Morgunblaðið - 03.09.1999, Side 2
2 FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Skuldir aukast um 4,3 milljarða vegna hærra bensínverðs
Kaupmáttur rýrnar
og greiðslubyrði eykst
SKULDIR heimilanna hækka um
4,3 milljarða kr. veg'na áhrifa bens-
ínverðshækkana á vísitölu neyslu-
verðs á árinu. Hækkandi heims-
markaðsverð á bensíni skerðir því
verulega kaupmátt heimilanna og
fyrir utan bein áhrif bensínhækk-
ana á útgjöld heimilanna eykst
greiðslubyrði þeirra vegna skulda.
Ríkissjóður fær stærri hlut hækk-
ananna í sinn hlut og bankarnir
munu einnig fá verulegan tekju-
auka vegna vísitölutengingar lána
heimilanna.
Hagdeild Alþýðusambands ís-
lands hefur tekið saman nokkrar
staðreyndir um áhrif nýlegra
hækkana á bensínverði. Vakin er
athygli á því að ríkissjóður leggi
þrenns konar gjöld á bensín, auk
virðisaukaskatts.
Skattheimta eykst
Lagt er 97% vörugjald á inn-
kaupsverð bensíns. I forsendum
fjárlaga var gert ráð fyrir óbreyttu
heimsmarkaðsverði á bensíni og
átti vörugjaldið að skila tæpum
tveimur milljörðum króna, svipaðri
upphæð og á síðasta ári. Sérstakt
vörugjald af bensíni, svokallað
bensíngjald, er lagt á hvern seldan
lítra og renna tekjurnar til Vega-
gerðarinnar. Bensíngjaldið er
28,60 kr. eftir hækkun 1. júlí síð-
astliðinn. Gert var ráð fyrir að
bensíngjald skilaði 400 milljónum
kr. meira í ríkissjóð í ár en síðasta
ár, eða um 5,5 milljörðum kr.
Þriðja gjaldið er flutningsjöfnunar-
gjald, 0,65 krónur á hvern lítra.
Forsendur fjárlaga ársins gerðu
ráð fyrir að flutningsjöfnunargjald-
ið skUaði svipuðu í ríkissjóð og á
árinu á undan, eða 688 milljónum
kr. Ofan á vörugjald, bensíngjald
og flutningsjöfnunargjald leggst
svo virðisaukaskattur.
Hagdeild ASÍ vekur á því at-
hygli að dragi verðhækkanir ekki
umtalsvert úr bensínsölu hljóti
tekjur ríkissjóðs vegna bensín-
hækkana að aukast verulega um-
fram forsendur fjárlaga þar sem
vörugjald og virðisaukaskattur eru
ákveðin hlutföll af bensínverði
hverju sinni. Vakin er athygli á því
að til að milda áhrif verðhækkana
gæti ríkissjóður beitt skattlagn-
ingu sinni á bensín til þess að jafna
sveiflur á bensínverði innanlands í
stað þess að auka áhrif þeirra eins
og nú er.
Ekki verðsamkeppni
Fram kemur í greinargerð hag-
deildar ASÍ að athygli veki að
bensínverð hækki jafnt hjá öllum
olíufélögunum, miðað við þjónustu,
en einhver munur sé á verði í
sjálfsþjónustu. „Síðan bensínverð
var gefið frjálst 1992 hafa olíufé-
lögin nær undantekningarlaust
hækkað bensínverð jafn mikið. Svo
virðist sem samkeppni á bensín-
markaði byggist ekki á verðsam-
keppni heldur vöruúrvali á sölu-
stöðum." Fram kemur að olíufélög-
in hafi hækkað álagningu á bensín
á síðasta ári og að hún sé 126% of-
an á innkaupsverð.
Skotveiðimenn ræða um gæs og Eyjabakka
Mikilvægasti
fjaðrafellistaður
heiðagæsa
SKOTVEIÐIFÉLAG íslands stóð
fyrir opnum fundi um heiðagæsina
og Eyjabakka á Hótel Borg í gær-
kvöld. Sigmar B. Hauksson, for-
maður Skotveiðifélags Islands,
sagði ástæðu til að hafa verulegar
áhyggjur af heiðagæsinni ef til
virkjunarframkvæmda kæmi og
gagnrýndi harðlega orð umhverfis-
ráðherra í þá veru að heiðagæsin
færi bara eitthvað annað.
Formaðurinn kvað sjónarmið
Austfirðinga um að vilja nýta orku-
lindir skiljanleg og mikilvægt væri
að umhverfissinnar og íbúar Aust-
urlands gætu haldið uppi málefna-
legri umræðu. Milli 80-90 manns
sóttu fundinn.
Kristinn Haukur Skarphéðins-
son líffræðingur hélt erindi um
heiðagæsina norðan Vatnajökuls,
á „langmikilvægasta fjaðrafelli-
stað sem þekktur er“. Hann sagði
að ekkert væri vitað hvernig
heiðagæsinni myndi reiða af eftir
að Eyjabökkum yrði sökkt undir
lón en að fjaðrafellistaðir heiða-
gæsa væru „takmörkuð auðlind".
Hann benti á að skilyrði mundu
breytast stórkostlega við Eyja-
bakkalón og sá gróður sem kæmi
hugsanlega í staðinn mundi ekki
henta gæsinni.
Dr. Peter Prokosch skýrði sjón-
armið World Wildlife Fund en
hann fer fyrir svokölluðu „heim-
skauta-verkefni" samtakanna sem
felst í því að vernda ósnortin svæði
á norðurslóðum. Hann benti á að
svæðið norðan Vatnajökuls væri
stærsta ósnortna svæði í Vestur-
Evrópu og því mikilvægt íslend-
ingum, Evrópubúum og í raun
jarðarbúum öllum.
Steingrímur J. Sigfússon harm-
aði umræðu um málið í fjölmiðlum
undanfarið þar sem því væri stillt
upp í svarthvítar andstæður:
„Virkjun eða dauði.“ Hann sagði að
hugmyndir um 4-500 þúsund tonna
álver kölluðu óumflýjanlega á
Kárahnúkavirkjun.
Síðastur á mælendaskrá var Jón
Kristjánsson. Hann mælti með lýð-
ræðislegum umræðum og sam-
þykkti að virkjunarmál þyrftu end-
urskoðunar við vegna breyttra við-
horfa. Hvað heiðagæsina varðaði
benti hann á að umferð um svæðið
hefði margfaldast og Eyjabakkar
væru því ekki lengur sami griða-
staður gæsarinnar og áður. Varð-
andi Fljótsdalsvirkjun sagði hann
„atvinnu- og byggðasjónarmið
vega þyngra en náttúruvemdar-
sjónarmið".
*
Skákþing Islands
Hannes H.
og Jón G.
efstir
ÞRIÐJA umferð á Skákþingi
Islands var tefld í húsakynnum
Taflfélags Reykjavíkur í gær
og voru helstu tíðindin þau að
Hannes Hlífar Stefánsson
sigraði Róbert Harðarson, en
hvorugur þeirra hafði tapað er
umferðin hófst í gær.
Önnur úrslit í landsliðsflokki
urðu þau að Þröstur Þórhalls-
son sigraði Braga Þorfinnsson,
Helgi Ass Grétarsson sigraði
Sævar Bjarnason, Björn
Þorfinnsson sigraði Jón Viktor
Gunnarsson, Davíð Kjartans-
son sigraði Sigurbjörn Björns-
son og Jón Garðar Viðarsson
sigraði Bergstein Einarsson.
Eftir þrjár umferðir eru þeir
Hannes Hlífar og Jón Garðar
efstir með 3 vinninga, Helgi
Ass er í þriðja sæti með 2,'Æ
vinning og Róbert í því fjórða
með 2 vinninga.
Þriðja umferð í kvennaflokki
var einnig tefld í gær og sigr-
aði Harpa Ingólfsdóttir Aldísi
Rún Lámsdóttur, Anna Björg
Þorgrímsdóttir sigraði Stein-
unni Kristjánsdóttur og Ingi-
björg Edda Birgisdóttir sigi’-
aði Onnu Margréti Sigurðar-
dóttur.
Staðan að loknum þremur
umferðum er þannig að Ingi-
björg og Anna Björg eru efst-
ar með 2 vinninga.
Utanríkisráðherra með ræðismönnum
í nýju sendiráði Islands í Berlín
AP-mynd
Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra og Ingimundur Sigfusson,
sendiherra í Berlín, ásamt ræðismönnum íslands í Þýskalandi, Austur-
ríki og Sviss fyrir framan nýja sendiráðsbyggingu Islands í Berlín.
Ræðismenn
mikilvægir fyrir
fámenn lönd
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra átti í gær samráðsfund
með ræðismönnum íslands í
Þýskalandi, Austurríki og Sviss.
Fundurinn var haldinn í húsakynn-
um nýrrar sendiráðsbyggingar Is-
lands í Berlín.
Ingimundur Sigfússon, sendi-
herra íslands í Berlín, sýndi Hall-
dóri Ásgrímssyni húsakynni nýs
sendiráðs íslands. Formleg opnun-
arathöfn sameiginlegs sendiráðs-
svæðis Norðurlanda og sendiráð-
anna fímm fer fram 20. október að
viðstöddum þjóðhöfðingjum Norð-
urlanda.
I ræðu sinni á fundinum minntist
Halldór heimsóknar sinnar til
Berlínar fyrir fall Berlínarmúrsins
og þeirra miklu breytinga sem átt
hafa sér stað í Evrópu á tæpum
áratug. Hann áréttaði mikilvægi
samstarfs Islands við Þýskaland,
Austurríki og Sviss og vakti at-
hygli á mikilvægi ræðismanna fyrir
fámenna utanríkisþjónustu og
þakkaði ræðismönnunum fyiár
ómetanlegt starf í þágu Islands.
Þátttaka í Expo 2000
Utanríkisráðherra greindi ræð-
ismönnunum frá áherslum ís-
lenskra stjórnvalda í Evrópumál-
um og öryggismálum og sérstöðu
landsins gagnvart Evrópusam-
bandinu. Þá voru þeir upplýstir
um formennsku íslands í Évrópu-
ráðinu og Norrænu ráðherra-
nefndinni.
Sverrir Haukur Gunnlaugsson,
ráðuneytisstjóri í utanríkisráðu-
neytinu, flutti erindi um viðskipta-
tengsl Islands með áherslu á starf-
semi viðskiptaþjónustu og starf
viðskiptafulltrúa í sendiráðum
landsins. Sagði hann einnig frá
fyrirhugaðri þátttöku í heimssýn-
ingunni Expo 2000 í Hannover.
Einnig var dagskrá Reykjavíkur -
menningarborgar Evrópu árið
2000 kynnt og sagt frá starfsemi
Flugleiða, meðal annars beinu
flugi til Berlínar frá og með júní á
næsta ári.
Snjókoma á
hálendinu
SNJÓKOMA var á Hveravöll-
um aðfaranótt fimmtudags, en
er líða fór á morguninn hlýnaði
heldur og fór að rigna, sam-
kvæmt upplýsingum frá Veð-
urstofunni.
Éljagangur og skafi-enning-
ur var víða á hálendinu þessa
nótt og hiti um frostmark, en
að sögn veðurfræðings er
þetta tíðarfar ósköp eðlilegt
miðað við árstíma. „Haustið er
komið," sagði hann.
Sérblöð í dag
www.mbl.is
SSÍMIR
ÁFÖSTUDÖGUM
Iff
Spennandi keppni í
alþjóðarallinu / C3
Lithái í handknattleiks-
lið Fram / C1