Morgunblaðið - 29.08.1999, Síða 55

Morgunblaðið - 29.08.1999, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ MYNPBÖND Váleg veður Stormurinn (The Storm) ______ Spennumynd ★★ Leikstjórn: Vincent Spano. Aðalhlut- verk: Luke Perry og Martin Sheen. 100 mfn. Bandarísk. Myndform, ágúst 1999. Aldurstakmark: 16 ár. HEGÐUN veðurguðanna hefur verið með undarlegra móti síðastliðin ár og fyrirbærið „E1 Nino“ oft sak- fellt fyrir ósköpin. Þessi mynd setur fram aðra skýringu á veðurhamfórun- um, þar sem vondir menn nýta vísindin til myrkraverka. Þetta er sæmileg sjónvarpsmynd sem á góða spretti inni á milli, en nær ekki að hossa sér yfír meðallagið. Martin Sheen virðist vera að festast í þessari tegund kvikmynda og er orð- ið langt síðan hann hefur birst í nokkru betra. í heild séð er þetta óskapleg flatneskja og ekkert sér- stakt sem stendur upp úr, eða niður úr ef út í það er farið. Rétt þokkaleg afþreying sem óhætt er að taka ef lít- ið er um betri kosti í hillunum. Guðmundur Asgeirsson Goðsögnin um Artúr Töfrasverðið (The Magic Sword)_______ Teiknimynd ★★ Leikstjórn talsetningar: Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir. Leikraddir: Arnar Jónsson, Edda Heiðrún Back- nian, Valur Freyr Einarsson. 83 mín. Bandarísk. Warner-myndir, ágúst 1999. Öllum leyfð. TÖLVUTÆKNIN hefur hleypt kraftmiklu lífí í teiknimyndagerð síð- ustu ára og hefur fjöldi stórra teikni- mynda komið út undanfarið. Flestar þeirra falla í þann fúla pytt að drekkja efnilegum sögum í viðamikl- um, löngum dans- og söngvaatriðum ættuðum úr banda- rískri söngleikja- hefð. Fyrir þá sem er illa við slík atriði er „Töfrasverð- ið“ erfíð þolraun, þrátt fyrir skemmtilegt ævintýrið sem verið er að flytja. Að þessum leiðindum slepptum er um ekta fína teikni- mynd að ræða. Persónur eru sígild- ar, vel unnar og ágætlega raddsettar af góðum hópi leikara, sem flestir eru orðnir vel sjóaðir í þessari ný- legu grein leiklistarinnar. Efniviður sögunnar er sóttur í goðsagnir um Artúr konung og kappa hans, sem reyndar standa sig heldur dapurlega hér og þurfa umtalsverða aðstoð frá hópi ólíklegra hetja sem auðvitað ná að bjarga málunum, svo ég kjafti að- eins frá. Myndin er fín fyrir börnin en vart í meðallagi fyrir aðra vegna fyrirferðamikils tónlistargalla. Guðmundur Ásgeirsson FÓLK í FRÉTTUM Jon & uppboð VICTORIA Major sést hér halda á mynd af John Brown sem var hollur aðstoðarmaður Viktoríu Bretadrottningu til marp-a ára. Það var hinn austurríski listmálari Heinrich Von Angeli sem málaði myndina árið 1877 en hún verður boðin upp þann 31. ágúst og er vonast til að rúmlega níu miiyónir fáist fyrir hana. HUGUOMUN SJALFSÞEKKINGAR „Enlightenment Intensive" Námskeið í Bláfjöllum 16. til 19. september. Hugljómum sjálfsþekkingar er öflugt námskeið sem stendur yfir í 3 sólar- hringa, þar sem þátttakandinn hugleiðir eino af iykilspurningum lífsins. Markmiðið er að hann öðlist milliliðalausa upplifun af sannleikanum um það hver hann er, hvað hann er, hvað annar er, hvað lifið er eða hvað kærleikur er. Tækni sem notuð er til að nó þessu markmiði sameinar aldagamla hugleiðslulækni og bein tjóskipti tveggja einstaklinga í skipulögðu kyrrlótu umhverfi. Síðastliðin 30 ór hefur námskeiðið hjálpað þúsundum manna til aukinnar meðvitundar, betri samskipta og meiri lífshamingju. Leiðbeinandi Guðfinna S. Svavarsdóttir. Nánari uppl. og skráning hjá Guðfinnu í sima 562 0037 og 869 9293, Rögnu Margréti Norðdahl, s. 564 3118 og 891 8186, Óttari Ellingsen, 554 3930 og 899 5589. BRIDSSKÓLINN Námskeið á haustönn Byrjendur: Hefst 14. september og stendur yfir í 10 þriðjudagskvöld, þijár klukkustundir í senn, frá kl. 20-23. Á byrjendanámskeiði Bridsskólans er ekki gert ráð fyrir neinni kunnáttu og ekki er nauðsynlegt að hafa með sér spilafélaga. Það geta allir lært að spila brids, en það tekur svolítinn tíma að ná tökum á grundvallarreglum Standard- sagnkerfisins. Það er fólk á öllum aldri og af báðum kynjum sem sækir skólann. Kennslubók fylgir námskeiðinu. Framhald: Hefst 16. september og stendur yfir í 10 fimmtudagskvöld, þrjár klukkustundir í senn, frá kl. 20-23. Standard-sagnkerfið verður skoðað í smáatriðum, en auk þess verður mikil áhersla lögð á vamarsamstarfið og spilamennsku sagnhafa. Ný bók, Nútíma brids, eftir Guðmund Pál Amarson, verður lögð til grundvallar. Kjörið fyrir þá sem vilja tileinka sér nútímalegar aðferðir og taka stórstígum framfömm. Ekki er nauðsynlegt að hafa með sér spilafélaga. Nánari upplýsingar og innritun í síma 564 4247 milli kl. 13 og 18 virka daga. Bæði námskeiðin em haldin í húsnæði Bridssainbands íslands, Þönglabakka 1 í Mjódd, þriðju hæð. SUNNUDAGUR 29. ÁGÚST 1999 55 Ratcatcher Rottuveiðarinn myna sem fékk mikla athygli á kvikmynda- hátíðinni í Cannes i vor. Einn efnitegasti kvikmyndateikstjóri í Evrópu i dag. Sýnd Sunnudag 29. kl. 9 Mánudag 30. kl. 5 Priðjudag 31. kl. 7 GadjoDfioJ m Kleine Teun 1 f »1 »fc H i h É fc M f|;gg§ i'. •s ■f Sýndar í Háskólabíói í

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.