Morgunblaðið - 03.09.1999, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1999 37
UMRÆÐAN
flugvellinum. Jafnframt verði settar
upp myndavélar eða annar sam-
bærilegur búnaður til þess að fylgj-
ast með og tryggja að reglum um
flughæð og stefnu í aðflugi og frá-
flugi sé framfylgt.
c) I tillögu að flugmálaáætlun
fyrir tímabilið 2000-2003, sem sam-
gönguráðherra leggur íyrir Alþingi
í haust, verði gert ráð fyrir að
snertilendingar í æfínga- og
kennsluflugi flytjist á flugvöll í
hæfilegri fjarlægð frá Reykjavík.
Þar með ætti flugtökum og lending-
um á Reykjavíkurflugvelli að fækka
verulega. Til að ná þessu markmiði
kemur annað hvort til greina að
breyta eldri flugvöllum eða að
byggja nýja snertilendingaflugvöll.
Flugvöllurinn verði hannaður með
það í huga að hægt verður að þróa
hann til víðtækari nota fyrir t.d. æf-
inga-, kennslu- og einkaflug.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
Sturla Böðvarsson
Eins og sjá má af bókuninni var
enginn fyrirvari gerður af hálfu
borgarstjóra um endurbyggingu
flugvaliarins og það skipulag sem
skal gilda um flugvallarsvæðið. Af-
staða borgarstjóra og tillögur um að
láta kjósa um framtíð vallarins á
næstunni kom því mjög á óvart og
hlýtur að kalla á viðræður um málið
á milli samgönguráðuneytis og
borgaryfirvalda á nýjum forsend-
um.
Stefna borgarinnar
kynnt á heimasíðu
Á heimasíðu Reykjavíkurborgar
sem er öllum opin sem hafa aðgang
að Netinu er stefna borgarinnar og
þá væntanlega borgarstjóra kynnt.
Þar segir um Reykjavíkurflugvöll:
“Reykjavíkurflugvöllur er mikil-
vægasta samgöngumannvirki borg-
arinnar og landsins í heild. Því ber
að efla innanlandsflug og samgöng-
ur sem tengjast því með byggingu
samgöngumiðstöðvar við flugvöll-
inn, sem einnig þjóni hópferðum út á
land, SVR, bílaleigum og leigubílum
auk upplýsingamiðlunar fyrir ferða-
menn.“ I þessum texta fer ekkert á
milli mála hver er vilji R-listans um
framtíð Reykjavíkurflugvallar.
Það vekur því furðu þegar borg-
arstjóri og helsti talsmaður borgar-
innar í skipulagsmálum leggja nú til
að kosið verði um hvort flugvöllur-
inn verði áfram eftir að búið er að
endurbyggja hann og jafnvel
byggja flugstöð og umferðarmið-
stöð við völlinn eins og borgarstjóri
stefnir að samkvæmt því sem kynnt
er á heimasíðu borgarinnar og ég
hef vakið athygli á að sé nauðsyn-
legt.
Upphlaup borgarstjórans vekur
furðu. Nú liggur fyrir samþykkt
skipulag og framkvæmdaleyfi
Reykjavíkurborgar vegna þeirra
framkvæmda sem svo lengi hafa
staðið fyrir dyrum. Þess er að
vænta að borgarstjóri nái áttum og
skýri fyrir borgarbúum hvers
vegna borgarstjóm hefur ákveðið
að Reykjavíkurflugvöllur verði
áfram í Vatnsmýrinni og við hann
rísi nauðsynleg þjónustumannvirki
svo sem skipulagið gerir ráð fyrir.
Höfundur er samgönguráðherra.
Saga úr íslensku viðskiptalífí
VORIÐ 1996 deildu
tvær sjónvarpsstöðvar
í einkaeigu, Stöð 2 og
Stöð 3, um aðgang að
sjónvarpsrásum. Jón
Olafsson, kenndur við
Skífuna, var stjómar-
formaður rekstrarfé-
lags Stöðvar 2. Út-
varpsréttamefnd
hafði með úthlutun
rásanna að gera og
framkvæmdastjóri Al-
þýðubandalagsins átti
sæti í nefndinni.
Undirritaður var á
þessum tíma ritstjóri
Vikublaðsins, sem Al-
Páll Vilhjálmsson
þýðubandalagið gaf
út. Ritstjóm og
flokksskrifstofa not-
uðu sama símkerfið.
Seint í apríl þetta vor
stóð fyrir dyram mik-
ilvægur fundur út-
varpsréttamefndar.
Þá var hringt frá inn-
heimtudeild íslenska
útvarpsfélagsins,
rekstraraðila Stöðvar
2, og spurt um fram-
kvæmdastjóra Al-
þýðubandalagsins.
Undirritaður varð til
svara, sagði fram-
kvæmdastjórann ekki
Vidskiptahættir
Viðkomandi starfsmaður,
segir Páll Vilhjálmsson,
kvaðst vera að rukka
skuld Alþýðubandalag-
--------7----------------
sins við Islenska útvarps-
félagið upp á 1.350
þúsund krónur.
við og spurði hvort ætti að skila ein-
hverju til hans. Viðkomandi starfs-
maður sagðist vera að rukka skuld
Alþýðubandalagsins við íslenska
útvarpsfélagið upp á eina milljón og
þrjú hundruð og fimmtíu þúsund
krónur. Starfsmaður sjónvarpsfé-
lagsins sagði að yfirmenn iyrirtæk-
isins legðu mikla áherslu á að fá
skuldina greidda strax og bað um
að framkvæmdastjóri Alþýðu-
bandalagins hefði samband hið
fyrsta.
Ástæða er til að halda þessu at-
viki til haga, enda veitir það innsýn
í viðskiptahætti sem flestir myndu
halda að tíðkuðust aðeins í banana-
lýðveldum. Hér með er það gert.
Höfundur er fulltrúi.
áttur o§ menníng
f
ratarvogsaagurinn
J,
111 i^u
4. september 1999
<cmm( i
Kl. 9:45
Lagt af stað frá Grafarvogskirkju kl. 9:45 og gengið að
gamla kirkjustæðinu (1150-1886) í Gufunesi.
Leiðsögumaður verður Anna Lísa Guðmundsdóttir frá
Árbæjarsafni. Boðið verður upp á sætaferðir með
Allrahanda til baka að Grafarvogskirkju og um hverfið
að lokinni guðsþjónustu.
aa
ínaini«sl>.
Kl. 11:00
Þjónað verður við altari gömlu kirkjunnar í Gufunesi
sem var aflögð 1886. Séra Vigfús Þór Árnason
sóknarprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Kór
Grafarvogskirkju syngur undir stjórn Harðar
Bragasonar organista og kórstjóra.
I [■' r o 11 a m í 1 oO r.\ l.\ rvojs
Kl. 13:30-16:00
Skólahljómsveit Grafarvogs setur menningarhátíðina
Afhending Máttarstólpans.
Árni Þór Sigurðsson formaður hverfisnefndar afhendir
menningarverðlaun Miðgarðs.
Grafarvogsglíman. Skólastjórar, lögreglan, o.fl. leiða
saman hesta sína í æsispennandi keppni. Dómarar
verða prestar hverfisins.
Léttsveifla. Kór Grafarvogskirkju syngur
Hundamenning Grafarvogs. Hundar úr hverfinu
sýna listir sínar á tennisvellinum
Og margt margt fleira....
Kl. 15:00-16:00
Leiksýning með Snuðru og Tuðru
Kl. 15:00
Hverfaskáldin með upplestur í hátíðarsal Fjölnis,
Kl. 17:00-21:00
Harmonikkuspil í veitingatjöldum
Veitingasala í umsjón stelpuklúbbs Grafarvogs.
Grillað á staðnum en allir geta komið með
eitthvað á grillið.
Hringekja, “Candy-flos“,hoppu-kastali, trampólín o.fl.
Andlitsmálning og blöðrur
Fornir leikir. Gestir spreyta sig
Glíma. Sýning á vegum Fjölnis
Hæsti klifurveggur landsins á súrheysturni.
Þrautabraut á vegum skátanna.
Brekkusöngur við varðeld í umsjá Dalbúa kl. 19:30
Flugeldasýning kl 21:00
?Tmtm<sUi<siaflc
ffálMffWSS
Frítt í sund allan daginn
Neðan”sjávar” tónlist spiluð í innilauginni
Kl. 13:00-16:00
Listamenn úr hverfinu verða með verk sín til sýnis og
sölu í anddyri sundlaugarinnar
Kl. 16:00-18:00
Þlötusnúðar þeyta skífuna í glæsilegu
sundlaugarpartýi í útilauginni.
)átll
mi<gS
im
Féwqs- oq
TomsTo l| D HH ícstöb
m
JÍL
MÐGARÐUR
í íþróttamiðstöð Grafarvogs
Kl. 21:00-24:00
Allir f fjölskyldunni eru hvattir til að mæta og skemmta
sér saman. Aðgangseyrir kr. 500.
Frítt fyrir 12 ára og yngri sem eru í fylgd með
fullorðnum
TREK CIUrSHIFT. C* KLEIN CATEYE SMimnnD'
Hjólaðu í nýtt hjól fráTrek, Gary Fisher eða Klein.
Topphjól með vönduðum búnaði og ævilangri
ábyrgð á stelli og gaffli. Hjól fyrir alla aldurshópa.
hjólaðu
i
nýtt
hjól