Morgunblaðið - 29.08.1999, Síða 35
h
MORGUNBLAÐIÐ
æskilegt að vera á skjön við alþjóð-
lega viðskiptahætti í opnu hagkerfi?
Er það alveg ljóst að almenningur
verður af eignum sínum í bönkunum
sem hafa verið á hans (þ.e. almenn-
ings) forræði eins og haldið er fram.
Ef þess verður gætt að hámarka söl-
una og ná fram þeirri hagræðingu
sem að er stefnt, er þá ekki líklegt
að bankaþjónusta á Islandi verði
ódýrari og skili sér til almennings?
Einnig má halda því fram að það sé
síður hætta á því, þegar ríkisvið-
skiptabankamir hafa verið aflagðir,
að almenningur verði skattlagður til
þess að leggja bönkum fram aukið
eigið fé vegna útlánatapa eins og
gerst hefur. Bankakerfið er of dýrt,
það eru flestir sammála um að
áframhaldandi hagræðing er nauð-
synleg, með eða án erlendra fjár-
festa. Jafnframt verður andvirði söl-
unnar á hlutabréfum ríkisins notað í
þágu almennings, m.a. til þess að
greiða niður skuldir ríkissjóðs, eins
og segir í stjórnarsáttmálanum. Ef
hins vegar verður ákveðið að setja
takmörkun á eignarhald í bönkum
til frambúðar, þá er hætt við að sú
hagræðing sem að er stefnt náist
ekki í bráð.
„Menn verða að standa klárir á
því að hér dugir enginn leikara-
skapur. Staðan er auðvitað sú að
þótt þúsund kaupi í dag getur það
allt verið komið í eina lúku daginn
eftir þegar önnur umferð hefst.
Þess vegna verða menn að hugsa
dæmið alveg til enda,“ er haft eftir
Guðna Ágústssyni, ráðherra í ríkis-
stjóminni og fv. formanni banka-
ráðs ríkisviðskiptabanka, í DV,
laugardaginn 14. ágúst sl. Og enn-
fremur segir hann í sama viðtali:
„Við megum ekki láta alla helstu
þætti í þjónustu mannlífsins fara á
örfáar hendur ef það stendur til að
fara að selja hér banka í stóram stfl
sem og Landssímann." Vissulega er
bankaþjónusta mikilvæg í nútíma
þjóðfélagi (ég ætla ekki að ræða
málefni Landssímans), en ég held
tæplega að hún sé einn af helstu
þáttum í þjónustu mannlífsins eins
og ráðherrann heldur fram. E.t.v.
era ummæli ráðherrans lituð af
margra ára setu í bankaráði ríkis-
viðskiptabanka. Ríkisviðskipta-
bankamir og ítök stjómmálaflokka
í stjórnun þeirra hafa lengst af ver-
ið eftirsóknarverðir til þess að stýra
fjármagni í ýmis (gælu)verkefni og
til þess að skipa flokksholla gæð-
inga og fyrrverandi alþingismenn í
stöðu bankastjóra eða sem banka-
ráðsmenn. Nútíma bankastarfsemi
er ekki fólgin í því að stýra sparifé
almennings í verkefni sem er á
herðum ríkisins að leysa og fjár-
magna. Til að leysa sérstök verkefni
eins og t.d. byggðaverkefni og aðrar
sérstakar lánveitingar til nýsköpun-
ar og/eða styrkja era aðrar stofnan-
ir heppilegri.
Ef menn óttast það að „ein lúka“
eða samþjöppun áhrifa sé sérstak-
lega hættuleg í bankastarfsemi
ættu menn að einbeita sér að því að
styrkja ýmis ákvæði gtldandi laga
til þess að tryggja það að bankamir
verði ekki misnotaðir af eigendun-
um sem farvegur fyrir lánveitingar
til þeirra sjálfra eða fyrirtækja í
þeirra eigu. Jafnframt er nauðsyn-
legt að herða öll refsiákvæði gild-
andi bankalaga (sem og refsiákvæði
í lögum á fjármagnsmarkaði al-
mennt). I viðskiptaráðuneytinu
liggja fyrir, og hafa legið fyrir í
SKOÐUN
nokkur ár, fullmótaðar tillögur um
breytingar á viðurlagaákvæðum
laga um hinar ýmsu fjármálastofn-
anir. Tillögurnar voru samdar af
nefnd sérfræðinga sem sérstaklega
var skipuð til þess. Þær tillögur
þarf að uppfæra og lögfesta. Efla
þarf starfsemi efnahagsbrotadeild-
ar ríkislögreglustjóraembættisins
til þess að taka við og afgreiða inn-
an eðlilegra tímamarka þau mál
sem þangað er vísað til rannsóknar
og varða meint brot á starfsemi ein-
stakra fjármálastofnana eða starfs-
manna þeirra. Þá þarf að endur-
skoða og gera fyllri lögin um Fjár-
málaefth-litið, auka heimildir þess
og gera starfsemina opnari gagn-
vart almenningi. Eflaust má lengi
laga ýmislegt í reglum og starfsemi
Verðbréfaþings íslands og á verð-
bréfamarkaðinum almennt. Hins
vegar hefur sá markaður slitið
barnsskónum fyrir löngu og er orð-
inn alvöru markaður sem veitir
nauðsynlegt aðhald þeim félögum
sem eru skráð á markaði og nýtur
almenns trausts fjárfesta. Taka
þarf af festu á öllum frávikum frá
gildandi reglum og óeðlilegum við-
skiptaháttum á verðbréfamarkaði.
Gegnsæi
Fjármálamarkaðurinn á íslandi
er og á að vera gegnsær. Forsætis-
ráðherra sjálfur hefur lagt á þetta
áherslu í umræðu um viðskipti með
verðbréf. Að mínum dómi era gild-
andi lög, reglur og upplýsingar um
markaðinn áreiðanlegar og gegn-
sæjar og veita Aiþingi, ríkisstjórn
og almenningi þær upplýsingar sem
þörf er á. Þá hefur forsætisráðherra
í nýlegri ræðu varað við eiturlyfja-
barónum, glæpahyski og mönnum
sem ekki fara eftir leikreglum. Það
era vissulega orð í tíma töluð. Því
hefur verið haldið fram af öðrum að
þau vamaðarorð hafi verið sögð
með tilvísun til umræðunnar um
eignarhald á bönkum. Um það get
ég ekki dæmt. í þessum efnum er
þó rétt að minna á, til viðbótar við
það sem áður er sagt, að í gildi era
lög um aðgerðir gegn peninga-
þvætti nr. 80/1993 svo og tvær
reglugerðir sem annars vegar era
um hlutverk fjármálastofnana við
aðgerðir gegn peningaþvætti og
hins vegar um hlutverk nokkurra
starfsstétta og aðila við aðgerðir
gegn peningaþvætti. Hin síðari tek-
ur m.a. til starfsemi greiðslukorta-
fyrirtækja, verðbréfamiðlara og
skiptistöðva með gjaldeyri.
Þegar gerð er sú sjálfsagða krafa
um gegnsæi fjármálaviðskipta og
fjármálamarkaða þá er eðlilegt að
þeir sem starfa á þeim markaði geri
kröfu um gegnsæi stjórnarathafna
sem kunna að hafa áhrif á þróun
markaðarins. Það á m.a. við um fyr-
irætlanir ríkisstjómarinnar í einka-
væðingarmálum en skiptar skoðanir
hafa komið fram í áðumefndri um-
ræðu um að þær hafi verið nægjan-
lega gegnsæjar. Gegnsæi stjómar-
athafna á ekki síður við í málefnum
Seðlabanka íslands. í stjómarsátt-
málanum er m.a. vikið að því sem
atriði í endurskoðun á verkaskipt-
ingu á milli flokkanna að: „fella
Seðlabanka íslands undir forsætis-
ráðuneyti sem efnahagsráðuneyti".
Frekar er ekkert um það sagt í
stefnuyfírlýsingunni. E.t.v. hefur
verið fjallað um það opinberlega
annars staðar, en þá umfjöllun hef
ég ekki séð.'Um málefni Seðlabank-
ans og stöðu hans í stjómkerfinu er
hægt að fjalla í löngu máli en verður
ekki gert hér. Hins vegar er eðli-
legt, vegna þessara fyrirhuguðu
breytinga, að spyrja: Og hvað svo?
Er ætlun ríkisstjómarinnar að beita
sér fyrir endurskoðun á lögunum
um bankann og gera stöðu hans
sjálfstæðari gagnvart ríkisvaldinu
en hún er í dag? Nefndir hafa verið
skipaðar og skilað um það tillögum
á undanförnum áram. Stendur til að
breyta ákvæði í lögum bankans um
að bankastjórar hans skuli vera
þrír? Er það e.t.v. skýringin á því að
ekki er búið að auglýsa stöðu eins
bankastjóra, sem er búin að vera
laus í vel á annað ár? Hver ber
ábyrgð á þeirri lögleysu sem við-
gengst í þessum efnum? Á ekki
framkvæmdavaldið að framfylgja
lögum sem sett era á hinu háa Al-
þingi? Er framkoma af þessu tagi
og lítilsvirðing í garð æðstu pen-
ingastofnunar þjóðarinnar og
starfsmanna hennar til þess fallin
að skapa traust á aðgerðum á fjár-
magnsmarkaði? Skýr svör við þess-
um spumingum stuðla að umræddu
gagnsæi.
Höfundur er sérfræðUegur ráðgjafi
um fjárnuílastofnanir og fjármála-
þjónustu hjá Alþjóðagjaldeyris-
sjóðnum (IMF) í Washington DC.
Þær skoðanir sem settar eru fram í
greininni eru persónuiegar skoðan-
ir höfundar.
1) Skv. 8. gr. 1. 113/1996 verða ríkisvið-
skiptabankar einungis stofnaðir samkvæmt
sérstökum iögum.
2) Sérákvæði eru í lögum um lágmarksfiölda
stofnfjáreigenda f sparisjóði og um tak-
mörkun á atkvæðisrétti.
3) Sjá ákvæði 10.-12. gr. laga nr. 113/1996
og aths. við þær greinar.
4) Osama bin Ladin er alþjóðlega eftirlýstur
hryðjuverkamaður.
5) Önnur bankatilskipunin, 11. gr.
Pantaðu núna
® 555 2866
Kays - Argos - Panduro
B.Magnússon
Fax 565 2866 • bm@vortex.is
Þakrennur
og rör
úr Plastisol-
vörðu stáli.
Heildarlausn á
þakrennuvörnum
í mörgum litum.
SSBA
BUKKAS hf
Símar 557 2000 og 557 7100
Skemmuvegi 36 Bleik gata
Kópavogi
SUNNUDAGUR 29. ÁGÚST 1999 35
AFMÆLIS VIKA
í dag hefst afmælisvikan og stendur til 4. sept.
1 0-50% afsláttur
Koffortið
Sími 555 0220,
Strandgötu 21,
Hafnarfirði.
Sjón er sögu ríkari
. Máinmiiarbúðin t
Sími 431 2457,
Kirkjubraut,
Akranesi.
Vikuveisla til
Costa
del Sol
14. sept. frá
kr. 29.955
sæii á
sértilboði,
Heimsferðir bjóða nú einstakt
tækifæri á síðustu sætunum til
Costa del Sol í haust. Vikurispa til"
Costa del Sol á hreint frábærum kjörum á E1 Pin-
ar-íbúðahótelinu, góðu íbúðahóteli með öllum aðbú-
naði. Allar íbúðir með sjónvarpi, síma, loftkælingu,
eldhúsi og baði. Á hótelinu er stór sundlaugargarður,
líkamsrækt, tennisvellir og bamaleikvöllur. Og á með-
an á dvölinni stendur getur þú farið í spennandi kynn-
isferðir með fararstjórum Heimsferða.
29.955
Verð kr.__________________
M.v. hjón með 2 böm, 2-11 ára,
14. september, vika
Verð kr 39,990
M.v. 2 í stúdíó,
14. september, vika
El Pinar
Austurstræti 17, 2. hæð • Sími 562 4600 • www.heimsferdir.is