Morgunblaðið - 03.09.1999, Qupperneq 24
24 FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1999
UR VERINU
MORGUNBLAÐIÐ
Skipaskrá á Netið
Þrír flokkarar seldir. Kaupendurnir Jóhann Jóhannsson, Fiskveri, Hannes Sigurðsson, Veri, og Einar
Sigurðsson, Auðbjörgu, með seljendunum, Jónasi Ágústssyni, Hilmari Sigurgíslasyni og Guðmundi
Kristinssyni, frá Eltaki.
Eltak selur 3 flokkara
SKERPLA, sem hefur gefið út Sjó-
mannaalmanak Skerplu undanfarin
ár, hefur sett skipaskrána á Netið.
Þórarinn Friðjónsson framkvæmda-
stjóri fyrirtækisins segir að þetta sé
fyrsta skipaskrá sem er opin al-
menningi í heiminum. „Við höfum
fundið fyrir mikinn áhuga á þessari
þjónustu - bæði frá þeim sem starfa í
geiranum sem og þeim sem hafa
áhuga á skipum og sögu þeirra.“
Hægt er að fá allar helstu upplýs-
ingar um skipin, stærð, sögu, kvóta-
stöðu og fleira í þeim dúr. Þórarinn
segir að vefurinn sé enn í vinnslu og
verði viðameiri þegar á líður. „Við
stefnum að því að geta boðið upp á
upplýsingar um hver kvótastaða
skipanna verði á hverjum degi - við
munum leggja okkur fram við að
þróa síðuna eftir þörfum notenda
eftir fremsta megni.“
ELTAK hefur gengið frá sölu
þriggja saltfískflokkara frá Póls til
þriggja fyrirtækja í Þorlákshöfn og
á Eyrarbakka. Heildarverðmæti
nemur um 11 milljónum króna án
virðisaukaskatts. Sölusamningurinn
var undirritaður á fyrsta degi Is-
lenzku sjávarútvegssýningarinnar.
Jónas Agústsson, framkvæmda-
stjóri Eltaks, segir að það hafi verið
hagur beggja, kaupenda og selj-
anda, að gera samning um þrjá
flokkara í einu. Eltak hefur nú selt
23 flokkara frá Póls á einu og hálfu
ári.
„Við höfum það eftir viðskiptavin-
um okkar að þeir séu að stytta þann
tíma sem fer í pökkun um helming
og spari einnig mannskap við flokk-
unina. Því borgi ílokkararnir sig
upp á nokkuð skömmum tíma. Það
eru margir flokkarar frá Póls á Suð-
urnesjum og hafa menn góða
reynslu af þeim þar,“ segir Jónas
Ágústsson.
Jónas er ánægður með íslenzku
sjávarútvegssýninguna og segir að
allt sem stjórnendur hennar, Nexus
Media, hafi sagt, hafi staðizt. „Að-
stæður eru allar hinar beztu og ég
vona að þetta eigi eftir að ganga vel
hér í Smáranum," segir Jónas.
Kaupendur flokkaranna eru
Fiskver á Eyrarbakka, Auðbjörg og
Ver í Þorlákshöfn. Kaupendurnir
segja að góð reynsla sé af þessum
flokkurum. Vörurnar frá Póls séu
góðar og traustar. Þess vegna hafi
þeir sameinazt um kaupin.
flu?fela?.is
Fráfaær
Nýr o^læsile^ur
netklúbbstilboð
FLUOFÉLAG ÍSLANDS
- fyrir fólk eíns og þig!
Vinnslustöðin í Þorlákshöfn
Frostfískur kaupir
frystihúsið og bát
Vinnslustöðin eignast jafnframt
40% hlut í Frostfíski
Fengu tvo væna físka rétt austan Eyja
FROSTFISKUR ehf. hefur selt
Vinnslustöðinni hf. í Vestmannaeyj-
um 40% hlut í félaginu. Frostfiskur
kaupir togbátinn Danska Pétur VE
af Vinnslustöðinni ásamt 500 tonna
kvóta og hefur þar með útgerð.
Einnig kaupir félagið fiskvinnsluhús
Vinnslustöðvarinnai' í Þorlákshöfn.
Frostfiskur gerir ráð fyrir að flytja
núverandi starfsemi sína frá Reykja-
vík til Þorlákshafnar á næstunni, þeg-
ar nauðsynlegum endurbótum og
endurskipulagningu á fiskvinnslunni
þar er lokið. Gert er ráð fyrir að fé-
lagið muni fjölga starfsmönnum við
flutninginn til Þorlákshafnar og að
þar muni starfa um 40 manns við fisk-
vinnslu. Ráðgert er að vinna úr u.þ.b.
5.000 tonnum af hráefni á ári.
Frostfiskur er sérhæft fiskvinnslu-
fyrirtæki sem hefur aðallega stundað
vinnslu og útflutning á kældum sjáv-
arafurðum og hefur náð góðum ár-
angri í sölu til Bretlands og Banda-
ríkjanna, að því er segir í fréttatil-
kynningu. Fyrirtækið hefur fram til
þessa unnið úr fiski sem keyptur hef-
ur verið á fiskmörkuðum og unnið úr
3.000-4.000 tonnum á ári. Félagið hef-
m' starfað í 7 ár og umfang starfsem-
innar hefur vaxið stöðugt ár fá ári.
Nú vinna um 25 manns hjá fyrirtæk-
inu. Hluthafar í Frostfiski ehf. eru
Sigurður Ágústsson ehf. Stykkis-
hólmi og Steingrímur og Þorgrímur
Leifssynir, sem einnig eru fram-
kvæmdastjórar félagsins.
Gunnar Sturluson, stjórnarfor-
maður Frostfísks ehf., segir að með
þessum aðgerðum styrkist staða fé-
lagsins verulega. Ennfremur breyt-
ist vinnslumynstur félagsins tals-
vert. I stað þess að kaupa fisk á fisk-
markaði verði lögð áhersla á að
vinna afla Danska Péturs, sem og
afla sem keyptur verði af útgerðar-
mönnum á grundvelli fastra löndun-
arsamninga
Tækifæri til að stækka
fyrirtækið
„Við erum að setja okkur niður í
nánd við ein gjöfulustu fiskimið á ís-
landi. Það er vandfundin betri stað-
setning en á hafnarbakkanum í Þor-
lákshöfn. Þarna fáum við tækifæri til
að stækka okkar fyrirtæki. Það er
nóg pláss í þessu húsi í Þorlákshöfn
en það þarf endurskipulagningar og
endurbóta við. Við verðum því að fara
rækilega ofan í þau mál. Við munum
hinsvegar flýta öllum framkvæmdum
eins og við mögulega getum og helst
vera flutt austur fyrir fjall innan
tveggja mánaða,“ segir Gunnar.
Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson,
framkvæmdastjóri Vinnslustöðvar-
innar hf., segist líta svo á að félagið
sé með sölu þessara eigna að ganga
til samstarfs við framsækið og öflugt
fyrirtæki. „Við vildum selja þessar
eignir og þarna fundum við flöt sem
við teljum mjög áhugaverðan. Við
höfðum hug á að flytja út ferskan
fisk en töldum kostnaðinn við að
koma upp markaðstengslum og þess
háttar of mikinn. Okkur fannst því
skynsamlegra að fara út í slíkt með
öðrum sem kunna vel til verka.“
Sigurgeir segir ekki útilokað að
skip Vinnslustöðvarinnar leggi upp
afla hjá Frostfíski í Þorlákshöfn.
Byr landar um 20
tonnum af túnfiski
Á sýningunni. Haraldur Baldursson frá Vetti, Karl Eiríksson, forstjóri Bæðranna Ormsson og Skúli Karls-
son, deildarstjóri sama fyrirtækis.
Bræðurnir Ormsson hf.
festa kaup á Vetti ehf.
BRÆÐURNIR Ormsson hafa fest
kaup á öllum hlutabréfum í Vetti
ehf. - lyftaraþjónustu. Vöttur var
stofnað árið 1989 og hóf rekstur ári
síðai'. Fyrirtækið hefur sérhæft sig
í sölu og þjónustu á lyfturum og
hefur meðal annars á sinni könnu
hina þekktu Clark lyftara frá
Þýskalandi. En Clark verksmiðjan
framleiddi fyrsta lyftarann að talið
er fyrir áttatíu árum. Karl Eiríks-
son hjá Bræðrunum Ormsson segir
að Vöttur falli ákaflega vel að
rekstri fyrirtækisins. „Þetta var
mjög spennandi möguleiki sem við
gátum ekki litið framhjá. Clark lyft-
aramh' eru þekkt gæðamerki og
verður góð búbót í okkar rekstur.“
Haraldur Baldursson, einn fyiT-
verandi eigenda Vattar, segir
ástæðuna fyrir sölunni vera ein-
falda. „Fyrirtækið hafði stækkað
mun hraðar og meira en við réðum
við. Þess vegna sáum við þörf á því
að ganga inn í annað fyrirtæki.
Bræðumir Ormsson voru ákjósan-
legii'. Þetta er sterkt og traust fyr-
irtæki sem hefur mikla reynslu og
hefð: Ekki skemmir fyrir að fyrir-
tækið hefur góð tengsl við Þýska-
land. Enn fremur er mikils virði að
fá til viðbótar við okkai' tæknifólk,
þrjá góða fagmenn.“
Allii- starfsmenn Vattar munu
starfa hjá Bræðrunum Ormsson
þannig að ekki verður um eðlis-
breytingu á sölu fyrirtækisins og
þjónustu á lyfturunum. Karl segir
að starfsemi Vattar muni færast til
þeirra en ekki hefur verið ákveðið
hvort Vöttur muni starfa áfram
undir eigin nafni.
BYR VE kom með um 20 tonn af
túnfiski til Vestmannaeyja á þriðju-
dag en ekki fékkst leyfi til að landa
þar fyrr en í dag, föstudag, þar sem
eigandi frystigámsins vildi hafa
danskan eftirlitsmann við löndunina.
Aflinn verður seldur til Japans og er
líklegt að aflaverðmætið sé um 40
milljónir króna.
Byr hélt á túnfiskveiðar suður í
Atlantshaf fyrir sex_ mánuðum og
hefur síðan nálgast Island jafnt og
þétt. Frá 4. ágúst hefur skipið verið
að veiðum með japönskum tilrauna-
veiðiskipum suður af landinu, um og
innan við landhelgislínuna. Á þessum
tíma hefur skipið fengið um 3,6 tonn
og segir Sævar Brynjólfsson útgerð-
armaður að það sé svipað og
japönsku skipin hafa veitt. Áður en
Byr kom til Eyja var ein lögn lögð í
kantinum austan við Eyjar og feng-
ust tveir vænir bláuggar, annar 140
kg og hinn 186 kg.
Að sögn Sævars má ekkert út af
bregða við löndunina. Rakastigið
verður að vera rétt í gámnum, ekki
má rigna og ekki má vera of mikill
vindur. Verði of mikill raki í gámn-
um dettur frostið niður og vegna
þessa vill eigandi hans hafa danskan
sérfræðing við löndunina. „Þetta
kom allt í einu upp og við verðum að
bíða enn frekar,“ segir Sævar, en
ekki var hægt að landa í byrjun
ágúst þar sem gámurinn var ekki
kominn eins og til stóð.
Talið er að heimsmarkaðsverðið á
túnfiskinum sé um 2.000 krónur á
kílóið og verður gámurinn sendur
sjóleiðina til Japans.