Morgunblaðið - 21.07.1999, Qupperneq 20
20 MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 1999
MORGUNBLADIÐ
ERLENT
Talið að Milo-
sevic fallist á
breytingar
Belgrad, Vín, Sartgevo. AFP.
VUC Draskovic, leiðtogi stjómar-
andstöðuflokksins Endureisnar-
hreyfingar Serbíu (SPO), spáði fyrir
um það í gær að Slobodan Milosevic
Júgóslavíuforseti myndi styðja
kröfur stjómarandstöðunnar um
kosningar hið fyrsta.
Draskovic sagði frétta-
mönnum í Belgrad í
gær að hann teldi að
Sósíalistaflokkur
Milosevics (SPS)
myndi fallast á breyt-
ingar „fyrr en síðar“
vegna hins bága
ástands í landinu.
Draskovic hefur lagt
til að mynduð verði
bráðabirgðastjóm íyrir
Serbíu og Sambands-
ríki Júgóslavíu sem
myndi skipuleggja
kosningar sem haldnar
yrðu innan þriggja til
sex mánaða. „Aðstæður
í landinu eru þannig að SPS verður
á endanum að fallast á samning við
stjómarandstöðuna sem kveður á
um bráðabirgðastjóm og lýðræðis-
legar kosningar," sagði Draskovic.
Þá sagðist hann vona að veldi MOos-
evics yrði fellt í næstu kosningum.
Draskovic var í gær harðorður í
garð friðargæsluliðs Atlantshafs-
bandalagsins (NATO), KFOR, og
sakaði það um að breiða yfir „þjóð-
emishreinsanir og þjóðarmorð á
Serbum“ í Kosovo. „A vissan hátt
þjónar KFOR því hlutverki að
breiða yfir versta
glæpinn - þjóðernis-
hreinsanir og þjóðar-
morð á Serbum".
Áratugur í endur-
uppbyggingu Kosovo
Kofi Annan, aðalrit-
ari Sameinuðu þjóð-
anna, sagði í Vín, þar
sem hann var staddur í
boði Öryggis- og sam-
vinnustofnunar Evrópu
(ÖSE) í gær, að það
tæki a.m.k. tíu ár að
byggja upp innviði
samfélagsins í Kosovo
að stríðinu loknu. „Ég
hef oft verið spurður
um hve langan tíma það taki [að
byggja Kosovo upp að nýju] en hef
ekki viljað gefa upp ákveðinn tíma.
Nú veit ég að við munum vera á
svæðinu í nokkur ár til viðbótar og
að endurappbygging Kosovo-héraðs
mun, að mínu viti, taka a.m.k. tíu ár,“
sagði Annan í gær.
Vuc Draskovic
Hætt við geimskot
á síðustu stundu
Kanaveralhöfða. Reuters.
AÐEINS sex sekúndum áður en
geimferjan Columbia átti að taka á
loft frá bandarísku geimferðamið-
stöðinni á Kanaveralhöfða í Flórída
í fyrrinótt var skyndilega hætt við
geimskotið.
Þetta átti að vera fyrsti geim-
ferjuleiðangurinn þar sem kona er
við stjómvölinn og af því tilefni var
margt fyrirmenna mætt á staðinn
til að fylgjast með geimskotinu, þar
á meðal HOlary Clinton forsetafrú
og Chelsea dóttir hennar.
Þegar niðurtalningin var langt
komin gáfu nemar tU kynna að
óeðlOeg uppsöfnun vetnis hefði átt
sér stað í einum eldflaugahreyflin-
um. í stjórnstöð var tafarlaust tekin
ákvörðun um að hætta við flugtak
vegna þessa og fresta því um tvo
sólarhringa, eftir því sem Ralph
Roe, yfirmaður stjómstöðvar
NASA, bandarísku geimvísinda-
stofnunarinnar, sagði á blaða-
mannafundi í gær. En þegar nánar
var að gáð kom í ljós að nemarnir
höfðu gefið rangar upplýsingar.
„Boðin um að hætt hefði verið við
komu minna en hálfri sekúndu áður
en átti að ræsa vélarnar," sagði
Roe. Tveimur tímum síðar höfðu
NIÐURTALNING stöðvuð á
Kanaveralhöfða í fyrrinótt.
tæknimenn komizt að því að boðin
sem ollu því að ákveðið var að hætta
við vora röng. Var vanstilltum nem-
um kennt um. Reyna á flugtak að
nýju aðfaranótt fimmtudags. Meg-
intilgangur þessa geimferjuleiðang-
urs er að koma fullkomnum
röntgengeislakíki á braut um jörðu.
UNGIR Kýpur-Tyrkir fagna hersýningu tyrkneska hersins og veifa tyrkneska og kýpur-tyrkneska fánanum.
Aldarfjórðungur liðinn frá innrás Tyrkja á Kypur
Lausnir deilumála
í órafjarlægð
Níkósía, Kyrenía, Ankara. Reuters, AFP.
NÍKÓSIA er borg botnlanganna.
Hver gata og hvert stræti endar
fyrirvaralaust þar sem fyrir era
vegtálmar sem skilja norðurhluta
borgarinnar frá suðurhlutanum;
Kýpur-Tyrki frá Kýpur-Grikkjum.
Ibúar tyrkneska hluta Kýpur
héldu upp á það í gær með hátíðleg-
um hætti að aldarfjórðungur er lið-
inn síðan tyrkneskar hersveitir réð-
ust inn í norðurhluta eyjunnar,
fimm dögum eftir valdarán grískra
þjóðemissinna, sem markaði upp-
haf brothættra samskipta tveggja
aðskOinna þjóða, sem enn era gráar
fyrir jámum, á eyju á stærð við
Vatnajökul. Allar tOraunir tO þess
að sætta gerólík sjónarmið samfé-
laganna sem eyna byggja hafa mis-
tekist til þessa og þykja fagnaðar-
læti almennings og viðhöfn hátíðar-
haldanna sem efnt var til í gær síst
tO marks um sáttfysi Kýpur-Tyrkja.
„Kýpverska hetjan"
Árið 1974 fyrirskipaði Bulent
Ecevit, núverandi og þáverandi for-
sætisráðherra Tyrklands, tyrk-
neska hernum að gera skyndiárás á
Kýpur, aðeins fimm dögum eftir að
grísk-kýpverskir þjóðemissinnar
rændu völdum, með stuðningi her-
foringjastjómarinnar í Aþenu, með
það fyrir augum að sameina Kýpur
og Grikkland. Hersveitir Tyrkja
sóttu fram og á skömmum tíma
náðu þær að hertaka norðurhluta
eyjunnar - u.þ.b. þriðjung flatar-
máls Kýpur - og vOdu þannig
tryggja öryggi þeirra Kýpur-Tyrkja
sem þar bjuggu, eftir blóðug átök
þjóðarbrotanna.
Hemaðaraðgerðir tyrkneska
hersins - kallaðar friðaríhlutun af
Tyrkjum á þeim tíma - áunnu
Ecevit nafnbótina, „kýpverska hetj-
an“, meðal Kýpur-Tyrkja á eyjunni
sem litu á þær sem „frelsun" á með-
an Kýpur-Grikkir hafa ávaOt litið á
innrásina og eftirmála hennar sem
hemám. Er innrásin átti sér stað
vora Kýpur-Tyrkir um 18% af íbú-
um eyjunnar.
I huga margra Tyrkja, Ecevit
þeirra á meðal, var innrásin sjálf
lausnin í langvarandi deOum þjóðar-
brotanna á Kýpur og leiddi hún, að
þeirra mati, til „samfellds friðar á
eyjunni síðustu 25 árin“. „Kýpur-
deilan er ekki lengur vandamál.
Tyrkland og Tyrkneska lýðveldið á
Norður-Kýpur (TRNC) líta svo á að
vandinn hafi verið leystur fyrir
margt löngu,“ sagði Ecevit í sjón-
varjjsviðtali á sunnudag.
Arið 1983 lýstu Kýpur-Tyrkir yfir
sjálfstæði ríkis síns á norðurhluta
eyjunnar og er það aðeins viður-
kennt formlega af stjómvöldum í
Ankara. Alþjóðasamfélagið viður-
kennir eingöngu stjórn Kýpur-
Grikkja í Níkósíu og era Kýpur-
Tyrkir algerlega háðir Tyrkjum á
meginlandinu um fjármagn og
hernaðaraðstoð.
Sjálfstæðiskröfur
Kýpur-Tyrkja
Sameinuðu þjóðirnar hafa reynt
að miðla málum í Kýpur-deOunni og
hafa t.a.m. verið með fjölmennt frið-
argæslulið við störf á eyjunni um
árabO. Ekkert hefur þó rekið í frið-
arviðræðum og síðan árið 1997 hafa
þær legið niðri en þá stóð Denktash,
forseti norðurhluta eyjunnar, upp
frá samningaborði og krafðist þess
að alþjóðasamfélagið viðurkenndi
sjálfstæði Kýpur-Tyrkja. FyiT
myndu þeir ekki hefja viðræður.
Hátíðarhöldin í gær þjónuðu því
hlutverki að ítreka sjálfstæðiskröf-
ur Kýpur-Tyrkja og efla samstöðu
íbúa norðurhluta eyjunnar um af-
dráttarleysi í samskiptum við sam-
félag Kýpur-Grikkja. Þeir
Denktash og Ecevit hafa haldið því
fram að ef ekki verði fallist á sjálf-
stæði Kýpur-Tyrkja muni það alltaf
vinna gegn þeim í friðarviðræðum
og Kýpur-Grikkir því bera meira úr
býtum. Þá hafa þeir ennfremur var-
að við því að átök kunni að blossa
upp á ný ef reynt verði að sameina
samfélögin með beinum hætti.
Kýpur-Grikkir hafa farið fram á
það að alþjóðasamfélagið beiti sér í
ríkari mæli í Kýpur-deOunni og hafa
stjómvöld í Níkósíu sameiningu
samfélaganna á stefnuskrá sinni. Þá
hafa þau farið fram á það að ríki,
sem geta haft áhrif á „ótæka stefnu
tyrkneska hlutans", beiti sér í mál-
inu. Grikkland og Tyrkland era að-
ildarríki að Atlantshafsbandalaginu
og hafa margir vænst þess af
Bandaríkjamönnum að þeir reyni að
sætta deOendur á Kýpur og leggja
sitt af mörkum tO að hafa áhrif á rík-
isstjórnir Grikklands og Tyrklands.
Bandarísk stjómvöld hafa hins
vegar lýst því yfir að þau muni ekki
beita Tyrki þrýstingi líkt og Kýpur-
Grikkir hafí farið fram á. Sagði
William Cohen varnarmálaráðherra
nýlega að Bandaríkin mundu ekki
beita aðOa málsins þrýstingi til þess
að koma sjónarmiðum Bandaríkja-
manna á framfæri.
Stærðfræðilegur skilnaður
BANDARÍSKIR fræðimenn
segjast hafa fundið upp stærð-
fræðilega aðferð til að draga úr
harkalegum deilum milli hjóna
sem skilja, að því er breska rík-
isútvarpið, BBC, greinir frá.
Fræðimennirnir hafa búið til
reiknilíkan til að reikna megi út
sanngjörnustu skiptingu eigna
og skrifað tölvuforrit til að sjá
um útreikninginn.
Hjónakornin hafa upphaflega
hundrað stig hvort. Þau gefa
einstökum eignum stig og í hlut
hvors um sig koma að lokum
hiutir upp á jafnan stigaíjölda
og verður skiptingin því vænt-
anlega jöfn. Steven Brams,
stjórnmálafræðingur við New
York-háskóla, og Alan Taylor,
stærðfræðingur við Union-há-
skóla, hafa fengið einkaleyfi á
formúlunni.
Þeir segja að hún tryggi
sanngirni og hægt sé að nota
hana í öllum tilvikum þegar
skipta þurfi eignum á milli
hjóna sem bæði ágirnist þær.
Kerfið er útlistað í næsta hefti
bandaríska tímaritsins New Sci-
entist. Grundvallarhugmyndin
er að koma í veg fyrir öfund.
Hundrað stig í byrjun
Tekið er dæmi af hjónunum
Adam og Barböru sem eru að
skilja og geta ekki komið sér
saman um hvort fær hvaða eig-
ur. Þau eiga raðhúsíbúð, sumar-
bústað og sportbíl. Hvort um sig
hefúr eitt hundrað stig í byrjun,
og gefa þau þessum eigum stig
eftir því hversu mikið þau lang-
ar í þær.
Adam langar verulega mikið í
bflinn og gefur honum því 60
stig. Raðhúsið er honum 25
stiga virði, og sumarbústaður-
inn þeirra 15 stiga sem eftir
eru. Barbara hefur hins vegar
meiri áhuga á raðhúsinu og set-
ur 65 stig á það, 25 á bflinn og
10 á sumarbústaðinn.
í fyrstu umferð fer hver hlut-
ur til þess aðila sem Iangar mest
í hann, það er að segja, þess
sem setti flest stig á hann.
Adam fær því bflinn og sumar-
bústaðinn, en Barbara fær rað-
húsið.
Síðan er tillit tekið til þess að
Adam hefur fengið tvo hluti
sem samtals eru virði 75 stiga af
þeim hundrað sem hann hafði
upphaflega, en Barbara aðeins
einn hlut sem er virði 65 stiga
af hundrað.
Sá hlutur sem Adam og Bar-
bara gáfu bæði sem næst sama
stigafjölda, sumarbústaðurinn,
er dreginn frá heildarstiga-
fjölda Adams, sem þá fer niður í
60. Bústaðurinn verður síðan
seldur og hagnaðinum skipt
þannig að Adam og Barbara
hafi eignir upp á sama stiga-
fjölda.
Adam fær þijá fimmtu af
hagnaðinum, sem eru honum
níu stiga virði; Barbara fær þá
tvo fimmtu sem eftir eru af
hagnaðinum, sem eru henni
fjögurra stiga virði. Að lokum
hefur hvort um sig eignir upp á
69 stig en öfundin ætti - sam-
kvæmt kenningu Brams og
Taylors - að vera horfin.