Morgunblaðið - 03.09.1999, Blaðsíða 48
-48 FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ENN ERU runnin
upp markverð tímamót
í íslenskum flugmál-
um. í dag er 80 ára af-
mæli flugs á íslandi.
Hinn 3. september
árið 1919, um kl. fimm
síðdegis, blés sunnan-
gola í Vatnsmýrinni,
himinn yfir Reykjavík
var alskýjaður og 14
stiga hiti. Nokkuð
venjulegt veður miðað
við árstíma en afdrifa-
ríkt spor var að
markast í íslandssög-
una. A þessum stað og
þessari stundu hóf
fyrsta flugvélin sig á
loft á íslandi. Þessi atburður er
sönnun fyrir því að íslendingar
fylgdust ótrúlega vel með framför-
um í flugmálum erlendis og voru
reiðubúnir að nota flugvélina sér til
framdráttar.
Arið 1903 flugu hinir heims-
frægu Wright-bræður fyrstu flug-
vél í heimi sem var bæði vélknúin
og unnt að stjórna. Það flug er talið
marka upphaf flugsins í hagnýtum
, skilningi. Fyrsta flug á Islandi var
aðeins 16 árum síðar sem er furðu-
lega snemma miðað við einangrun
landsins og að ýmsar stórþjóðir
voru komnar tiltölulega skammt á
veg í öðru flugi en því sem tengdist
hernaði.
I samanburði við önnur vélknúin
farartæki kom flugvélin líka býsna
fljótt til íslands. Tilraunir með
togveiðar sem ruddu brautina frá
handafli til vélarafls í atvinnulíf-
inu. Síðan kom fyrsta bifreiðin árið
^ 1913, sex árum fyrir fyrsta flugið
og einungis fimm árum áður var
Eimskipafélag íslands stofnað.
Fyrsti gasljósastaurinn sem tendr-
aður var í Reykjavík árið 1910
þótti meira að segja mikið tækni-
undur.
Flugið fyrirboði
nýrra tíma á fram-
faraskeiði
Fyrst kom alvar-
lega til umræðu að
stofna íslenskt flugfé-
lag árið 1918 í því
augnamiði að tryggja
mannafla og fjármuni
til að hefja flugrekst-
ur sem allra fyrst eftir
lok fyrri heimsstyrj-
aldarinnar. I styrjöld-
inni urðu margvísleg-
ar tækniframfarir í
flugi og augljóst að of-
framboð yrði á flug-
vélum sem myndi
þýða hagstætt verð og góð kjör. Af
ýmsum ástæðum tafðist þessi fyr-
irætlan fram til 1. mars árið 1919
er haldinn var formlegur undir-
búningsfundur um flugreksturinn
en þar var loks kosin sérstök
nefnd sem fékk það hlutverk að
hrinda hugmyndinni í framkvæmd.
Nú áttu mikilvægir atburðir sér
stað með skömmu millibili. Aðeins
þrjár vikur liðu þar til fyrri stofn-
fundur Flugfélags Islands var
haldinn og ekki leið nema vika til
viðbótar þar til flugfélagið var að
fullu stofnað og lög þess samþykkt
á framhaldsfundi. Hefur þetta fé-
lag verið nefnt Flugfélag Islands
nr.l.
Island var á hröðu framfara-
skeiði á þessum árum og sú stað-
reynd krafðist greiðari og fljótlegri
samgangna. Að vísu stefndi allt að
bættum samgöngum, jafnt á láði
sem á legi og auðvitað í lofti þar
sem hýru auga var rennt til flug-
tækninnar. Frumherjarnir hjá
Flugfélaginu vissu sem var, að
flugið gæti orðið mikið framtíðar-
mál og leikið lykilhlutverk á ís-
landi vegna þess hve landið var
ógreiðfært og strjálbýlt og þar með
Flugafmæli
Flugið á íslandi hefur
gert ómetanlegt gagn
fyrir vöxt og viðgang
þjóðarinnar, segir
Gunnar Þorsteinsson,
og það er eins og
flugstarfsemin sé
beinlínis sköpuð fyrir
Islendinga.
allar samgöngur með fádæmum
erfíðar.
Fyrsta flugvélin, fyrsti flugmað-
urinn, fyrsti flugfarþeginn
Fyrsta flugvélin sem lyfti sér af
íslenskri grund í Vatnsmýrinni fyr-
ir 80 árum var Avro 504K. Þessi
flugvélagerð var ein helsta
kennsluflugvél breska flughersins í
hartnær tvo áratugi og þær smíð-
aðar í þúsundatali. Þetta voru opn-
ar tvíþekjur sem gátu borið einn
farþega auk flugmanns og höfðu þá
þriggja tíma flugþol. Flughraðinn
var um 100 km á klst. Flugvélar
þessar voru knúnar einum 110
hestafla loftkældum stjömumynd-
uðum hreyfli af LeRohne-gerð, en
þeir voru mjög algengir, enda
traust og góð reynsla af þeim.
Avro-flugvélin kom loks hingað til
lands með skipi 26. ágúst.
Fyrsti flugmaður Flugfélagsins
kom til landsins rúmum mánuði áð-
ur en sjálf flugvélin sem seinkaði
þar sem erfitt var að koma henni í
skip. Hann hét Cecil Torben Faber
og var liðlega tvítugur en þrátt fyr-
ir sinn unga aldur hafði hann mikia
flugreynslu að baki. í fyrri heims-
styrjöldinni, árið 1915, gekk Faber
til liðs við breska flugherinn þar
sem hann náði síðar kapteinstign
og mun hafa skotið niður margar
þýskar flugvélar. Eins og nafnið
gefur til kynna var Faber danskur.
Faðir hans var Harald Faber, rík-
isráðunautur Dana í London. Þeg-
ar ófriðinum lauk var Faber ráðinn
til starfa sem fyrsti flugmaðurinn
hjá DDL en félagið lánaði hann til
starfa á Islandi. Faber hreif hugi
og hjörtu íslendinga og var al-
mennt talinn góður og gætinn flug-
maður.
Fyrsta farþegaflugið var farið að
kvöldlagi fyrsta flugdaginn. Fyrr
um daginn hafði Faber farið þrjár
ferðir: Reynsluflug, flug með flug-
vélavirkja sinn, og listflug.
Fyi-sti flugfarþeginn á Islandi
var Ólafur Davíðsson, útgerðar-
maður í Hafnarfirði, sem var vel
við hæfi, því hann hafði lagt drjúg-
an skerf af mörkum við undirbún-
inginn að stofnun Flugfélagsins.
Næsti farþegi var einnig Flugfé-
lagsmaður, sjálfur stjórnarfor-
maðurinn, Garðar Gíslason.
Tveimur dögum síðar flutti Flug-
félagið sinn fyrsta kvenkynsfar-
þega, eða flugstúlku, en það var
Ásta Magnúsdóttir, sem síðar varð
ríkisféhirðir.
Flugið bætir, kætir
og hressir
Flugstarfsemin í Vatnsmýrinni
lífgaði hressilega upp á bæjarlífið
og það ríkti eftirvænting á al-
mannafæri. Fólk kom í hópum til
að fylgjast með flugvélinni. Allur
þorri manna taldi flugið sjálfsagt
mál sem ætti bjarta framtíð fyrir
sér. Nýjungagjarnir og forvitnir
íslendingar létu ekki flughræðslu
aftra sér frá því að fara í stutt
kynnisflug. Flugfélagið seldi fimm
mínútna hringferð fyrir 25 krón-
ur.
Kynnisflugið var nokkuð vinsælt
því suma daga voru farþegar hátt í
tuttugu talsins. Eftir því sem far-
þegunum fjölgaði fór að koma
hversdagsbragur á flugið, enda á
tímabili daglegt brauð að sjá flug-
vélina á lofti yfir Reykjavík. Það
var gjarnan haft á orði um flugfar-
þegana að þeir væru uppstignir eða
hefðu verið gerðir upptækir. Fólk
hafði líka ýmis orð á hraðbergi um
flugvélina svo sem flugreiðin, loft-
reiðin, gandreiðin, töfraverkið eða
himnavagninn.
Rekstur Flugfélagsins reyndist
þungur í skauti. Árið 1919 fór
Avro-vélin í alls 146 ferðir á sextán
flugdögum. Síðan var hún tekin í
sundur og geymd í skýli félagsins
fram að sumrinu 1920 en þá var
henni flogið frá júnílokum fram að
miðjum ágúst. Það var svo síðla
árs 1920 að rekstur þessa fyrsta
flugfélags á Islandi stöðvaðist og
eignir seldar fyrir gjaldföllnum
skuldum. Avro-flugvélin var seld
danska hernum en flugskýlið
keypti heildverslunin H. Ben &
Co., sem flutti það úr Vatnsmýr-
inni.
Upphaf flugsins í Vatnsmýrinni
var meira framfaraspor en
nokkurn óraði fyrir og var tví-
mælalaust fyrirboði nýrra tíma hér
á landi. Þarna rættist óvenju
snemma langþráður draumur Is-
lendinga um að geta flogið. Is-
lenska flugsagan er hrífandi, allt
frá fyrsta flugfélaginu sem var svo
fallvalt til núverandi breiðþotu-
tímabils. Hún hefur meira að segja
ýmis einkenni sem prýða góðar
skáldsögur. Hún er saga mistaka
og vonbrigða en miklu fremur saga
um dug og djörfung, staðfestu og
síðast en ekki síst sigra.
Flugið á Islandi hefur gert ómet-
anlegt gagn fyrir vöxt og viðgang
þjóðarinnar og það er eins og flug-
starfsemin sé beinlínis sköpuð fyrir
Islendinga.
Til hamingju með 80 ára flug-
afmælið!
Höfundur starfar fyrir
Flugmálastjórn íslands.
____________________UMRÆÐAN_________
Flug á Islandi er 80 ára í dag
Gunnar
Þorsteinsson
*
HAUSTSPJALL
NÚ eru landsmenn að vakna upp
við þann vonda draum að sumarið
er rétt í þann veginn að syngja
sitt síðasta. Enn eitt sumarið
horfið áður en við er litið, sumar-
leyfum lokið (hér eftir heita fríin
hjá þeim, sem ekki sluppu út af
skrifstofum sínum í sumar, haust-
frí eða vetrarfrí) og skólarnir að
byrja. Vonandi hafa flestir náð sér
í dálitla brúnku þótt
undanrennublái hör-
undsliturinn hafi verið
ríkjandi hér sunnan-
lands, að minnsta
kosti framan af sumri.
Reyndar segja gár-
ungarnir að sumarið
hafi borið upp á mið-
vikudag í ár.
Garðeigendur hafa
flatmagað í görðum
sínum nú sem
endranær enda ekk-
ert sem segir að endi-
lega þurfi að flatmaga
í sólskini. Það má til
dæmis flatmaga við
arfahreinsun og
grannskoðun lágvaxinna blóma-
tegunda auk þess sem dýralífíð í
moldinni (fyrir þá sem hafa áhuga
á slíku) er illsjáanlegt nema í ná-
vígi.
Fyrirhyggjusamt fólk fer nú á
stúfana og fær sér gönguferð um
garðinn sinn með blýant og
merkispjöld sem hægt er að
stinga niður í blómabeðin. Fjölær-
ar jurtir eru þeirrar náttúru
gæddar að þær falla alveg niður í
jarðveginn að hausti og koma upp
aftur næsta vor. í millitíðinni er
ósköp fátt sem gefur til kynna
hvar þær fela sig þannig að það
BLOM
VIKUMAR
418. þáttur
limsjún Sigrfö-
iii' Hjartar
getur reynst þrautin þyngri að
finna þær að vori, ef nauðsyn
krefur. Nú er það svo að nauðsyn-
legt er að skipta fjölærum plönt-
um á nokkurra ára fresti. Þær
vaxa út frá miðjunni og með aldr-
inum deyr elsti hluti plöntunnar
þannig að nokkurs konar eyða
myndast í miðri plöntunni. Þá
þarf að taka plöntuna upp, skera
hana í nokkra búta,
gróðursetja einn bút-
inn á fyrri stað og
koma afgangnum á
vini og vandamenn.
Þetta er best að gera
snemma á vorin eða
um það leyti sem
plöntumar em að
byrja að koma upp.
Þar koma merid-
spjöldin sterk inn,
með því að ganga á
fjölæru hersinguna að
hausti og merkja þær
plöntur sem á að
skipta eða flytja er
hægt að ganga að
þeim vísum að vori.
Fræsöfnun er önnur skemmti-
leg iðja sem gjarnan fer fram á
þessum árstíma. Mikið af trjám,
rannum og fjölæram plöntum
hafa lokið blómgun sinni og náð að
mynda fræ. Best er að klippa
blómstöngla/blómskipanir við-
komandi plantna af í heilu lagi og
setja þær á hvolf í bréfpoka. Bréf-
pokinn þarf svo að standa eða
hanga á þurram og frekar hlýjum
stað þar til fræin detta úr hirslum
sínum. Að sjálfsögðu þarf að gæta
þess að fræin séu orðin þroskuð
áður en þau eru tínd. í sumum til-
fellum detta fræin ekki sjálf úr
Garðamaríustakkur - gullfallegur á haustin.
blómskipununum og þá þarf að
hreinsa þau með öðrum aðferðum,
allt eftir eðli hverrar tegundar.
Fræ algengustu trjátegunda er nú
ekki tímabært að tína fyrr en
lengra er liðið á haustið, þeim
veitir ekkert af tímanum til að
þroskast almennilega. Þó er rétt
að hafa varann á sér, fuglar eru til
dæmis fljótir að hreinsa berin af
reynitrjánum.
Yfirleitt vinna menn eftir þeirri
þumalputtareglu að ekki sé gott
að gefa áburð sem inniheldur mik-
ið köfnunarefni (N) eftir mitt
sumarið. Það getur platað plöntur
í áframhaldandi vöxt þannig að
þær ná ekki að ganga frá sér fyrir
veturinn. Þetta er þó ekki algilt.
Þegar líður á vaxtartímabil
plantna þurfa þær meira af kalí-
um (K) og fosfór (P) en minna af
köfnunarefni. Til einföldunar má
segja að fosfór sé nauðsynlegur
fyrir ræturnar og kalíum fyrir
blómgunina. Hlutfall kalíums í
plöntusafa eykst einnig fyrir vet-
urinn og virkar það eins og nokk-
urs konar frostlögur þannig að
plöntusafinn frýs síður. Það getur
því komið plöntum til góða að gefa
þeim smá áburðarslettu með þess-
um næringarefnum þegar haust-
ar, vel nærðar plöntur koma betur
undan vetri. Þó er rétt að ana ekki
út í slíka áburðargjöf nema að
höfðu samráði við garðyrkjumann.
Haustið er samt sem áður einn
fallegasti tími ársins og tilvalið að
nota það til útivistar í skjóli gróð-
urs í haustlitum, slíkar æfingar
verða einhvern veginn ekki eins
girnilegar þegar kólnar meira í
veðri og laufblöðin eru öll fokin
af...
Guöríður Helgadóttir,
garðyrkjufræðingur.