Morgunblaðið - 21.07.1999, Qupperneq 26
26 MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Ánægðir íbúar gegnt
nektardansstað
ÉG GET ekki látíð
hjá líða að leggja
nokkur orð í belg í þá
umræðu sem farið hef-
ur fram í fjölmiðlum
undanfama viku um
hávaðamengun og
truflun frá skemmtí-
stöðum í miðborg
Reykjavíkur. Grjóta-
þorpsbúar virðast
lagnir við að koma
málefnum sínum á
framfæri og lítur nú út
fyrir að þeim sé að
takast að fá borgaryf-
irvöld í lið með sér við
að hreinsa miðbæinn
af þeirri „óæskilegu
lágkúru" sem þeir sjá birtast í
formi nektarstaðarins Club Clint-
ons annars vegar og Kaffileikhúss-
ins eða Hlaðvarpans hins vegar.
Nokkrir hafa haldið uppi góðum
vömum fyrir Hlaðvarpann í Morg-
unblaðinu síðustu daga og læt ég
það því ógert hér. Hitt er mér þó
einnig hugleikið hver framtíð nekt-
ardansstaða í borginni verður í
ljósi þeirrar miklu herferðar sem
nú virðist hafin gegn þeim. Mér er
málið nokkuð skylt þar sem við
hjónin búum einmitt beint fyrir
framan annan slíkan stað á fjöl-
fömu homi í miðborg Reykjavíkur.
Skemmst er frá því að segja að við
unum hér sæl og glöð, njótum mið-
bæjarlífsins og vildum ekki fyrir
nokkurn mun að staðurinn færi
undir þá fallöxi sem nú vofir yfir
Club Clinton og öðmm nektarbúll-
um borgarinnar.
Ymsir hagsmunir era þar í húfi
og tel ég rétt að geta um fáeina
þeirra. Olíkt því sem þeir Gijóta-
þorpsbúar tala um að nektarstað-
urinn Club Clinton muni rýra verð-
gildi húsa þeirra getum við hjónin
vitnað um að íbúðin okkar hefur
þvert á móti snarhækkað í verði
frá því að nektarstaðurinn opnaði.
Fólk á öllum aldri laðast hingað í
auknum mæli og vill hvergi annars
Hrafnhiidur Hagalin
Guðmundsdóttir
úrual af fatnaðl fyrir
alla atdurshópa
FaxaTeni 8
m
z
staðar búa. Ef staðn-
um yrði lokað myndi
draga úr renneríinu
upp og niður götuna
og hverfið gæti fallið í
gleymsku. A endanum
myndi svo ekki sála
vilja koma hingað,
hvað þá búa hér, með
ófyrirsjáanlega slæm-
um afleiðingum fyrir
okkur hjónin. Þá má
og geta þess að tals-
verð breyting hefur
orðið á horninu frá því
að staðurinn var opn-
aður en þama var áð-
ur venjuleg krá. Hún
gat stundum verið
nokkuð hávaðasöm þó að hún væri
ágæt fyrir sitt leyti. En frá því að
nektarlistdansstaðurinn opnaði
berst varla svo mikið sem stuna
eða hósti frá hominu. Tónlistin
sem leikin er undir dansatriðunum
er yfírleitt lágt stillt og berst
ógjaman hingað upp, að minnsta
kostí traflar það okkur aldrei enda
við svo sem ekki mjög kvöldsvæf.
Enn má nefna að ljósaskiltí það
sem prýðir staðinn og götuna í leið-
inni, er nú orðið hlutí af fremri
stofunni okkar en rauður bjarminn
af skiltínu kastast í sífellu inn á
einn vegginn. Þessa skreytingu
vildum við alls ekki missa enda
dást allir að henni sem á heimili
okkar koma. Ekki má heldur
gleyma stúlkunum erlendu sem
standa tíðum úti í dyragætt og
pústa á milli dansatriða. Þetta era
lögulegustu stúlkur, glaðlyndar og
málglaðar og setja svip á homið
svo manni getur næstum dottið í
hug að litla Reykjavík sé dálítill út-
hverfiskjami í erlendri stórborg.
Þær birtast svona og hverfa í takt
við ljósaskiltíð og margar hverjar
era orðnar góðkunningjar íbúanna
í næstu húsum - það væri mikill
missir að þeim öllum og þeim in-
dælu dyravörðum sem þama
starfa. Að lokum má svo geta þess
að bömin í hverfinu alast upp við
eðlilegar nútíma aðstæður þar sem
öllu ægir saman eins og gengur í
öðrum borgum, þau era vel upplýst
og hafa aldrei verið staðin að því að
gægjast inn um glugga á nektar-
staðnum. Að minnsta kosti höfum
við hjónin aldrei orðið þess vör.
Hins vegar er stutt fyrir fullorðna
fólkið að skreppa yfir og þama höf-
um við átt marga ánægjulega
kvöldstund í hópi góðra vina.
En þó að homið okkar hafi frem-
ur róast en hitt þessi síðustu ár þá
föram við auðvitað ekki varhluta af
því frekar en Gijótaþorpsbúaar og
aðrir miðbæjarbúar að vera í
hringiðunni. Miðbænum fylgir
óneitanlega ys og þys og skemmt-
analífið í Reykjavík hefur á unda-
fömum áram tekið kipp. Fregnir
af fjöragu næturlífi í borginni hafa
flogið víða og erlendir fréttamenn
streyma hingað til lands tíl að
Fegurðin kemur innan fró
OpKk
mán-ftn 10-18
Rt 10-19
Inu 10-18
Su 12-17
Laugavegi 4, sími 551 4473
Miðborgin
Miðborg Reykjavíkur
er ekki lengur svefn-
bær með mannlausum
þöglum strætum, segir
Hrafnhildur Hagalín
Guðmundsdóttir, held-
ur borgarkjarni með
fjölmörgum börum og
kaffihúsum og
skemmtistöðum.
skrifa um það greinar í útlend blöð
og tímarit. Miðborg Reykjavíkur
er ekki lengur svefnbær með
mannlausum þöglum strætum
heldur borgarkjarni með fjölmörg-
um börum og kaffihúsum og
skemmtistöðum. Breidd þeirra og
fjölbreytni skapar borginni litríkan
svip sem vekur athygli og gefur
borgarbúum og öðram sem hingað
sækja ótal valmöguleika til ólíkra
skemmtana. Hins vegar er Reykja-
vík ekki eingöngu borg skemmt-
analífs. Hún er líka hin friðsælasta
og rólegasta borg. Alls staðar má
finna svefnvæn hverfi langt frá
skarkala miðbæjarlífsins og
glaumsins gleði. Er hugsanlegt að
miðbærinn sem undantekningar-
laust er hávaðasamasta svæði
hverrar borgar sé kannski ekki
heppilegasta staðsetningin fyrir
fjölskyldufólk sem um fram allt
þráir þögn og frið um nætur? Við
sem í miðbænum búum hljótum
alltaf með reglulegu millibili að
þurfa að spyrja okkur þessarar
spumingar. Ég vona að borgaryfir-
völd fari hægt í þær sakir að leggja
boð og bönn á leikhús, nektardans-
staði og aðra skemmtistaði borgar-
innar sem dregið gætu úr líftnu í
miðbænum og fjörmiklum vexti
hans.
Höfundur er leikskáld.
ICEPRO - nefnd
um rafræn við-
skipti í tíu ár
A ÞESSU ári era
liðin tíu ár frá því
ICEPRO, nefnd um
rafræn viðskipti, var
sett á laggimar, m.a.
að tilstuðlan iðnaðar-
og viðskiptaráðuneyt-
isins og helstu sam-
taka atvinnulífsins.
Frá upphafi hefur
nefndin verið til húsa
hjá Verslunarráði Is-
lands og notið góðs af
samskiptum sínum við
ráðið.
Mikilvægi raf-
rænna viðskipta hefur
vaxið jafnt og þétt á
undanförnum árum og
víst er að miklar framfarir eru
framundan. Bylting er að eiga sér
stað á sviði fjarskiptatækninnar
og sífellt era fleiri möguleikar á
sviði gagnaflutnings að koma til
sögunnar. ICEPRO gegnir mikil-
vægu hlutverki á þessu sviði sem
sameiginlegur vettvangur þeirra
er láta sig rafræn viðskipti ein-
hverju varða. Ljóst er að verkefni
á vegum nefndarinnar munu vera
margvísleg á næstu misseram og
tengjast samskiptum atvinnulífs
og hins opinbera, verslun og vöra-
dreifingu, tollamálum, heilbrigðis-
málum og fleiru.
Hlutverk nefndarinnar hefur
ávallt verið að vinna að einföldun
og samræmingu í viðskiptum, með
megináherslu á hvernig beita
megi rafrænum eða pappírslaus-
um samskiptum milli viðskiptaað-
ila, jafnt opinberra sem einkaað-
ila. Þá hefur og frá upphafi verið
lögð rík áhersla á að tryggja sam-
ræmingu við alþjóðlegar verklags-
reglur og notkun viðurkenndra al-
þjóðlegra staðla, svo sem EDI-
staðalsins (Eleetronic Data
Interchange), í samræmi við hags-
muni íslensks atvinnulífs. Megin-
verkefni nefndarinnar hefur því
lotið að útbreiðslu EDI-staðalsins
hér á landi. Notkun staðalsins er
mjög útbreidd í verslun og vöru-
dreifingu og einnig á
sviði inn- og útflutn-
ings, en rafræna toll-
skýrslan byggir t.a.m.
á ÉDI-staðlinum.
Til að sinna þessu
hlutverki hefur
nefndin beitt sér með
margvíslegum hætti,
staðið fyrir ýmiss
konar kynningarstaf-
semi, útgáfu frétta-
blaðs, bæklinga,
handbókar og með
funda- og ráðstefnu-
haldi. Nefndin hefur
Jakob Falur launaðan starfsmann
Garðarsson er sér um rekstur
nefndarinnar, en
einnig era, auk fimm manna fram-
kvæmdastjórnar, starfandi vinnu-
hópar sem starfa að hinum ýmsu
Viðskipti
Hlutverk ICEPRO-
nefndarinnar hefur
ávallt verið að vinna að
einfóldun og samræm-
ingu í viðskiptum, segir
Jakob Falur Garðars-
son, með megináherslu
á hvemig beita megi
rafrænum eða pappírs-
lausum samskiptum
milli viðskiptaaðila.
þáttum er varða markmið nefnd-
arinnar. Þannig hefur í gegnum
tíðina mikill fjöldi einstaklinga
tekið þátt í þessu starfi með bein-
um og óbeinum hætti og stuðlað
að framgangi þessa málefnis.
Alþingiskosning-
arnar 8. maí snerast
fyrst og fremst um
kvótakerfið. Allir
flokkar höfðu lýst sig
samþykka breytingu
þess. Andlegur sigur-
vegari þessara kosn-
inga var Guðjón A.
Kristjánsson, gamal-
gróinn skipstjóri,
annnáluð aflakló og
forgöngumaður í
hagsmunabaráttu sjó-
manna. Yfirburðasig-
ur hans bjargaði
Frjálslynda flokknum
og veitti jafnframt
formanni hans, Sverri
Hermannssyni, sæti á Alþingi.
Frábær grein GAK í Mbl. 13. júlí,
bls.40, sýnir og sannar að hann og
Frjálslyndi flokkurinn eiga mikið
og nauðsynlegt erindi á Alþingi.
Greinin er skrifuð af miklum
kunnugleika á aðstæðum við tog-
araútgerð á Vestfjörðum og gefn-
ar upp tölulega réttar upplýsingar
um hvemig kvótakerfið hefir bitn-
að á togaraútgerð þar og áhrif
þess á byggðirnar þar. Við upphaf
kvótakerfisins 1984 var alls út-
hlutað 15.164 tonnum af botnfiski
til 12 togara á Vestfjörðum, en
frystitogararnir Júlíus Geir-
mundsson á ísafirði
og Hólmadrangur
a
ekki
Hólmavík eru
með í yfirlitinu.
Seldir togarakvótar
Árið 1989 er síðasta
árið áður en framsal á
kvótum er gefið
frjálst, en þá era enn
allir sömu 12 togar-
arnir í útgerð fyrir
vestan, og fá þá út-
hlutað 18.295 tonnum.
Þá kemur örlagaárið
1990, þegar Alþingi
Dnundur ákveður að allir kvót-
Ásgeirsson ar séu gerðir fram-
seljanlegir til hæst-
bjóðenda og ekki bundnir við skip.
Ahrifin láta ekki á sér standa, því
að árið 1998 era aðeins fjórir þess-
arra togara enn gerðir út vestra
með alls 6.745 tonna úthlutuðum
kvóta (þar af Páll Pálsson með
3.280 tonn). Sama ár er þessum
sömu 12 skipum úthlutað 29.699
tonnum og eru þá brottseldir kvót-
ar, sem úthlutað er á nöfn þessara
sömu skipa alls 22.954 tonn. Hér
skiptir ekki máli að á sama tíma
hafa verið keypt tíl Vestfjarða 4 ný
skip með samtals 6.109 tonna út-
hlutuðum kvótum, því að þessir
kvótar hafa verið kejrptir til þess-
Vestfirðir
Meðan á þessu aðgerð-
arleysi stendur, segir
Onundur Asgeirsson,
flytja menn burtu úr
öllum fiskiþorpum á
Vestfjörðum.
arra nýju skipa. (Innan sviga er
rétt að geta þess, að eitt þessara
skipa, Sléttanesið, áður á Þingeyri,
hefir nú verið selt til Reykjavíkur
með 1.888 tonna úthlutuðum
kvóta).
Verðmæti seldra kvóta
Verðmæti þorskkvóta er nú 120
kr/kg, sem er óvenjulega hátt verð
nú. Blóðtakan vegna seldra kvóta
frá Vestfjörðum á þessu ári er
22.954 tonn og miðað við þetta
kvótaverð nemur því verðmæti
hans kr. 2.754.448.000, en ef miðað
væri við 100 kr/kg verður upphæð-
in kr. 2.295.400.000, eða 2,75 til 2,3
milljarðar króna, en jafnframt er
þetta sú fjárhæð, sem kaupendur
þessara kvóta frá Vestfjörðum
Kvótakerfíð er vitleysa