Morgunblaðið - 21.07.1999, Síða 24
24 MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
YETRARDVOL
MYMDLIST
Straumur
Myndverk
Kanadískur listhópur Boreal
Art/Nature. Opið alla daga frá
13-17. Til 25 júlí. Aðgangur ókeypis.
MEÐ sanni er ekki á hverjum
degi sem landið gistir kanadískur
listhópur, og má bóka að þekking
íslendinga á list þarlendra sé
mjög af skornum skammti. Um er
að ræða listamannahóp staðsett-
an í Laurentianfjöllunum í Qué-
bec, aðallega frönskumælandi en
meira en vel að sér í ensku, tví-
tyngt eins og það nefnist. Rekur
listamiðstöðina, Boreal, Norðlist,
og viðfangsefni hennar er könnun
samtímalistar og náttúru. Sam-
starfsvettvangur listamanna sem
skipuleggur marghliða verkefni á
alþjóðlegum grunni, jafnt í
óbyggðum sem byggðum, og nú
er hópurinn kominn til Islands
með sýningu sem fengið hefur
nafnið Vetrardvöl, sem er túlkun
á ferðalagi hópsins veturinn
1997-1998 þar sem hann leitast
við að endurvirkja tengslin á milli
listar og náttúru með skapandi
tungutaki samtímans. A sýning-
unni eru heimildir um verk sem
urðu til í þessu verkefni svo og ný
verk unnin sérstaklega til að við-
halda anda þessa lista/náttúru-
ferlis. Skúlptúr, innsetningar,
texti, ljósmyndaverk, ætingar,
tónlist og gjörningar. Túlkun á
vetri sem efnislegu og ímynduðu
sviði: Iveru-rými, sem hópurinn
ferðaðist í, tími vaxtar og minnis,
ögrun til að yfirlifa. Fjórtán lista-
menn frá Québec, Ontario og
Japan unnu jafnmörg verk á ýms-
um stöðum í Laurentianfjöllum
frá vetrarsólhvörfum til jafndæg-
urs að vori; innsetningar, gjöm-
inga, texta, tónlist, ljósmyndir og
myndbandsverk...
Af framanskráðu má ráða hve
efnistök viðfangsins var fjölþætt,
eins konar hópefli þar sem hver
og einn vann út frá eigin sérhug-
XpHfr'floq ttVOLLlWt
<Þar
sanhún
UðurCágtyfir
xretrarfyt CandsCaflið,
nrnnur tiííit ftennaryf\r
nafpi trén ogfrosin vötnin,
út ttfsjóndtUdarfiringsins, aftur
tiíjarðar, Ceggst tiChvíCdará öcnati
futðarCpííinum. Siðdegishirtan, sniðhöU
yfirsnjóinn, bíásfyggir nýúfCátarfnífur
hvoCsins. yfana reJQiríátt tiífwoCsins, Cang-
vajqnn íáðs-CagarCííýaminn bgCgjast ífnstöCíuðu
Coftinu oghún xroCjrgfir víðu snavarborðiniL
Vdjúffega, í CjósasCjptunum, svo nýúfíega, stígur
hún siðan niður. 9fún teggist íafCrifengdsinni
yftrsrjóinn, og sf(uggantgnd hennargregpist í
óogadrög hvoCsins. &ðgn Cögð vindi og muCdri
trjánna Cyfur um íana, og smám saman Ctetur
hún Caust pað sem hefurverið. VctrartungC
fara hjá. ‘Daga Ccngir. dfún seft&ur Ccngra í
hzhtCeifQmn, merjörðu. *Dífpra. OýpCgndi.
Xgrrfátorfastrcgmiruppoginníhana,
hvlsCar noffáuð semhún parf að heym.
‘Erhún hCustar, fer hún að sfytja
prásínaeina.&rásinatiCpess
að vera par á hvoCnum. Og
pessi prá ersaga hertnar,
og saga hennar vefst
innlsöguhvoCs-
ins. Sagan um
‘Kpnuog
dfvoL
:TifVvUur'Pitur TMíston '
LJÓÐIÐ Konan og Hvollinn í
þýðingu Eyvindar Péturs Ei-
ríkssonar segir mikið uni þau
beinu náttúruhrif sem sameinar
listhópinn Boreal Art/ Nature.
mynd um hið markaða ferli. Eftir
líflega opnun með gjörningi var
stefnan fljótlega tekin upp á há-
lendi íslands, Miklumýrar milli
Langjökuls og Hofsjökuls, þar
sem þeirra beið nýtt verkefni.
Áður en fólkið heldur utan verður
svo fyrirlestur í Hafnarborg 28.
júní undir heitinu „List/Náttúra-
samvirkni" og „Án ummerkja".
Verkefnið er styrkt af Hafnar-
fjarðarbæ, listasamtökunum
Conseil Arts et des Lettres du
Québec, og Le Conseil des Arts
du Canada depus 1917, ásamt
kanadíska utanríkisráðuneytinu.
Þetta er þannig nokkuð umfangs-
mikið og forvitnilegt fyrirtæki
náttúrufólks og verndunarsinna,
þátttakendur fjórtán, að auki
bættust nokkrir íslenzkir lista-
menn við hópinn er lagt var í há-
lendið. Segja má að stefnumörkin
séu af líkum toga og á alíslenzku
framkvæmdinni, Land, í Lista-
safni Árnessýslu sem ég fjallaði
um nýlega svo hér ber að varast
endurtekningar. Að miklu leyti er
um að ræða að setja með brögð-
um listar fyrirbæri hvunndagsins
og náttúrunnar á stall, vekja at-
hygli á verundinni allt um kring,
og heyrir því sömuleiðis undir
hugtakið „ontologiske gimmicks"
sem ég skilgreindi í sömu rýni.
Sýningin er þó nokkuð frábrugð-
in, aðallega í ljósi þess að hug-
myndin er önnur. Hún lætur ekki
mikið yfir sér í fyrstu en við nán-
ari skoðun kemur annað í ljós og
mikilvægt að sýningargestir geri
sér grein fyrir því og hinu gagn-
virka eðli hlutanna.
Að vinna á þennan hátt í blönd-
uðum hópi og á alþjóðlegum nót-
um hefur mjög færst í vöxt á und-
anförnum árum, einkum meðal
yngri kynslóða, en segja má að
þessi sé á efra þrepi því flestir
eru að nálgast miðjan aldur, þótt
óvíða þyki það hár aldur í mynd-
listinni. Hættan við slíkar fram-
kvæmdir er aðallega sú að þær
falli í einslitan farveg, veigurinn
helstur hve miklu heilbrigðari
slík samvinna er fundarhöldum,
er byggjast aðallega á nokkurra
daga orðræðu og móttökum,
einkum ef skipulega og markvisst
er gengið til verks.
Rýninum var boðið að heim-
sækja hópinn upp á hálendið sem
hann þekktist og var það stutt en
ævintýraleg lifun, einkum ferðim-
ar á staðinn og til baka aftur, helst
fyrir fjölþætt náttúrusköpin er
fyrir augu bar. Að auki var fróð-
legt að fá svolitla innsýn inn í verk-
svið listafólksins. Veðurguðirnir
höfðu ekki verið því hliðhollir, kalt
og vætusamt, en það lét það lítt á
LUC Beauparlant: „Prayer for the retum of Spring“.
Ljósmynd, blönduð tækni.
LAGT í könnunarleiðangur frá efri skála í Miklumýrum. Anna Sig-
ríður myndhöggvari og Eyvindur P. Erlendsson rithöfundur ræða
málin en á milli þeirra sér í eina kanadísku listakonuna hressa og
glaðbeitta á svip.
sig fá í hinu stórbrotna og hrjúfa
umhverfi með hrikalegu útsýni
hvert sinn er upp birti ásamt
margs konar náttúrufyrirbærum í
nágrenninu. Undarlegt ef það
verður ekki til að styrkja til muna
kennd þess fyrir reisn íslenzkra
óbyggða og tengjá það nánari
böndum við landið, sem það skrif-
aði raunar ástarjátningar til í
gestabók. Verður næsta fróðlegt
að fylgjast með afrakstrinum í
fyllingu tímans og má vera víst að
landið fær hér góða auglýsingu
fyrir lítið. En nú skiptir máli að
áhugasamir nálgist framkvæmd-
ina í listamiðstöðina að Straumi, er
til frásagnar að þangað munu hafa
ratað nær þúsund erlendir lista-
menn frá því hún tók til starfa.
Bragi Ásgeirsson
Fljótandi
litaleikur
MYJMILIST
Listasafn ASÍ/Ásiiuinilarsalur
MÁLVERK
HLÍF ÁSGRÍMSDÓTTIR
Safnið er opið frá kl. 14 til 18 alla daga nema
mánudaga. Sýningin stendur til 25. júlí.
MÁLVERK Hlífar Ásgrímsdóttur hafa lengi ein-
kennst af áherslunni sem hún leggur á litinn sjálfan
og möguleika hans og hún hefur jafnvel málað einlit
málverk þar sem öll tjáningin er í pensilförunum og
þeim dráttum sem hún markar í litamassann. Á sýn-
ingu sinni í Ásmundarsal heldur Hlín þessum hætti
þótt flest verkin á sýningunni séu reyndar ekki einlit
heldur í tveimur litum, blá og rauðgul. Hér vinnur
Hlíf með þunnum oh'ulit á striga og verkin eru máluð
með breiðum, fljótandi strokum svo helst er eins og
horft sé ofan í gáraðan vatnsflöt. í sumum myndun-
um er jafnvel eins og steini haíi verið hent út í vatnið
svo liturinn líkt og gusast fram. Efst í myndunum
víkur svo blái liturinn, sem er ráðandi, fyrir rauðgul-
um, lfkt og kvöldsól speglist í vatnsfletinum. Um leið
getur þessi litasamsetning líka vísað til þeirra
margræddu andstæðna sem sagðar eru ríkja í ís-
lenskri náttúru og jafnvel í náttúru Islendinganna
sjálfra: Elds og íss.
Myndir Hlífar eru hæverskar og það er greinilegt
að við gerð þeirra ræður glaðværð og óheft sköpun-
argleði. Náttúrutilvísanimar eru ótvíræðar en eru
EIN AF myndum Hlífar Ásgrímsdóttur af sýningu
hennar í Ásmundarsal.
samt fyrst og fremst
átylla í leik listakonnunn-
ar við litinn. Heimur
myndarinnar er Hlíf hug-
leikinn og hún virðist leit-
ast við að láta myndina
sjálfa, leik htanna og
pensilsins, ráða ferðinni.
Þessi viðleitni skilar sér
líka vel til áhorfandans og
frammi fyrir málverkum
hennar leggur hugurinn
af stað í ferðalag inn í
fljótandi veruleikann sem
dansar um á striganum.
Þar sem málað er þunnt
nær blái liturinn í mynd-
unum að sýnast ótrúlega
vatnskenndur og léttur og hvítur striginn skín sums
staðar í gegn eins og speglun birtu í vatnsfleti.
Hlíf er vaxandi málari sem greiniliega hefur það
sem hver góður málari þarf: Óbilandi trú á málverk-
inu og tjáningarmætti litanna.
MÁLVERK
SVANBORG MATTHÍASDÓTTIR
í GRYFJUNNI á jarðhæð Listasafns ASÍ sýnir
Svanborg Matthíasdóttir tvö málverk, annað
geysistórt en hitt í hefðbundnari trönustærð. Mynd-
ir Svanborgar eru frekar flóknar og lýsa með græn-
um, gulum og brúnum litum einhvers konar skógar-
stemmningu. í minni myndinni má líka greina fígúr-
ur og andlit. Myndbyggingin er einfóld og einkenn-
ist af lóðréttum strokum sem fylla allan myndflöt-
inn. Þessi málverk Svanborgar eru að mörgu leyti
haganlega gerð en ná þó ekki alveg að rísa upp sem
sjálfstæð listaverk. 171 þess að svo mætti verða
þyrfti að vera meiri túlkun í byggingunni og mark-
vissari úrvinnsla á litaskala og mótífi. Af þessum
myndum er þó ljóst að ekki vantar mikið upp á;
hugsanlega aðeins örlítið meira sjálfstraust en það
er hverjum nauðsyn sem ætlar sér að skapa úr engu
verk sem getur talað sterkt til áhorfandans.
Jón Proppé
Menningar-
fulltrúi í
Grindavík
BÆJARSTJÓRN Grindavíkur
hefur ráðið Guðmund Emilsson til
starfa sem menningarfulltrúa í Gr-
indavík.
Menningarfulltrúi mun fara með
skólastjórn í Tónlistarskóla Gr-
indavíkur og hafa með höndum yf-
irstjórn kirkjutónlistar og störf
kantórs. Er stefnt að því að halda
áfram samstarfí sóknamefndar og
bæjarstjórnar sem hófst fyrir all-
mörgum árum segir í fréttatil-
kynningu bæjarstjómarinnar.
Guðmundur Emilsson var um
árabil tónlistarstjóri Ríkisútvarps-
ins og starfar nú m.a. sem listrænn
stjómandi Baltísku Fílharmoní-
unnar í Riga í Lettlandi og mun
hann gegna því starfi áfram sam-
hliða störfum í Grindavík.
Ráðning menningarfulltrúa nú
og ráðning ferðamála- og markaðs-
fulltrúa fyiir skömmu er markviss
ákvörðun byggð á þeirri stefnu
bæjaryfirvalda að Grindavík verði
fjölskylduvænn bær, sem byggist á
sjávarútvegi, þjónustu við ferða-
menn og víðtækum möguleikum
sem jarðhitinn skapar til uppbygg-
ingar samfélagsins. Markmiðið er
að Grindavík verði eftirsóknarverð-
ur bær til búsetu bæði hvað snertir
atvinnumöguleika, menntun og
þjónustu segir í fréttatilkynningu
bæjarstjórnar Grindavíkur.