánar tiltekið bráða-
tæknar (Emergency Medical
Technician Paramedics) alfarið um
bráðaþjónustu, þ.e. í hverjum
neyðarbíl þar eru tveir sjúkraflutn-
ingamenn, en enginn læknir líkt og
hér tíðkast, þar er læknir aðeins
kallaður til eftir þörfum.
Að sögn Kristins má búast við
því að hér á landi verði þróunin í
þessa átt, þ.e. að sjúkraflutninga-
menn sjái alfarið um bráðaþjón-
ustu, en hann sagði að líklega yrði
þróunin mjög hæg m.a. þar sem
bráðatækninám væri ekki kennt
hérlendis og því yrðu sjúkraflutn-
ingamenn að fara út til að læra.
Hann sagði að ekki væri á döfunni
að bjóða upp á bráðatækninám
hérlendis á næstunni, þar sem
samvinnan við stofunina í Pitts-
burg hefði gengið sérlega vel.
Skipun for-
manns og
varaformanns
útvarpsráðs
MENNTAMÁLARÁÐHERRA hef-
ur með vísun til 19. gr. útvarpslaga
m. 68/1985 skipað Gunnlaug Sævar
Gunnlaugsson framkvæmdastjóra
formann útvarpsráðs og Gissur Pét-
ursson framkvæmdastjóra varafor-
mann á því kjörtímabili ráðsins sem
nú er nýhafið.
Snorrabraut 60 • Reykjavfk • Sími 51 1 2030
Fax 51 1 2031 • www.skatabudin.is
Til sölu BMW 318i Touring árg/96
Bíllinn er ekinn 32 þús km. Fluttur inn nýr af umboði, einn eigandi. Sjálfskipting,
ABS bremsur, spólvörn, 1800 vél með beinni innspýtingu. Toppbogar,
3 höfuðpúðar að aftan, rafmagnsrúður og speglar. Litur dökkblár.
Verð kr. 2.100.000. Upplýsingar í síma 562 3135 og 893 0280 (Björn).